Hlaðvarpsvinur LeBron líklegastur til að taka við Lakers Leikmaðurinn fyrrverandi Jonathan Clay „JJ“ Reddick hefur óvænt verið orðaður við þjálfarastöðu Los Angeles Lakers í NBA-deildinni. Það vekur athygli þar sem undanfarnar vikur hefur hann haldið úti hlaðvarpi með LeBron James, skærustu stjörnu Lakers. 22.5.2024 07:00
Dagskráin í dag: Keflavík getur orðið Íslandsmeistari Með sigri á Njarðvík síðar í dag verður Keflavík Íslandsmeistari kvenna í körfubolta. Bayer Leverkusen mætir Atalanta í úrslitum Evrópudeildar karla í fótbolta en Leverkusen hefur til þessa farið taplaust í gegnum tímabilið. 22.5.2024 06:00
Ótrúlegur viðsnúningur Lyon Framan af nýlokinni leiktíð stefndi allt í að Lyon myndi falla úr frönsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Fjárhirslur félagsins hafa séð betri daga og virtist það vera ná til leikmanna liðsins sem voru í fallsæti í desember. 21.5.2024 23:30
Starfsmaður Fylkis dæmdur í tveggja leikja bann Halldór Steinsson, íþróttafulltrúi Fylkis og liðsstjóri beggja meistaraflokka félagsins í Bestu deild karla og kvenna hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann þar sem hann hefu rnælt sér í tvö rauð spjöld til þessa á leiktíðinni. Þá þarf Fylkir að greiða 20 þúsund króna sekt vegna rauðu spjaldanna. 21.5.2024 23:01
Jamil mun stýra Val í Subway-deild kvenna á næstu leiktíð Valur hefur ráðið Jamil Abiad sem aðalþjálfara meistaraflokks kvenna í körfubolta fyrir komandi tímabil. Mun hann því stýra liðinu í Subway-deild kvenna ásamt því að aðstoða Finn Frey Stefánsson með karlalið félagsins. 21.5.2024 20:15
Tvenna Orra Steins dugði ekki og titilvonir FCK úr sögunni Titilvonir FC Kaupmannahafnar eru úr sögunni eftir óvænt 3-2 tap gegn AGF á útivelli í næstsíðustu umferð dönsku úrvalsdeildarinnar. Orri Steinn Óskarsson skoraði bæði mörk FCK í kvöld en liðið er fjórum stigum á eftir Bröndby og Midtjylland þegar ein umferð er til loka tímabilsins. 21.5.2024 19:35
Martin og félagar tóku sópinn með sér Landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson og liðsfélagar hans í Alba Berlín eru komnir í undanúrslit þýsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta þökk sé sópi á Bonn í 8-liða úrslitum. 21.5.2024 19:06
Pochettino farinn frá Chelsea Rétt í þessu var tilkynnt að Mauricio Pochettino hefði samþykkt að rifta samningi sínum við enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea. 21.5.2024 18:23
Býst við að Sveindís Jane sé klár fyrir leikina mikilvægu Þorsteinn Halldórsson, þjálfari A-landsliðs kvenna í knattspyrnu, býst við að Sveindís Jane Jónsdóttir sé klár í slaginn fyrir leikina mikilvægu gegn Austurríki í undankeppni EM 2025. 21.5.2024 18:00
Hundahvíslarinn sem bræddi hjörtu Kansasbúa Derrick Nnadi er ekki það nafn sem ber fyrst á góma þegar farið er yfir leikmenn meistaraliðs Kansas City Chiefs í NFL-deildinni. Þessi sterkbyggði varnarmaður leynir á sér og hefur gert góða hluti utan vallar undanfarin ár. 21.5.2024 07:01