Fjármálafyrirtæki
23 24 25 26 27 28 29 30 31 … 57 ›
Öruggari greiðslur með sterkri auðkenningu Nýjar reglur um það sem nefnist „sterk auðkenning“ hafa tekið gildi en í þeim eru gerðar stífari kröfur við innskráningu í bankaöpp og netbanka, um hvernig þú staðfestir netbankagreiðslur og við verslun á netinu. Tilgangurinn er að auka öryggi og stuðla að meiri samkeppni. Skoðun 13.7.2022 11:00
Landsbankinn vill keppa við SaltPay og Rapyd í greiðslumiðlun Landsbankinn vinnur markvisst að því, samkvæmt heimildum Innherja, að fara í samkeppni við SaltPay og sameinað fyrirtæki Valitors og Rapyd á sviði greiðslumiðlunar. Gangi áform bankans eftir verður hann þriðji nýi keppinauturinn á markaðinum ásamt Kviku banka og Sýn. Innherji 12.7.2022 11:27
Guðný Arna frá Kviku til Össurar Guðný Arna Sveinsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjármálasviðs Össurar og mun hefja störf í september. Viðskipti innlent 11.7.2022 11:29
Reynt að brjótast inn í hraðbanka Arion við Vallakór Reynt var að brjótast inn í hraðbanka Arion banka við Vallakór í Kópavogi í nótt. Innlent 8.7.2022 12:42
Allt að þrefalt dýrara í hárri verðbólgu að taka verðtryggt húsnæðislán Höfuðstóll verðtryggðra húsnæðislána hækkar hratt þessa dagana vegna mikillar verðbólgu. Umboðsmaður skuldara segir afar mikilvægt að lántakendur séu meðvitaðir um áhættuna sem felist í slíkum lánum. Stærsti hluti húsnæðislána hjá lífeyrissjóðum er verðtryggður. Innlent 6.7.2022 19:05
Lífeyrissjóðir ryðja sér aftur til rúms á lánamarkaði Heimili landsins tóku óverðtryggð lán fyrir samtals 100 milljarða króna frá byrjun þessa árs til loka maí. Samkvæmt nýjum tölum Seðlabanka Íslands um eignir lífeyrissjóða nam hlutdeild sjóðanna þriðjungi – ný og óverðtryggð útlán sjóðanna námu 32 milljörðum á tímabilinu – en bankarnir voru með tvo þriðju af markaðinum. Innherji 6.7.2022 11:57
Innri endurskoðandi Kviku ráðinn yfir til Arion banka Anna Sif Jónsdóttir, sem hefur verið innri endurskoðandi Kviku banka í nærri áratug, hefur söðlað um og ráðið sig yfir til Arion banka. Þar mun hún gegna starfi forstöðumanns innri endurskoðunar Arion banka, samkvæmt upplýsingum Innherja. Klinkið 4.7.2022 19:49
Sjö ráðin til indó Íslenski sparisjóðurinn indó hefur ráðið sjö nýja starfsmenn, þau Hjördísi Elsu Ásgeirsdóttur, EInar Björgvin Eiðsson, Stefaníu Sch. Thorsteinsson, Lilju Kristínu Birgisdóttur, Söru Mildred Harðardóttur, Hermann Guðmundsson og Valgerði Kristinsdóttur. Viðskipti innlent 30.6.2022 15:54
Gróa nýr forstöðumaður þjónustuvers Landsbankans Gróa Helga Eggertsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður þjónustuvers Landsbankans. Fyrir starfaði hún sem forstöðumaður hjá tækniþjónustu Nova. Viðskipti innlent 29.6.2022 17:22
Spá því að verðbólgan nálgist tíu prósent í næsta mánuði Landsbankinn reiknar með að ársverðbólga mælist 9,5 prósent í næsta mánuði, en fari svo hjaðnandi eftir það. Viðskipti innlent 29.6.2022 13:01
