
Næturlíf

Segir lögreglu beita dagbókarfærslum til að þrýsta á styttri opnunartíma skemmtistaða
Eigandi Röntgen Bar segir lögregluna beita dagbókarfærslum til að þrýsta á styttri opnunartíma skemmtistaða. Hann hafi ekki orðið var við ófremdarástand í miðbænum þó að mikið sé að gera um helgar.

Smeykir við það sem leynist í minnisblaði Þórólfs
Eigendur skemmtistaða og kráa í miðbæ Reykjavíkur eru smeykir við það hvaða tillögur sóttvarnalæknir hyggst leggja til að taki gildi svo stemma megi stigu við þá nýju bylgju sem nú er farin af stað í kórónuveirufaraldrinum.

Tveir smitaðir á Seyðisfirði þar sem hátíðin LungA fór fram um helgina
Tveir hafa greinst smitaðir á Seyðisfirði síðustu daga en listahátíðin LungA fór fram í bænum um helgina.

Vill sjá skertan opnunartíma skemmtistaða vegna stöðunnar
Yfirlæknir á ónæmisfræðideild Landspítalans hefði viljað sjá skertan opnunartíma skemmtistaða til að stemma stigu við faraldri kórónuveirunnar hér á landi. Hann hefur áhyggjur af verslunarmannahelginni og býst við háum smittölum næstu daga.

Mikill erill vegna slagsmála á djamminu
Mikill erill var í miðbæ Reykjavíkur undir morgun og þurfti lögregla nokkrum sinnum að stíga inn í slagsmál sem brutust út fyrir utan skemmtistaði. Tvisvar var sjúkrabíll kallaður út að skemmtistað í nótt eftir að gestur datt og meiddi sig. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu.

Ölvunarónæði og hávaði í miðborginni
Næturvaktin hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hefur oft verið erilsamari ef marka má fréttaskeyti lögreglu til fjölmiðla í morgun. Vestan Elliðaár var það aðallega í miðborginni sem lögregla sinnti erindum.

Aðgerðir ekki hertar: Flest smit undanfarna daga af delta-afbrigðinu
Frá 1. júlí hafa 23 einstaklingar greinst með Covid-19 hér innanlands, flest af völdum delta-afbrigðisins svokallaða. Sóttvarnalæknir er ekki með tillögur að hertum sóttvarnaraðgerðum að svo stöddu, en það gæti breyst.

Sjokk fyrir alla að bólusettur hafi smitast
Rekstrarstjóri Bankastræti Club, þar sem upp kom smit hjá starfsmanni sem var á vakt á föstudags- og laugardagskvöld, segir það hafa verið mikið sjokk að bólusettur starfsmaður hafi smitast. Hún telur ekki að smitið muni hafa áhrif á rekstur staðarins en hann verður opinn um næstu helgi.

Sá smitaði er starfsmaður á Bankastræti Club
Kórónuveirusmitið sem greindist í tengslum við skemmtistaðinn Bankastræti Club í fyrradag kom upp hjá starfsmanni staðarins, sem var á staðnum á föstudags- og laugardagskvöld.

Smit rakið til Bankastræti Club
Annað tveggja Covid-smita sem greindust utan sóttkvíar í gær er rekið til skemmtanalífsins, meðal annars til skemmtistaðarins Bankastræti Club.

Halda loks opnunarpartí eftir tveggja ára lokun
Skemmti- og tónleikastaðurinn Húrra í Tryggvagötu í miðbæ Reykjavíkur opnar dyr sínar aftur fyrir gestum í opnunarpartíi á föstudaginn. Á dagskrá er djamm, og það er opið til hálffimm eins og áður fyrr.

Kótelettugestur í öndunarstopp í fangaklefa á Selfossi
Lögreglan á Suðurlandi telur að lögregluþjónar og hjúkrunarfræðingur hafi bjargað lífi karlmanns sem handtekinn var á Selfossi um helgina fyrir óspektir. Greint er frá þessu í tilkynningu frá lögreglu.

Týndi tíu vikna gömlum hvolpi á djamminu
Lýst var eftir tíu vikna gamla hvolpinum Karítas um helgina. Í ljós kom að eigandinn hafði tekið hvolpinn með sér á djammið á föstudagskvöld og óttast var að eigandinn hefði gert honum mein. Eftir langa leitarhelgi er hvolpurinn kominn í öruggar hendur þökk sé Hundasveitinni svokölluðu.

Henti blómapotti í lögreglubíl og gisti fangaklefa
Maður var handtekinn í miðbænum seint í nótt fyrir að henda blómapott í lögreglubíl. Nokkrar líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglu í gærnótt víðs vegar um höfuðborgarsvæðið.

Tvær líkamsárásir í bænum í nótt
Tilkynnt var um tvær líkamsárásir við skemmtistaði í miðbænum í nótt. Fyrir utan þetta fór næturlíf miðborgarinnar að mestu leyti vel fram, að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Gordon Ramsay á Bankastræti Club í gær og í dag
Stjörnukokkurinn breski Gordon Ramsay nýtur íslenska sumarsins um þessar mundir og var á meðal gesta á Bankastræti Club í gær, samkvæmt ábendingum sem Vísi hafa borist.

