Kristrún vill að launahækkanir æðstu embættismanna fylgi markaðnum Formaður Samfylkingarinnar segir eðlilegt að laun æðstu embættismanna hækki ekki meira en laun á almennum markaði, enda væri það markmið laga um laun þeirra að þeir leiddu ekki launahækkanir í landinu. Hún og aðrir viðmælendur í Pallborðinu í dag voru sammála um að þörf væri á víðtæku samstarfi um vinnumarkaðinn en á mjög ólíkum forsendum. 30.5.2023 19:20
Tókust á um stöðu verðbólgu og vaxta í Pallborðinu Þorsteinn Víglundsson, fyrrverandi félags- og vinnumarkaðsráðherra og fyrrverandi framkvæmdastjóri SA, Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR og Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar mæta í Pallborðið með Heimi Má Péturssyni fréttamanni í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2/Vísi klukkan 14:00 í dag. 30.5.2023 12:21
Efnahagslífið á milli steins og sleggju vaxta og verðbólgu Formaður Samtaka atvinnulífsins segir efnahagslífið á milli steins og sleggju hárra vaxta og mikillar verðbólgu. Það hljóti að vera markmið bæði atvinnurekenda og verkalýðshreyfingar að ná niður verðbólgu og vöxtum og gera þess vegna langtíma kjarasamninga á komandi vetri. 25.5.2023 11:47
Ríkisstjórnin hafi hugað að tekjulágu fólki Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, segir nauðsynlegt að ráðast í rót verðbólgunnar og sýna aukið aðhald í ríkisfjármálum. Hann segir ríkisstjórnina hafa hugað að tekjulágu fólki en telur að það eigi ekki að reyna að lifa með verðbólguástandinu. 24.5.2023 23:30
Seðlabankinn mun ekki hika við að hækka vexti í tveggja stafa tölu Seðlabankinn mun ekki hika við að hækka meginvexti sína í tveggja stafa tölu ef á þarf að halda til að ná verðbólgu niður að sögn seðlabankastjóra. Bankinn hækkaði vexti um 1,25 prósentustig í morgun og skorar á aðila vinnumarkaðarins að gera hófsama langtímasamninga og stjórnvöld að auka aðhald sitt í efnahagsmálum. 24.5.2023 19:31
Aðgerðir í húsnæðismálum forsenda langtímasamninga að mati Eflingar Sólveig Jónsdóttir formaður Eflingar segir félagið reiðubúið að gera langtíma kjarasamninga eins og seðlabankastjóri kalli eftir. Til þess að það megi verða þurfi stjórnvöld að hins vegar að koma að málum með vel útfærðar aðgerðir í húsnæðismálum. Verðbólgan og stjarnfræðilega há húsleiga vegna húsnæðisskorts væri að sliga láglaunafólk sem ætti varla fyrir helstu nauðsynjum. 24.5.2023 19:31
Segir nauðsynlegt að gera hófsama kjarasamninga til langs tíma Seðlabankastjóri segir nauðsynlegt að gerðir verði hóflegir langtíma kjarasamningar og aðhald aukið í ríkisfjármálum til að ná verðbólgunni niður. Ef Seðlabankinn eigi einn að ná niður verðbólgu þurfi að hækka vexti enn frekar. 24.5.2023 12:12
Leggja verði fram vegvísi að NATO aðild Úkraínu Utanríkisráðherra Lettlands segir Úkraínu eiga heima í Atlandshafsbandalaginu og bandalagið verði að leggja fram vegvísi að því hvernig að það muni gerast. Nú heyrist raddir um að enda þurfi stríðið áður en Úkraína hafi unnið hertekin landsvæði til baka en það megi ekki gerast því Rússar muni ganga á lagið og hervæðast á ný. 23.5.2023 19:16
Vilhjálmur segir kannski ekki skynsamlegt að gera langtíma kjarasamninga Formaður Starfsgreinasambandsins segir verkalýðshreyfinguna hljóta að endurskoða áætlanir um gerð langtíma kjarasamninga ef Seðlabankinn haldi áfram að hækka vexti. Bankarnir hagnist vel á vaxtahækkunum sem ýti heimilunum í landinu í verðtryggð lán. Ef til vill verði að skoða hvort ekki þurfi að skipta um gjaldmiðil þar sem vextir í Evrópu séu mun lægri en hér þrátt fyrir svipaða verðbólgu. 23.5.2023 12:02
Forsætisráðherra Úkraínu segir að sækja verði stríðsglæpamenn til saka Forsætisráðherra Úkraínu segir það mikilvægt fyrsta skref að Evrópuráðið hafi ákveðið í dag að hefja skipulega skráningu á því tjóni sem Rússar hafa valdið Úkraínu með innrás sinni í landið. Næsta skref sé að stofna bótasjóð og að lokum verði að sækja alla glæpamenn stríðsins til saka. 17.5.2023 20:59