Arion banki fyrstur til að hækka vexti Á morgun munu inn- og útlánavextir hjá Arion banka hækka í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands. Breytingarnar ná til óverðtryggða íbúðalána, kjörvaxta, bílalána og innlána. Íslandsbanki hefur einnig boðað hækkanir þann 1. júlí næstkomandi. Viðskipti innlent 28.6.2022 22:24
Kristín Rut ráðin útibússtjóri í Hafnarfirði Kristín Rut Einarsdóttir hefur verið ráðin útibússtjóri Landsbankans í Hafnarfirði. Viðskipti innlent 27.6.2022 14:18
Sólon R. Sigurðsson er látinn Sólon R. Sigurðsson, fyrrverandi bankastjóri, er látinn, áttræður að aldri. Hann lést á Landspítalanum síðastliðinn þriðjudag. Innlent 23.6.2022 07:50
Íslandsbanki herðir reglur um viðskipti starfsmanna Íslandsbanki herti reglur sínar um bankaviðskipti starfsmanna bankans þann 15. júní síðastliðinn. Með breytingunum er starfsmönnum einungis heimilt að eiga viðskipti með hlutabréf og skuldabréf bankans á opnu viðskiptatímabili og miðlurum bankans er alfarið meinað að versla með eigin reikning. Viðskipti innlent 22.6.2022 17:24
Bankasöluskýrslu ekki lokið fyrir mánaðarlok Skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka verður ekki kláruð fyrir lok þessa mánaðar líkt og stefnt var að. Viðskipti innlent 21.6.2022 08:05
Stofnendur indó vilja bæta bankakjör heimila um tíu milljarða Haukur Skúlason og Tryggvi Björn Davíðsson, stofnendur indó, fengu að heyra fjölmargar ástæður fyrir því hvers vegna ómögulegt væri að stofna nýjan banka. Fjórum árum síðar er sparisjóðurinn kominn með starfsleyfi, aðgang að greiðslukerfi bankanna og stefnir að því að bjóða alla velkomna í viðskipti á seinni hluta þessa árs. Þeir hafa einsett sér að umbylta verðlagningu á bankamarkaðinum og telja að aukin samkeppni geti skilað heimilum landsins allt að 10 milljarða króna ábata. Innherji 18.6.2022 10:01
Fossar styrkja fjárhagsstöðuna samhliða því að verða fjárfestingabanki Fossar réðust í hlutafjáraukningu upp á liðlega 850 milljónir króna í síðasta mánuði til að styrkja fjárhagsstöðu félagsins samhliða því að fá starfsleyfi sem fjárfestingabanki. Eigið fé Fossa nemur nú rúmlega 1,1 milljarði króna, samkvæmt upplýsingum Innherja, en eitt af skilyrðum þess að fá fjárfestingabankaleyfi er að vera með að lágmarki fimm milljónir evra, jafnvirði um 700 milljónir króna, í eigið fé. Innherji 17.6.2022 10:20
Hlutur Róberts metinn á um 226 milljarða króna Alvotech, líftæknifyrirtæki Róberts Wessman var í dag skráð á markað í Bandaríkjunum aðeins tíu árum eftir stofnun. Þá er fyrsta lyf fyrirtækisins nú komið í dreifingu í Kanada og Evrópu eftir að dómssátt náðist um leyfismál. Viðskipti innlent 16.6.2022 20:01
Hækkað vexti íbúðalána þrisvar á einum mánuði Landsbankinn hækkaði í dag fasta vexti á nýjum óverðtryggðum íbúðalánum í þriðja sinn á einum mánuði. Einnig voru fastir vextir á nýjum verðtryggðum íbúðalánum hækkaðir í fyrsta sinn frá því í mars. Neytendur 16.6.2022 13:20
Seðlabankinn gæti aftur gripið í taumana á fasteignamarkaði Varaseðlabankastjóri útilokar ekki að gripið verði til frekari aðgerða á fasteignalánamarkaði haldi ójafnvægið þar áfram. Hefði hann getað séð inn í framtíðina hefði Seðlabankinn fyrr þrengt lánsskilyrði fyrstu kaupenda Innlent 16.6.2022 13:00
