Taka synina með í tónleikaferðalagið Heiða Eiríks og Berglind Ágústsdóttir ferðast um landið með góða hjálparkokka. Tónlist 4. júní 2013 12:00
Miðasala á útgáfutónleika Botnleðju hefst á fimmtudaginn Botnleðja heldur útgáfutónleika í Austurbæ fimmtudagskvöldið 27. júní og hefst miðasala fimmtudaginn 6. júní kl. 10 á Midi.is. Tónlist 4. júní 2013 11:12
Jeff Beck heldur tónleika í Reykjavík Enn bætist í tónleikaflóru sumarsins með einum frægasta gítarleikara sögunnar. Tónlist 4. júní 2013 07:00
Gróska í Hipphopp senunni Mikil gróska hefur verið í íslensku hipphoppsenunni síðustu ár. Fréttablaðið tók saman hluta þeirra fjölmörgu banda sem hafa mótað og haft leiðandi áhrif á stefnuna, sem virðist vaxa og dafna ár frá ári. Tónlist 2. júní 2013 20:22
Samfylkingin borgaði skuldina Rokksveitin Botnleðja sendir senn frá sér safnskífuna Þegar öllu er á botninn hvolft, þar sem finna má helstu smellina og óútgefnar upptökur auk tveggja glænýrra laga. Tónlist 2. júní 2013 20:08
Tileinka sjómönnum plötuna Nýjasta plata KK og Magga Eiríks, Úti á sjó, hefur að geyma gömul sjómannalög. Tónlist 31. maí 2013 09:00
Egill fær ungu kynslóðina í lið með sér Egill Ólafsson og Moses Hightower leiða saman hesta sína á afmælistónleikum Egils í Hörpu. Tónlist 31. maí 2013 08:00
Súpergrúppa siglir um landið í sumar Hljómsveitin Áhöfnin á Húna spilar til styrktar Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Tónlist 31. maí 2013 07:00
Passar upp á Nirvana lögin Courtney Love passar vel og vandlega upp á notkunarréttinn á lögum Nirvana. Tónlist 30. maí 2013 21:00
Lambchop til Íslands Bandaríska jaðarkántrísveitin Lambchop endar tónleikaferð sína um Evrópu með tónleikum í Iðnó sunnudagskvöldið 7. júlí. Lay Low mun hita upp. Tónlist 30. maí 2013 14:42
Hátíðin Sumarmölin í fyrsta sinn Tónlistarhátíðin Sumarmölin á Drangsnesi verður haldin í fyrsta sinn í sumar. Hún fer fram í samkomuhúsinu Baldri 15. júní. Í kjölfar góðra undirtekta við tónleikaröðinni Mölinni á Drangsnesi var ákveðið að halda þessa nýju tónlistarhátíð. Tónlist 30. maí 2013 14:00
Metallica bætist í Hróarskelduhópinn Hin goðsagnakennda rokksveit tekur sér frí frá plötugerð með einu tónleikum sínum í Evrópu. Tónlist 30. maí 2013 13:38
Sign undirbýr nýja plötu Hljómsveitin Sign stefnir að útgáfu nýrrar plötu seinna á þessu ári. Þeir Ragnar Zolberg og Arnar Grétarsson, forsprakkar hljómsveitarinnar, hafa undanfarið verið í Noregi þar sem þeir hafa lagt lokahönd á lagasmíðarnar. Tónlist 30. maí 2013 10:45
Eyþór Ingi leiðbeinir litlu systur í söngnum Ellen Ýr fær stuðning frá stóra bróður sem er eins og hennar besta vinkona. Tónlist 30. maí 2013 09:00
Upptökur í 600 ára kastala Þriðja plata Jóhanns Kristinssonar, Headphones, var að hluta til tekin upp í 600 ára gömlum kastala í Engelsholm í Danmörku. „Ég kom mér upp hljóðnemum þarna en þessi kastali er notaður sem listalýðháskóli í Danmörku,“ segir Jóhann. Lagið Typewriter var tekið upp í kastalanum og Jóhann segir andrúmsloftið þar öðruvísi en annars staðar. Tónlist 30. maí 2013 06:00
Miðasala á Frank Ocean fer vel af stað Áhugi fyrir tónleikum tónlistarmannsins Frank Ocean þann 16. júlí virðist vera gífurlegur. Óhætt er að segja að miðasalan fari vel af stað, en fram kom í hádegisfréttum Bylgjunnar að 3000 miðar væru seldir af þeim 5.5000 sem í boði eru. Nú eru innan við 1000 miðar eftir. Tónlist 29. maí 2013 16:54
