Forsætisráðherra Ástralíu vill ríghalda í kolin Áströlsk kolaorkuver verða starfandi í áratugi til viðbótar, að sögn Scotts Morrison, forsætisráðherra kolaframleiðsluríkisins Ástralíu. Hann hafnar því að samkomulag sem náðist á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Glasgow boði endalok kola sem orkugjafa. 17.11.2021 10:29
Ein látin eftir ógurleg flóð í Kanada og Bandaríkjunum Kona fórst í aurskriðu á hraðbraut utan við Vancouver í Kanada eftir metúrkomu á svæðinu. Að minnsta kosti tveggja er saknað til viðbótar þar. Stanslaus rigning síðustu daga hefur valdið miklum flóðum í norðvestanverðum Bandaríkjunum og suðvestanverðu Kanada sem urðu illa úti í fordæmalausri hitabylgju í sumar. 17.11.2021 08:45
Snjallforrit virðist uppspretta símaats um stolið rafmagn Svo virðist sem að símhringingar þar sem fólk er sakað um að stela rafmagni frá nágrönnum megi rekja til snjallforrits sem býður notendum að kaupa upptökur af símaati. Orkuveita Reykjavíkur sá ástæðu til að senda frá sér tilkynningu vegna símtalanna í gær. 17.11.2021 07:00
Beittu háþrýstidælum á farandfólk á landamærunum Pólskar öryggissveitir beittu háþrýstidælum á farandfólk sem henti steinum að þeim við landamæri Póllands og Hvíta-Rússlands í dag. Lík ungs Sýrlendings var grafið í Póllandi í gærkvöldi. 16.11.2021 15:06
Rússar staðfesta að þeir hafi skotið gamlan gervihnött Varnarmálaráðuneyti Rússlands staðfesti í dag að það hefði skotið á gamlan gervihnött í vopnatilraun. Það hafnar því að geimruslið sem myndaðist hafi teflt lífi geimfara í Alþjóðlegu geimstöðinni eða öðru gervihnöttum í hættu. 16.11.2021 13:16
Símtöl með ásökunum um stolið rafmagn ekki frá Orkuveitunni Óprúttnir aðilar virðast nú stunda það að hringja í fólk í nafni fyrirtækja Orkuveitu Reykjavíkur og saka það um að stela rafmagni. Orkuveitan segir símtölin ekki á vegum hennar eða dótturfyrirtækja. 16.11.2021 12:16
Tunglmyrkvi sjáanlegur á föstudag ef veður leyfir Íslendingar geta barið deildarmyrkva á tungli augum á föstudagsmorgun ef veðurguðirnir verða samvinnuþýðir. Eins og sakir standa benda verðurspár til þess að þeir verði með mótþróa. 16.11.2021 11:51
Sakar föður Boris Johnson um að hafa rassskellt sig Þingkona breska Íhaldsflokksins segir að Stanley Johnson, faðir Boris Johnson forsætisráðherra, hafi snert sig á óviðeigandi hátt á landsfundi flokksins fyrir tæpum tuttugu árum. Johnson hafi slegið hana eins fast og hann gat á rassinn. 16.11.2021 11:18
Helmingur glímdi við afleiðingar Covid í hálft ár eða lengur Að minnsta kosti helmingur fólks sem jafnaði sig af því að veikjast af Covid-19 glímdi við líkamleg eða andleg veikindi í sex mánuði eða lengur eftir að það var laust við sjúkdóminn. Fólk upplifði meðal annars þyngdartap, síþreytu, hita og verki. 16.11.2021 10:31
Handtekinn í Tyrklandi vegna morðsins á forseta Haítí Lögreglan í Tyrklandi handtók karlmann í tengslum við rannsókn á morðinu á Jovenel Moise, forseta Haítí, í gær. Enginn hefur verið ákærður eða sakfelldur vegna morðsins. 16.11.2021 10:07
Ólafur Ragnar við CNBC: Afleiðingarnar „gífurlegar“ ef Bandaríkin tækju Grænland með valdi Erlent