Kærur ekki hugsaðar til að ná fram pólitískum markmiðum Deilur um tekjur af fasteignagjöldum af vindorkuveri í Búrfelli gætu tafið framkvæmdir Landsvirkjunar um allt að tvö ár. Umhverfis- og orkumálaráðherra segir kæruleiðir ekki hugsaðar til að ná fram pólitískum markmiðum. 5.9.2024 19:01
Gæti tafið virkjanaframkvæmdir um tvö ár og skaðað samfélagið Forstjóri Landsvirkjunar segir kæru Skeiða- og Gnúpverjahrepps á virkjanaleyfi Búrfellslundar geta tafið framkvæmir um tvö ár og skaðað samfélagið sem þurfi á orkunni að halda. Hreppurinn hafi ekkert með útgáfu framkvæmdaleyfis að gera og hafi ekki nýtt sér ítrekuð tækifæri til athugasemda. 5.9.2024 12:16
Þingmenn allra flokka missa þingsæti sín Þingmenn allra flokka sem kosnir voru til Alþingis árið 2021 hafa í einni svipan misst þingsæti sitt, nú þegar aðeins tæp vika er þar til þing kemur saman á ný. 4.9.2024 20:01
Íslendingar eiga met í fjölgun innflytjenda Íslendingar hafa einstakt tækifæri til að koma að koma í veg fyrir menningarárekstra í framtíðinni með því að efla íslenskukennslu fyrir innflytjendur. Hvergi innan ríkja OECD hefur innflytjendum fjölgað jafn hratt og mikið og á Íslandi. 4.9.2024 19:20
Öll ríki Evrópu eru smáríki í alþjóðlegu samhengi Fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu segir öll ríki Evrópu vera smáríki, sem verði undir í alþjóðlegri samkeppni vinni þau ekki nánar saman. Mikilvægi Íslands og Noregs hafi aukist eftir úrsögn Bretlands úr Evrópusambandinu. 3.9.2024 19:21
Gengst við rúmlega sjötíu ára glæp Hinn 18. febrúar 1953 upplýsti Morgunblaðið að útsendarar alþjóðlegra kommúnista hefðu framið glæp í skjóli nætur og svívirt íslenska þjóðsönginn. Afbrotamennirnir fundust aldrei en nú rúmum sjötíu árum síðar gengur einn þeirra fram fyrir skjöldu og játar þátt sinn í málinu. Heimir Már gekk á fund hins meinta útsendara Stalíns. 29.8.2024 20:01
Samfylkingin með flest spil á hendi við stjórnarmyndun Einungis yrði hægt að mynda þriggja flokka ríkisstjórn með þátttöku Samfylkingarinnar yrðu kosningaúrslit samkvæmt nýjustu könnun Maskínu. Flokkurinn gæti einnig tekið þátt í myndun tveggja mið-vinstristjórna og einnar mið-hægristjórnar. Hægriflokkarnir gætu sömuleiðis myndað stjórn með þátttöku Framsóknarflokksins. 29.8.2024 12:07
Bylting í skipulagi miðbæjar Hafnarfjarðar Í dag var gengið frá samkomulagi um mestu framkvæmdir í miðbæ Hafnarfjarðar í áratugi. Alger bylting verður á í nýjum húsakosti bókasafns bæjarins, að sögn bæjarstjórans. 28.8.2024 19:21
Miðflokkurinn að taka fram úr Sjálfstæðisflokknum í fylgi Miðflokkurinn er orðinn næst stærsti flokkurinn á Alþingi, en ekki er marktækur munur á fylgi hans og Sjálfstæðisflokksins. Formaður Miðflokksins segir þetta til marks um að skynsemin sé farin að ná til kjósenda. 28.8.2024 18:32
Miklar tímamótaákvarðanir í samgöngusáttmála Vegamálastjóri segir ákvörðun um göng undir Miklubraut og aðrar stórframkvæmdir í samgöngusáttmála marka mikil tímamót. Nú geti raunverulegur undirbúningur hafist. Verkefni sáttmálans muni gerbreyta samgöngum á höfuðborgarsvæðinu. 22.8.2024 19:31