Sjáðu mishæfileikaríka Íslendinga taka Frank Ocean Meðfylgjandi má sjá þegar fjölmargir mishæfileikaríkir einstaklingar sungu vinsælasta lagi Frank Ocean, Lost, í Kringlunni í von um að fá boðsmiða á tónleika Frank sem verða í Höllinni 16. júlí. Viti menn allir sem þið sjáið syngja í meðfylgjandi myndskeiði fengu boðsmiða. Tónlist 29. maí 2013 16:00
Ekki “fansý” pakki heldur hörkuvinna Trommuleikarinn Kristinn Snær Agnarsson hefur spilað með Íslandsvininum John Grant á um fjörutíu tónleikum um Evrópu og víðar á þessu ári. Tónlist 27. maí 2013 09:00
Hraðamet í Bretlandi Engin plata hefur selst hraðar á árinu í Bretlandi en Random Access Memories með franska rafdúettnum Daft Punk. Hún seldist í 133 þúsund eintökum á aðeins fjórum dögum og sló met Michael Buble sem seldi 121 þúsund eintök af plötu sinni fyrr á þessu ári, fyrstu vikuna eftir að hún kom út. Tónlist 25. maí 2013 10:00
Ferskir og mjúkir vindar úr fortíðinni Frönsku rafpoppararnir í Daft Punk hafa komið eins og stormsveipur inn í tónlistarheiminn með sinni nýjustu plötu, Random Access Memories, heilum átta árum eftir að síðasta hljóðversplata, Human After All, kom út. Tónlist 23. maí 2013 06:00
FM Belfast sendir frá sér glænýtt stuðlag "Við höfum pillað út öll vangalögin, þau passa ekki inn. Þetta verður stuðplata, svipuð okkar fyrri plötum,“ segir Lóa Hjálmtýsdóttir, teiknari og söngkona í sveitinni FM Belfast. Sveitin gaf nýverið frá sér nýja smáskífu, lagið We Are Faster Than You, sem eflaust á eftir að verða einn af sumarsmellunum í ár. Tónlist 22. maí 2013 12:00
Skemmtileg lög um tilfinningar og dauða Sjötta plata The National, sem tók þátt í gjörningi listamannsins Ragnars Kjartanssonar í New York í byrjun maí, kemur út eftir helgi. Tónlist 16. maí 2013 16:00
Þungarokksfræði í háskólanum "Námið er hluti af gráðu, svo það verður strangt. Þungarokk hefur sjaldan verið tekið alvarlega. En það er bara menningarleg túlkun,“ segir höfundur námsleiðarinnar. Tónlist 14. maí 2013 20:00
Úr ferskeytlum í rapp "Ég fór um bekki hér og þar og kenndi börnum að semja ljóð. Ég byrjaði á því að láta þau finna orð sem þeim þóttu falleg og svo unnu þau út frá þeim. Ljóðin þurftu hvorki að vera rytmísk né rímuð,“ segir Arnljótur Sigurðsson tónlistarmaður sem kenndi grunnskólabörnum að semja ljóð, en kennslan var liður í barnamenningarhátíð Reykjavíkur sem fram fór dagana 23. til 28. apríl. Tónlist 13. maí 2013 15:00
Creed valin versta hljómsveit tíunda áratugarins Lesendur Rolling Stone völdu tíu verstu hljómsveitirnar. Tónlist 13. maí 2013 09:30
Breikdans við klassíska tóna „Hópurinn er margfaldur heimsmeistari í breikdansi og þau tvinna saman breikdans og klassíska tónlist í þessu atriði. Þetta er mjög skemmtilegt og heillar breiðan aldurshóp,“ segir Sóley Kristjánsdóttir, vörumerkjastjóri Red Bull. Danshópurinn Flying Steps kemur hingað til lands í sumar á vegum Red Bull orkudrykkjarins. Tónlist 13. maí 2013 07:00
XXX Rottweiler hundar frumsýna nýtt myndband "Lagið er sönnun á því hvernig fullkomið lýðræði virkar, það eru allir í öllu, Rottweiler er bara kommúnistasjitt,“ segir Erpur Eyvindarson rappari en hin goðsagnakennda rappsveit, XXX Rottweiler hefur sent frá sér nýtt lag og myndband með því. Tónlist 11. maí 2013 17:41
Warwick með tónleika í júní Dionne Warwick stígur á svið í Eldborgarsal Hörpu 19. júní. Hún er ein þekktasta söngkona popptónlistarsögunnar. Tónlist 9. maí 2013 10:00