Venesúela
1 2 3 4 5 6 … 10 ›
Trump-liðar hóta fauta Maduros sömu örlögum eða dauða Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og embættismenn hans hafa talað fyrir því að stjórnvöld í Venesúela verði friðsamir vinir Bandaríkjanna. Einn maður þykir líklegastur til að geta komið í veg fyrir að það raungerist. Sá maður heitir Diosdado Cabello. Erlent 8.1.2026 10:30
Þúsundir Kólumbíumanna mótmæltu hótunum Trump Þúsundir mótmæltu í borgum Kólumbíu í gær, í kjölfar hótana Donald Trump Bandaríkjaforseta um mögulegar hernaðaraðgerðir gegn landinu. Mótmælendur voru afar harðorðir í garð forsetans. „Trump er djöfullinn, hann er hræðilegasta manneskja í heimi,“ hefur Guardian eftir einum þeirra. Erlent 8.1.2026 07:08
Gæti leitt til aukinnar íhlutunar í Atlantshafi Bandaríski herinn tók yfir stjórn rússnesks olíuflutningaskips í íslenskri efnahagslögsögu fyrr í dag eftir tveggja vikna eftirför og tóku rússneska áhafnarmeðlimi um borð fasta. Rússar hafa fordæmt aðgerðina og krafist þess að borgurum sínum verði skilað heim en því verða Bandaríkjamenn ekki við. Erlent 7.1.2026 20:04
Maduro, Diddy og Mangione í sama fangelsi Stuttu eftir að bandarísk herþota með Nicolás Maduro forseta Venesúela og eiginkonu hans Ciliu Flores lenti á flugvelli skammt frá New York-borg voru hjónin flogin með þyrlu í eitt alræmdasta fangelsi Bandaríkjanna: Metropolitan detention center. Þar dvelur einnig Luigi Mangione, sem grunaður er um að hafa myrt forstjóra UnitedHealthcare, og þangað til nýlega Sean Combs, betur þekktur sem P Diddy. Erlent 7.1.2026 18:10
Danskir og bandarískir erindrekar funda um Grænland í næstu viku Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna hefur staðfest að danskir og bandarískir erindrekar muni eiga fund saman í næstu viku um Grænland. Bandaríkjaforseti og þjóðaröryggisráð eigi í virku samtali um möguleg kaup á eyjunni. Erlent 7.1.2026 17:53
Tóku einnig skuggaskip í Karíbahafinu Bandarískir hermenn gerðu í dag áhlaup um borð í olíuflutningskip sem bendlað hefur verið Venesúela á Karíbahafinu. Bandaríkjamenn tóku því yfir tvö slík skip sem sögð eru hafa verið notuð til að brjóta á viðskiptaþvingunum. Erlent 7.1.2026 15:17
Fáar vísbendingar um miklar breytingar í Venesúela Brotthvarf Nikolas Madúró forseta Venesúela er ótvírætt högg fyrir stjórn sósíalista í landinu. Það raskar starfi þeirra og skapar tækifæri til breytinga, en um leið er ólíklegt að handtaka hans ein og sér skili langlífum breytingum á stjórnarfari landsins. Skipulagslegt viðnámsþol, samheldni valdastéttarinnar, stofnanaleg dýpt og ytri pólitísk áhrif takmarka áhrifin af brotthvarfi forsetans. Skoðun 7.1.2026 13:01
Gerðu áhlaup á rússneskt skuggaskip í efnahagslögsögu Íslands Olíuskipi sem elt var af yfirvöldum í Bandaríkjunum og Rússar hafa sent herskip til móts við, var í nótt siglt inn í efnahagslögsögu Íslands. Skipið var alltaf á alþjóðlegu hafsvæði, þó það hafi verið rétt innan efnahagslögsögunnar. Erlent 7.1.2026 10:27
Ekkert nema hégómi hjá Trump að vilja setja bandaríska fánann á Grænland Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir allar yfirlýsingar Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, um Grænland og Venesúela fjarstæðukenndar og forsendur hans líka. Hann segir að frá herfræðilegu sjónarmiði sé í raun einfalt fyrir Bandaríkin að taka Grænland, og þau gætu gert það, ef þau vildu, í dag. Það sé þó alls ekki nauðsynlegt og í raun aðeins hégómi „gamla fasteignabraskarans frá New York“ að vilja það. Innlent 7.1.2026 09:07
Rússar senda herskip til móts við olíuskip elt af Bandaríkjunum Stjórnvöld í Rússlandi eru sögð hafa sent að minnsta kosti eitt herskip til að mæta olíuflutningaskipi sem Bandaríkjamenn hafa veitt eftirför frá því að það freistaði þess að komast til hafnar í Venesúela. Erlent 7.1.2026 07:12
Segir Venesúela munu afhenda Bandaríkjunum milljónir tunna af olíu Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði á samfélagsmiðlinum Truth Social í gær að stjórnvöld í Venesúela myndu afhenda Bandaríkjunum hráolíu að andvirði tveggja milljarða dala. Erlent 7.1.2026 06:39
