
Ásahreppur

Hafði verið veðurtepptur á Sprengisandsleið í þrjá daga
Landhelgisgæslan, lögreglan á Suðurlandi og björgunarsveitir voru kallaðar út vegna manns sem var í vanda á Sprengisandsleið milli Þórisjökuls og Hofsjökuls á þriðjudaginn. Hann hafði verið veðurtepptur á staðnum í þrjá daga og sendi því frá sér neyðarboð.

Mönnun tryggð út febrúar en staðan óboðleg
Fulltrúar sveitarfélaga í Rangárvallasýslu lýsa yfir verulegum áhyggjum af stöðu heilbrigðismála í sýslunni og ítreka að núverandi staða og óvissa sé óboðleg 4519 íbúum sýslunnar og öðrum gestum hennar.

Hótel Hestheimar í bók National Georgraphic
Eigendur sveitahótelsins á Hestheimum í Ásahreppi á Suðurlandi vita varla í hvorn fótinn þau eiga að stíga þessa dagana vegna gleði. Ástæðan er sú að hótelið þeirra var valið eitt af hundrað sérstökustu hótelum í heimi í fjögur hundruð síðna bók, sem National Georgraphic var að gefa út.

Telur Sigurð Inga hafa misnotað umboð sitt
Landvernd segir Sigurð Inga Jóhannsson fjármála- og innviðaráðherra hafa misnotað umboð sitt með því að staðfesta svæðisskipulag fyrir Suðurhálendið næstu tuttugu árin. Um sé að ræða stefnumarkandi mál sem óeðlilegt sé að starfsstjórn keyri áfram í tómarúmi.

Ullarvika til heiðurs íslensku sauðkindinni
Það verður mikið um að vera á Suðurlandi næstu sjö daga þegar íslenska ullin er annars vegar því sérstök ullarvika er að hefjast með fjölbreyttri dagskrá eins og fjárlitasýningu, spunasamkeppni og tískusýningu.

Vinna málið saman og nýta greinargerð vegna fyrri umsóknar
Oddvitar Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps eiga von á því að geta unnið umsókn Landsvirkjunar um framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun í Þjórsá fljótt og örugglega. Stefnt er að því að sveitarfélögin afgreiði umsóknina á sama tíma.

Hafa veitt virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun
Orkustofnun gaf í dag út virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun í Þjórsá. Landsvirkjun mun í kjölfarið sækja um framkvæmdaleyfi til bæði Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps, en mannvirki tengd virkjuninni verða í báðum sveitarfélögunum. Enn er stefnt að því að Hvammsvirkjun taki til starfa fyrir árslok 2028.

Skoða að kæra útgáfu virkjanaleyfis fyrir Búrfellslund
Haraldur Þór Jónsson, oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps, segir sveitarfélögin á áhrifasvæði fyrirhugaðs vindmyllugarðs í Búrfellslundi verða fyrir umtalsverðu fjárhagslegu tjóni af framkvæmdunum og segir ákvörðun munu verða tekna um hvort kæra eigi útgáfu Orkustofnunar á virkjanaleyfi á næstu sveitarstjórnarfundum.

Óska eftir sameiningarviðræðum þrátt fyrir andstöðu meirihluta
Hreppsnefnd Ásahrepps ætlar að óska eftir viðræðum um sameiningu við tvö önnur sveitarfélög, þrátt fyrir að tillaga um slíkt hafi ekki hlotið brautargengi í skoðanakönnun íbúa. Sveitarstjórinn segir að íbúar muni fá lokaorðið um sameiningu.

Verður Rangárvallasýsla eitt og sama sveitarfélagið?
Svo gæti farið að sveitarfélögin þrjú í Rangárvallasýslu, þar að segja, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra og Ásahreppur sameinist í eitt sveitarfélag en sveitarstjórnirnar hafa fundað um sameiningu sveitarfélaganna. Yrði það raunin verður til um fjögur þúsund og fimm hundruð manna sveitarfélaga og þriðja landstærsta sveitarfélag landsins.

„Þetta voru vinir mínir, skepnurnar”
Guðmunda Tyrfingsdóttir, bóndi á tíræðisaldri sem vann fullnaðarsigur gegn Matvælastofnun þegar skepnum hennar var slátrað, ætlar ekki að gefast upp í búskapnum því hún er búin að fá sér hænur. Matvælastofnun hefur sent henni afsökunarbeiðni og lagt inn á hana andvirði skepnanna, sem var slátrað í óleyfi.

Mál Guðmundu þyngra en tárum taki
Helga Arnardóttir, kvikmyndagerðarkona, segir mál Guðmundu Tyrfingsdóttur sem var vörslusvipt búfénaði sínum og honum ólögmætt slátrað, vera þyngra en tárum tekur í færslu sem hún birti á Facebook í dag.

Lónstaða Þórisvatns með versta móti
Landsvirkjun hefur skert raforku til stórnotenda á suðvesturhluta landsins. Ert það gert vegna lélegs vatnsbúskaps en lónstaða Þórisvatns er með versta móti.

MAST mátti ekki slátra skepnum Guðmundu
Ákvörðun Matvælastofnunar um að vörslusvipta Guðmundu Tyrfingsdóttur bónda búfénaði sínum og slátra honum hefur verið úrskurðuð ólögmæt af matvælaráðuneytinu. Lögmaður Guðmundu segir Guðmundu sátta með úrskurðinn þó dýrin snúi aldrei heim.

Urriðafoss virkjaður en Héraðsvötn vernduð
Þrír virkjunarkostir færast úr biðflokki yfir í nýtingarflokk en tveir úr biðflokki yfir í verndarflokk, samkvæmt tillögudrögum verkefnisstjórnar að rammaáætlun sem kynnt voru í dag.

