Umferðaröryggi
16 17 18 19 20 21 22 23 24 … 28 ›
Þverun Þorskafjarðar boðin út en ósamið um Teigsskóg Vegagerðin auglýsti í dag eitt stærsta útboðsverk ársins, þverun Þorskafjarðar. Óvissa ríkir þó um næstu áfanga þar sem ekki hafa náðst samningar við landeigendur í Teigsskógi. Í Reykhólahreppi sjá menn fram á ný atvinnutækifæri með framkvæmdunum. Innlent 13.1.2021 21:51
Hvetur til skipaflutninga til að létta á þjóðvegakerfinu Framkvæmdastjóri Odda á Patreksfirði, stærsta sjávarútvegsfyrirtækis sunnanverðra Vestfjarða, segir galið að allir þungaflutningar landsins fari um þjóðvegakerfið. Hann hvetur til skipaferða og að ferjusiglingar yfir Breiðafjörð verði efldar. Viðskipti innlent 11.1.2021 21:34
Vilja minnka umferðarhraða á Bústaðavegi Meirihluti íbúaráðs Háaleitis- og Bústaðahverfis vill að umferðarhraði á Bústaðavegi verði minnkaður úr 50 km/klst niður í 30 km/klst. Þetta kemur fram í nýlegri bókun ráðsins en greint er frá málinu í Morgunblaðinu í dag. Innlent 11.1.2021 06:45
Þessi brú styttir vesturleiðina til Ísafjarðar um níu kílómetra Ný brú þvert yfir Þorskafjörð, sem styttir vesturleiðina til Ísafjarðar um níu kílómetra, verður boðin út á evrópska efnahagssvæðinu á næstu dögum. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist í kringum páska en þetta gæti orðið stærsta útboðsverk Vegagerðarinnar í ár. Innlent 7.1.2021 22:44
Vestfirðingar vilja láta bora fern ný jarðgöng Forystumenn á Vestfjörðum telja þörf á minnst fernum nýjum jarðgöngum í fjórðungum til að koma samgöngumálum þar í viðunandi horf; einum á norðanverðum fjörðunum og þrennum á sunnanverðum. Innlent 6.1.2021 23:19
Árið 2020 í myndum Ársins 2020 verður vafalítið minnst sem árs Covid-19 en þó gerðist margt annað markvert. Veður var oft vont, kjaradeilur harðar og mikið rætt um nýja stjórnarskrá. Jörð skalf á Reykjanesskaga og þá létu náttúruöflinn finna fyrir sér á Flateyri, Suðureyri og Seyðisfirði.Þegar eitthvað var að frétta voru ljósmyndarar og tökumenn Vísis og Stöðvar 2 á staðnum og fönguðu meðal annars þá stemningu sem myndaðist í samfélaginu þegar götur voru mannlausar, raðir langar og þjóðin á varðbergi gegn nýrri vá.Hér má sjá sýnishorn af myndunum sem prýddu umfjöllun okkar á árinu. Fréttaannáll Stöðvar 2 verður svo á dagskrá að loknum kvöldfréttum 30. desember, bæði á Stöð 2 og Vísi. Innlent 25.12.2020 16:03
Trukkastjóri vill að borað verði í fjöllin milli Bíldudals og Patreksfjarðar Bæjarráð Vesturbyggðar lýsir yfir miklum áhyggjum vegna alvarlegs ástands þjóðvega á sunnanverðum Vestfjörðum. Eigandi flutningafyrirtækis, sem misst hefur þrjá trukka á vestfirskum vegum, segir að bora verði í gegnum fjöllin milli Bíldudals og Patreksfjarðar. Innlent 23.12.2020 23:37
Óku utan í bíl manns eftir vítaverðan akstur á Hellisheiði Lögreglan á Suðurlandi greip til þess ráðs að aka utan í bíl karlmanns sem hafði ekið á vítaverðan hátt á Suðurlandsvegi frá höfuðborginni til Selfoss. Enginn slasaðist í aðgerðum lögreglu en ökumaðurinn var handtekinn. Innlent 20.12.2020 00:06
Varasamar aðstæður vegna slitlagsskemmda Umtalsverðar slitlagsskemmdir hafa orðið á Bíldudalsvegi í Mikladal og Tálknafirði vegna veðurs. Unnið er að bráðabirgðaviðgerðum á svæðinu. Innlent 18.12.2020 14:37