Hvað er Trump eiginlega að bralla? Hvað er forseti Bandaríkjanna að meina með því að ræna Maduro? Trump sjálfur hefur vísað í tvær réttlætingar fyrir því að framkvæma þennan gjörning: í fyrsta lagi hefur hann sakað forseta Venesúela um að taka beinan þátt í fíkniefnasmygl og í öðru lagi er Maduro sakaður um að hafa „stolið“ olíu frá Bandaríkjunum (fyrir valdatíð Hugo Chavez og síðan Maduro höfðu bandarísk olíufélög greiðan aðgang að olíuauði landsins). Skoðun 6.1.2026 20:33
Varnarsamningur við ESB settur á oddinn og þjóðaratkvæðagreiðsla brátt fyrir þingið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir að áfram verði unnið að tvíhliða varnarsamningi við Evrópusambandið en segir samstarf Íslands og Bandaríkjanna í varnarmálum enn gott þrátt fyrir vendingar í alþjóðamálum og hótanir um innlimun Grænlands. Yfirlýsingar um annað eru að mati ráðherra glannalegar en hún vill ræða málið á vettvangi NATO. Frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við ESB verði lagt fram á þessu þingi. Innlent 6.1.2026 14:29
Vill afhenda Trump friðarverðlaunin Maria Corina Machado, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela, segist ætla að snúa aftur til landsins eins fljótt og henni er auðið. Hún segist einnig vilja afhenda Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, friðarverðlaun Nóbels, sem hún hlaut í fyrra. Trump hefur sagt að hún njóti ekki nægilegrar virðingar til að stýra Venesúela eftir að hann lét nema Nicolás Maduro, forseta, á brott á dögunum. Erlent 6.1.2026 11:21
Huldumaður hagnaðist verulega á árásinni á Venesúela Minna en fimm klukkustundum áður en fyrstu sprengjurnar lentu í Caracas, höfuðborg Venesúela, um helgina og bandarískir sérsveitarmenn námu Nicolás Maduro, forseta, á brott, veðjaði einn maður á að Maduro yrði steypt af stóli. Nokkrum klukkustundum síðar fékk hann rúmlega fjögur hundruð þúsund dali vegna veðmálsins, eða um tólffalt það sem hann hafði veðjað. Erlent 6.1.2026 10:02
„Ég er forseti sem hefur verið rænt; stríðsfangi!“ Nicolás Maduro óskaði viðstöddum gleðilegs nýs árs þegar hann var leiddur fyrir dómara í New York í gær. Þá sagði hann að honum hefði verið rænt á heimili sínu og að hann væri stríðsfangi. Bæði hann og eiginkona hans, Cilia Flores, sögðust saklaus af þeim ákærum sem þau sæta í Bandaríkjunum. Erlent 6.1.2026 06:43
Semjum við Trump: Breytt heimsmynd sem tækifæri, ekki ógn Örar breytingar í alþjóðamálum undanfarið hafa breytt öryggisumhverfi Íslands í öllum grundvallaratriðum. Handtaka Bandaríkjanna á Nicolás Maduro, forseta Venesúela, um síðustu helgi, og vaxandi áhugi Washington á Grænlandi eru einungis nýjustu dæmin um að hinir sterku fara sínu fram; að þjóðir eiga ekki vini – bara hagsmuni. Skoðun 6.1.2026 06:01
„Loksins ljós við enda ganganna“ Flóttafólk frá Venesúela sem hefur búið hér á landi í þrjú ár fagnar handtöku Niculás Maduro. Loksins ljós við enda ganganna, segir eitt þeirra. Þau óttast þó að fólkið sem er nú við stjórnarvölinn sé enn hættulegra en hann. Það þurfi að koma því öllu frá svo hægt sé að hefja endurreisn í landinu. Innlent 5.1.2026 22:00
„Ég er ekki í pólitík til að gera fólk glatt“ Utanríkisráðherra telur alþjóðasamfélagið ekki hafa borið næga virðingu fyrir Alþjóðlega sakamáladómstólnum eftir aðgerðir Bandaríkjastjórnar um liðna helgi. Hún segir áríðandi að Íslendingar standi vörð um hagsmuni sína gagnvart Bandaríkjamönnum þó að „vinur sé sá er til vamms segir“. Erlent 5.1.2026 21:57
„Einhver verður að gera eitthvað til að stoppa manninn af“ Hernaðaraðgerð Bandaríkjanna í Venesúela og ummæli Bandaríkjaforseta um Grænland ýfðu upp gömul sár og vöktu reiði hjá Grænlendingum. Þetta segir íbúi í Nuuk sem hvetur Íslendinga til að „ybba gogg“ fyrir hönd Grænlendinga, eins og hún kemst að orði. Bandaríkin séu að hlusta. Erlent 5.1.2026 19:09
