Hætta leit að Hollendingnum sem sigldi frá Heimaey Ákveðið hefur verið að hætta leit að hollenskum karlmanni sem sigldi frá Vestmannaeyjum áleiðis til Grænlands þann 8. ágúst síðastliðinn. Ekkert hefur spurst til mannsins frá því hann lét úr vör. 17.9.2021 11:13
Stikla fyrir nýjan íslenskan tölvuleik fær mikið áhorf Tæplega sextíu þúsund manns hafa á sólarhring horft á nýja stiklu fyrir tölvuleikinn Island of Winds sem kom út í gær. Það er sprotafyrirtækið Parity sem gefur leikinn út. Leikurinn fjallar um Brynhildi og gerist á 17. öld á Íslandi. 17.9.2021 10:29
Uppsagnir flugmanna Bláfugls dæmdar ólögmætar Félagsdómur staðfesti í dag ólögmæti uppsagna Bláfugls á flugmönnum sem eru meðlimir í Félagi íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA). FÍA fagnar niðurstöðunni en félagið höfðaði mál á hendur Samtökum atvinnulífsins sem Bláfugl heyrir undir. 16.9.2021 16:49
Einkasonur lagði eiginmann móður í dramatísku erfðamáli Hæstiréttur hefur fallist á kröfu einkasonar um að dánarbú móður hans verði tekið til opinberra skipta. Málið hafði flakkað úr héraði í Landsrétt og fékk áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar þar sem sonur konunnar hafði betur eftir margra ára baráttu við eftirlifandi eiginmann móður hans. 16.9.2021 16:44
Ólafía heiðruð fyrir baráttu sína fyrir náttúruvernd Ólafía Jakobsdóttir hlaut í dag náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti. Umhverfis- og auðlindaráðherra Guðmundur Ingi Guðbrandsson veitti Ólafíu verðlaunin í dag. Er þetta í tólfta sinn sem náttúruverndarviðurkenningin er afhent að því er segir í tilkynningu. 16.9.2021 16:06
Boða byltingu með nýju flugskýli fyrir Gæsluna Bygging nýs flugskýlis fyrir Landhelgisgæslu Íslands hefst í vetur. Með nýju flugskýli verður bylting í aðbúnaði flugdeildar Landhelgisgæslunnar. Hið nýja flugskýli verður 2822 fermetrar að stærð og er gert ráð fyrir að það verði tilbúið um mitt ár 2022 að því er segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. 16.9.2021 15:35
Álfrún Gunnlaugsdóttir fallin frá Álfrún Gunnlaugsdóttir rithöfundur og fyrsti kennari í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands er látin 83 ára að aldri. Gauti Kristmannsson, prófessor við hugvísindasvið HÍ og vinur Álfrúnar, greinir frá andlátinu á Facebook-síðu sinni. 16.9.2021 13:42
Tveggja ára barn á gjörgæslu með Covid-19 Tvö börn liggja nú inni á Landspítalanum vegna Covid-19. Tveggja ára barn er á gjörgæslu og unglingsdrengur á Covid-göngudeild en bæði lögðust inn á spítalann í gær. 16.9.2021 11:40
Faldi sig inni í herbergi af ótta við Angjelin Spænskur vinur Antons Kristins Þórarinssonar segist hafa verið hræddur við Angjelin Sterkaj. Hann hefði falið sig inni í herbergi í íbúð þangað sem Angjelin mætti daginn eftir morðið, af ótta við Angjelin. 16.9.2021 11:21
Stórslasaðar á gjörgæslu en ekki í lífshættu Eiginmaður konu sem slasaðist alvarlega þegar króna féll úr pálmatré á veitingastað á Tenerife á sunnudaginn segir eiginkonu sína og vinkonu hennar enn á gjörgæslu. Konurnar séu ekki í lífshættu en mikið slasaðar. 15.9.2021 16:38