Mikilvægir áfangar í orkumálum Vestfjarða Arna Lára Jónsdóttir skrifar 22. júní 2026 19:00 Velsæld landshluta er í beinu samhengi við orkuöflun og orkudreifingu sem eru forsenda verðmætasköpunar, uppbyggingu atvinnulífs, nýrra tækifæra og nýsköpunar. Raforkumál á Vestfjörðum hafa oft verið til umræðu vegna óboðlegrar stöðu, sem er í stuttu máli sú að flutningskerfi og dreifikerfi Vestfjarða er veikt. Fjórðungurinn er ekki sjálfbær í orkuframleiðslu og takmörkuð afhendingargeta hamlar uppbyggingu. Tíðar bilanir og rafmagnsleysi er kostnaðarsamt fyrir samfélagið og loftslagið með tilheyrandi bruna dísilvaraaflsstöðva. Orkuskipti og atvinnuuppbygging kalla á alvöru lausnir. Áþreifanlegur ávinningur fyrir Vestfirði Áskoranir í orkumálum Vestfjarða verða ekki leystar kviss bamm búmm en það hefur náðst verulegur árangur undanfarið. Á orkuþingi Vestfjarða sem haldið var í byrjun júní fór umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Jóhann Páll Jóhannsson yfir mikilvæga áfanga í átt að orkusjálfstæði fjórðungsins. Á fyrsta eina og hálfa ári kjörtímabilsins hefur 600 milljónum króna verið veitt til jarðhitaleitar- og nýtingar og varmadæluvæðingar á Vestfjörðum í gegnum Loftslags- og orkusjóð. Þetta eru bæði stór og smá verkefni, í Bolungarvík, Patreksfirði, Hólmavík, Suðureyri og Ísafirði. Nú síðast í mars hlaut Orkubú Vestfjarða 160 milljóna styrk vegna jarðhitanýtingar á Ísafirði og 24 milljónir til þess að bora á Gálmaströnd yst í Steingrímsfirði í von um að forsendur skapist til aukinnar atvinnustarfsemi í Strandabyggð. Alþingi er búið að afgreiða frumvarp ráðherra um jöfnun dreifikostnaðar sem hefur mikla þýðingu fyrir Vestfirðinga. Þar erum við að lækka raforkukostnað heimila, fyrirtækja og sveitarfélaga í dreifbýli og líka að létta jöfnunargjaldinu af öllum heimilum sem reiða sig á rafhitun eða kynntar veitur, sem þýðir lægri raforkureikning hjá nánast hverjum einasta íbúa á Vestfjörðum. Höggvum á raforkuhnútinn fyrir vestan Ráðherra boðar líka frumvarp í haust til þess að vinda ofan af skaðlegum lagabreytingum sem gerðar voru árið 2018 og lúta að því hvernig kerfisframlag nýrra virkjana er reiknað. Gildandi löggjöf refsar Vestfjörðum og virkjunaraðilum fyrir litla uppbyggingu og veikt flutningskerfi Vestfjarða í gegnum áratugina. Lagabreytingin myndi greiða götu Hvalárvirkjunar, Austurgilsvirkjunar og Skúfnavatnavirkjunar, og lækka tengikostnað virkjananna. Klausan sem á að breyta hefur leitt til þess að þessir virkjanamöguleikar eru gerðir óhagkvæmir. Kerfisframlag Hvalá samkvæmt núgildandi reiknireglu eru tæpir 7 milljarðar á meðan kerfisframlag Hvammsvirkjunar er tæpir 3 milljarðar en sú virkjun nýtur þeirra uppbyggingar sem hefur þegar orðið til í flutningskerfinu og því ódýrara að tengja hana. Þetta er risastórt hagsmunamál fyrir Vestfirðinga og er eina raunhæfa leiðin að orkusjálfstæði Vestfjarða. Þetta er lausn sem styður við markmið okkar um meiri vöxt og verðmætasköpun, aukinn kerfisstyrk, afhendingargæði, afhendingaröryggi, aukna hagkvæmni og aukið áfallaþol Vestfjarða. Orkuöryggi og orkuskipti á fleygiferð Ráðherra hefur sýnt með fyrri ákvörðum og framtíðarsýn að einbeittan vilja og festu til að leysa úr áralöngum hnútum og nærtækast að nefna góðan árangur á Norðausturlandi. Alþingi samþykkti í lok síðustu viku rammaáætlun þar sem tveir virkjunarkostir á Vestfjörðum voru settir í nýtingarflokk, annars vegar Skúfnavatnavirkjun og hins vegar Tröllárvirkjun. Þá er gleðilegt að Kvíslatunguvirkjun ofan við Selárdal norðan Steingrímsfjarðar færist nú nær því að verða að veruleika. Með henni munum við sjá bætt afhendingaröryggi á Ströndum, Reykhólum og í Inn-Djúpi, auka varaafl á svæðinu í stað eldsneytisvéla og aukna orkuframleiðslu inn á dreifikerfið. Raforkulínur á Vestfjörðum séu uppseldar enda orðnar gamlar og lúnar. Línurnar bera ekki þann vöxt og verðmætasköpun sem framundan er. Þess vegna skiptir miklu að haldið verði vel á spöðunum við uppbyggingu flutningskerfisins. Á komandi löggjafarþingi boðar umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra lagabreytingar sem munu flýta uppbyggingu flutnings- og dreifikerfis raforku. Allt skiptir þetta máli svo árangur náist í orkumálum landshlutans. Þannig styrkjum við Vestfirði. Þannig styrkjum við Ísland. Höfundur er oddviti Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Orkumál Vesturbyggð Ísafjarðarbær Bolungarvík Reykhólahreppur Súðavíkurhreppur Árneshreppur Strandabyggð Arna Lára Jónsdóttir Mest lesið Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson Skoðun Skoðun Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hélt fyrst að fréttin væri um Sigurð Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar