Boeing
1 2 3 4 5 6 7 … 11 ›
Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Ellefu slösuðust, þar af fjórir alvarlega, þegar Boeing 737-300 flugvél hrapaði við flugtak á Blaise Diagne flugvellinum í Dakar í Senegal. Öll starfsemi á flugvellinum hefur verið stöðvuð vegna slyssins. Erlent 9.5.2024 11:56
Geimskoti Starliner var frestað í nótt Fyrirhuguðu geimskoti Starliner geimfarsins frá Boeing var frestað í nótt, tveimur tímum fyrir flugtak frá Canaveral höfða í Flórída. Erlent 7.5.2024 07:23
Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Starfsmenn Boeing og Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA), ætla í nótt að skjóta geimförum til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar. Þeir verða ferjaðir til geimstöðvarinnar um borð í CST-100 Starliner-geimfari og er þetta fyrsta mannaða geimferð geimfarsins, eftir langt og erfitt þróunarferli. Erlent 6.5.2024 23:02
Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Flugvöllurinn í Vogum í Færeyjum, eini flugvöllur eyjanna, verður færður upp um einn öryggisflokk. Það þýðir að Boeing 757-fraktþota FarCargo, dótturfélags Bakkafrosts, fær loksins varanlegt leyfi til að lenda í sinni eigin heimahöfn. Erlent 29.4.2024 23:37
Loftleiðir með þrjár þotur í lúxusflugi fyrir ríka fólkið Loftleiðir, dótturfélag Icelandair Group, er komið með þrjár þotur sem eingöngu sinna lúxusflugi með forríka ferðamenn. Dæmigerð þriggja vikna hnattferð kostar 25 milljónir króna á mann en þá er líka allt innifalið. Viðskipti innlent 15.4.2024 23:00
Smíða stærstu flugvél heims til að flytja vindmylluspaða Bandarískt nýsköpunarfyrirtæki, Radia, með höfuðstöðvar í Colorado, hefur kynnt áform um smíði stærstu flugvélar heims. Flugvélin, kölluð WindRunner, hefði það meginhlutverk að flytja risastór vindmyllublöð. Erlent 14.4.2024 07:07
Stefnir í stærsta ár Air Atlanta með allt að tuttugu breiðþotur Flugfélagið Air Atlanta hefur fest kaup á fimm nýjum breiðþotum, meðal annars til að nota í umfangsmiklu pílagrímaflugi. Forstjórinn segir stefna í að árið verði það allra stærsta í sögu félagsins með allt að tuttugu risaþotur í rekstri. Viðskipti innlent 11.4.2024 20:55
Vél frá Boeing snúið við eftir að vélarhlíf rifnaði af í flugtaki Samgönguyfirvöld í Bandaríkjunum hafa hafið enn eina rannsóknina er varðar flugvél frá Boeing, eftir að flugmenn neyddust til að lenda vél frá fyrirtækinu í kjölfar þess að vélarhlíf rifnaði af í flugtaki. Erlent 8.4.2024 07:04
Starliner á loks að bera geimfara Starfsmenn Boeing stefna að því að skjóta geimförum til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar um borð í geimfarinu Starliner í næsta mánuði. Þróun geimfarsins hefur reynst Boeing erfið og er mörgum árum á eftir áætlun. Erlent 5.4.2024 14:09
Fyrstu 757-þotu Íslendinga lagt eftir 33 ára þjónustu Fyrstu Boeing 757-þotunni sem Íslendingar eignuðust, TF-FIH, hefur núna verið lagt, eftir 33 ára þjónustu hjá Icelandair. Engin flugvélartegund hefur þjónað íslenskum flugfarþegum jafn lengi og þessi. Innlent 4.4.2024 21:07
