Luka skrifaði undir risasamning og verður áfram hjá Mavericks Slóvenski körfuboltamaðurinn Luka Doncic hefur skrifað undir framlengingu á samningi sínum við Dallas Mavericks í NBA-deildinni. Er samningurinn til fimm ára og skilar Luka 207 milljónum Bandaríkjadala í laun eða um 26 milljarða íslenskra króna. 10.8.2021 09:30
Handahófskenndar athuganir í upphafi tímabils á Englandi Enska úrvalsdeildin hefur tilkynnt að það verða gerðar handahófskenndar athuganir á leikvöllum deildarinnar í upphafi tímabils. Fólk sem ætlar sér að fara á leiki mun þurfa sýna fram á bólusetningu eða vera með neikvætt sýni sem er tekið innan við 48 tímum fyrir leik. 10.8.2021 09:00
Newcastle að ganga á kaupunum á miðjumanninum efnilega frá Arsenal Enska knattspyrnufélagið Newcastle United er við það að ganga frá kaupum á enska miðjumanninum Joseph George Willock sem sló í gegn í norðurhluta Englands á síðustu leiktíð. Talið er að kaupverðið sé í kringum 22 milljónir punda. 9.8.2021 17:02
Þeir voru í bölvuðum vandræðum í fyrri hálfleik Kjartan Atli Kjartansson og félagar í Stúkunni fóru yfir uppspil KA er liðið gerði 2-2 jafntefli við Víking í Pepsi Max deild karla um helgina. Þó Akureyringar hafi jafnað metin undir lokin voru þeir í stökustu vandræðum framan af leik. 9.8.2021 16:30
Íhuga að fá Håland til að leysa Lewandowski af hólmi Þýskalandsmeistarar Bayern München íhuga nú kaup á Erling Braut Håland, framherja Borussia Dortmund, til að leysa hinn margreynda Robert Lewandowski af hólmi. Sá síðarnefndi kom einnig frá Dortmund á sínum tíma. 9.8.2021 14:31
Áfall fyrir Fylki: Bryndís Arna viðbeinsbrotin og frá út tímabilið Fylkir rær lífróður í Pepsi Max deild kvenna í knattspyrnu og gat því vart fengið verri fregnir en þær að aðalmarkaskorari liðsins, Bryndís Arna Níelsdóttir, hafi viðbeinsbrotnað og verði ekki meira með liðinu á leiktíðinni. 9.8.2021 14:00
Markasúpa gærdagsins: Sigurmark Leiknis, mörk Skagamanna, fyrsta mark Stefáns Árna og óvænt tvenna Alls fóru fimm leikir fram í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu um helgina. Í þeim voru 14 mörk skoruð og má sjá þau öll hér að neðan. 9.8.2021 12:30
Yfir fjögur hundruð smituðust í tengslum við Ólympíuleikana í Tókyó Alls komu upp 430 kórónuveirusmit í tengslum við Ólympíuleikana í Tókýó en þeim lauk nú um liðna helgi. Sóttvarnir í Ólympíuþorpinu virðast þó hafa skilað tilætluðum árangri þar sem aðeins 26 keppendur greindust með veiruna. 9.8.2021 12:01
Meistarar Manchester City mæta laskaðir til leiks Phil Foden verður frá í mánuð vegna meiðslanna sem héldu honum á hliðarlínunni er England tapaði fyrir Ítalíu í úrslitaleik Evrópumótsins í knattspyrnu í síðasta mánuði. Manchester City mætir með laskað til leiks er enska úrvalsdeildin fer af stað um næstu helgi. 9.8.2021 11:30
Hljóp inn á til að húðskamma Carrasco og lét dómara leiksins fá það óþvegið í leikslok Diego Simeone, þjálfari Spánarmeistara Atlético Madríd, verður seint talinn rólegur í skapinu. Hann missti stjórn á skapi sínu er lið hans tapaði 2-1 gegn Feyenoord frá Hollandi um helgina. 9.8.2021 10:31