
Icelandair

Þingheimur þurfi „svör við mörgum spurningum“ varðandi ríkisábyrgð Icelandair
Oddný G. Harðardóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, telur að þingheimur þurfi að fá „svör við mörgum spurningum“ áður en hægt verði að samþykkja það að íslenska ríkið ábyrgist lánalínu til Icelandair.

Funda um ríkisábyrgð og Icelandair í Hörpu
Frumvarp til fjáraukalaga verður rætt á Alþingi á föstudag en Alþingi kemur saman á ný á morgun vegna hins svokallaða „þingstubbs“ sem samið var um í vor.

Ríkið fær veð í vörumerki og lendingarheimildum Icelandair gangi félagið á ríkisábyrgðina
Fari svo að Icelandair þurfi að ganga á lánalínuna sem íslenska ríkið hyggst ábyrgjast fyrir félagið er miðað við að ríkið fái veð í vörumerki Icelandair Group og Icelandair, vefslóð sömu félaga, bókunarkerfi Icelandair sem og lendingarheimildum í London og New York, ef unnt reynist að taka veð í lendingarheimildum.

Ríflega 28 þúsund beiðnir um endurgreiðslu enn á borði Icelandair
Icelandair hefur þegar endurgreitt hátt í 107 þúsund bókanir frá öllum markaðssvæðum félagsins frá því að kórónuveirufaraldurinn skall á. Að baki hverri bókun og þar af leiðandi endurgreiðslubeiðnum getur verið fjöldi farþega.

Endurgreiðslukröfur á Icelandair á borði Neytendasamtakanna hlaupa á hundruðum
Hundruð mála eru á borði Neytendasamtakanna vegna endurgreiðslna sem ekki hafa borist fyrir flugmiða sem keyptir voru í ferðum sem ekki voru farnar.

Segir vegið að grundvallarreglum á vinnumarkaði og undirbúa málsókn
Alþýðusamband Íslands hyggst stefna Icelandair fyrir félagsdómi vegna framgöngu félagsins í kjaradeilu við flugfreyjur. Lögfræðingur ASÍ segir Icelandair hafa vegið að grundvallarreglum á vinnumarkaði.

Skoða að sölutryggja hlutafjárútboðið
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, segir að það komi til greina og sé til skoðunar að sölutryggja fyrirhugað hlutafjárútboð Icelandair.

Hertar reglur á landamærum hafi ekki áhrif á undirbúning hlutafjárútboðs
Áætlað er að hagræðing vegna nýrra kjarasamninga við flugstéttir nemi hátt í fjórum milljörðum króna á ári. Félagið hyggst falla frá kaupum á fjórum af tíu Boeing MAX-flugvélum sem ekki var búið að afhenda.

Meta fjárhagsleg áhrif samkomulags við Boeing á 35 milljarða
Icelandair reiknar með að fjárhagsleg áhrif samkomulags við flugvélaframleiðandan Boeing vegna 737 MAX flugvéla framleiðandans nemi 260 milljónum dollurum, 35 milljörðum króna á gengi dagsins í dag.

Icelandair sýnir spilin fyrir væntanlegt hlutafjárútboð
Icelandair birti í gærkvöldi kynningargögn fyrir fyrirhugað hlutafjárútboð félagsins sem haldið verður 14. til 15. september næstkomandi, fáist samþykki hluthafafundar þann 9. september.

Segir ekki koma á óvart að hlutafjárútboði hafi verið frestað
Fyrirhuguðu hlutafjárútboði Icelandair hefur verið frestað fram í september. Greinandi segir þá ákvörðun ekki koma á óvart enda séu miklir hagsmunir í húfi.

Telur fjárhagslega endurskipulagningu Icelandair duga fyrir rekstri í tvö ár
Fjármálaráðherra segir að áætlanir Icelandair um fjárhagslega endurskipulagningu og hlutafjáraukningu ættu að duga fyrir rekstri félagsins í að minnsta kosti tvö ár.

Munu veita allt að 16,5 milljarða ríkisábyrgð
Íslensk stjórnvald hafa ákveðið að veita Icelandair ríkisábyrgð á lánalínu sem nemur allt að 120 milljónum Bandaríkjadala.

Hlutabréfaverð Icelandair tekur dýfu og nálgast vænt útboðsverð
Gengi hlutabrefa Icelandair Group hefur hríðfallið við opnun markaða í morgun. Um hádegisbilið nam lækkunin tæpum 36 prósentum.

