Valdís hætt í atvinnumennsku: „Þrjú ár af stanslausum sársauka“ „Vonandi mun ég einn daginn geta spilað golf aftur mér til gamans,“ segir Valdís Þóra Jónsdóttir. Vegna þrálátra og slæmra meiðsla hefur hún ákveðið að hætta sem atvinnukylfingur. 7.4.2021 12:56
FIFA setur tvö knattspyrnusambönd í bann FIFA, alþjóða knattspyrnusambandið, hefur sett knattspyrnusambönd Pakistans og Tjads í bann vegna afskipta annarra af samböndunum. 7.4.2021 12:02
Leikmenn Liverpool beittir kynþáttaníði Trent Alexander-Arnold og Naby Keita, leikmenn Liverpool, voru beittir kynþáttaníði í gegnum samfélagsmiðilinn Instagram í gærkvöld þegar liðið tapaði 3-1 gegn Real Madrid í Meistaradeild Evrópu í fótbolta. 7.4.2021 11:31
Sjáðu hvernig Vinícius fór með Liverpool og atvikið umdeilda í sigri City Öll mörkin úr leikjunum í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í gærkvöld má nú sjá hér á Vísi. Real Madrid vann 3-1 sigur gegn Liverpool á Spáni en Manchester City tryggði sér 2-1 heimasigur gegn Dortmund á 90. mínútu. 7.4.2021 11:00
Gísli óttaðist um ferilinn en stuðningur mömmu hjálpaði Gísli Þorgeir Kristjánsson, landsliðsmaður í handbolta, óttaðist að handboltaferlinum væri lokið þegar hann fór úr axlarlið í síðasta mánuði. Áfallið var mikið en Gísli fékk uppörvandi skilaboð frá lækninum sem sér um aðgerð á öxlinni. 7.4.2021 10:01
Aðstoðardómari fékk eiginhandaráritun Haalands eftir leik Stuðningsmenn Manchester City vonast til þess að Erling Braut Haaland skrifi undir samning hjá félaginu í sumar. Hann var vissulega með penna á lofti á Etihad-leikvanginum í gærkvöld en það var þó í öðrum og undarlegri tilgangi. 7.4.2021 08:30
„Lét eins og að Mané stundaði dýfingar“ Jürgen Klopp sagði Liverpool-menn ekki hafa átt meira skilið en 3-1 tap gegn Real Madrid í Meistaradeild Evrópu í gærkvöld. Hann furðaði sig þó á störfum dómarans Felix Brych og sagði hann hljóta að hafa eitthvað perónulegt á móti Sadio Mané. 7.4.2021 08:02
Curry kreisti fram mikilvægan sigur „Við vitum allir hversu mikið við þurftum á þessu að halda,“ sagði Stephen Curry eftir að hafa leitt Golden State Warriors til eins stigs sigurs á Milwaukee Bucks, 122-121, í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. 7.4.2021 07:31
„Fullkomin lausn“ fyrir Willum sem var samt svekktur Willum Þór Willumsson varð að gera sér að góðu að standa utan hóps í gærkvöld, eftir að hafa ferðast frá EM í Ungverjalandi til móts við A-landsliðið vegna leiksins í Liechtenstein í undankeppni HM í fótbolta. 1.4.2021 09:00
Segir mikla pressu á Sveini vegna nafnsins en að hann höndli hana vel „Það er pressa á drengnum en það er ótrúlegt hvað hann höndlar það vel. Hann er bara svo vel gerður. Það hlýtur að koma úr móðurætt,“ sagði Arnar Þór Viðarsson léttur í bragði þegar hann ræddi um Svein Aron Guðjohnsen eftir sigurinn á Liechtenstein í kvöld. 31.3.2021 22:39