Heilbrigðismál
104 105 106 107 108 109 110 111 112 … 214 ›
Fresta breytingum á skimun eftir mikla gagnrýni Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að fresta um ótiltekinn tíma breytingum á neðri mörkum aldursviðmiða vegna lýðgrundaðra skimana fyrir brjóstakrabbameinum. Kynna þurfi betur áformaðar breytingar og fagleg rök að baki þeim. Ákvörðun um að hækka efri mörk aldursviðmiðanna úr 69 árum í 74 ár stendur óbreytt. Innlent 13.1.2021 15:50
Ljósabekkjum fer fjölgandi á höfuðborgarsvæðinu Lítilleg fjölgun hefur orðið á þeim fjölda ljósabekkja sem fólki er seldur aðgangur að hér á landi frá árinu 2017. Eru þeir nú 97 talsins og hefur fjölgað um sjö á síðustu þremur árum. Aukningin á sér öll stað á höfuðborgarsvæðinu en fjöldi ljósabekkja á landsbyggðinni hefur minnkað lítillega á sama tímabili. Viðskipti innlent 13.1.2021 14:47
Að lifa með geðsjúkdóma Hæ, ég heiti Eymundur Eymundsson og er fæddur 1967. Ég er Akureyringur og glími við geðsjúkdóma en ég er ekki geðsjúkdómarnir frekar að sú manneskja sem glímir við gigtarsjúkdóm er ekki gigtarsjúkdómurinn. Ég er bara ágætur drengur með mínar tilfinningar einsog hver annar sem vil láta gott af mér leiða eins og margir aðrir. Skoðun 13.1.2021 14:01
Brjóstaskurðlæknir hefur efasemdir um að seinka skimun á brjóstakrabbameini Brjóstaskurðlæknir hefur efasemdir um þá ákvörðun að hefja skimun fyrir brjóstakrabbameini um fimmtugt í stað fertugs. Ísland sé í aðstöðu til að gera betur og miða þjónustuna við hverja konu. Innlent 12.1.2021 20:01
Enginn á að verða útundan í bólusetningu Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins bindur enn vonir við að hægt verði að bólusetja stærstan hluta þjóðarinnar á stuttum tíma. Gætt verði að því að enginn verði útundan þegar búið verði að bólusetja viðkvæmustu hópana. Innlent 12.1.2021 19:22
Fóru ekki eftir tillögum fyrrverandi yfirlæknis um brjóstaskimun Fyrrverandi yfirlæknir og sviðsstjóri leitarsviðs Krabbameinsfélagsins telur að heppilegra hefði verið að fara hægar í það að hækka aldurinn fyrir brjóstaskimunum kvenna úr 40 árum í 50 ár. Hann lagði til við skimunarráð að konum sem nú þegar eru byrjaðar í skimun yrði áfram fylgt eftir en ekki var farið að hans ráðum. Tæplega tíu þúsund hafa skrifað undir undirskriftalista þar sem nýjar reglur eru gagnrýndar. Innlent 12.1.2021 13:17
Safna undirskriftum gegn því að brjóstaskimun hefjist ekki fyrr en við fimmtugt Hafin er undirskriftasöfnun gegn þeirri ákvörðun heilbrigðisyfirvalda að hefja ekki skimun fyrir krabbameini í brjóstum kvenna fyrr en við fimmtugt. Söfnunin hófst í gærkvöldi og þegar þetta er skrifað hafa 6.600 manns skrifað undir. Innlent 12.1.2021 10:25
„Við vitum ekki hvað við fáum að hafa hann lengi“ Til þess að geta verið á vinnumarkaði þurfa Vera Kristín Vestmann Kristjánsdóttir og maðurinn hennar að treysta á að vera með skilningsríka yfirmenn. Sem foreldrar langveiks barns geta þau ekki verið í fullu starfi og eru því bæði kennarar í skertu hlutfalli. Lífið 12.1.2021 09:28
Álag og samskiptavandi við yfirmenn sögð valda óánægju meðal slökkviliðsmanna Mikil óánægja er meðal slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna á höfuðborgarsvæðinu, samkvæmt niðurstöðum nýrrar starfsánægjukönnunar. Álag, léleg samskipti við yfirmenn og lítil endurmenntun eru sögð helstu vandamálin. Innlent 11.1.2021 20:00
