Ísrael
1 2 3 4 5 6 7 … 43 ›
Dauði Sinwar tækifæri til að binda enda á stríðið Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur hvatt Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, til að horfa fram á við og taka næstu skref í átt að vopnahléi á Gasa, í kjölfar fregna af því að Ísraelsher hefði banað Yahya Sinwar, leiðtoga Hamas. Erlent 18.10.2024 07:31
Fall Sinwar „upphafið að endinum“ Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísrael segir fall leiðtoga Hamas Yahya Sinwar „upphafið að endinum“ en Ísraelar muni „ekki stöðva stríðið“. Erlent 17.10.2024 23:38
Staðfesta andlát leiðtoga Hamas Ísraelski herinn hefur staðfest að þeir hafi banað Yahya Sinwar, leiðtoga Hamas-samtakanna, í átökum á Gasaströndinni í gær. Lík hans fannst í dag og í DNA-rannsókn hefur leitt í ljós að um hann hafi verið að ræða. Erlent 17.10.2024 17:52
Leiðtogi Hamas „líklega“ felldur Forsvarsmenn ísraelska hersins segja líklegt að Yahya Sinwar, leiðtogi Hamas-samtakanna, hafi verið felldur í átökum á Gasaströndinni . Hermenn eru sagðir hafa séð Sinwar og aðra menn á förnum vegi í Rafah á sunnaverðri Gasaströndinni og kallað eftir loftárás á byggingu sem þeir voru í. Erlent 17.10.2024 13:31
„Einstök sýning“ á getu Bandaríkjanna í loftárásum Tvær B-2 sprengjuflugvélar voru í nótt notaðar til að varpa sprengjum á neðanjarðarbyrgi Húta í Jemen. Sprengjuflugvélarnar búa yfir tækni sem gerir erfitt að sjá þær á ratsjám og eru meðal háþróuðustu herflugvéla heims. Erlent 17.10.2024 11:35
Halda áfram árásum á Beirút en með gult spjald frá Bandaríkjunum Ísraelsher gerði loftárásir á skotmörk í Beirút, höfuðborg Líbanon, í morgun í fyrsta sinn í fimm daga. Samkvæmt hernum var ráðist gegn vopnageymslum Hezbollah í suðurhluta Beirút og var íbúum á svæðinu ráðlagt að forða sér áður en þær hófust. Erlent 16.10.2024 06:44
Sagður ekki munu ráðast gegn olíu- né kjarnorkuinnviðum Heimildarmenn Washington Post innan bandaríska stjórnkerfisins segja Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, hafa greint Joe Biden Bandaríkjaforseta frá því í samtali þeirra á dögunum að hann hefði í hyggju að ráðast gegn hernaðarskotmörkum í Íran til að hefna fyrir árásir Írana á Ísrael. Erlent 15.10.2024 12:10
Nota óbreytta Palestínumenn til að leita að sprengjum og gildrum Ísraelskir hermenn hafa ítrekað notað óbreytta Palestínumenn sem handsamaðir eru á Gasaströndinni sem mennska skildi, meðal annars með því að þvinga þá til að fara inn í byggingar og leita að sprengjum og gildrum. Tilfellum sem þessum hefur farið fjölgandi. Erlent 14.10.2024 10:19
Fjórir létust og sjö særðust alvarlega í árás á ísraelska herstöð Fjórir hermenn Ísraelshers létust og sjö særðust alvarlega í drónaárás Hezbollah á herstöð nærri Binyamina í gær. Um var að ræða hefndarárás vegna árása Ísraels á Beirút á fimmtudag, þar sem 22 létu lífið. Erlent 14.10.2024 06:48
Vill friðargæsluliðið út úr Suður-Líbanon strax Forsætisráðherra Ísraels krefst þess að framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna dragi friðargæslulið þeirra frá Líbanon nú þegar. Tugir ríkja hafa fordæmt árásir Ísraela á friðargæsluliðana undanfarna daga. Erlent 13.10.2024 13:15
Segja átta manna fjölskyldu hafa fallið í loftárás Ísraela Palestínsk heilbrigðisyfirvöld segja að átta manna fjölskylda í Nuseirat-flóttamannabúðunum hafi fallið í loftárás Ísraela á miðri Gasaströndinni seint í gærkvöldi. Ísraelar hafa skipað hátt í hálfri milljón manna að rýma norðanverða Gasa. Erlent 13.10.2024 08:20
Hundrað og fjögur ríki lýsa yfir stuðningi við Guterres Hundrað og fjögur ríki eiga aðild að sameiginlegri stuðningsyfirlýsingu við António Guterres, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, eftir að stjórnvöld í Ísrael lýstu hann „persona non grata“. Erlent 12.10.2024 23:34
Banvænustu árásirnar í miðborg Beirút hingað til Ísraelski herinn gerði í kvöld tvær banvænar loftárásir á Beirút, höfuðborg Líbanon. Heilbrigðisráðuneyti landsins segir 22 liggja í valnum og að minnsta kosti 117 hafa særst í árásunum en það gerir árásirnar þær banvænustu í miðborg Beirút hingað til í átökum undanfarins árs. Erlent 10.10.2024 23:09
Skotárás við ísraelskt fyrirtæki í Gautaborg Unglingspiltur er í haldi sænsku lögreglunnar, grunaður um tilraun til manndráps og alvarlegt vopnalagabrot, eftir að skotum var hleypt af við ísraelska hergagnaverksmiðju í Gautaborg í morgun. Mikill lögregluviðbúnaður var vegna skotárásarinnar en engan sakaði. Erlent 10.10.2024 10:17
