Míkrónesía
Strandaglópar kölluðu eftir hjálp með pálmablöðum
Meðlimir Strandgæslu Bandaríkjanna björguðu í vikunni þremur mönnum sem voru strandaglópar á eyðieyju í miðju Kyrrahafinu. Mennirnir fundust eftir að áhöfn flugvélar sá pálmablöð sem þeir höfðu raðað í fjöru eyjunnar og notað til að skrifa „Help“ eða „Hjálp“.
Segir að Kína muni ekki reisa herstöð á Salómonseyjum
Ráðamenn á Salómonseyjum segja að Kína verði ekki leyft að reisa herstöð þar. Það er þrátt fyrir að ríkin ætli sér að skrifa undir varnarsáttmála. Yfirvöld í Ástralíu og Bandaríkjunum hafa áhyggjur af því að sáttmálinn feli í sér aukin umsvif Kínverja á eyjunum sem eru hernaðarlega mikilvægar.
Fundust heilir á húfi á eyðieyju
Þremur míkrónesískum sjómönnum sem strönduðu á örsmárri eyðieyju í vestur-Kyrrahafi var bjargað eftir að björgunarsveitamenn komu auga á SOS-merki sem þeir höfðu skrifað í sandinn á strönd eyjarinnar.
Flugvélin strax framleigð og aldrei í notkun hér á landi
Þetta kemur fram í svari Péturs Þ. Óskarssonar, framkvæmdastjóra samskiptasviðs Icelandair Group, við fyrirspurn Vísis.
Leigðu flugvélina sem brotlenti í sjónum frá Icelandair
Vélin er á leigu hjá Loftleiðum-Icelandic, dótturfélagi Icelandair Group, en er framleigð til flugfélagsins Air Niuigini.
Farþegaflugvél brotlenti í lóni
Farþegaflugvél brotlenti í lóni skammt frá alþjóðaflugvellinum á eyjunni Chuuk á Míkrónesíu.
Sendiráðið umdeilda opnað í dag
Bandaríkjamenn opna nýtt sendiráð sitt í Jerúsalem í Ísrael í dag.
Míkrónesía með markatöluna 0-114 í þremur leikjum
Míkrónesía er ekki með gott fótboltalandslið. Því er hægt að halda fram með sannfæringu eftir skelfilegt gengi liðsins í riðlakeppni Kyrrahafsmótsins í knattspyrnu.