Hæddist að vörnum Dana á Grænlandi: „Þeir bættu við einum hundasleða“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur ítrekað talað um að Bandaríkin „verði“ að eignast Grænland. Það sé einkar mikilvægt fyrir þjóðaröryggi Bandaríkjanna. Trump nefndi þetta fyrst árið 2019 á sínu fyrra kjörtímabili en mun meiri þungi hefur færst í orðræðuna vestanhafs á undanförnum dögum. Erlent 5.1.2026 16:56
Upphaf langra málaferla Nicolás Maduro, forseti Venesúela, og Cilia Flores, eiginkona hans, hafa verið flutt í dómshúsi í New York þar sem þau verða færð fyrir dómara fyrsta sinn. Bæði eru ákærð fyrir aðkomu að umfangsmiklu smygli fíkniefna til Bandaríkjanna og hryðjuverkastarfsemi en þau voru fjarlægð með hervaldi frá Venesúela á dögunum. Erlent 5.1.2026 16:00
„Það mun reyna á okkur hér“ Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, kveðst sátt við þau svör og skýringar sem utanríkisráðherra hafi veitt á fundi utanríkismálanefndar í morgun vegna þeirrar stöðu sem uppi er eftir aðgerðir Bandaríkjanna gegn Venesúela um helgina. Hún telur ljóst að aðgerðirnar stangist á við alþjóðalög en hún væntir þess að þingnefndin muni eiga enn reglulegri fundi með utanríkisráðherra og fulltrúum ráðuneytisins í ljósi þeirra víðsjárverðu tíma sem uppi eru í alþjóðakerfinu. Það muni reyna enn frekar á stjórnmálamenn hér sem annars staðar að takast á við nýjan veruleika. Innlent 5.1.2026 15:10
Ítrekaðar íhlutanir í „bakgarði“ Bandaríkjanna Árás Bandaríkjastjórnar á Venesúela um helgina var fyrsta hernaðaraðgerð hennar í Rómönsku Ameríku á þessari öld. Bandaríkin eiga sér hins vegar aldalanga sögu íhlutana í heimshluta sem þarlendir ráðamenn hafa oft skilgreint sem „bakgarð“ þeirra. Erlent 5.1.2026 15:03
Venesúela og sögulegu fordæmin Trump og ráðgjafar hans virðast vilja pólitískan ávinning stríðs án þess að þurfa í raun að heyja það. Þeir vilja stuttu leiðina að fasísku stjórnarfari – lýsa strax yfir miklum sigri og nota samfélagsmiðla til að ráðast gegn óvinum heima fyrir. En fasismi krefst ekki skyndiaðgerða, heldur raunverulegra átaka sem setja almenning í hættu og draga hann þannig inn í ofbeldið. Umræðan 5.1.2026 14:18
Nýr veruleiki ætli Bandaríkin að taka Grænland Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins segir það skipta mestu máli í yfirlýsingum íslenskra yfirvalda að ítreka að allar þjóðir virði alþjóðalög. Hann segir yfirlýsingar utanríkisráðherra um helgina hafa verið veikar. Samstaða meðal þjóða um að virða alþjóðalög, lýðræði og frið sé það mikilvægasta. Hann segir það nýjan veruleika ætli Bandaríkin að taka Grænland og ekkert land verði óhult verði það raunin, ekki Ísland heldur. Innlent 5.1.2026 13:43
Ekki hægt að útiloka að Bandaríkin beiti valdi á Grænlandi Prófessor í stjórnmálafræði segir að taka þurfi orð forseta Bandaríkjanna um Grænland og hans ásælni alvarlega. Í ljósi framgöngu Bandaríkjastjórnar í Venesúela sé ekki hægt að útiloka að Bandaríkin beiti valdi til þess að ná yfirráðum yfir Grænlandi. Innlent 5.1.2026 13:18
Maduro verður leiddur fyrir dómara síðdegis Delcy Rodríguez, varaforseti Venesúela, mun í dag sverja embættiseið og taka við sem forseti landsins. Nicolas Maduro forseti Venesúela, sem var handsamaður af Bandaríkjamönnum um helgina, mætir fyrir dómara í New York í dag. Erlent 5.1.2026 12:26
Ekki endilega betri heimur fyrir Ísland Formaður utanríkismálanefndar segir heim þar sem stórveldi beita valdi til að ná sínu fram ekki gera heiminn betri fyrir smáríki eins og Ísland. Það sé erfitt að sjá hvernig aðgerðir Bandaríkjanna í Venesúela samrýmist alþjóðalögum, en á móti hafi stjórn Maduro einkennst af „ógeðslegu stjórnarfari“. Trúnaður ríkir um það sem fram kom á fundi utanríkismálanefndar í morgun en utanríkisráðherra var gestur fundarins sem boðaður var í framhaldi af aðgerðum Bandaríkjanna gegn Venesúela um helgina. Innlent 5.1.2026 11:09
Reyna að koma sextán skipum gegnum herkví Áhafnir að minnsta kosti sextán olíuflutningaskipa virðast vera að reyna að komast gegnum herkví Bandaríkjanna um Venesúela. Slökkt hefur verið á sendum skipanna eða raunverulegar staðsetningar þeirra huldar á síðustu tveimur dögum en þar áður höfðu skipin verið við bryggju í Venesúela til lengri tíma. Erlent 5.1.2026 10:17