Kanadíska leiðin möguleg á Íslandi við rjúpnaveiðar? Veiðireglur landa eru mismunandi og veiðitíminn er það líka. Það getur verið skynsamlegt að líta til annara landa og sjá hvernig þeir haga stjórn á sínum veiðum á villibráð til að gera veiðarnar sem sjálfbærastar. Veiði 5. október 2011 11:28
Veiði lokið í Breiðdalsá, Jöklu, Hrútu og Minnivallalæk Breiðdalsá: Það var brokkgeng síðasta vikan og rúmlega það í Breiðdalsá vegna mikilla flóða sem komu reglulega vegna rigninga og náði áin aldrei að detta í eðlilega vatnshæð svo um hægðist verulega í laxveiðinni. Veiði 5. október 2011 10:01
Ert þú með innlegg í umræðuna um rjúpnaveiðar? Eins og rætt hefur verið er ákvörðun Umhverfisráðherra ekki ennþá komin í hús og veiðimenn bíða með óþreyju eftir því að sjá hvort rjúpnaveiðar verði leyfðar í ár eða ekki. Mjög víða í umræðunni hefur komið upp sá efi að veiðimenn séu einn stærsti þátturinn í því að rjúpann á undir högg að sækja í sumum landshlutum í dag. Það virðist alveg gleymast að það eru aðrir þættir sem hafa líka mikil áhrif. Veiði 5. október 2011 09:26
Rjúpa eða ekki rjúpa? Enn hefur ekki verið tilkynnt um ákvörðun Umhverfisráðherra varðandi veiðar á rjúpu þetta haustið og víst er að mörgum þykir þessi seinagangur í ákvarðanatöku ótrúlega sérstakur. Veiði 4. október 2011 14:25
Ennþá veiðist ágætlega í Ytri Rangá Veiðar ganga enn ágætlega í Ytri Rangá. Flestir dagar eru að gefa 35-50 laxa á dag en þó komu dagar í síðustu viku þar sem aðstæður voru erfiðar, þá datt veiðin niður í 20 laxa. Veitt er út mánuðinn í Ytri og kæmi mikið á óvart ef lokatala þar fer ekki yfir fimm þúsund. Veiði 4. október 2011 14:14
Bráðabirgðatölur úr Soginu Bráðabirgðatölur af svæðum SVFR í Soginu eru 752 laxar. Ef að líkum lætur er um að ræða annað besta laxveiðiárið í Sogi frá því skráningar hófust. Veiði 4. október 2011 10:00
Fréttir úr Tungufljóti Það virðist vera nokkuð af sjóbirtingi í Tungufljóti eftir sunnan áhlaupin undanfarið. Hollið 26-28/9 fékk 19 fiska við mjög erfiðar aðstæður. Veiði 3. október 2011 15:36
Lokatölur úr Andakílsá Veiði lauk í Andakílsá á sl. föstudag. Samtals veiddust 180 laxar í ánni í sumar samkvæmt Kristjáni Guðmundssyni formanni árnefndar. Veiði 3. október 2011 09:30
Laxá í Ásum fór á 28 milljónir Laxá á Ásum var sem kunnugt er leigð félaginu Salmon tails á dögunum eftir útboð, en Lax-á hefur haft ána á leigu í all mörg ár. Leiguverð var ekki gefið upp, en við höfum það eftir góðum heimildum að ársleigan sé 28 milljónir. Veiði 3. október 2011 09:27
Kröfluflugurnar sterkar í sjóbirtinginn ,,Aðstæður voru mjög erfiðar og við höfum oft veitt meira í Húseyjarkvísl. Sjóbirtingsveiðin var þó ágæt og fínir birtingar inn á milli. Enn og aftur voru það Kröfluflugurnar sem voru að skila okkur þessum fiskum enda eru þær mjög sterkar í sjóbirtingsveiðinni ekki síður en laxveiðinni,“ sagði Hörður Birgir Hafsteinsson en hann og félagar hans voru að ljúka veiðum í Húseyjarkvísl. Þetta var næst síðasta hollið á laxasvæðinu í ánni. Alls fékk hollið 3 laxa og 10 sjóbirtinga. Veiði 30. september 2011 13:45
