Aðmíráll viðrar hugmynd um sveit bandarískra kafbátarleitarflugvéla á Íslandi Bandarískur aðmíráll viðrar möguleika á að staðsetja kafbátaleitarflugsveit á Íslandi til þess að fylgjast með vaxandi umsvifum rússneskra kafbáta í Norður-Atlantshafi og hugsanlega koma að hafnarframkvæmdum fyrir leit og björgun á Austurlandi. 31.10.2020 13:06
Dómsmálaráðherra hefur tvo daga til að taka „næsta skref“ Veiting dvalarleyfis til egypskar barnafjölskyldu, sem á að senda úr landi á miðvikudag, væri í anda stefnu stjórnvalda og grunngilda Íslendinga. Brottvísun barna sem hafa verið hér nógu lengi til að eignast vini, læra málið og „eiga heima“ á Íslandi væri í andstöðu við almenningsálitið og yfirlýsingar tveggja ráðherra dómsmála núverandi ríkisstjórnar. 13.9.2020 12:28
Skýrar reglur sem gilda fyrir alla eru forsenda árangurs Augljóst brot Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur ferðamála- iðnaðar og nýsköpunarráðherra á sóttvarnatilmælum yfirvalda á laugardag er miklu alvarlegra mál en virðist í fyrstu. Myndir af valdamanni ganga gegn skýrum brýningum sem hafa komið fram á daglegum upplýsingafundum mánuðum saman skapa óvissu um það hvaða reglur gildi eiginlega og hvort sömu reglur gildi fyrir alla. 18.8.2020 11:57
Á fallanda fæti Það er átakanlegt að horfa upp á heimsveldi svamla ráðalaust í ólgusjó alþjóðastjórnmála en beinlínis sársaukafullt þegar um er að ræða ríki sem í 70 ár hefur haft forystu fyrir lýðræðisríkjum í heiminum. Á sama tíma fylgist umheimurinn áhyggjufullur með rísandi veldi í austri sem virðist hafa vaxandi getu og metnað til að láta að sér kveða víðar en í sínu nánasta nágrenni. 27.7.2020 13:15
Norðurlönd í sókn og vörn á viðsjárverðum tímum Fyrr í þessum mánuði skilaði Björn Bjarnason af sér merkilegri skýrslu með fjórtán tillögum um aukið samstarf norrænu ríkjanna fimm á sviði alþjóða- og öryggismála. Það er til marks um gjörbreytt umhverfi í alþjóðamálum að í skýrslunni leggur Björn mikinn þunga í tillögur um að Norðurlöndin efli með sér samstarf um stafrænar ógnir á sviði lýðræðis, jöfnuðar, tjáningarfrelsis og annarra samnorrænna gilda. 15.7.2020 12:11
Næstum einn af hverjum hundrað Bandaríkjamönnum hefur smitast af veirunni Næstum einn af hverjum eitt hundrað Bandaríkjamönnum hefur nú mælst með kórónuveiruna og nýsmitum fjölgar dag frá degi. 13.7.2020 19:34
Hrafn Jökulsson ræðst gegn ruslinu í sveitinni þar sem vegurinn endar Hrafn Jökulsson rithöfundur hefur skorið upp herör gegn rusli í Kolgrafarvík á Ströndum á norðaustanverðum Vestfjörðum. Hann hefur einsett sér að hreinsa víkina á næstu fjórum árum. 15.6.2020 07:05
Skaðræðisfrumvarp dregur tennurnar úr upplýsingalögum Upplýsingalög hafa þann yfirlýsta tilgang að tryggja gegnsæi í stjórnsýslu. Nú ætla stjórnvöld að gefa einkaaðilum færi á að trufla og tefja upplýsingagjöf hins opinbera, og skaða með því upplýsingarétt almennings. 27.5.2020 08:00
Eftirkórónuhagkerfið Tilraunir til að spá fyrir um hagkerfið eftir kórónufaraldur geta fljótt litið út eins og árleg spá völvu vikunnar. Viðburðir sem fara að spám þykja hafa verið fyrirsjáanlegir allan tímann. Spár sem rætast ekki bera í besta falli vitni um lélegar ágiskanir. En ýmislegt má samt ráða um þjóðfélagsþróun í og eftir heimsfaraldur í ljósi reynslunnar. 18.5.2020 09:20