Spilar í Pompidou-listasafninu „Það verður mjög spennandi að spila þarna,“ segir tónlistarkonan Jarþrúður Karlsdóttir, Jara, sem hefur verið boðið að spila í Pompidou, nýlistasafni Frakklands og einu virtasta listasafni heims. „Þetta er mikill heiður. Það er ekkert auðvelt að komast þarna inn.“ Lífið 9. febrúar 2012 11:00
Ekki bara snjall lagasmiður Fyrsta plata skosku söngkonunnar Emeli Sandé kemur út í næstu viku. Áhrifavaldar hennar eru Nina Simone, Aretha Franklin og Joni Mitchell. Tónlist 9. febrúar 2012 07:30
Áhrifavaldurinn Nina Simone Hin bandaríska Nina Simone er einn helsti áhrifavaldur Emeli Sandé. Simone var söngkona, píanisti og lagahöfundur sem var þekktust fyrir djassstandarda sína. Auk þess barðist hún fyrir mannréttindum blökkumanna í Bandaríkjunum. Meðal þekktustu laga sem hún flutti á ferli sínum voru Don"t Let Me Be Misunderstood, Feeling Good, My Baby Just Cares For Me, I Put a Spell on You, Ne Me Quitte Pas og Wild is the Wind. Simone lést árið 2003, sjötug að aldri. Tónlist 9. febrúar 2012 02:30
Guðmundur Péturs á Faktorý Guðmundur Pétursson gítarleikari heldur tónleika á Faktorý á morgun, fimmtudag. Með honum leika Pétur Ben á gítar og selló, Styrmir Haukson á hljóðgerfla og slagverk, Valdi Kolli á bassa og Kristinn Snær Agnarsson á trommur. Tónlist 8. febrúar 2012 21:00
Magni syngur á plötu tileinkaðri Kiss Ég var einmitt að reyna rifja það upp áðan og fór og skoðaði e-mail-ana. Þetta var eiginlega ekki merkilegra en það að minn maður hjá plötufyrirtækinu mínu úti sendi mér: Hæ, viltu vera með á Kiss tribute-i?“ segir tónlistarmaðurinn Magni Ásgeirsson, sem flytur lagið Love It Loud með hljómsveitinni Kiss á tribute plötu sem kemur út í Bandaríkjunum eftir nokkrar vikur. Innlent 8. febrúar 2012 17:46
Sólstafir spila Svarta sanda í heild sinni Rokksveitin Sólstafir heldur útgáfutónleika í Gamla bíói á fimmtudag þar sem platan Svartir sandar verður leikin í heild sinni með aðstoð reynslubolta úr rokksenunni. Lífið 8. febrúar 2012 13:00
Hefur ekki drukkið í sjö ár Tónlistarkonan Lana Del Rey hefur ekki drukkið áfengi í sjö ár en þetta viðurkennir söngkonan í viðtali við bandaríska Vogue. Lífið 7. febrúar 2012 09:00
Ný plata Sigur Rósar kemur út í vor Hljómsveitin Sigur Rós hefur lokið upptökum á sinni sjöttu hljóðversplötu. Þetta staðfesti hljómborðsleikarinn Kjartan Sveinsson þegar Fréttablaðið hafði samband við hann og bætti hann við að hún ætti að koma út í vor. Tónlist 7. febrúar 2012 08:30
Starfar með Aliciu Keys Tónlistarmaðurinn Justin Vernon, forsprakki Bon Iver, tók nýverið upp nokkur lög með Aliciu Keys. Hann er einnig að undirbúa nýja plötu með hljómsveitinni Volcano Choir og er að vinna með annarri sveit sem kallar sig The Shouting Matches. Tónlist 5. febrúar 2012 13:00
Nota borvél á nýrri plötu Platan Slaves með harðkjarnasveitinni Muck kemur út á þriðjudag. Hún hefur verið fáanleg í sérstakri forsölu á síðunni Gogoyoko að undanförnu. Á plötunni kennir ýmissa grasa. Til að mynda leikur borvél aðalhlutverkið í einu lagi plötunnar þar sem hún er notuð til að bora í heimasmíðaðan gítar yfir stöðugan takt. Tónlist 5. febrúar 2012 11:00
Hlustuðu á Dylan á kvöldin Hljómsveitin Blágresi hefur gefið út sína fyrstu plötu. Rithöfundurinn Einar Már Guðmundsson samdi alla textana. Blágresi hefur gefið út plötuna Hvað ef himinninn brotnar… sem er samvinnuverkefni hljómsveitarinnar og rithöfundarins Einars Más Guðmundssonar. Tónlist 4. febrúar 2012 15:00
Chicane heillaðist af Vigri í frakklandi Hljómsveitin Vigri hefur nýlokið samstarfi við breska danstónlistaramanninn Chicane. Hann hefur unnið með Tom Jones, Cher og Bryan Adams á ferli sínum. Harmageddon 3. febrúar 2012 20:00
Ný plata hjá The Vaccines á þessu ári Hljómsveitin The Vaccines með Íslendinginn Árna Hjörvar á bassanum ætlar í hljóðver í Belgíu í mars til að taka upp sína aðra plötu og er hún væntanleg síðar á árinu. Harmageddon 3. febrúar 2012 14:00
Of monsters and men með nýtt myndband Nýtt tónlistarmyndband með hljómsveitinni Of Monsters and Men kom út í gær. Myndbandið er við lagið "Little Talks" og er aðgengilegt á vefsíðu sveitarinnar. Tveir tenglar eru á myndbandið á síðunni, einn fyrir notendur á Íslandi og annar fyrir notendur sem staddir eru erlendis. Tónlist 3. febrúar 2012 11:42