Auka sætaframboð til Íslands með breiðþotum Bandaríska flugfélagið Delta Air Lines hyggst auka sætaframboð í flugferðum sínum frá New York til Íslands og notar nú Boeing 767 breiðþotu á leiðinni í stað Boeing 757. Fyrsta þota flugfélagsins þetta árið kom til Keflavíkur frá New York í morgun. Þetta er þrettánda árið sem Delta flýgur milli Íslands og Bandaríkjanna. Viðskipti innlent 31.3.2024 09:44
Forstjóri Boeing lætur af störfum fyrir árslok Forstjóri Boeing, Dave Calhoun, mun láta af störfum fyrir árslok. Auk hans lætur af störfum forstjóri áætlunarflugvéladeildar félagsins, Stan Deal. Stephanie Pope tekur við af honum. Steve Mollenkopf hefur verið skipaður formaður stjórnar félagsins. Calhoun tilkynnti um þetta í dag í bréfi til starfsmanna. Viðskipti erlent 25.3.2024 13:09
Fjöldi málsókna vegna hurðarloksins sem fauk í miðju flugi Sjö farþegar sem urðu fyrir meiðslum þegar hurðarlok losnaði í miðju flugi Alaska Airlines í janúar síðastliðnum hafa höfðað mál gegn flugfélaginu og flugvélaframleiðandanum Boeing. Erlent 15.3.2024 07:25
Boeing-uppljóstrari fannst látinn í miðjum málaferlum Fyrrverandi starfsmaður flugvélaframleiðandans Boeing, sem ljóstraði upp um galla í framleiðslu flugvéla Boeing, fannst látinn í Bandaríkjunum. Dagana fyrir andlátið hafði hann borið vitni fyrir dómi gegn framleiðandanum. Erlent 11.3.2024 23:47
Fimmtíu slasaðir eftir að Boeing-vél „féll“ í miðju flugi Fimmtíu manns þurftu aðhlynningu og þrettán voru lagðir inn á sjúkrahús eftir að „tæknilegir örðugleikar“ komu upp í flugi Latam Airlines frá Sydney til Auckland sem urðu þess valdandi að flugvélin „féll“ og farþegar hentust úr sætum sínum. Erlent 11.3.2024 08:45
Boeing 757-þotan fær ekki að lenda í Færeyjum Áform færeyska fiskeldisfyrirtækisins Bakkafrosts um reglubundið flug með ferskan lax frá Færeyjum eru í uppnámi þar sem Boeing 757-fraktflutningaþota dótturfélagsins FarCargo fær ekki að lenda á flugvellinum í Vogum. Ástæðan er sú að 41 metra vænghaf hennar telst of breitt fyrir þennan eina flugvöll Færeyinga sem skilgreindur er fyrir allt að 36 metra vænghaf flugvéla. Viðskipti erlent 10.3.2024 10:40
Færeyingar fagna fiskflutningaþotu Boeing 757-fraktflutningaþota færeyska flugfélagsins FarCargo fékk hátíðlegar móttökur á Voga-flugvelli þegar hún lenti í fyrsta sinn í Færeyjum síðdegis í gær. Helstu ráðamenn eyjanna voru meðal gesta í móttökuathöfn, þeirra á meðal Aksel V. Johannessen, lögmaður Færeyja, og Høgni Hoydal utanríkis- og atvinnumálaráðherra, og fékk þotan heiðursbunu frá flugvallarslökkviliðinu þegar hún ók í hlað. Viðskipti erlent 6.3.2024 12:42
Ryanair til í að kaupa afpantaðar Boeing þotur Írska lággjaldaflugfélagið Ryanair segist vera reiðubúið til þess að kaupa Boeing farþegaþotur af gerðinni Max 10 sem afpantaðar hafa verið af bandarískum flugfélögum, á réttu verði. Viðskipti erlent 29.1.2024 11:15
Funheitar og fágaðar flugkonur Flugmannastarfið var lengi álitið karlastarf hér á landi eða til ársins 1984 þegar fyrsta konan, Sigríður Einarsdóttir, hóf atvinnuflugmannsferil sinn hjá Flugleiðum. Mikil fjölgun hefur orðið af kvenkyns flugmönnum hér á landi síðastliðin ár og er hlutfall kvenna í stéttinni með því hæsta í heiminum. Lífið 26.1.2024 10:12
Framhjól Boeing 757 féll af flugvélinni Framhjól á Boeing 757 farþegaþotu í eigu bandaríska flugfélagsins Delta féll af þotunni á alþjóðaflugvellinum í Atlanta í Bandaríkjunum á laugardag skömmu fyrir ætlað flugtak. Erlent 24.1.2024 14:47
Lausir skrúfboltar í vélum Boeing Skrúfboltar sem herða þurfti betur hafa fundist við skoðun á Boeing 737 Max 9 flugvélum. Flugfélagið United Airlines greinir frá þessu. Erlent 8.1.2024 22:38
Bob fann þilið sem losnaði af Boeing-vélinni Kennari að nafni Bob fann íhlutinn sem losnaði af Boeing 737 Max 9 vélinni sem þurfti að snúa við skömmu eftir flugtak þegar gat myndaðist á skrokk vélarinnar. Erlent 8.1.2024 07:02
Kyrrsetning Max-flugvéla nær ekki til Icelandair Gat sem myndaðist í Boeing 737 Max 9-flugvél Alaska Airlines tengist búnaði sem er ekki til staðar í Max-flugvélum Icelandair. Skoðanir bandarískra flugmálayfirvalda ná því ekki til flugvéla Icelandair. Innlent 6.1.2024 21:51
Kyrrsetja Boeing Max-flugvélar um allan heim Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa fyrirskipað kyrrsetningu 171 flugvélar af gerðinni Boeing 737 Max 9 eftir að farþegaflugvél Alaska Airlines þurfti að nauðlenda í gær þegar gluggi gaf sig og stórt gat myndaðist í farþegarýminu. Erlent 6.1.2024 19:33
Icelandair í samskiptum við Boeing Icelandair á í samskiptum við bandaríska flugvélaframleiðandann Boeing vegna farþegaflugvélar Alaska Airlines sem gat myndaðist á skömmu eftir brottför. Innlent 6.1.2024 12:40
Kanni möguleika á lausri skrúfu í 737 Max vélum Bandaríski flugvélaframleiðandinn Boeing hvetur flugfélög til þess að skoða nýrri 737 MAX farþegaþotur vegna möguleikans á því að þar sé lausa skrúfu að finna í hliðarstýri vélarinnar. Viðskipti erlent 28.12.2023 16:39
Þotan lögð af stað að sækja Íslendingana Flugvél Icelandair, sem utanríkisráðuneytið leigði til að sækja Íslendinga í Ísrael, er farin í loftið frá Keflavíkurflugvelli. Farkosturinn er Boeing 757-þotan TF-FIU, sem ber nafnið Hekla Aurora, en hún er máluð í litum norðurljósanna. Innlent 9.10.2023 11:15
Boeing í basli með Starliner Forsvarsmenn Boeing eiga í basli með geimfarið Starliner og hefur fyrirtækið tapað minnst 1,4 milljörðum dala á þróun þess. Þessi þróun hefur gengið brösuglega í gegnum árin og hefur fyrsta geimskoti þess ítrekað verið frestað. Viðskipti erlent 4.10.2023 15:32
Boða til stærstu flugsýningar ársins á Reykjavíkurflugvelli „Stærsta flugsýning ársins“ segir Flugmálafélag Íslands í kynningu flugsýningar sem haldin verður á Reykjavíkurflugvelli á morgun, laugardag, 3. júní. Hátt á áttunda tug flugvéla og flygilda verða til sýnis og hátt á þriðja tug flugatriða þar sem lögð verður áhersla á að sýna breidd og drifkraft íslensks flugsamfélags, að sögn Matthíasar Sveinbjörnssonar, forseta Flugmálafélagsins. Innlent 1.6.2023 23:40
Flugfélagið Atlanta fær Boeing 777-breiðþotur Air Atlanta hefur fyrst íslenskra flugfélaga tekið Boeing 777-breiðþotuna í notkun. Hún er stærsta farþegaflugvél heims sem er í framleiðslu um þessar mundir. Viðskipti innlent 25.5.2023 21:42