
Óvæntur sigur Snæfells á toppliði Keflavíkur
Snæfell gerði sér lítið fyrir og skellti toppliði Keflavíkur í Iceland Express-deild kvenna í Stykkishólmi í kvöld. Alls fóru þrír leikir fram í deildinn í kvöld.
Snæfell gerði sér lítið fyrir og skellti toppliði Keflavíkur í Iceland Express-deild kvenna í Stykkishólmi í kvöld. Alls fóru þrír leikir fram í deildinn í kvöld.
Keflavík heldur fjögurra stiga forskoti á toppi Iceland Express-deildar kvenna í körfuknattleik eftir 78-75 heimasigur á Haukum. Valskonur unnu óvæntan sigur á KR, Hamar lagði Fjölni og Njarðvík vann útisigur á Snæfell.
Haukakonur endurheimtu þriðja sætið í Iceland Express deild kvenna í körfubolta með því að vinna átján stiga sigur á Val, 84-66, á Ásvöllum í kvöld. Von Valskvenna á því að komast í úrslitakeppnina er nú orðin afar veik en liðið er nú tíu stigum á eftir Haukum og KR sem eru í 3. og 4. sæti.
Keflavík styrkti stöðu sína á toppi Iceland Express deildar kvenna eftir sex stiga útisigur á Njarðvík, 68-62, í Ljónagryfjunni í Njarðvík í kvöld. Keflavík er eftir leikinn með fjögurra stiga forskot á Njarðvík á toppi deildarinnar.
KR-konur eru komnar upp í þriðja sæti Iceland Express deildar kvenna eftir sannfærandi 44 stiga sigur á Fjölni í kvöld, 86-42. KR fór upp fyrir Hauka en Haukakonur eiga leik inni á móti Val á morgun.
Hamarskonur eru ekki búnar að segja sitt síðasta í Iceland Express deild kvenna í vetur því botnliðið vann 25 stiga sigur á Snæfelli, 82-57, í Hveragerði í kvöld. Hamar var með örugga forystu allan leikinn og endaði með þessum sigri ellefu leikja taphrinu sína.
Njarðvík varð í kvöld fjórða og síðasta liðið til þess að tryggja sér sæti í undanúrslitum Poweradebikars kvenna í körfubolta eftir 78-72 sigur á nágrönnunum úr Keflavík í framlengdum leik í Ljónagryfjunni.
Það er búið að draga í átta liða úrslitum Powerade-bikars karla og kvenna í körfubolta en dregið var í höfuðstöðvum Vífilfells í dag. Stórleikur átta liða úrslitanna verður viðureign bikarmeistara tveggja síðustu ára, KR og Snæfells sem munu mætast í DHL-höllinni.
Keflavík og Njarðvík bættu stöðu sína í tveimur efstu sætunum Iceland Express deildar kvenna í kvöld og KR komst upp í 3. sætið eftir átta sigur á Hamar í Hveragerði. Valskonur ætla að byrja árið vel því þær fóru í Stykkishólm og unnu 15 stiga sigur á Snæfell.
KKÍ veitti í dag verðlaun fyrir fyrri hluta Iceland Express-deildar kvenna. Besti leikmaðurinn var valin Jaleesa Butler hjá Keflavík en hún hefur leikið einkar vel það sem af er vetri.
Þrír leikir fóru fram í Iceland Express-deild kvenna í dag. Þar bar hæst að topplið Keflavíkur marði eins stigs sigur á KR.
Snæfell vann níu stiga sigur á Fjölni, 94-85, í Garfarvogi í Iceland Express deild kvenna í körfubolta í kvöld en þetta var fyrsti leikurinn í 14. umferð sem klárast á morgun.
Haukakonur unnu frábæran 70-58 sigur á KR í Iceland Express deild kvenna í körfubolta í gærkvöldi en það voru mörg óvænt úrslit í umferðinni í gær en þrjú efstu liðin, Keflavík, Njarðvík og KR, töpuðu öll sínum leikjum.
Fjölnir vann óvæntan sigur á Njarðvík í Ljónagryfjunni í Iceland Express deild kvenna körfubolta í kvöld og Keflavík heldur því toppsætinu þrátt fyrir óvænt tap í Hólminum. Valur vann Hamar í Hveragerði og staða Hamarsliðsins á botninum versnaði því eftir úrslit kvöldsins.
