Svona varð Stjarnan fyrir áfalli þegar Mirza og Gunnar meiddust Mirza Sarajlija og Gunnar Ólafsson meiddust í leik með Stjörnunni gegn Grindavík í gærkvöld, í öðrum leik einvígis liðanna í Dominos-deild karla í körfubolta. 19.5.2021 11:01
„Ef það á alltaf að gefa skít í okkur þá mun afreksfólkið hverfa“ „Það er greinilega hægt að gera undanþágu fyrir ákveðna aðila. Ég er ekki að gera lítið úr Eurovision eða Eurovision-hópnum, en fyrst að þessi hópur fékk undanþágu til bólusetningar af hverju er ekki hægt að veita hana fyrir afreksíþróttafólk?“ 19.5.2021 09:00
„Ef einhver rekst á hluta af rassinum mínum þá varð ég aðeins of kappsfull“ Bandaríska skíðagöngukonan Jessie Diggins birti mynd af risastóru sári á annarri rasskinninni sem hún fékk við æfingar í Oregon þar sem hún undirbýr sig fyrir komandi ólympíuvetur. 19.5.2021 08:01
Boston í úrslitakeppnina þökk sé 50 stiga leik Tatums Eftir afar slæmt gengi síðasta mánuðinn af deildarkeppni NBA-deildarinnar náðu Boston Celtics að rífa sig í gang í nótt og koma sér í úrslitakeppnina. 19.5.2021 07:30
Hlynur í banni gegn Grindavík í kvöld Hlynur Bæringsson verður ekki með Stjörnunni gegn Grindavík í kvöld í öðrum leik einvígis liðanna í 8-liða úrslitum Dominos-deildarinnar í körfubolta. 18.5.2021 13:50
Þingmaður setur út á „sora“ KR-inga Stuðningsmenn KR kölluðu Kristófer Acox, fyrrverandi lykilmann liðsins, Júdas í fyrsta leik einvígis Vals og KR í körfubolta karla. Þingmaðurinn Helga Vala Helgadóttir lýsti hrópum stuðningsmannanna sem „sora“. 18.5.2021 13:31
Sjáðu mörkin í sigri Vals á KR og tvennu Ásgeirs og Ágústs FH, KA og Valur jöfnuðu Víking að stigum á toppi Pepsi Max-deildar karla í fótbolta í gær með sigrum. Liðin hafa nú tíu stig hvert eftir fjórar umferðir. Mörkin úr leikjum gærkvöldsins eru komin á Vísi. 18.5.2021 09:33
Allir markverðirnir og sextán til viðbótar smitaðir Eitt besta knattspyrnulið Argentínu, River Plate, hefur orðið afar illa fyrir barðinu á kórónuveirunni. Alls hafa tuttugu leikmenn liðsins smitast. 18.5.2021 08:01
Gæti óvænt snúið aftur á EM eftir langt hlé vegna kynlífsmyndbandskúgunar Didier Deschamps, landsliðsþjálfari Frakka, tilkynnir í kvöld hvaða 26 leikmenn hann ætlar að taka með á EM í júní. Mögulegt er að Karim Benzema verði í þeim hópi. 18.5.2021 07:30
NBA dagsins: Stigahæstur á leiktíðinni og næstelstur til þess á eftir Jordan Hinn 33 ára gamli Stephen Curry skoraði 46 stig í síðasta leik Golden State Warriors í NBA-deildinni á þessari leiktíð, áður en umspil og úrslitakeppni tekur nú við. 17.5.2021 15:00