Bikblæðingar minnka en gætu versnað aftur vegna hækkandi hitastigs Svo virðist sem að bikblæðingar á þjóðvegi 1 frá Borgarnesi í Skagafjörð hafi farið minnkandi undanfarinn sólarhring. Vegagerðin hefur þó áhyggjur af að ástandið gæti versnað með hækkandi hitastigi þegar líður á daginn. Innlent 16.12.2020 12:16
„Það er skelfilegt að eiga við þetta“ Fjöldi flutningabíla og annarra bíla hafa skemmst undanfarna daga vegna vegklæðninga sem losnað hafa á kafla leiðarinnar á milli Staðarskála og Varmahlíðar. Framkvæmdastjóri Þróttar segir tjónið tilfinnanlegt fyrir utan þá hættu sem þessar aðstæður skapi. Innlent 15.12.2020 18:30
Fólk fresti för um sólarhring í það minnsta Vegagerðin hvetur fólk sem á leið milli Borgarness og Akureyrar að fresta för sinni um að minnsta kosti sólarhring ef kostur er vegna bikblæðinga á þjóveginum, sem valdið hafa miklu tjóni á bílum og geta verið hættulegar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni nú síðdegis. Innlent 15.12.2020 16:32
Segist hafa látið Vegagerðina vita af bikblæðingunum strax á sunnudag Framkvæmdastjóri flutningafyrirtækisins Vörumiðlunar á Sauðárkróki segist hafa varað Vegagerðina við miklum bikblæðingum á vegkafla frá Borgarfirði norður í Skagafjörð strax á sunnudag en ástandið var þó enn mjög slæmt í gærkvöldi. Vegagerðin kveðst hafa varað við blæðingunum um leið og ábendingar bárust. Innlent 15.12.2020 12:23
„Þetta er stórhættulegt fyrir margra hluta sakir“ „Við erum að sjá þetta á sumrin, við erum að sjá þetta á veturna,“ segir Ólafur Guðmundsson umferðarsérfræðingur um blæðingar á vegum landsins. Innlent 15.12.2020 09:08
Bílstjórar hafa ekki séð aðrar eins tjörublæðingar áður: „Eins og að baða dekkin í karamellu“ Þjóðvegurinn norður til Akureyrar virðist hafa blætt mikið í kvöld og hafa bílstjórar og ökumenn orðið fyrir tjóni. Vegklæðning hefur þakið dekk bíla og kannast bílstjórar ekki við að hafa séð annað eins. Innlent 14.12.2020 22:14
„Þarna var nýbúið að taka fram úr mér“ Honum Úlfari Snæ Arnarsyni brá nokkuð í brún þegar hann mætti jepplingi ekið á móti umferð á Reykjanesbrautinni í Hafnarfirði í gær. Úlfar telur líklegt að ökumaður bílsins hafi ruglast í ríminu og að hann hafi ekki áttað sig á mistökunum, miðað við hraðann sem hann var á. Innlent 7.12.2020 13:59
Fylgdust undrandi með bílunum bruna yfir gönguljósin á rauðu Þrír ökumenn fóru yfir á rauðu ljósi á Bústaðavegi í morgun. Foreldri í hverfinu sem náði brotum fólksins á myndband hefur áhyggjur af hegðun fólks enda börn reglulega á ferli á leið í og úr skóla eða félagsstarf. Hann segir brotin í morgun alls ekkert einsdæmi. Innlent 1.12.2020 14:49
Greið og örugg braut loksins komin í gegnum Hafnarfjörð Langþráð samgöngubót varð að veruleika í dag þegar 3,2 kílómetra kafli Reykjanesbrautar í gegnum Hafnarfjörð, milli Kaldárselsvegar og Krýsuvíkurvegar, breikkaði úr tveimur akreinum í fjórar. Jafnframt voru akstursstefnur aðskildar með umferðareyju og vegriðum á milli. Innlent 24.11.2020 21:14
