Sigrún Sjöfn: Vantaði upp á metnað hjá franska liðinu Sigrún Sjöfn Ámundadóttir skrifaði í dag undir samning við kvennalið KR í körfubolta. Sigrún Sjöfn sem lék í Frakklandi á síðustu leiktíð segir góða tilfinningu að vera komin í KR. Körfubolti 8. ágúst 2011 14:45
Sigrún komin heim og búin að semja við KR Sigrún Sjöfn Ámundadóttir skrifaði í hádeginu undir samning við KR í Iceland Express deild kvenna í körfubolta og mun spila með liðinu í vetur. Sigrún lék síðasta vetur með franska liðinu Olympique Sannois Saint-Gratien en var síðast í Hamar þegar hún spilaði síðast heima veturinn 2009-2010. Körfubolti 8. ágúst 2011 12:00
Grindavík dregur sig úr Iceland Express-deild kvenna Körfuknattleiksdeild Grindavíkur hefur ákveðið að draga lið sitt úr keppni í Iceland Express-deild kvenna í vetur og keppa í staðinn í 1. deildinni. Körfubolti 4. ágúst 2011 15:30
Ari verður aðstoðarmaður Hrafns hjá kvennaliði KR Ari Gunnarsson hefur verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks KR í körfuknattleik kvenna. Hrafn Kristjánsson verður áfram aðalþjálfari liðsins og Guðmundur Daði Kristjánsson er styrktarþjálfari. Ari skrifaði undir samning til tveggja ára hjá KR en hann hefur mikla reynslu af þjálfun eftir að hafa þjálfað mfl. lið Hamars og Vals á undanförnum árum. Körfubolti 6. júlí 2011 12:45
Bjarni Magnússon tekur við kvennaliði Hauka Bjarni Magnússon hefur verið ráðinn sem þjálfari meistraflokks liðs Hauka í kvennakörfuboltanum en hann tekur við af Henning Henningssyni sem sagði starfi sínu lausu. Bjarni var aðstoðarþjálfari Fjölnis í úrvalsdeild karla á síðustu leiktíð en hann lék með ÍA, Haukum og Grindavík í úrvalsdeildinni. Körfubolti 1. júlí 2011 10:45
Falur þjálfar kvennalið Keflavíkur - Pálína áfram í Keflavík Falur Harðarson hefur skrifað undir tveggja ára samning um að þjálfa kvennalið Keflavíkur en hann var aðstoðarmaður Jóns Halldórs Eðvaldssonar í vetur og hjálpaði liðinu að vinna þrefalt. Þetta kemur fram á heimasíðu Keflavíkur en þar kemur einnig fram að Pálína Gunnlaugsdóttir hafi skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið. Körfubolti 29. maí 2011 22:43
Helena Sverrisdóttir semur við Hauka Fremsta körfuboltakona landsins, Helena Sverrisdóttir, hefur skrifað undir samning við Hauka um að taka að sér þjálfun efnilegustu stúlkna Hauka í sumar ásamt að þjálfa á sumaræfingum Hauka. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Körfubolti 23. maí 2011 21:15
Fyrirliðarnir áfram hjá Snæfelli næsta vetur Pálmi Freyr Sigurgeirsson og Alda Leif Jónsdóttir, fyrirliðar meistaraflokka Snæfells í Iceland Express deildunum í körfubolta, skrifuðu í kvöld undir nýjan samning við Snæfellsliðið. Körfubolti 19. maí 2011 20:26
Bryndís búin að semja við KR - áfall fyrir Keflavík Kvennalið KR fékk mikinn liðstyrk í dag þegar landsliðskonan Bryndís Guðmundsdóttir skrifaði undir samning við KR-liðið. Bryndís átti frábært tímabil í vetur og var lykilmaður í þreföldum sigri Keflavíkurliðsins. Körfubolti 17. maí 2011 19:00
Kristrún í Val Ein af sterkari körfuboltakonum landsins, Kristrún Sigurjónsdóttir, hefur ákveðið að söðla um og er genginn í Val frá Hamri. Kristrún skrifaði undir tveggja ára samning við Valsmenn. Körfubolti 13. maí 2011 17:30
