Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Fyrsti viðburður í brúðkaupshátíð Taylor Swift og unnusta hennar, fótboltakappans Travis Kelce, er sagður hafa farið fram í gær. Fyrsti viðburður var kvöldverður í aðdraganda brúðkaups þeirra um helgina í Madison Square Garden í New York. 3.7.2026 09:07
Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Nýlega kom út nýtt app þar sem ferðamenn eiga að geta fengið allar upplýsingar sem þeir þurfa til að hafa gaman og forðast helstu hættur landsins. 3.7.2026 08:20
Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Á fimm ára tímabili kom 621 heimilislaus einstaklingur, tæplega 60 prósent hópsins, á bráðamóttökur Landspítalans, samtals 9.491 sinnum. Flestar komur voru í Fossvogi. Meðalfjöldi koma á hvern einstakling var fimmtán en sá sem kom oftast gerði það 292 sinnum á fimm ára tímabili. 2.7.2026 14:52
Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Hægt verður að sækja um ráðstöfun viðbótariðgjalds til séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána þann 1. október. Lög þess efnis voru samþykkt á Alþingi í síðasta mánuði. Hægt verður að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar afturvirkt. 2.7.2026 12:00
Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Mennta- og barnamálaráðuneytið undirbýr útgáfu landsviðmiða um skólasókn grunnskólanemenda fyrir skólaárið 2026–2027. Markmiðið er að skrá, bregðast við og koma í veg fyrir skólaforðun barna í grunnskólum á samræmdan hátt á landsvísu. 2.7.2026 10:25
Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Karlmaður sem var handtekinn í gær vegna gruns um innbrot í Efstaleitisapótek flúði vettvang á Hopp-deilibíl. Maðurinn var handtekinn eftir eftirför í bíl og á fæti. 2.7.2026 09:13
Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Dýraverndarsamband Íslands, Hvalavinir – vernd hafsins, Náttúruverndarsamtök Íslands og Samtök um dýravelferð hafa sent Matvælastofnun (MAST) formlega kröfu um að hvalveiðar Hvals hf. verði stöðvaðar tafarlaust og að hafin verði ítarleg rannsókn á meintum brotum á lögum um velferð dýra. 2.7.2026 08:18
Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur staðfest stækkun friðlandsins við Gróttu á Seltjarnarnesi. Hið friðlýsta svæði er alls um 1,5 km² að stærð. Með endurskoðaðri friðlýsingu nái verndin nú einnig til Seltjarnar, sem er eitt mikilvægasta fæðu- og hvíldarsvæði fugla á svæðinu. Unnið var að friðlýsingunni í sex ár. 1.7.2026 21:35
Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Mannréttindahúsið hefur stækkað með opnun nýrrar álmu og eru nú yfir 40 félög með aðsetur í húsinu. Mannréttindahúsið er rekið af ÖBÍ réttindasamtökum. 1.7.2026 21:10
Klifu á topp Empire State-byggingarinnar Karlmaður og kona voru handtekin í dag eftir að hafa klifið á topp Empire State-byggingarinnar í New York. Maðurinn bað konunnar eftir að þau klifu á toppinn. 1.7.2026 20:51
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn