
Íslensk tunga

Lesfimi ábótavant hjá grunnskólabörnum á miðstigi
Bæta þarf lesfimi íslenskra grunnskólanema á miðstigi, en þar dregur gjarnan úr framförum þeirra miðað við yngri bekki. Þetta er meðal þess sem fram kom á kynningarfundi vegna Þjóðarsáttmála um læsi í morgun.

Borgin geti ekki verið stikkfrí
Íslenskufræðingurinn Eiríkur Rögnvaldsson gagnrýnir Reykjavíkurborg fyrir að leyfa flennistórri auglýsingu á ensku að standa í miðborginni.

Umdeildur innkaupapoki áfram á Lækjartorgi næstu daga
Risavöxnum innkaupapoka sem auglýsir opnun verslunarinnar H&M um næstu helgi var komið fyrir á Lækjartorgi í Reykjavík í morgun. Auglýsingin er umdeild en fær að standa fram yfir mánaðamótin.

Efni úr íslenskum orðabókum nú aðgengilegt öllum á netinu
Málið.is er öllum opið endurgjaldslaust og er aðlagað snjalltækjum sem og borðtölvum.

Fjöldagrafir íslenskunnar
Þegar tungumálið okkar er svo lítið, talað af svo fáum í stóra samhenginu, að það virðist ekki borga sig að kenna tækninni það.

Hús íslenskra fræða fær leyfi
Byggingarfulltrúinn í Reykjavík hefur gefið Framkvæmdasýslu ríkisins byggingarleyfi vegna Húss íslenskra fræða á lóð Háskóla Íslands við Arngrímsgötu.

Vigdís: „Ef við týnum tungunni erum við búin að týna okkur sjálfum“
Ný verkáætlun um máltækni fyrir íslensku var kynnt í dag en markmið hennar er að íslensku verði að finna í öllum tækjabúnaði og í hugbúnaði stærstu tæknifyrirtækja heims

Nýtt íslenskt app þar sem vinir búa til „eitthvað skemmtilegt“ saman komið út
Íslenska appið Skroll er komið út í App Store fyrir iPhone. Appið var "opnað“ með pompi og prakt í morgunþættinum Brennslunni á FM957 í morgun.

Segir enskunotkun Íslendinga snuða ferðamenn
Tíð enskunotkun Íslendinga og íslenskra fyrirtækja snuðar ferðamenn sem hingað sækja um hluta af þeirri upplifun sem væntingar stóðu til að mati lektors við Háskólann á Akureyri.

Fyrirtækin berjist fyrir íslenskunni
Íslensk málnefnd heitir á forystumenn í íslensku atvinnulífi og stjórnendur íslenskra fyrirtækja, stórra sem smárra, að beita áhrifamætti sínum og ganga heils hugar í lið með þeim sem berjast fyrir lífi íslenskrar tungu.

Segir það hallærislega ákvörðun hjá Flugfélagi Íslands að leggja íslenskunni
"Þetta er spurningum um metnað og viðhorf til móðurmálsins.“

Sýna hvað Íslendingar sletta mikið: „Þú ert dúddi og þetta er dúddapleis"
Hópur fólks í Listaháskóla Íslands hefur tekið sig til undir nafninu Slangrið og vekur athygli á enskuslettum íslendinga.

Stafræn íslenska fær átta milljóna setninga stuðning
Creditinfo afhenti í dag Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum gögn til uppbyggingar stafrænnar íslensku. Um er að ræða tæplega 8 milljónir setninga frá talaðri og ritaðri íslensku sem verður undirstaðan í stafrænum textagrunni sem Árnastofnun er að setja á laggirnar til stuðnings við stafrænar tæknilausnir.

Vandi íslenskunnar vekur heimsathygli
Fjölmiðlar víða um heim hafa fjallað um þá hættu sem steðja að íslenskri tungu eftir að Vigdís Finnbogadóttur varaði við því að íslenskan hæti hlotið sömu örlög og latínan.

Vigdís Finnbogadóttir: „Ef ekkert verður að gert lendir íslenskan í ruslinu með latínunni“
Fyrrverandi forseti Íslands hefur þungar áhyggjur af stöðu íslenskrar tungu. Íslenskt mál á undir högg að sækja í kjölfar aukinna áhrifa ensku í kjölfar alþjóðavæðingar í stafrænum heimi. Þetta segir í umfjöllun AP-fréttaveitunnar um stöðu íslenskunnar.