Fær fullar bætur sex árum eftir alvarlegt bílslys á Gullinbrú Karlmaður sem slasaðist alvarlega í bílslysi á Gullinbrú fyrir sex árum fær fullar bætur úr slysatryggingu frá tryggingafélagi sínu samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í gær. Tryggingafélagið vildi skerða eða fella niður bæturnar vegna þess að maðurinn ók of hratt þegar slysið varð. Innlent 24.11.2020 16:40
Lagt til að hámarkshraði í þéttbýli verði lækkaður í 30 km/klst Lagt er til að hámarkshraði í þéttbýli verði lækkaður niður í 30 kílómetra á klukkustund í nýju frumvarpi. Þingmaður segir málið snúast bæði um öryggi og umhverfið. Innlent 23.11.2020 18:41
Vegagerðarmenn gista á Hótel Flókalundi í vetur Í fyrsta sinn í nærri sextíu ára sögu Flókalundar á Barðaströnd er þar boðið upp á gistingu yfir veturinn. Ástæðan er nýhafin vegagerð á Dynjandisheiði. Innlent 21.11.2020 22:34
Byrjaðir á fyrsta áfanga vegar um Gufudalssveit Vinna er hafin við sjö kílómetra vegagerð í Gufudalssveit en þetta er fyrsti áfangi hins umdeilda Teigsskógarvegar. Í sveitinni er því fagnað að verkið skuli hafið. Myndir frá vegagerðinni mátti sjá í fréttum Stöðvar 2. Innlent 20.11.2020 23:00
Þurfa að vinna rösklega í vetur á Dynjandisheiði Framkvæmdir eru komnar á fullt við fyrsta áfanga nýs þjóðvegar yfir Dynjandisheiði. Fyrstu tíu kílómetrarnir eiga að vera tilbúnir með malbiki innan ellefu mánaða. Myndir frá sprengingum á verkstað mátti sjá í fréttum Stöðvar 2. Innlent 17.11.2020 22:08
Átta kerti til minningar um þau sem hafa látist í ár Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa er í dag. Innlent 15.11.2020 13:21
Loka fyrir hringaksturinn á bílastæðinu næst Laugum Framkvæmdir standa nú yfir við innkeyslu á bílastæðið næst World Class Laugum í Laugardal sem ætlað er að bæta umferðaröryggi. Eftir breytingar verður almennum stæðum þar fækkað og lokað fyrir hringakstur. Innlent 13.11.2020 10:25
Átta hafa látið lífið í umferðinni á árinu Árlegur alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa verður sunnudaginn 15. nóvember. Átta hafa látist í umferðinni það sem af er ári en sex létust í fyrra. Innlent 11.11.2020 16:31
Örkumluð eftir bílslys og eiginmaðurinn með heilaæxli Aðstæður Elínborgar Björnsdóttur eru hreint út sagt skelfilegar eftir hroðalegt bílsslys á Sandgerðisvegi í byrjun árs. Innlent 11.11.2020 15:12
Landvernd kveðst ekki bera ábyrgð á vegamálum á Vestfjörðum Umhverfisverndarsamtökin Landvernd hafna því að þau beri ábyrgð á því að vegir á Vestfjörðum haldi ekki bílum sem um þá aka, og segja ábyrgðina liggja hjá Vegagerðinni. Þetta kemur fram í Facebook-færslu samtakanna. Innlent 10.11.2020 19:46
Segir réttast að gefa Landvernd trukkinn Flutningabíl sem valt með fiskfarm á Hjallahálsi á Vestfjörðum á föstudag var náð upp í dag. Eigandi flutningafyrirtækisins er óhress með margra ára drátt á endurbótum Vestfjarðavegar og segist skrifa tafirnar á reikning Landverndar. Innlent 8.11.2020 15:28
Lækka hámarkshraða á Kjalarnesi vegna undirbúnings breikkunarframkvæmda Búið er að lækka hámarkshraða á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi vegna undirbúnings framkvæmda við breikkun vegarins. Er hámarkshraðinn þar nú 70 km/klst, en hefur verið 90. Innlent 28.10.2020 14:45