Haukakonur unnu tólf stiga sigur á KR, 70-58, í Iceland Express deild kvenna í körfubolta í kvöld og hafa þar með unnið báða leiki sína á móti KR-konum í vetur. Liðin mætast síðan í 16 liða úrslitum bikarsins í byrjun janúar. Haukar eru nú aðeins tveimur stigum á eftir KR og með betri árangur í innbyrðisleikjum.
Snæfell vann óvæntan 68-61 sigur á toppliði Keflavíkur í Iceland Express deild kvenna í körfubolta í Stykkiishólmi í kvöld. Snæfellskonur eru gríðarlega öflugar á heimavelli og sönnuðu það enn á ný í þessum leik.
Margrét Kara Sturludóttir og félagar í KR unnu öruggan 68-53 sigur á Val í Iceland Express deild kvenna í Vodafonehöllinni í kvöld. Margrét Kara var stigahæst í KR-liðinu með 19 stig.
Þrír leikir fóru fram í Iceland Express-deild kvenna í kvöld. Keflavík komst aftur á toppinn með öruggum sigri á Haukum.
Keflavíkurkonur eru komnar aftur á toppinn eftir ellefu stiga sigur á Haukum í Keflavík í kvöld. KR vann á sama tíma öruggan sigur á Val og Fjölniskonur enduðu langa taphrinu og komust af botninum.
Shanae Baker var hetja Njarðvíkurliðsins í Stykkishólmi í kvöld en hún kórónaði frábæran leik sinni með því að skora sigurkörfuna rétt fyrir leikslok. Njarðvík vann leikinn 72-69 og komst upp að hlið Keflavíkur á toppnum.
Valskonur eru aðeins að taka við sér í Iceland Express deild kvenna en Valur vann fjögurra stiga sigur á Haukum, 83-79, eftir framlengdan leik í Schenkerhöllinni á Ásvöllum í dag. Haukakonur voru búnar að vinna fimm leiki í röð fyrir leikinn og báða leikina við Val á tímabilinu.
Snæfell og KR fögnuðu sigrum í Iceland Express deild kvenna í dag. KR vann öruggan 103-63 sigur á botnliði Fjölnis en Snæfell þurfti frábæran fjórða leikhluta til þess að landa þriggja stiga sigri á Hamar í Hveragerði. KR komst upp í 3. sætið með sigrinum en Snæfell komst upp að hlið Hauka í 4. til 5. sæti.
Njarðvík vann óvæntan 41 stigs stórsigur á Íslandsmeisturum Keflavíkur í Iceland Express deild kvenna í körufbolta í dag. Njarðvík tók völdin í leiknum strax í upphafi leiks og vann að lokum 94-53 sigur.
Keflavík er með fjögurra stiga forystu í Iceland Express-deild kvenna en heil umferð fór fram í kvöld. Snæfellingar unnu óvæntan en góðan sigur á KR á heimavelli, 77-72.
Kvennalið KR komst aftur á sigurbraut í dag er það sótti Hamar heim í Hveragerði. KR vann öruggan 23 stiga sigur, 66-89.
Meistaraflokkar KR í körfunni hafa ekki verið að gera góða hluti að undanförnu en karla- og kvennalið félagsins hafa bæði misst taktinn eftir annars mjög góða byrjun á tímabilinu. Nú er svo komið að sex af síðustu sjö leikjum KR-liðanna hafa tapast.
KKÍ hefur ráðið Sverri Þór Sverrisson sem landsliðsþjálfara kvennalandsliðsins. Anna María Sveinsdóttir mun aðstoða Sverri Þór með liðið.
Gríðarlegur munur er á félagaskiptagjaldi í stóru íþróttunum þremur. Á meðan það getur kostað hátt í hálfa milljón að fá mann að utan til Íslands í handboltanum er grunngjaldið í fótboltanum aðeins 2.000 kr. KKÍ er nýbúið að hækka gjaldið vegna útlendinga.
KR-konur hafa nú tapað þremur leikjum í röð í Iceland Express deild kvenna og eru komnar alla leið niður í fjórða sæti deildarinnar eftir að níundu umferðinni lauk í gær.
Þrír leikir fóru fram í kvöld í 9. umferð Iceland Express deildar kvenna í körfubolta og unnu Keflavík, Haukar og Valur öll góða sigra í sínum leikjum. Keflavík og Haukar hafa verið á mikilli sigurbraut en Valskonur fögnuðu þarna langþráðum sigri eftir sex töp í röð.