Mjög gott veiðisumar í Fnjóská Laxveiðisumarið var mjög gott í Fnjóská, en að sögn Ingvars Karls Þorsteinssonar hjá Flúðum eru skráðir laxar að minnsta kosti 650 talsins. Þetta kemur fram í Flugufréttum Flugur.is í dag. Veiði 30. september 2011 09:30
Flott morgunveiði í Skagafirðinum í dag Eins og við sögðum ykkur frá í morgun voru menn að gera fína veiði í túnunum fyrir norðan í morgun, nánar tiltekið í Skagafirði. Við fengum senda mynd frá þeim núna rétt í þessu og það er ekki annað að sjá en að afrakstur morgunsins sé 28 gæsir og 5 endur. Veiði 29. september 2011 15:48
Sófaþjófnaður úr veiðihúsinu við Djúpavatn Síðastliðið haust var sófasetti stolið úr veiðihúsinu við Hlíðarvatn. Núna varð Djúpavatn fyrir barðinu á þjófum og sófasettinu var stolið þaðan um síðustu helgi. Veiði 29. september 2011 15:23
Ennþá góður reytingur í Ytri Rangá Ytri Rangá er að gefa ágætlega miðað við árstíma en undanfarið hefur veiðin verið í 35 til 50 laxar þó að síðustu tveir dagar gáfu minna eða um 20 laxa. Mest hefur veiðst á maðk undanfarið en flugan er ekki langt á eftir. Lúsugir laxar hafa veiðst síðustu daga svo það er en lax að ganga í ánni. Veiði 29. september 2011 14:58
Margar skytturnar í góðri veiði í morgun Klukkan átta í morgun fengum við hjá Veiðivísi símtal frá veiðimenni sem var ofan í skurði og vildi koma því á framfæri að það væri allt fullt af gæs fyrir norðan í Skagafirðinum. Veiði 29. september 2011 09:13
Stórlaxar síðustu daga Þangað til að menn fara að vigta alla lengdarmælda stórlaxa, verður ekki hægt að tala um stærstu laxa eða bera saman hvað var að berast á land. 94 sentimetra lax, grútleginn, sem veiddist fyrir skemmstu í Vatnsdalsá var veginn 10 kg, eða 20 pund. Veiði 28. september 2011 09:42
Forúthlutunarvinna SVFR að hefjast Umsóknarferli forúthlutunar veiðileyfa fyrir sumarið 2011 lauk þann 20. september sl. Næstu tvær vikurnar eða svo mun úthlutunarvinna standa yfir. Veiði 27. september 2011 14:36
Eitt besta laxveiðisumarið senn að enda komið Þrátt fyrir misjafnar skoðanir stangaveiðimanna á veiðinni í sumar, þá eru heildar laxveiðitölurnar þær fjórðu hæstu frá upphafi skráninga! Veiði 27. september 2011 14:33
Klakveiði í Langadalsá og Hvannadalsá Vel gekk í klakveiði í Langadalsá og Hvannadalsá um helgina en veiði lauk í báðum ám þann 24. september. Alls komu 263 laxar úr Langadalsá og sléttir 100 úr Hvannadalsánni í sumar. Í klakveiðinni í Hvannadalsá fengust 21 lax og á þessum veiðistöðum. Réttarfljót 2 laxar, Hellisfoss 10 laxar, Pallklettar 2 laxar og Stékkjarfljót 7 laxar, samtals 21 lax. Var skiptingin nokkuð jöfn í hænga og hrygnur en nokkrar mjög fallegar hrygnur fengust. Veiði 27. september 2011 09:34
Gæsaveiðin heldur róleg víða vegna veðurs Gæsaveiðin er komin á fullt og víða á landinu er hún farin að bunka sig saman á túnum, bændum frekar til óþurftar en annars. Í Skagafirði og Húnaflóa eru sum túnin svört af gæs en hún hefur verið frekar erfið til veiða vegna óhagstæðra veðurskilyrða. Veiði 26. september 2011 09:53
Nokkrar lokatölur og orð um aflabrest í hafbeitinni Nú eru lokatölur komnar úr nokkrum ánum og veiði að ljúka í laxánum nema Rangánum og Vatnsá. Sumarið er líklega það fjórða eða fimmta besta frá upphafi mælinga svo að veiðimenn mega vel við una. Veiði 26. september 2011 08:59
