Fréttamaður

Birgir Olgeirsson

Birgir er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Segir málið verða að hafa af­leiðingar fyrir Skúla Tómas

Dóttir konu sem lést í umsjá Skúla Tómasar Gunnlaugssonar segir frávísun málsins í héraðsdómi mikil vonbrigði. Hún bindur vonir við að niðurstöðunni verði snúið við í Landsrétti og segir það verða að hafa afleiðingar að bana fólki. Við ræðum við hana og Hafstein Dan Kristjánsson lagaprófessor um málið í fréttum okkar á samtengdum rásum Sýnar, Bylgjunnar og Vísis.

Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni að­lagast

Þrjú spænsk herskip eru við Reykjavík vegna eftirlits- og viðbragðsverkefnis NATO á Norður-Atlantshafi. Tvö kanadísk herskip eru á leið til landsins og fyrirhuguð er sameiginleg æfing í vikunni þar sem varnir gegn árásum dróna verða æfðar.

Sjálf­stæðis­flokkur mælist stærstur

Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 25 prósenta fylgi í nýrri könnun Maskínu og er stærsti flokkurinn í könnunum fyrirtækisins í fyrsta sinn í hálft annað ár. Samfylkingin mælist skammt á eftir með 24,4 prósent.

Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu

Mikil tíðindi eru í nýrri könnun Maskínu um fylgi stjórnmálaflokkanna. Greint verður frá niðurstöðunum í kvöldfréttum á samtengdum rásum Sýnar, Bylgjunnar og Vísis.

Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum

Umferðarteppa hefur myndast við ný gatnamót Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar. Bæjarstjóri Kópavogs segir ástandið óásættanlegt en Vegagerðin bendir á að um bráðabirgðafyrirkomulag sé að ræða. Full reynsla fáist ekki fyrr en fleiri akreinar hafa verið opnaðar og ljósastýringin tekin í fulla notkun.

„Pólitísk á­kvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110

Framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar segir mögulegt að hækka hámarkshraða á ákveðnum vegköflum í 110 kílómetra, séu þeir hannaðir með tilliti til þess. Tvöföldun vegarins milli Hvalfjarðar og Borgarness er þegar í samgönguáætlun, auk áframhaldandi uppbyggingar Suðurlandsvegar austur að Selfossi.

Hryðjuverkamálið, Lands­mót hesta­manna og neyt­endur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum

Endalok hins svokallaða hryðjuverkamáls verða til umræðu í kvöldfréttum. Ríkissaksóknari hefur ákveðið að áfrýja ekki sýknudómi Landsréttar til Hæstaréttar. Sveinn Andri Sveinsson, verjandi í málinu, segir von á svimandi hárri skaðabótakröfu frá mönnunum sem sakaðir voru um að leggja á ráðin um hryðjuverk. Landsréttur taldi ummæli þeirra hatursfull og ógeðfelld en ekki sannað að ásetningur hefði búið að baki þeim.

ESB-deilan harðnar eftir um­mæli er­lendra ráða­manna

Hart var tekist á um Evrópusambandið, sjávarútveg og mögulegar sérlausnir Íslands í aðildarviðræðum þegar Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, og Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar sem á sæti í utanríkismálanefnd, ræddu málið í Reykjavík síðdegis í dag.

Sjá meira