Ingi Þór búinn að semja við Snæfell til ársins 2014 Ingi Þór Steinþórsson framlengdi í gær samning sinn við Snæfell um tvö ár og mun því þjálfa karla- og kvennalið félagsins til ársins 2014. Ingi Þór var að klára sitt annað tímabil í Hólminum en hann gerði karlaliðið að tvöföldum meisturum á sínu fyrsta ári og í vetur vann liðið Lengjubikarinn og Meistarakeppnina. Körfubolti 30. apríl 2011 09:00
Ágúst kominn heim í Val - þjálfar kvennaliðið og yngri flokka Ágúst Björgvinsson hefur skrifað undir samning við Valsmenn um að þjálfa kvennalið félagsins og koma töluvert að barna- og unglingastarfi félagsins. Þetta kemur fram á heimasíðu Vals. Körfubolti 27. apríl 2011 19:58
Hildur Sigurðardóttir samdi við Snæfell Hildur Sigurðardóttir skrifaði í dag undir samning við Snæfell og mun hún leika með liðinu í úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik næstu tvö árin. Hildur hefur verið lykilmaður í KR-liðinu undanfarin ár en hún er fædd og uppalinn í Stykkishólmi og mun hún styrkja hið unga lið Snæfells gríðarlega. Jón Ólafur Jónsson skrifaði einnig undir tveggja ára samning við Snæfell í dag. Körfubolti 17. apríl 2011 17:15
Hrafn: Maður er hundsvekktur eftir svona tap „Ég er bara hundsvekktur eftir þetta tap,“ sagði Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, eftir að lið hans hafði tapað fyrir Stjörnunni, 107-105, í öðrum leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn. Staðan í einvíginu er því 1-1 og liðin eigast aftur við á sunnudaginn í DHL-höllinni. „Ég er bara hundsvekktur eftir þetta tap,“ sagði Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, eftir að lið hans hafði tapað fyrir Stjörnunni, 107-105, í öðrum leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn. Staðan í einvíginu er því 1-1 og liðin eigast aftur við á sunnudaginn í DHL-höllinni. Körfubolti 14. apríl 2011 22:04
Fögnuður hjá Keflavíkurstúlkum - myndir Keflavíkurstúlkur urðu Íslandsmeistarar í körfubolta með miklum glæsibrag í gær. Liðið vann þá Njarðvík þriðja leikinn í röð og rimmuna þar með 3-0. Körfubolti 9. apríl 2011 10:30
Ingibjörg: Kom í Keflavík til að vinna titilinn Ingibjörg Jakobsdóttir, kom til Keflavíkur fyrir tímabilið og varð Íslands-, bikar- og fyrirtækjameistari á sínu fyrsta tímabili. Hún hafði orðið bikarmeistari með Grindavík á sínum tíma en varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn á ferlinum í Toyota-höllinni í gærkvöldi. Körfubolti 9. apríl 2011 10:00
Auður: Þetta er rétt að byrja hjá þeim Öskubuskuævintýri Njarðvíkurkvenna tók enda í gær þegar liðið tapaði 51-61 í þriðja leiknum á móti Keflavík í úrslitaeinvígi Iceland Express deildar kvenna. Keflavík vann alla þrjá leikina og tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn. Körfubolti 9. apríl 2011 08:30
Bryndís: Þetta voru allir jafnir og spennandi leikir Bryndís Guðmundsdóttir og félagar hennar í Keflavíkurliðinu tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í Toyota-höllinni í Keflavík en þær unnu úrslitaeinvígið 3-0. Körfubolti 9. apríl 2011 08:00
Jón Halldór hættir á toppnum með kvennalið Keflavíkur Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari kvennaliðs Keflavíkur, stýrði liðinu til Íslandsmeistaratitils í kvöld eftir 61-51 sigur í þriðja leiknum á móti Njarðvík í úrslitaeinvíginu í Iceland Express deild kvenna. Jón Halldór gaf það út eftir leikinn að hann væri hættur með liðið eftir fimm ára starf en liðið varð tvisvar Íslandsmeistari undir hans stjórn. Körfubolti 9. apríl 2011 00:33