Spá 0,75 prósenta hækkun stýrivaxta Bæði hagfræðideild Landsbankans og Greining Íslandsbanka spá því að peningastefnunefnd Seðlabankans muni hækka stýrivexti um 0,75 prósentustig í næstu viku. Gangi spárnar eftir fara meginvextir bankans úr 3,75 í 4,5 prósent. Viðskipti innlent 16.6.2022 09:22
Hækka spá sína og gera ráð fyrir 8,7 prósent verðbólgu í júní Hagfræðideild Landsbankans gerir ráð fyrir að ársverðbólga mælist 8,7% í júní en hún var 7,6% í maí. Um er að ræða talsvert meiri hækkun en bankinn hafði áður spáð og skýrist það fyrst og fremst af því að verð á eldsneyti hefur hækkað mun meira en hagfræðideildin átti von á. Viðskipti innlent 15.6.2022 10:13
Lækka hámarkshlutfall fasteignalána fyrir fyrstu kaupendur Gæta þarf þess að vaxandi efnahagsumsvifum fylgi ekki yfirdrifin áhættusækni og óhóflegur vöxtur útlána sem gæti veikt viðnámsþrótt fjármálakerfisins. Verði bakslag í alþjóðlegum efnahagsbata gæti það haft áhrif á fjármálastöðugleika hér á landi. Bankinn hefur ákveðið að lækka hámark veðsetningarhlutfalls fasteignalána fyrir fyrstu kaupendur úr 90 prósent í 85 prósent. Viðskipti innlent 15.6.2022 08:37
Stokkað upp í markaðsviðskiptum hjá Kviku Tilkynnt var um talsverðar mannabreytingar innan Kviku í dag en á meðal þeirra sem hefur ákveðið að láta af störfum er Stefán Eiríks Stefánsson sem hefur verið forstöðumaður gjaldeyrismiðlunar bankans frá árinu 2015. Klinkið 13.6.2022 20:25
Spá því að verðbólga fari úr 7,6 í 8,4 prósent Greining Íslandsbanka spáir 8,4% verðbólgu í júnímánuði en tólf mánaða verðbólga mældist 7,6% í maí og hefur ekki mælst svo mikil frá því í mars 2010. Gangi spá bankans eftir væri um að ræða 1,0% hækkun á vísitölu neysluverðs frá fyrri mánuði. Viðskipti innlent 13.6.2022 14:35
Kviku heimilað að kaupa færsluhirðingarsamninga frá Rapyd og Valitor Samkeppniseftirlitið hefur lokið rannsókn sinni á kaupum Kviku banka á færsluhirðingarsamningum úr fórum sameinaðs félags Rapyd og Valitors. Bankanum er nú formlega heimilað að kaupa samningana en kaupin eru þó háð því að Seðlabankinn heimili Rapyd að kaupa Valitor. Viðskipti innlent 10.6.2022 15:17
Viðskiptavinir Íslandsbanka njóta hækkunar ekki fyrr en á næsta ári Íslandsbanki mun ekki líta til hækkunar fasteignamats fyrr en nýtt mat tekur opinberlega gildi um áramótin. Hinir stóru viðskiptabankarnir tveir hafa þegar byrjað að taka mið af nýju og hækkuðu fasteignamati. Innlent 3.6.2022 15:15
Hækka íbúðalánavexti í annað sinn á tveimur vikum Landsbankinn hækkaði á miðvikudag vexti óverðtryggðra íbúðalána í annað sinn á um tveimur vikum. Fastir vextir á nýjum óverðtryggðum lánum til þriggja ára hækkuðu um 0,35 prósentustig og 0,30 prósentustig í tilfelli nýrra lána með föstum vöxtum til fimm ára. Neytendur 3.6.2022 08:00
Landsbankinn lokar afgreiðslunni á Borgarfirði eystri Landsbankinn hefur lokað afgreiðslu bankans á Borgarfirði eystri og hefur hún færst til útibúsins á Egilsstöðum. Viðskipti innlent 2.6.2022 10:08
Arion appið liggur niðri Arion appið liggur nú niðri og er sem stendur ekki aðgengilegt. Viðskipti innlent 1.6.2022 11:43