Vísindi

Næðum ekki hjarðónæmi án alvarlegra afleiðinga
Hjarðónæmi við kórónuveirunni næst ekki án alvarlegra afleiðinga og enginn vísindalegur rökstuðningur hefur verið settur fram fyrir hugmyndum um að aflétta sóttvarnaaðgerðum og treysta á náttúrulegt hjarðónæmi, að sögn íslenskra sérfræðinga.

Grípur sér sýni úr smástirninu Bennu í kvöld
Bandaríska geimfarið Osiris-Rex reynir að grípa bergsýni úr yfirborði smástirnisins Bennu í kvöld að íslenskum tíma. Til stendur að senda sýnið aftur til jarðar og gangi áformin eftir verður það stærsta sýni úr geimnum sem hefur komið til jarðar frá því að Apollógeimfararnir sneru heim frá tunglinu á 8. áratug síðustu aldar.

Fólk glímir enn við fjölþætt einkenni mánuðum eftir veikindin
Þótt einkennum fækki og dragi úr styrkleika þá er fólk sem smitaðist af kórónuveirunni engu að síður að glíma við fjölþætt einkenni mánuði eftir veikindin. Hafi þetta áhrif á daglegt líf, sem lýsi sér einkum í þreytu, mæði og verkjum. Fyrstu niðurstöður íslenskrar rannsóknar á Landspítala ogHáskóla Íslands benda til þessa.

Frekari hlýnun líkleg til að valda stórfelldum breytingum á fiskveiðum við Ísland
Hlýni sjórinn í kringum Ísland um tvær til þrjár gráður ylli það líklega stórfelldum breytingum á útbreiðslu fiska og fiskveiðum á Íslandi.

Nóbelinn í efnafræði fyrir framfarir í erfðatækni
Þær Emmanuelle Charpentier og Jennifer Doudna hluti Nóbelsverðlaun í efnafræði í morgun fyrir að þróa aðferð til þess að breyta erfðamengi sem hefur verið kennd við CRISPR/Cas9. Tæknin er sögð byltingarkennd fyrir lífvísindi.

Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði?
Tilkynnt verður um verðlaunahafa á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:45 að íslenskum tíma.

Deila Nóbelnum í eðlisfræði fyrir uppgötvanir á svartholum
Þrír vísindamenn deila Nóbelsverðlaunum í eðlisfræði í ár fyrir uppgötvanir þeirra á svartholum. Nóbelsnefndin greindist frá verðlaunahöfunum nú í morgun.

Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði?
Sænska vísindaakademían mun í dag tilkynna um hver hlýtur Nóbelsverðlaun í eðlisfræði í ár. Tilkynnt verður um verðlaunahafa á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:45 að íslenskum tíma.

Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvanir um lifrarbólgu C
Bandaríkjamennirnir Harvey J. Alter, Michael Houghton og Charles M. Rice fá Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði fyrir uppgötvanir sínar um lifrarbólgu C veiruna.

Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í læknisfræði?
Nóbelsnefnd Karólínsku stofnunarinnar í Svíþjóð mun tilkynna innan skamms hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði.

Telja að gen frá neanderdalsmanninum auki líkurnar á að veikjast alvarlega af Covid-19
Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til þess að gen sem nútímamaðurinn erfði frá neanderdalsmanninum geti þrefaldað líkurnar á því að fólk veikist alvarlega af sjúkdómnum Covid-19.

Gjörbylting í meðferð krabbameina
Gjörbylting hefur orðið síðustu ár í meðferð krabbameinsveikra með nýjum líftæknilyfjum. Maður sem greindist með alvarlegasta stig krabbameins sem hafði dreift sér, læknaðist eftir slíka meðferð.

Hnattræn hlýnun gerir gróðureldana „ótvírætt“ verri
Loftslagsbreytingar af völdum manna hafa ótvíræð áhrif á umfang og áhrif gróðurelda sem hafa valdið hörmungum í Kaliforníu í Bandaríkjunum undanfarin ár. Hlýnun hefur skapað kjöraðstæður fyrir eldana.

Ætla að senda geimfara til suðurpóls tunglsins árið 2024
Bandaríska geimvísindastofnunin NASA hefur kynnt áætlun sína um að senda menn til tunglsins í fyrsta sinn frá árinu 1972. Þetta verður fyrsta mannaða geimferðin til suðurpóls tunglsins og í fyrsta sinn sem kona verður um borð.