Sverrir: Vantaði að setja stóru skotin niður í seinni hálfleik Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari kvennaliðs Njarðvíkur, gerði Keflavíkurkonur að Íslandsmeisturum fyrir sex árum en í kvöld þurfti hann að sætta sig við 51-61 tap í þriðja leik í úrslitaeinvíginu í Iceland Express deild kvenna. Keflavík vann þar með úrslitaeinvígið 3-0. Körfubolti 8. apríl 2011 22:54
Pálína: Tilfinningin er alltaf jafngóð Pálína Gunnlaugsdóttir fór fyrir liði Keflavíkur þegar þær tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn með 61-51 sigri í þriðja leiknum á móti Njarðvík í úrslitaeinvíginu í Iceland Express deild kvenna. Körfubolti 8. apríl 2011 22:33
Birna: Ég er rosalega stolt af liðinu Birna Valgarðsdóttir, fyrirliði Keflavíkur, varð Íslandsmeistari í sjötta sinn á ferlinum í kvöld þegar Keflavík vann 61-51 sigur í þriðja leiknum á móti Njarðvík í úrslitaeinvíginu í Iceland Express deild kvenna. Körfubolti 8. apríl 2011 22:18
Keflavíkurkonur Íslandsmeistarar Keflavíkurkonur eru Íslandsmeistarar í kvennakörfunni í fjórtánda sinn eftir tíu stiga sigur á Njarðvík, 61-51, í Toyota-höllinni í kvöld í þriðja leik liðanna í úrslitaeinvígi Iceland Express deildar kvenna. Keflavík vann einvígið 3-0 og alls 6 af 7 leikjum sínum í úrslitakeppninni í ár. Körfubolti 8. apríl 2011 20:50
Keflavíkurkonur einum sigri frá titlinum - myndir Kvennalið Keflavíkur getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn á heimavelli á föstudagskvöldið eftir að liðið komst í gær í 2-0 í úrslitaeinvíginu á móti Njarðvík í Iceland Express deild kvenna. Körfubolti 6. apríl 2011 08:00
Sverrir: Gerðum of mikið af grundvallarmistökum "Við þurftum að hafa rosalega mikið fyrir því að koma okkur inn í leikinn,“ sagði Sverrir Sverrisson, þjálfari Njarðvíkur, eftir tapið í kvöld. Njarðvík er heldur betur komið upp við vegg en eftir tapið í kvöld þá leiðir Keflavík einvígið 2-0. Leikurinn í kvöld var virkilega spennandi en Keflvíkingar voru sterkari á lokasprettinum og unni 67-64. Körfubolti 5. apríl 2011 21:45
Keflavík vann í Ljónagryfjunni og er aðeins einum sigri frá titlinum Keflavíkurstúlkur eru aðeins einum sigri frá fjórtánda Íslandsmeistaratitlinum eftir þriggja stiga sigur á Njarðvík, 67-64, í Ljónagryfjunni í kvöld i öðrum leik liðanna í úrslitaeinvígi Iceland Express deildar kvenna. Körfubolti 5. apríl 2011 20:55
Bíta Ljónynjurnar enn frá sér? Annar leikur lokaúrslita í Iceland Express deild kvenna fer fram í Ljónagryfjunni í Njarðvík klukkan 19.15 í kvöld en þar tekur öskubuskulið Njarðvíkur á móti bikarmeisturum Keflavíkur. Körfubolti 5. apríl 2011 07:00
Anna María: Ég er keflvískur Njarðvíkingur Anna María Ævarsdóttir, fyrirliði Njarðvíkur, á von á svakalegri rimmu gegn Keflavík í lokaúrslitum Iceland Express-deildar kvenna. Fyrsti leikurinn verður á heimavelli Kefalvíkur í dag klukkan 16.00. Körfubolti 2. apríl 2011 12:30
Sverrir: Sama hvaðan leikmenn koma Sverrir Þór Sverrisson gefur lítið fyrir hvers kyns tal um að Njarðvíkingar séu að reyna að kaupa Íslandsmeistaratitilinn í ár. Körfubolti 2. apríl 2011 09:30
Birna fyrst til að taka þátt í tíu úrslitaeinvígum um titilinn Birna Valgarðsdóttir fyrirliði Keflavíkurliðsins í Iceland Express deild kvenna í körfubolta verður í eldlínuni í dag í fyrsta leik úrslitaeinvígisins á móti Njarðvík. Birna brýtur þá blað í sögu úrslitakeppni kvenna með því að verða fyrsti leikmaðurinn sem nær því að taka þátt í tíu úrslitaeinvígum um titilinn. Körfubolti 2. apríl 2011 08:00