Brjóstaskimunin varð lífsbjörg Kona sem lauk nýlega meðferð við brjóstakrabbameini segir að boðun í skimun sem hún fékk fertug líklega hafa bjargað lífi sínu. Hún segir það hafa verið átakanlegt að heyra af ákvörðun heilbrigðisyfirvalda um að skima konur ekki fyrr en við fimmtugt. Innlent 11.1.2021 19:31
Mega konur ekki lengur taka ábyrgð á eigin heilsu? Árið 2019 stóð Krabbameinsfélagið fyrir tilraunaverkefni þar sem konur á aldrinum 23 til 40 ára fengu boð um ókeypis skimun fyrir krabbameini í leghálsi og brjóstum. Skoðun 11.1.2021 15:32
Farsóttarhúsið við Rauðarárstíg fullt og nýtt opnað Farsóttarhúsið við Rauðarárstíg í Reykjavík er orðið fullt. Síðasta herbergið var fyllt í morgun og verður annað farsóttarhús opnað á höfuðborgarsvæðinu í dag. Þetta kom fram í máli Gylfa Þórs Þorsteinssonar, umsjónarmanns sóttvarnahússins, á upplýsingafundi almannavarna og Embættis landlæknis í morgun. Innlent 11.1.2021 11:41
Umboðsmaður Alþingis vill fá upplýsingar um öll alvarleg atvik hjá frelsissviptum Settur umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir því að dómsmálaráðuneytið, heilbrigðisráðuneytið og félagsmálaráðuneytið sjá til þess að stofnanir sem undir þau heyra og hýsa frelsissvipt fólk tilkynni umboðsmanni um alvarleg atvik sem þar verða. Innlent 11.1.2021 10:56
Liggur við að Kári spyrji hvað Svíinn í Sviss sé að reykja „Ég hafði svo sannarlega rangt fyrir mér og það gleður mig,“ segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, um þann spádóm að Íslendingar þyrftu að glíma við nýja bylgju kórónuveirufaraldursins í tengslum við hátíðirnar. Þess í stað hafi gengið prýðilega að halda faraldrinum hér niðri, sérstaklega ef litið er til Bandaríkjanna eða ríkja Evrópu. Innlent 10.1.2021 23:56
Fólk sem velur ekki skimun gert að dvelja í sóttvarnarhúsi Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að skylda farþega sem neita að fara í landamæraskimun til að fara í 14 daga sóttkví í farsóttarhúsi. Með þessu féllst hún ekki á þá tillögu sóttvarnalæknis að öllum komufarþegum verði skylt að fara í landamæraskimun. Innlent 10.1.2021 23:15
Daginn hefur lengt um klukkustund í Reykjavík Þegar landsmenn hefja nýja vinnuviku í fyrramálið verða eflaust flestir farnir að skynja birtulengingu dagsins og undanhald skammdegisins. Á þeim þremur vikum sem liðnar eru frá vetrarsólstöðum 21. desember hefur daginn þannig lengt um tæpa klukkustund í höfuðborginni Reykjavík. Innlent 10.1.2021 19:50
Segist uggandi að konur fari nú í fyrstu skimun við brjóstakrabbameini um fimmtugt Konum verður ekki lengur boðið í skimun fyrir brjóstakrabbameini við fertugt heldur verður boðið í fyrstu skimun við fimmtugt. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður viðreisnar segir það skjóta skökku við, en tilmæli Landlæknis og Fagráðs um brjóstakrabbamein eru að skimun hefjist við 45 ára aldur. Innlent 10.1.2021 12:30
Bóluefnablús Bóluefnið heldur áfram að vera helsta málið. Upplýsingar um magntölur streyma inn en enn virðist allt á huldu um afhendingartíma annað en að ekki muni fást efni fyrstu þrjá mánuði ársins nema til að þá hafi 30 þúsund manns eða rétt ríflega 8% þjóðarinnar verið bólusett. Skoðun 10.1.2021 10:01
Gætu þurft að opna fleiri farsóttarhús vegna mikillar fjölgunar Mikil fjölgun hefur verið í farsóttarhúsinu við Rauðarárstíg síðustu daga. Forstöðumaður segir ekki ólíklegt að það þurfi að opna fleiri slík hús ef fram heldur sem horfir. Ríflega þúsund manns hafa þurft að dvelja í sóttvarnahúsum frá því kórónuveirufaraldurinn hófst. Innlent 9.1.2021 22:49