Gabríel með stjörnuhröp Lagið Stjörnuhröp er komið út. Það er hugarfóstur dularfulls tónlistarmanns sem vill ekki gefa upp sitt rétta nafn. Hann hefur komið víða við í íslensku tónlistarlífi um árin en fetar nú nýjar slóðir undir listamannsnafninu Gabríel. Harmageddon 3. febrúar 2012 09:00
Friðrik Dór frumflytur nýtt lag í FM95BLÖ í dag "Þetta er stórt og mikið popplag, og rökrétt framhald af því sem ég var með í gangi á síðustu plötu," segir poppsöngvarinn Friðrik Dór, sem frumflytur nýtt lag í þættinum FM95BLÖ á FM957 í dag. Lagið heitir "Kveikjum nýjan eld“. Lífið 2. febrúar 2012 14:44
Tónkennsla Bjarkar til Queens Tónvísindasmiðja Bjarkar Guðmundsdóttur verður sett upp í safninu New York Hall of Scinence í Queens í New York í næsta mánuði. Markmið verkefnisins er að samþætta á nýjan hátt tónlist, vísindi og aðrar námsgreinar fyrir grunnskólabörn. Tónlist 31. janúar 2012 11:00
Rembingur er fyrirlitlegur Hljómsveitin 200.000 naglbítar, sem Vilhelm Anton Jónsson er oftast kenndur við, hóf árið í hljóðveri við upptökur á sínu fyrsta nýja lagi í langan tíma. Villi naglbítur sagði Kjartani Guðmundssyni frá margþættum ferli, athyglisbresti og illum ostaslaufum Tónlist 28. janúar 2012 11:00
Spenna hjá aðdáendum ABBA Unnendur sænsku hljómsveitarinnar ABBA bíða nú spenntir eftir deluxútgáfunni af síðustu hljóðversplötu hennar sem kemur út þann 23. apríl næstkomandi. Tónlist 27. janúar 2012 07:03
Uppselt á tónleika Leoncie "Ég bjóst alveg við því að það yrðu góðar móttökur því Leoncie á stóran aðdáendahóp hér á landi,“ segir Franz Gunnarsson tónleikahaldari en uppselt er á tónleika Leoncie næstkomandi laugardagskvöld. Tónlist 26. janúar 2012 15:00
Loksins ný plata frá Cohen Kanadíski tónlistarmaðurinn og ljóðskáldið Leonard Cohen gefur í næstu viku út sína fyrstu plötu í átta ár. Hún nefnist Old Ideas og hefur að geyma tíu ný lög. Tónlist 26. janúar 2012 10:00
Sextugur Valgeir í stuði Tónlistarmaðurinn Valgeir Guðjónsson hélt vel heppnaða tónleika í Eldborgarsal Hörpu á sunnudagskvöld í tilefni sextugsafmælis síns og útgáfu safnplötunnar Spilaðu lag fyrir mig. Tónlist 24. janúar 2012 14:15
Hjartalæknir með reggíplötu Tónlistarmaðurinn og hjartalæknirinn Helgi Júlíus Óskarsson hefur gefið út reggíplötuna Kominn heim, sem er hans önnur á tveimur mánuðum. Hin nefnist Haustlauf og hafði að geyma þjóðlagaskotna popptónlist þar sem Svavar Knútur kom við sögu. Tónlist 24. janúar 2012 13:15
Nafn komið á nýja plötu Næsta plata Bruce Springsteen nefnist Wrecking Ball og kemur hún út í byrjun mars. Fyrsta smáskífulagið er komið út og heitir það We Take Care of Our Own. Tvö ár eru liðin síðan síðasta plata Springsteens, The Promise, leit dagsins ljós. Tónlist 20. janúar 2012 14:15
Retro Stefson til Ameríku "Þetta er mjög spennandi og verður eflaust gaman,“ segir Unnsteinn Manuel Stefánsson, meðlimur hljómsveitarinnar Retro Stefson sem kemur í fyrsta sinn fram í Bandaríkjunum á South by Southwest-tónlistarhátíðinni í mars. Tónlist 20. janúar 2012 10:00
Þórir gefur út Janúar Tónlistarmaðurinn Þórir Georg hefur gefið út nýja plötu sem nefnist Janúar. Hún kom út á netinu á nýársdag og er væntanleg í verslanir á geisladisk og kassettu. Tónlist 20. janúar 2012 08:30
Adele jafnar metið Plata bresku söngkunnar Adele, 21, hefur verið í sextán vikur á toppi bandaríska Billboard-listans. Þar með hefur hún jafnað met sem aðeins fjórar aðrar plötur áttu fyrir. Tvær þeirra eru með tónlist úr kvikmyndunum Bodyguard og Titanic en hinar eru með sveitasöngvurunum Garth Brooks og Billy Ray Cyrus. Tónlist 20. janúar 2012 08:00
Fagnar 20 ára starfsafmæli Bandaríska hljómsveitin Nada Surf er mætt til leiks með sína sjöundu hljóðversplötu. Höfundar hins vinsæla Popular hafa starfað saman í tuttugu ár. Tónlist 19. janúar 2012 20:00
The Cure á Hróarskeldu Hljómsveitin The Cure ætlar að spila á Hróarskelduhátíðinni í sumar. Þetta verður í fyrsta sinn í ellefu ár, eða síðan 2001, sem Robert Smith og félagar heiðra hátíðargesti með nærveru sinni. Fjögur ár eru liðin síðan síðasta plata The Cure, 4:13 Dream, leit dagsins ljós. Meðal annarra flytjenda á Hróarskeldu verða Björk, Bruce Springsteen og Bon Iver. Tónlist 19. janúar 2012 10:00