Þórður í Skógum er 100 ára í dag Þórður Tómasson í Skógum undir Eyjafjöllum fagnar 100 ára afmæli í dag. Hann er eldhress og segist ekkert spá í hvað hann sé gamall. Þórður sem hefur gefið út mikið af bókum á nú handrit í þrjár nýjar bækur. 28.4.2021 16:43
Jóhann Óli vill friða alla sjófugla Ástand sjófugla er mjög dapurs við Ísland enda hefur fækkað mikið í öllum sjófuglastofnum vegna hlýnandi sjávarhita. 25.4.2021 13:07
Abba-æði í Keflavík Abba-æði hefur gripið um sig hjá nemendum Heiðarskóla í Keflavík því þau hafa verið að æfa söngleikinn Mamma Mia og frumsýndu hann á árshátíð skólans. Söngleikurinn verður sýndur fyrir almenning um leið og sóttvarnaryfirvöld leyfa. 24.4.2021 20:05
Mikil spenna fyrir frumsýningu á Sólheimum Mikil spenna og eftirvænting er meðal heimilisfólks á Sólheimum í Grímsnesi fyrir sumardeginum fyrsta en þá ætla þau að frumsýna ævintýraleikrit, sem byggir á sögu Sesselju Hreindísar Sigmundsdóttur, stofnanda Sólheima. 21.4.2021 20:04
Eyrbekkingar og Stokkseyringar vilja ljósleiðara Mikil óánægja er á meðal íbúa á Eyrarbakka og Stokkseyri um þá staðreynd að engin ljósleiðaratenging er komin í þorpin en þar búa um tólf hundruð manns. Fjarskiptafyrirtækin bera því við að arðsemin sé ekki nægilega mikil. 18.4.2021 20:04
Farfuglarnir streyma til landsins – sumir örmagnast Farfuglar streyma nú til landsins í þúsunda tali eins og lóur, spóar, stelkar, þúfutittlingar og maríuerla. Það tekur á fyrir fuglana að fljúga svona langt og eru margir við það að örmagnast þegar þeir koma til landsins. 18.4.2021 13:04
Mikil ánægja með einu hestasundlaug landsins Mikil eftirspurn er eftir því að komast með hesta í einu hestasundlaug landsins þar sem hestarnir fá þjálfun og endurhæfingu í lauginni. Eftir sundsprettinn fara hestarnir í sérstakan þurrkklefa og fá verðlaun fyrir frammistöðu sína í lauginni. 17.4.2021 20:04
Ólafur Laufdal byggir tíu lúxus svítur í Grímsborgum Ólafur Laufdal, veitingamaður í Grímsborgum í Grímsnesi lætur engan bilbug á sér finna þrátt fyrir heimsfaraldur og nánast enga erlenda ferðamenn því hann er að fara að byggja tíu lúxusvítur fyrir 400 milljónir króna. 17.4.2021 13:04
Hundrað prósent jafnrétti hjá dúfum Jafnrétti vefst ekki fyrir dúfum því þær eru með það allt upp á tíu því pabbinn liggur tólf tíma á sólarhring á eggjunum og mamman hina tólf tímana. Þá sér karlinn líka um að gefa ungunum mjólkina sína eins og kerlingin gerir líka. 11.4.2021 20:05
Barnasprengja í Mýrdalshreppi – nýr leikskóli byggður Það er engin lágdeyða í Vík í Mýrdal þó að þar liggi niðri meira og minna öll ferðaþjónusta vegna heimsfaraldursins, því nú á að fara að byggja þar nýjan leikskóla fyrir sextíu börn. Þá þarf sveitarfélagið meira af starfsfólki í grunnskólann og leikskólann því börnum í Mýrdalshreppi fjölgar svo hratt 11.4.2021 13:04