Fingraför manna alls staðar á gróðureldunum vestanhafs
Loftslagsbreytingar af völdum manna sköpuðu aðstæðurnar sem hafa gert gróðureldana miklu í vestanverðum Bandaríkjunum enn verri en ella. Fleiri mannanna verk hafa þó stuðlað að alvarleika eldanna, þar á meðal umhirða skóga og skipulag byggðar.

Fundu fullkomlega varðveittan ísaldarbjörn í Síberíu
Hreindýrahirðar í Síberíu fundu fullkomlega varðveitt hræ hellisbjarnar, útdauðrar bjarnartegundar frá ísöld, í þiðnandi sífrera.

Fundu mögulegar vísbendingar um líf á Venusi
Gastegund sem gæti verið afurð örvera fannst við rannsóknir á reikistjörnunni Venusi. Vangaveltur hafa lengi verið uppi um að líf gæti mögulega þrifist í efri lögum lofthjúps reikistjörnunnar en þetta er í fyrsta skipti sem mögulegar vísbendingar um líf þar hafa fundist.

Faraldurinn stöðvar ekki loftslagsbreytingar
Losun gróðurhúsalofttegunda stefnir í sama horf og áður en kórónuveiruheimsfaraldurinn hóf innreið sína fyrr á þessu ári þrátt fyrir metsamdrátt.

Heita því að flýta ekki bóluefni um of
Níu evrópskir og bandarískir lyfjarisar hafa heitið því að fylgja í hvívetna vísindalegum viðmiðum við þróun bóluefnis vegna Covid-19 og að freistast ekki til þess að flýta þróun á kostnað gæða.

David Blaine svífur um loftið með helíumblöðrum
Töframaðurinn David Blaine ætlar sér að svífa um loftið í Arizona í Bandaríkjunum og aðeins fastur við 52 helíumblöðrur.

Telja tengsl milli offitu og alvarlegra afleiðinga veirunnar
Offeitir eru 113 prósent líklegra til að þurfa spítalainnlögn vegna kórónuveirunnar.

Afríka laus við mænusótt
Um er að ræða stærsta sigurinn á sviði lýðheilsu í Afríku frá því að tókst að útrýma bólusótt. Þannig lýsir Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) því að nú hafi tekist að útrýma mænusótt í öllum ríkjum Afríku.

Finnar telja sig hafa slátrað timburmönnum
Hópur finnskra vísindmanna telur sig hafa fundið leið til að draga stórlega úr eftirköstum áfengisneyslu.

Leita enn að því sem féll í sjóinn
Enn er verið að að athuga hvort hægt sé að endurheimta þá hluta Skylark Micro eldflaugarinnar sem féllu í sjóinn eftir vel heppnað eldflaugaskot á Langanesi um helgina.

Of hvasst fyrir eldflaugaskot á Langanesi í dag
Annan daginn í röð er of hvasst á skotstað á Langanesi í dag þar sem skoska fyrirtækið Skyrora hyggst skjóta upp tilraunaeldflaug.

Mörg hundruð dauðfalla rakin til rangra upplýsinga um veiruna
Að minnsta kosti átta hundruð manns létust fyrstu þrjá mánuði ársins í heiminum þar sem andlátið má rekja beint til rangra upplýsinga varðandi kórónuveiruna.

Vísindamenn segja erfitt að treysta bóluefni Rússa
Vísindamenn eru sumir hverjir undrandi yfir tilkynningu Vladimírs Pútín Rússlandsforseta um það að heilbrigðisyfirvöld í landinu hafi lagt blessun sína yfir bóluefni gegn kórónuveirunni sem þróað var í Rússlandi.

Vel er fylgst með geymslu á ammóníum nítrat-áburði hér á landi
Sérfræðingur og fyrrum forstjóri Mannvirkjastofnunar segir að vel sé fylgst með geymslu og notkun á ammóníum nítrat áburði hér á landi.

Bjóst við því að „næsta bylgja“ kæmi seinna
Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði, segir vinnu við nýtt spálíkan vera í þann mund að hefjast.

Smíða stærsta kjarnasamrunaofn í heimi
Vinna hófst í Frakklandi í dag við byggingu stærsta kjarnasamrunaofn heims. Þessi alþjóðlega vinna mun standa yfir í fimm ár, samkvæmt áætlunum, og munu þá hefjast tilraunir með samruna í lok árs 2025.