Netflix leitar að íslenskumælandi þýðendum
Telurðu þig geta aðstoðað efnisveituna við þýðingar? Taktu prófið.

Amazon vill fá íslenskan málfræðing til starfa
Bandaríska stórfyrirtæki Amazon leitar nú að sérfræðingi í íslenskri málfræði til að vinna að þróun talgreiningar og máltækni fyrir stafræna aðstoðarmanninn Alexa.

Íslenska á tölvuöld: Ekki einfalt mál fyrir Google að bjarga íslenskunni
Guðmundur Hafsteinsson framkvæmdastjóra vöruþróunar hjá Google Assistant hélt erindi á vegum Samtaka atvinnulífsins. Í máli Guðmundar mátti glögglega greina þær áskoranir sem íslenska tungan stendur frammi fyrir þegar kemur að máltækni.

Villur af ýmsu tagi á vef fyrir framhaldsskólanema
Eiríkur Rögnvaldsson prófessor furðar sig á vinnubrögðunum.

(ísl)enska
"Æ, hvað heitir þetta aftur?“ spyr hann í miðri frásögn og ég sogast til baka út úr þessum ókannaða ævintýraheimi. "Ég man ekki hvað þetta heitir á íslensku. Má ég ekki bara segja það á ensku?“ Ég kinka kolli og í sömu andrá kastar hann út úr sér einhverri framandi hljóðarunu.

Vilja tvo milljarða fyrir framtíð íslenskunnar: „Við áttum að byrja fyrir fimm til tíu árum“
Vænta má þess innan tíðar að hægt verði að stýra tækjum með röddinni einni saman. Mikilvægt er að íslenska tungan verði með í þeirri þróun.

Lærði forníslensku og bjó svo til rafrænt sagnakort
Ensk stúlka heillaðist svo af Íslendingasögunum að hún er búin að þróa rafrænt sagnakort svo ferðamenn á leið um Ísland geti kynnst íslenska sagnaarfinum.

Er íslenska óþörf?
Ég lifi og hrærist í vernduðu málaumhverfi. Fólkið sem ég umgengst hefur að miklu leyti sömu lífssýn, sömu gildi og sömu skoðun á mikilvægi íslenskrar tungu og ég sjálf. Nýlega steig ég út úr þessu verndaða umhverfi og sótti námskeið ásamt fólki alls staðar að úr atvinnulífinu.

Íslenska á tölvuöld: Ryksugur framtíðarinnar gætu talað íslensku
Með Amazon Polly eru möguleikarnir nánast endalausir segir sérfræðingur Blindrafélagsins.

Íslenska á tölvuöld: Nýjasta vara Amazon talar íslensku með hjálp Dóru og Karls
Talgervlarnir Dóra og Karl eru nú í aðalhlutverki hjá Amazon sem kynnti í gær nýja þjónustu, Amazon Polly. Polly getur tekið texta og lesið á lýtalausri íslensku.

Íslenska á tækniöld: Auðveldara að fá fjármagn til að bjarga hafnargarðinum en íslenskri tungu
Prófessor í íslenskri málfræði er orðin þreyttur á því að það eina sem gerist til að tryggja framtíð íslensku á tækniöld séu endalausar áætlanir en engar aðgerðir.

Íslenska á tölvuöld: Rannsaka áhrif snjalltækja á máltöku íslenskra barna
Stærsti styrkur í sögu Hugvísindasviðs fer í að „sjúkdómsgreina“ málið.

Íslenska á tölvuöld: Atvinnulífið skaffar milljónir til stuðnings tungumálinu
Bara fyrsta skrefið, segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hjá Samtökum atvinnulífsins.

Íslenska á tölvuöld: Bið eftir fjármunum til bjargar tungumálinu
Stjórnvöld munu verja næstu mánuðum í að endurgera aðgerðaáætlun fyrir íslenska máltækni. Þingmaður Vinstri grænna segir ekkert að vanbúnaði að hefja vinnu.

Íslenska á tölvuöld: Aukin notkun snjalltækja þegar haft áhrif á málkunnáttu barna?
Fræðimenn vilja kanna hvort íslenskukunnáttu íslenskra barna hafi farið aftur og hvort satt sé að þau leiki sér í auknum mæli saman á ensku.