Fresta hlutafjárútboðinu með fyrirvara um nýja heimild
Tímalína fyrirhugaðs hlutafjárútboðs Icelandair hefur verið uppfærð, að því er fram kemur í tilkynningu frá upplýsingafulltrúa félagsins. Stefnt er að því að útboðið fari fram í september.

Hættustigi aflýst: Flugvél Icelandair lenti heilu og höldnu
Hættustigi rauðu hefur verið lýst yfir á Keflavíkurflugvelli vegna vélartruflana hjá flugvél Icelandair sem fór í loftið fyrr í morgun.

Icelandair hafi verið búið undir góðar fréttir á víxl við slæmar
Forstjóri Icelandair segir ljóst að breytingar á skimunarfyrirkomulagi á landamærunum muni draga úr ferðavilja fólks og þar af leiðandi muni ferðamönnum sem koma hingað til lands á næstunni fækka. Félagið hafi verið búið undir góðar fréttir á víxl við slæmar.

Mikil óvissa hjá Icelandair: „Við höfum enn súrefni“
Mikil óvissa er um hvernig ferðir Icelandair verða í haust en nú hefur félagið aðeins flogið til áfangastaða í Evrópu en ekki er tekið á móti ferðamönnum í Norður-Ameríku.

Samningaviðræður við ríkið um ríkisábyrgð standa yfir
Icelandair Group er á lokasprettinum í fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins. Samningaviðræður við ríkið standa nú yfir um lánalínu með ríkisábyrgð.

Icelandair Hotels fá brúarlán upp á 1.200 milljónir króna
Icelandair Hotels, sem er ein stærsta hótelkeðja landsins, hefur komist að samkomulagi við Arion banka um að keðjan fái 1.200 milljóna króna brúarlán.

Lokaspretturinn eftir hjá Icelandair
Forstjóri Icelandair Group segir að nú sé lokaspretturinn eftir í fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins

Hafa lokið samningum við Boeing og kröfuhafa
Forsvarsmenn Icelandair Group hafa lokið viðræðum við kröfuhafa félagsins og náð endanlegu samkomulagi við Boeing vegna kyrrsetningar MAX flugvélanna. Samningaviðræður við ríkið um ríkisábyrgð standa yfir.

Fjárhagsleg endurskipulagning stendur enn yfir
Vinna við fjárhagslega endurskipulagningu Icelandair stendur enn yfir.

Fjórfalt fleiri farþegar milli mánaða en 87 prósent færri en í fyrra
Þó svo að farþegaflutningar Icelandair í nýliðnum júlímánuði hafi dregist saman milli ára jukust þeir engu að síður umtalsvert milli mánaða, ef marka má mánaðarlegar flutningatölur félagsins.

Norræna flutningamannasambandið fordæmir Icelandair
Norræna flutningamannasambandið, NTF, fordæmir aðgerðir Icelandair í kjaraviðræðum félagsins við Flugfreyjufélag Íslands. Sambandið hvetur Icelandair jafnframt til að bæta starfsandann hjá félaginu.

„Best fyrir alla“ ef flugfreyjur hefðu samþykkt fyrri samninginn
Davíð Þorláksson, forstöðumaður samkeppnishæfnissviðs hjá Samtökum atvinnulífsins, segir það ekki hafa verið fyrsta val að slíta viðræðum Icelandair við Flugfreyjufélagið eftir að samningur var felldur í byrjun júlí.

Icelandair hefur undirritað samninga við flesta kröfuhafa
Samningaviðræður Icelandair við kröfuhafa eru vel á veg komnar og hafa samningar við flesta kröfuhafa verið undirritaðir.

Flugfreyjur Icelandair næstu tvo mánuði verði um 200 talsins
Forstjóri Icelandair Group segir um 200 flugfreyjur og flugþjónar verði á mála hjá félaginu í ágúst og september, þetta kom fram í viðtali við Boga Nils í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Tap Icelandair Group nam 12,3 milljörðum á öðrum ársfjórðungi
Tap Icelandair Group á öðrum ársfjórðungi nam 12,3 milljörðum króna samkvæmt uppgjöri annars ársfjórðungs félagsins sem birt var í kauphöll nú rétt eftir klukkan 17.

„Fólk er að kjósa að Flugfreyjufélag Íslands verði áfram stéttarfélagið okkar“
Formaður Flugfreyjufélags Íslands segir það ekki koma á óvart að nýr kjarasamningur hafi verið samþykktur í dag. Atkvæðagreiðslan hafi ekki einungis snúist um nýjan kjarasamning heldur einnig um það hvort Flugfreyjufélagið yrði áfram stéttarfélag flugfreyja.