Þriggja barna móðir berst við kerfið eftir banaslys á bænum
Ekkja með þrjú lítil börn, sem missti manninn sinn snemma í vor í vinnuslysi á bæ þeirra hjóna í Rangárvallasýslu er mjög ósátt við það hvernig stjórnkerfið sækir á hana með allskonar leyfum og rukkunum eftir að maður hennar dó því búið var á hans kennitölu. Hjónin voru búin að vera í tíu ár í kúabúskap þegar maðurinn dó og rétt áður brunnu kindurnar þeirra inni í eldsvoða á bænum.

Oddafélagið kynnir tillögu að nýrri höfuðkirkju Rangæinga
Félag um endurreisn Odda á Rangárvöllum hefur kynnt hugmynd að útliti nýrrar höfuðkirkju Rangæinga ásamt Sæmundarstofu sem yrði fjölnota menningarhús með rými fyrir allt að fjögurhundruð manna tónleika.

Karlakór Rangæinga fagnar 30 ára afmæli með fallegum söng
Karlakór Rangæinga fagnar nú þrjátíu ára starfsafmæli og blæs af því tilefni til afmælis- og vortónleika á nokkrum stöðum. Kórinn er skipaður um fjörutíu körlum, aðallega bændum úr sýslunni.

Nafn mannsins sem lést í Ásahreppi
Karlmaðurinn sem lést eftir að hafa klemmst við vinnu við dráttarvél á sveitabýli í Ásahreppi hét Guðjón Björnsson. Hann var fæddur árið 1983 og lætur eftir sig eiginkonu og þrjú börn. Haldin var bænastund í hreppnum í gær.

Klemmdist og lést í vinnuslysi
Karlmaður lést eftir að hafa klemmst við vinnu við dráttarvél á sveitabýli í Ásahreppi á föstudag.

Á fjórða tug fjár brann inni í miklum eldsvoða í Ásahreppi
Bóndi á Syðri-Hömrum í Ásahreppi í Rangárvallasýslu syrgir 35 kindur sem brunnu inni í fjárhúsi í gærkvöldi. Fjölmennt lið slökkviliðs sinnti útkallinu.

Þjórsá hverfur núna ofan í holu efst í Urriðafossi
Mikil ísstífla hefur hrannast upp við Urriðafoss í frostakaflanum undanfarnar vikur. Sérfræðingar Landsvirkjunar skoðuðu íshrannirnar í Þjórsá í gær meðal annars til að skilja betur áhrif ísmyndunar á virkjanir.

Erfiðast að skyldfólkið hafi komið skepnunum fyrir kattarnef
Guðmunda Tyrfingsdóttir bóndi í Lækjartúni í Ásahreppi segir erfiðast af öllu að skyldfólk sitt standi á bak við það að allir gripir á bænum hafi verið aflífaðir. Nágrannar í sveitinni segjast hafa fengið símtöl þess efnis að ekki ætti að hjálpa Guðmundu með búskapinn eftir að hún fór úr axlarlið í desember og var flutt á sjúkrahús.

Landsvirkjun áformar meiri orkuöflun á fjórum stöðum
Ný orkuöflun Landsvirkjunar stefnir í að verða mjög umfangsmikil á næstu árum, að sögn forstjórans. Auk Hvammsvirkjunar áformar fyrirtækið stækkun virkjana á Þeistareykjum og við Sigöldu sem og vindorkulund við Búrfell.

Spinnur garn af rokki eins og landnámskonurnar gerðu
Marianne Guckelsberger í Hveragerði gerir mikið af því að spinna úr íslenskri ull og búa þannig til band en þá spinnir hún garn af rokki, eins og landnámskonurnar gerðu til að klæða fólkið sitt, enda var ullin það sé hélt lífi í fólkinu. Víkingar kunnu hins vegar ekki að prjóna.

Ullarvika á Suðurlandi fyrstu vikuna í október
Tröllabandaprjón, handlitun í potti, ullarútsaumur, peysuprjón, sokkaprjón og spuni á rokk verður meðal þess, sem verður í boði á Ullarviku Suðurlands, sem stendur yfir fyrstu vikuna í október.

„Kaupfélag Skagfirðinga virðist í sérstökum verndarflokki hjá þessari ríkisstjórn“
Alþingi samþykkti í dag þriðja áfanga rammaáætlunar með 34 atkvæðum. Sjö greiddu atkvæði á móti en fimmtán sátu hjá. Bjarni Jónsson í Vinstri grænum greiddi atkvæði gegn áætluninni, einn stjórnarliða.

Gera lokatilraun til að halda Héraðsvötnum og Kjalöldum í vernd
Þingmenn þriggja minnihlutaflokka munu í dag leggja fram breytingartillögu við Rammaáætlun til að reyna að halda stórum virkjanakostum í verndarflokki. Náttúruverndarsinnar munu mótmæla áformum ríkisstjórnarinnar í dag og segja þau gera áratugalanga náttúruverndarbaráttu að engu.

Ísleifur í Kálfholti hlaut flest atkvæði í Ásahreppi
Ísleifur Jónasson í Kálfholti hlaut flest atkvæði í óbundnum kosningum til hreppsnefndar í Ásahreppi á laugardaginn.

Stór vöruflutningabíll í vegkantinum á Suðurlandi
Stór vöruflutningabíll liggur á hliðinni úti í vegkantinum á Hringveginum austan Þjórsár. Þetta sýna ljósmyndir sem blaðamaður Vísis náði á svæðinu í dag.