Dýr

Fréttamynd

Enginn hand­tekinn en á­fram á­ætlað að sömu aðilar hafi verið að verki

Tvö áþekk innbrot voru framin í byrjun sumars, fyrst í svínabú Stjörnugríss í Brimnesi á Kjalarnesi aðfaranótt mánudagsins 11. maí en síðar í Reykjabú í Mosfellsbæ, þar sem ræktaðir eru kalkúnar og kjúklingar, aðfaranótt mánudagsins 1. júní. Rannsókn beggja mála er ólokið og hefur enginn verið handtekinn en lögreglan hefur leitað að vitnum síðan í upphafi júní.

Innlent
Fréttamynd

Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna

Björgunarsveitarmönnum tókst vel að síga niður eftir lambi sem hafði komið sér í sjálfheldu í Krýsuvíkurbjargi. Formaður Björgunarsveitar Hafnarfjarðar segir að lambið hafi verið kampakátt að komast aftur til kindanna á svæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Hundur hefur fundist dauður við Lang­jökul

Hundur hefur fundist dauður vestanmegin við Langjökul en ekki er víst hvort hann lá í jöklinum sjálfum og sé að koma undan núna í hlýnandi veðri eða hvort hann hafi legið á ísnum eða við jaðar jökulsins. Ekki er hægt að meta tegund né lit á feldi vegna mikils niðurbrots en hundurinn virðist vera af meðalstærð.

Innlent
Fréttamynd

Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn

Á þriðjudag vakti myndband af uppátæki starfsmanns Hvals hf. sem lék sér að limi hvalhræs sem Hvalur 8 dró að landi mikla athygli. Uppátækið virðist ekki vera einsdæmi en ljósmynd frá árinu 2023 sýni starfsmann Hvals í svipuðu látæði. 

Innlent
Fréttamynd

Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leður­blöku á and­litinu

Ellefu ára kanadískur drengur lést úr hundaæði eftir að hafa vaknað við að leðurblaka var sest á andlit hans en atvikið átti sér stað árið 2024. Foreldrar drengsins leituðu með hann til læknis um tveimur vikum seinna þegar hann fór að finna fyrir doða og bólgu í andliti. Illa gekk að greina einkenni hans og á tímabili var gert ráð fyrir að hann væri með svokallaða Bell-lömun og seinna herpes-munn- og gómsýkingu. Þegar hann var loks greindur með hundaæði átti hann rétt rúmar tvær vikur ólifaðar.

Erlent
Fréttamynd

Krefjast tafar­lausrar stöðvunar hval­veiða

Dýraverndarsamband Íslands, Hvalavinir – vernd hafsins, Náttúruverndarsamtök Íslands og Samtök um dýravelferð hafa sent Matvælastofnun (MAST) formlega kröfu um að hvalveiðar Hvals hf. verði stöðvaðar tafarlaust og að hafin verði ítarleg rannsókn á meintum brotum á lögum um velferð dýra.

Innlent
Fréttamynd

Hvalur háði hálf­tíma dauða­stríð

Samkvæmt skýrslu Matvælastofnunar háði langreyður hálftíma langt dauðastríð þegar skyttur Hvals hf. veiddu hana hinn 22. júní. Dýraverndarsamtök krefjast þess að félagið verði svipt veiðileyfi.

Innlent
Fréttamynd

„Allir eru reiðu­búnir að hætta á hand­töku“

Leiðangursstjóri Aðgerðar 86, sem er um borð í skipinu Bandero, biður Íslendinga afsökunar á því að hafa komið til landsins fyrir fjórum áratugum í skjóli nætur. Þá sökkti hann tveimur hvalveiðiskipum. Hópur fólks um borð í Bandero siglir nú innan lögsögu Íslands í því skyni að binda enda á hvalveiðar.

Innlent
Fréttamynd

Sér­sveitar­menn um borð í Þór

Þór, varðskip Landhelgisgæslunnar lagði af stað klukkan þrjú í dag frá Reykjavíkurhöfn í átt að hvalveiðiskipum Hvals hf. vegna hótana Pauls Watsons sem beint er að hvalveiðum fyrirtækisins. Fimm sérsveitarmenn auk séraðgerðarmanna Landhelgisgæslunnar eru um borð í skipinu.

Innlent
Fréttamynd

Hafa ekki gefið Land­helgis­gæslunni upp stað­setningu Bandero

Áhöfn skipsins Bandero, skip hvalveiðiverndaraktívistans Paul Watson, hefur ekki orðið við beiðnum Landhelgisgæslunnar um að gefa upp staðsetningu skipsins sem sigldi inn í efnahagslögsögu Íslands í gær. Formaður Hvalavina hefur áhyggjur af komu skipsins til landsins.

Innlent
Fréttamynd

„Þegar við komum til Ís­lands munum við stöðva hann“

Landhelgisgæslan er í viðbragðsstöðu vegna mögulegrar komu skipsins Bandero til Íslands. Í myndbandi sem birt var á Facebooksíðu samtaka Paul Watson í gær segir hann að allt verði gert til að koma í veg fyrir að veiddir verði hvalir á meðan samtökin eru á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

Drógu dauða lang­reyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“

Farþegum og leiðsögumönnum um borð í hvalaskoðunarskipi Eldingar varð hverft við þegar við þeim blasti dauð langreyður í eftirdragi hvalveiðiskips í Faxaflóa í gær. Leiðsögumaður segi suma farþega hafa orðið skelfingu lostna. Framkvæmdastjóri Eldingar segir að lifandi hvalir séu einnig auðlind og hvalaskoðun líka vertíð.

Innlent
Fréttamynd

„Dýra­vernd er ekki öfgaskoðun“

Formaður Dýraverndarsamtaka Íslands vill að stjórnvöld stöðvi hvalveiðar með því að afnema undanþágu Hvals hf. til að verka matvæli undir berum himni. Dýravernd séu ekki öfgaskoðanir og stöðva beri starfsemi sem feli í sér dýraníð.

Innlent
Fréttamynd

Þrastahreiður í Garða­bæ í beinni

Þrestir hafa hreiðrað um sig í hreiðri sem áður tilheyrði störrum í Garðabæ. Hægt er að fylgjast með hreiðrinu í beinni. Streymið er á vegum fyrirtækisins Bláberg.

Lífið
Fréttamynd

Hrafni bjargað af þaki Byko

Þegar starfsmenn mættu til starfa í morgun, í Kjalarvogi nánar tiltekið, blasti við hrafn hangandi í girni sem fast var við þak Byko. Starfsmenn Húsasmiðjunnar höfðu samband við lögreglu sem sendi slökkviliðið á staðinn. Slökkviliðið virtist vel búið til að sinna verkefnum sem þessum, þeir höfðu snör handtök og björguðu krumma.

Innlent
Fréttamynd

Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt

Hvalur 9, sem sigldi út á miðin á föstudagskvöld, hefur skotið tvo hvali og er nú á leið með þá í land. Þetta eru fyrstu hvalirnir sem veiddir eru á Íslandsmiðum síðan 2023.

Innlent
Fréttamynd

Mannmiðjuvillan og dýradráp Ís­lendinga

Mannmiðjuvillan Þessi ríka tilhneiging mannsins til að líta svo á að hann eigi tilkall til auðlinda jarðar og eðlislægt yfirráð yfir öðrum lifandi verum og plánetunni sjálfri. Hún einkennist af djúpum misskilningi mannsins um stöðu sína í vistkerfinu. Það er ekki svo langt síðan að við héldum við að sólin snerist í kringum jörðina og að við værum miðja alheimsins.

Skoðun