Biden og Netanyahu ræddu aðgerðir Ísrael gegn Íran Joe Biden Bandaríkjaforseti og Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, ræddust við í síma í gær, í fyrsta sinn í sjö vikur. Erlent 10.10.2024 07:37
Biden kallaði Netanjahú „tíkarson“ og „slæman gaur“ Stirðum samskiptum Joes Biden Bandaríkjaforseta við forsætisráðherra Ísraels er lýst í nýrri bók heimsþekkts rannsóknarblaðamanns. Biden er meðal annars sagður hafa kallað Netanjahú „tíkarson“ og „slæman helvítis gaur“ á bak við tjöldin. Erlent 9.10.2024 08:50
Biden mun freista þess að leggja Netanyahu línurnar varðandi Íran Joe Biden Bandaríkjaforseti mun ræða við Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, í gegnum síma í dag um fyrirhugaðar árásir Ísrael á Íran. Erlent 9.10.2024 06:37
Segja Hezbollah höfuðlaus eftir dauða arftaka Nasrallah Forsvarsmenn ísraelska hersins sögðu í dag að Hashem Safieddine, einn af leiðtogum Hezbollah sem talið var að ætti að taka við af Hassan Nasrallah, væri líklega dáinn. Ekkert hefur heyrst af honum frá því Ísraelar gerðu loftárás í Dahiyeh, úthverfi Beirút, í síðustu viku. Erlent 8.10.2024 17:58
Ekkert lát á aðgerðum Ísraelshers gegn Hamas og Hezbollah Ísraelsher gerði umfangsmiklar árásir á Líbanon í gær og sendi meðal annars fjölda herþota gegn um 120 skotmörkum í suðurhluta landsins. Þá voru skömmu síðar gerðar árásir á úthverfin suður af Beirút síðar um daginn. Erlent 8.10.2024 06:40
Afgerandi meirihluti með málstað Palestínumanna Tæplega þrír af hverjum fjórum sögðust hafa meiri samúð með málstað Palestínumanna en Ísraela í skoðanakönnun sem stuðningsfélag Palestínu lét gera í síðasta mánuði. Þá sagðist meirihluti fylgjandi því að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael. Innlent 7.10.2024 11:05
Eitt ár frá upphafi stríðsins á Gasa Eitt ár er liðið frá innrás Hamas-samtakanna í Ísrael, þegar tólf hundruð voru myrt og 250 teknir föngnum og færðir í böndum inn á Gasaströndina. Erlent 7.10.2024 06:29
Íranskur herforingi sagður hafa látist í loftárásum Ísraela Ekkert hefur heyrst til Esmail Qaani, yfirmanns Quds-sveitar íranska byltingarvarðarins, frá því að Ísraelar gerðu loftárásir á Beirút í síðustu viku. Erlent 6.10.2024 23:10
Lýsa nóttinni sem skelfilegri Upphafi skólaárs hefur verið frestað í Líbanon vegna öryggisógnar í landinu. Íbúar í Beirút lýsa nóttinni sem skelfilegri vegna loftárása Ísraelsmanna sem eru sagðar þær umfangsmestu á svæðinu frá upphafi átakanna. Erlent 6.10.2024 18:50
Ung kona látin eftir skotárás í Ísrael Nokkrir eru særðir og einn hið minnsta er látinn eftir skotárás á strætóstoppistöð í borginni Beersheba í Ísrael. BBC greinir frá þessu. Erlent 6.10.2024 13:10
Huldukona í lykilhlutverki í lygilegu ráðabruggi um símboðana Talið er að hátt í þrjú þúsund Hezbollah-liðar hafi látið lífið eða verið limlestir ásamt óþekktum fjölda óbreyttra borgara þegar fjöldi símboða sprakk þann 17. september síðastliðinn. Það var Mossad, ísraelska leyniþjónustan, sem bar ábyrgð á verknaðinum sem hafði verið í undirbúningi í um tvö ár. Erlent 6.10.2024 12:23
Einn af leiðtogum Hamas lést í loftárás á Líbanon Saeed Atallah Ali einn leiðtoga Hamas og fjölskylda hans létu lífið í loftárásum Ísraelshers á flóttamannabúðir í norðurhluta Líbanon í morgun. Erlent 5.10.2024 10:45
Gerðu árás á landamærastöð þar sem tugir þúsunda hafa flúið Ísraelar vörpuðu í morgun sprengjum á landamærastöð milli Líbanon og Sýrlands. Tugir þúsunda hafa flúið yfir landamærin þar á undanförnum dögum en yfirvöld í Líbanon segja um 1,2 milljónir manna hafa þurft að flýja heimili sín. Erlent 4.10.2024 11:00
21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt Kona af ættbálki Jasída, sem liðsmenn Ríkis íslam rændu fyrir tíu árum í Írak, þegar konan var aðeins 11 ára gömul, hefur verið bjargað úr prísund sinni á Gasa. Erlent 4.10.2024 06:42
Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela Hachem Safieddine, sem búist var við að tæki við sem leiðtogi Hezbollah-hryðjuverkasamtakanna, er sagður hafa fallið í eldflaugaáraás í úthverfi Beirút, höfuðborgar Líbanon. Erlent 4.10.2024 00:12
Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja Ísraelski herinn sagði íbúum 25 bæja og þorpa í sunnanverðu Líbanon í dag að yfirgefa heimili sín. Byggðirnar eru norður af Litani-á en hún markar svæði sem átti að vera nokkurs konar hlífðarsvæði samkvæmt ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá 2006 og þykir yfirlýsingin til marks um mögulega útvíkkun innrásar Ísraela í Líbanon. Erlent 3.10.2024 16:18