Vilja banna hopp um helgar: „Dauðadrukkið fólk er í sí og æ að keyra fyrir mann“
Leigubílstjórar sem fréttastofa ræddi við um helgina segjast langþreyttir á óhöppum af völdum ölvaðs fólks á rafhlaupahjólum. Þeir telja nauðsynlegt að banna leigu á hlaupahjólunum um helgar til að forðast slys vegna ölvunar.

Húrraveldið stækkar: Opna gluggalausan næturklúbb sem á að breyta leiknum
„Það sem við erum að reyna að búa til er tímalaust rými. Þú ert í gluggalausum kjallara, það er bara óendanleiki, þú veist ekkert hvað klukkan er, það eru bara ljós og speglar og reykur og stemning. Þú bara gleymir þér og veist ekkert hvað er í gangi, enda skiptir það engu máli.“

Saknar þess tíma þegar skemmtistaðir þurftu að loka fyrr: „Allt of mikið að gera“
Dyraverðir á skemmtistöðum miðbæjarins segja álagið í bænum gríðarlegt um helgar eftir að samkomutakmörkunum var aflétt innanlands. Dyravörður á Prikinu saknar þess tíma þegar hömlur voru á opnunartíma skemmtistaða vegna sóttvarnarreglna.

Ætla ekki að endurvekja næturstrætó
Þrátt fyrir að skemmtanalífið sé komið í fyrra horf og gott betur, er ekki viðbúið að næturstrætó hefji aftur göngu sína í Reykjavík. Framkvæmdastjóri Strætó bs. segir að endurupptaka þjónustunnar sé ekki í áætlunum.

Næturvaktin eins og stórviðburður væri í bænum
Mikið hefur mætt á slökkviliði höfuðborgarsvæðisins síðasta sólarhring. Raunar var svo mikið að gera í nótt að það var sem stórviðburður hefði verið í bænum, eins og það er orðað í Facebook-færslu slökkviliðsins í morgun.

Ráðist á dyraverði í miðborginni
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um að ráðist hefði verið á dyraverði í miðborg Reykjavíkur á fjórða tímanum í nótt.

Banna Hopp um helgar vegna fyllerís? Ekki séns, segir djammið
Eftir að hugmyndir komu fram um að banna leigu á rafhlaupahjólum um helgar vegna ölvunar brugðust margir við og bentu á að það væri líklega ekki lausnin. Nú hefur Stöð 2 rætt við fjölbreytta fulltrúa næturlífsins og þeir taka í sama streng.

Halda tólf tíma löglegt reif í vöruskemmu í Grafarvogi
Takmarkalaus skemmtun í landi án takmarkana, það er auðvitað í hæsta máta viðeigandi. Það er á dagskrá í Gufunesi í Grafarvogi í dag, þar sem rave hefst klukkan þrjú. Og stendur í tólf klukkustundir.

Sjáðu stemninguna á opnunarkvöldi Bankastræti Club
Nýr klúbbur verður opnaður í kvöld, eins og hefur kannski ekki farið fram hjá mörgum, þar sem hinn vinsæli B5 var áður til húsa. Klúbburinn, Bankastræti Club, er nokkuð ólíkur öðrum skemmtistöðum miðbæjarins.

Hinn eini sanni b5 opnar í nýju húsnæði
Skemmtistaðurinn b5 mun opna aftur í sumar eftir árshlé á starfsemi sinni. Hann verður hins vegar ekki í Bankastræti 5 eins og forðum, en þaðan dregur staðurinn nafn sitt, heldur á horni Hverfisgötu og Smiðjustígs, þar sem Hverfisbarinn var áður til húsa.

Lögregla meðvituð um hópslagsmálin en getur lítið gert
Lögregla er meðvituð um hópslagsmálin sem áttu sér stað í miðbæ Reykjavíkur snemma síðasta sunnudagsmorgun. Hún getur þó lítið gert í málinu á meðan engar kærur hafa komið fram í málinu.

Segir órökrétt að gefa skemmtistöðum frjálsan opnunartíma
Borgarstjóri telur ekki rökrétt að gefa skemmtistöðum frjálsan opnunartíma, líkt og kallað hefur verið eftir. Hins vegar sé eðlilegt að taka samtalið og stuðla betur að því að skemmtanalífið dreifist betur yfir nóttina.

„Ég held að í frelsinu geti falist margar lausnir“
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins kallar eftir umræðu um frjálsan opnunartíma skemmtistaða í miðborg Reykjavík og óttast að í faraldrinum hafi skapast jarðvegur fyrir stjórnlyndi hér á landi.

Líkamsárás, slagsmál og glasi fleygt í lögreglubíl
Þrír voru handteknir í miðbænum í nótt vegna ofdrykkju og slagsmála á skemmtanalífinu. Einnig var tilkynnt um tvær líkamsárásir, aðra í miðbænum en hina í Laugardalnum.