Fréttir úr Fossálum Fossálar eru að gefa mjög vel og eru hollin sem hitta á réttu aðstæðurnar að fá jafna og góða veiði. Menn sem voru í síðustu viku að veiða fengu 14 sjóbirtinga. Næsta holl þar á eftir lenti í miklum vatnavöxtum og fékk 3 birtinga. Þá komu menn sem voru að um helgina og fengu 11 sjóbirtinga. Í því holli fengust fiskar á veiðistöðum nr. 4, fimm fiskar komu á land á veiðistað nr. 8, þá nr.12, 18 og 19. Uppistaðan í aflanum var 5-8 pund Veiði 26. september 2011 08:54
Flott veiði í Grenlæk svæði 4 Við fáum fréttir þessa dagana af fínni veiði á öllum okkar sjóbirtingssvæðum fyrir austan og er Grenlækur sv. 4 engin undantekning þar á. Þeir veiðimenn sem voru við veiðar á 18-20 sept. fengu 28 fallega sjóbirtinga. Allur fiskurinn var nýgenginn og og flestir 3-5 pund. Stærstur var 7 punda fiskur sem veiddur var í gamla árfarveginum. Mest fékkst út á flóðinu sjálfu og var hann allur veiddur á spón. Þess má einnig geta að félagið er nýbúið að koma litlum bát á svæðið til að auðvelda mönnum að komast um flóðið. Veiði 26. september 2011 08:50
Tungufljót að taka við sér Tungufljót í Skaftafellssýslu er að taka við sér. Hollið sem var við veiðar fram á hádegi í gær fékk 17 fiska, og var einn lax í aflanum. Veiði 24. september 2011 17:56
Breiðdalsá að slá metið um tæpa 200 laxa Breiðdalsá er komin í um 1350 laxa sem er vel yfir fyrra met sem er 1178 laxar frá því í fyrra og ekkert lát á veiðinni þar. Til dæmis veiddust 30 laxar í gær í Breiðdalsá og hann er ennþá að ganga, líkt og einnig á Jöklusvæðinu sem er komið í 525 laxa með Fögruhlíðará. Þar komu 12 laxar á land í gær þrátt fyrir yfirfall enda er veiðin nú að mestu í hliðarám sem renna í Jöklu ásamt Föruhlíðará sem rennur beint til sjávar og er ekki tengd heldur jökulvatninu. Veiði 23. september 2011 09:37
Misskipt veðurguða gæðum Á sama tíma og einn okkar úr VoV-liðinu var við veiðiskap í Straumfjarðará eftir stóru lægðina um helgina, var annar okkar VoV-verja að læðast á tánum við Álftá á Mýrum, þar sem ekki var að sjá að rignignardropi hefði fallið. Veiði 23. september 2011 09:33
Ólíku saman að jafna í Dölunum Fáskrúð í Dölum hafði á hádegi í gær gefið 211 laxa, og samkvæmt veiðimönnum er nokkuð af laxi í ánni. Það sama verður ekki sagt um nágrannaána Laxá í Dölum. Veiði 23. september 2011 09:31
Dunká komin til SVFR Í gær var undirritaður samningur á milli Stangaveiðifélags Reykjavikur og Veiðifélags Dunkár um leigu á veiðirétti næstu þrjú árin. Veiði 22. september 2011 13:34
Gott skot í Kjósinni Lítið hefur rignt í Kjósinni þetta sumarið en áin fór í flóð og litaðist fyrst 16. september. Fjögurra daga holl sem var við veiðar 15. – 19. september skilaði 125 fiskum og veiddust 60 síðasta daginn. Veiðimennirnir voru breskir og samanstóð aflinn af 103 löxum og 22 sjóbirtingum yfir 2 kg, 120 var sleppt. Enn er góð veiði og nálgast áin 1000 laxa það sem af er sumri. Veiði 22. september 2011 09:38
Affallið í um 500 löxum Veiðin í Affallinu hefur verið ágæt í sumar þó hún sé ekkert í líkingu við 2010 þegar áin var í 1000 löxum. Áin er að ná 500 löxum sem feykilega góð veiði á fjórar stangir og af því eru um 70 stórlaxar. Veiði 22. september 2011 09:13