Önnur lönd tilkynna um andlát aldraðra eftir bólusetningar Fimmta andlátið sem tengist mögulega bólusetningu við Covid-19 var tilkynnt til Lyfjastofnunar í gær. Þetta er sjötta alvarlega tilkynningin sem stofnunin fær vegna bólusetningarinnar. Forstjóri stofnunarinnar segir að sambærilegar tilkynningar hafi komið upp í nágrannalöndum okkar. Innlent 9.1.2021 18:32
Maðurinn var stórhættulegur og kerfið brást Kona sem varð fyrir stórhættulegri hnífstunguárás að tilefnislausu á heimili sínu síðasta sumar af hálfu síbrotamanns telur kerfið hafa brugðist. Maðurinn hafi fengið að ganga laus þrátt fyrir að hafa stuttu áður framið alvarlega líkamsárás, frelsissviptingu og fjölda annarra brota. Hann var dæmdur í sex og hálfs árs fangelsi fyrir brotin í Héraðsdómi í dag. Innlent 8.1.2021 19:01
Starfsfólk í heilbrigðis- og umönnunarstörfum heiðrað á árinu 2021 Sameinuðu þjóðirnar helga árið 2021 meðal annars heilbrigðis- og umönnunarstarfsfólki, friði og trausti og stefna á að útrýma barnavinnu. Heimsmarkmiðin 7.1.2021 14:11
Fé fylgi sjúklingi Við höfum verið í ákveðinni baráttu hérlendis með það hvernig við sjáum fyrir okkur heilbrigðisþjónustuna til framtíðar, enda um einn stærsta, dýrasta og jafnframt flóknasta málaflokk ríkisfjármála að ræða, þar sem sitt sýnist hverjum. Þarna takast á ýmis sjónarmið sem öll eiga rétt á sér. Skoðun 7.1.2021 10:30
Nýtt Covid-greiningartæki verði loks klárt í febrúar Nýtt greiningartæki Landspítala, sem á meðal annars að nýtast við greiningar á Covid-19, hefur enn ekki verið tekið í notkun. Tækið var keypt síðasta sumar og stóðu þá vonir til að það yrði tekið í gagnið í nóvember, en nú standa hins vegar vonir til að það verði í febrúar. Innlent 7.1.2021 07:36
Kom á óvart að vera boðaður í bólusetningu Á þriðja hundrað einstaklinga hafa verið bólusettir við Covid-19 á höfuðborgarsvæðinu sem tilheyra ekki hópi heilbrigðisstarfsmanna eða íbúa á dvalar- og hjúkrunarheimilum. Innlent 6.1.2021 15:52
Vísindamönnum WHO neitað um inngöngu í Kína Vísindamönnum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) hefur verið neitað um inngöngu í Kína en fólkið var á leið þangað til að rannsaka upptök kórónuveirufaraldursins í kínversku borginni Wuhan. Erlent 6.1.2021 07:18
„Ég veit ekki ennþá hvernig ég komst í gegnum þetta“ Eygló Guðmundsdóttir eignaðist þrjú börn á innan við fimm árum á meðan hún var í námi. Yngsta barnið, Benjamín, greindist nokkurra vikna gamall með krabbamein og lést aðeins 12 ára að aldri. Lífið 5.1.2021 11:00
Kvörtunum til landlæknis fjölgar mikið Kvörtunum til Landlæknis frá sjúklingum og aðstandendum vegna heilbrigðisþjónustu fjölgaði um nærri fjórðung í fyrra. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. Innlent 5.1.2021 06:58
73 prósent íbúa á hjúkrunarheimilum á geðlyfjum 58,5% íbúa á íslenskum hjúkrunarheimilum voru með geðsjúkdómagreiningu árið 2018 og tóku 72,5% íbúa einhvers konar geðlyf að staðaldri. Neysla slíkra lyfja hefur aukist frá árinu 2012 og eru þunglyndislyf mest notuð. Innlent 4.1.2021 22:00
Segir sérþekkingu lífeindafræðinga kastað fyrir róða Lífeindafræðingar sem störfuðu hjá Krabbameinsfélagi Íslands við að greina leghálssýni hafa orðið fyrir miklu höggi og sérþekkingu þeirra kastað fyrir róða. Þetta segir framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins um þá ákvörðun að flytja sýnagreiningu úr landi. Innlent 4.1.2021 21:01