Fluttur á lögreglustöð til að sanna hver hann væri Freyja Þórisdóttir skrifar 19. september 2026 18:39 Farþegi í bíl sem var stöðvaður neitaði að framvísa skilríkjum og var því fluttur á lögreglustöð eitt til þess að sanna hver hann væri. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti í dag útkalli þar sem ökumaður var handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Sá reyndist einnig vera með hníf á sér og án ökuréttinda. Þegar farþegi í bílnum neitaði að framvísa skilríkjum var hann fluttur á lögreglustöð eitt til þess að sanna hver hann væri.
Er þetta meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglu frá því klukkan fimm í morgun. Þar er einnig greint frá því að alls hafi fjörutíu og sex mál verið skráð í kerfi lögreglunnar en í það minnsta tveir verið vistaðir í fangageymslum. Vakthafandi lögreglufulltrúar á stöð 1, sem sinnir verkefnum í Austurbæ, Vesturbæ, Miðborginni og á Seltjarnarnesi, aðstoðuðu sjúkraflutningsmenn í útkalli á tímabilinu. Þá var einn handtekinn og vistaður í fangageymslum grunaður um að hafa ráðist á annan en ekki liggja frekari málsatvik fyrir né hvort um alvarlega líkamsárás hafi verið að ræða. Á lögreglustöð tvö sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði og í Garðabæ er eitt heimilisofbeldismál til rannsóknar en á varðsvæðinu var einnig eitthvað um hraðaakstur á umræddu tímabili. Tilkynnt var um þjófnað í verslun en ekkert kemur fram í dagbók um hvort miklu hafi verið stolið en verslunin er á varðsvæði lögreglustöðvar þrjú, þá annaðhvort í Kópavogi eða Breiðholti. Ökumaður sem ók undir áhrifum áfengis varð valdur að umferðaróhappi á varðsvæðinu. Annað tilkynnt heimilisofbeldismál er til rannsóknar í umdæmi lögreglustöðvar fjögur sem nær yfir Grafarvog, Árbæ og Mosfellsbæ en það koma engar frekari upplýsingar fram í dagbókinni nema að það sé til rannsóknar.
Lögreglumál Reykjavík Garðabær Kópavogur Hafnarfjörður Mest lesið Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Innlent Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Átök innan SÁÁ eins og „klassísk valdabarátta“ Innlent Leyfi Trump að líða eins og sigurvegara þó hann hafi ekkert unnið Innlent Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Erlent Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Erlent Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent Engin hamsatólg í boði með skötunni nema einhver taki við framleiðslunni Innlent Fleiri fréttir Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Fluttur á lögreglustöð til að sanna hver hann væri Engin hamsatólg í boði með skötunni nema einhver taki við framleiðslunni Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Átök innan SÁÁ eins og „klassísk valdabarátta“ Ný umgjörð um daggæslu til skoðunar í ráðuneytinu Verkefnið sem hófst á Twitter stækkað umtalsvert Allir dómarar vanhæfir í máli ljósmóður á eftirlaunum Leyfi Trump að líða eins og sigurvegara þó hann hafi ekkert unnið Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Danir sigurvegarar og ofurfólk í Heiðmörk Má heita Himbrimi og Aðalsól en ekki Kamban eða Heiðarr Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Sjá meira