Seðlabankinn
21 22 23 24 25 26 27 28 29 … 47 ›
Stöðutaka með krónunni minnkar um fjórðung á örfáum mánuðum Talsvert hefur dregið úr væntingum útflutningsfyrirtækja og fjárfesta um að gengi krónunnar eigi eftir að styrkjast. Það má sjá þegar litið er til umfangs stöðutöku með krónunni, eða svonefnd gnóttstaða í gegnum framvirka samninga með gjaldeyri, en hún minnkaði um liðlega fjórðung á fáum mánuðum undir árslok 2022, eftir að hafa áður farið stöðugt vaxandi frá því í ársbyrjun 2021. Innherji 4.1.2023 13:16
Ásgeir seðlabankastjóri ársins að mati tímaritsins The Banker Að hækka stýrivexti þvert gegn ráðleggingum annarra hagfræðinga og seðlabanka krefst ekki aðeins hugrekkis heldur sömuleiðis ákveðni, eiginleikar sem Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri Íslands hefur yfir að bera, segir í umfjöllun The Banker. Alþjóðlega fjármálatímaritið, sem er gefið út af The Financial Times, hefur valið Ásgeir sem seðlabankastjóra ársins 2023. Innherji 4.1.2023 06:31
Ætti að vera „auðsótt“ fyrir markaðinn að ráða við útgáfuþörf ríkissjóðs Áætluð lánsfjárþörf ríkissjóðs á árinu 2023, sem hefur boðað útgáfu ríkisbréfa fyrir samtals um 140 milljarða, ætti ekki að valda miklum erfiðleikum fyrir innlendan skuldabréfamarkað, að sögn sérfræðinga, sem setja samt spurningamerki við litla áherslu á verðtryggða skuldabréfaútgáfu. Frekari sala á eignarhlutum ríkisins í Íslandsbanka mun skipta höfuðmáli um hvort fjárþörf ríkissjóðs verði endurskoðuð til hækkunar eða lækkunar á árinu. Innherji 3.1.2023 16:03
Útlit fyrir að gjaldeyriskaup lífeyrissjóða hafi tvöfaldast að umfangi í fyrra Gjaldeyriskaup íslensku lífeyrissjóðanna jukust nokkuð hröðum skrefum á síðustu mánuðum ársins 2022 en samhliða því fór gengi krónunnar að gefa talsvert eftir. Útlit er fyrir að hrein gjaldeyriskaup sjóðanna í fyrra verði tvöfalt meiri borið saman við árið 2021 en svigrúm þeirra til að auka vægi fjárfestinga í erlendum gjaldmiðlum í eignasöfnum sínum hefur aukist talsvert eftir miklar verðlækkanir á alþjóðlegum mörkuðum. Innherji 3.1.2023 13:30
„Ég er ekki í neinum felum fyrir þessari þjóð“ Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri var valinn maður ársins af fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar og var valið kynnt í Kryddsíld á gamlársdag. Ásgeir segist sofa vel á næturnar þrátt fyrir ábyrgð í starfi og vera kurteis maður, að minnsta kosti að mati mömmu sinnar. Innlent 2.1.2023 17:14
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri maður ársins Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri er maður ársins hjá fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Valið var kunngjört í beinni útsendingu í Kryddsíldinni rétt í þessu. Ljóst er að Ásgeir hefur með ákvörðunum sínum haft gríðarleg áhrif á daglegt líf Íslendinga á árinu. Innlent 31.12.2022 15:25
Verðbólgan mjakast upp á við og mælist 9,6 prósent Verðbólga síðustu tólf mánaða hækkaði lítillega á milli mánaða. Mælist hún nú 9,6 prósent en stóð í 9,3 prósent í síðasta mánuði. Viðskipti innlent 22.12.2022 09:12
Arion banki hækkar vexti Arion banki hefur ákveðið að hækka vexti í kjölfar stýrisvaxtahækkunar Seðlabanka Íslands þann 23. nóvember síðastliðinn. Ákvörðunin gildir frá og með deginum í dag. Viðskipti innlent 21.12.2022 10:21
Viðskiptafréttir ársins 2022: Skattsvik, klikkaður fasteignamarkaður og úrræðagóðir Akureyringar Árið 2022 í viðskiptalífinu einkenndist af því að í fyrsta sinn frá því snemma árs 2020 komst lífið aftur í venjubundið horft eftir tveggja ára kórónuveirufaraldur. Viðskipti innlent 18.12.2022 10:00
Ætti að lækka fjármögnunarkostnað banka sem getur skipt „töluverðu máli“ Frumvarp um breytingar á lögum um sértryggð skuldabréf, sem mun greiða fyrir útgáfu og viðskiptum íslenskra banka með slík bréf þvert á landamæri innan Evrópu, ætti að leiða til þess að fjármögnunarkostnaður fjármálastofnana lækki á tímum þegar aðstæður á mörkuðum hafa versnað til muna, að sögn fjármálaráðherra, sem vill tryggja framgang málsins á sem skemmstum tíma. Samtök fjármálafyrirtækja segja mikilvægt að frumvarpið verði að lögum fyrir áramót ef bankarnir eiga að geta gefið út sértryggð skuldabréf sem teljast veðhæf hjá Evrópska seðlabankanum. Innherji 13.12.2022 17:50
Seðlabankinn líti á niðurstöðu kjarasamninga með „jákvæðum augum“ Með undirritun kjarasamninga við stóran hluta alls almenns vinnumarkaðar, sem kveða á um launahækkanir sem eru í takti við flestar efnahagsspár, er „stór óvissuþáttur“ að baki, að mati hagfræðinga. Þeir segja að með samningunum sé búið að minnka óvissu um verðbólguhorfur sem gæti stutt við lækkun vaxta horft fram á við. Innherji 13.12.2022 08:34
„Góðar líkur“ á að samningurinn skili launafólki auknum kaupmætti Verði sá kjarasamningur sem hefur verið undirritaður milli SA og VR, LÍV og samflots iðnaðarmanna staðfestur mun það „vafalítið“ verða mörgum léttir, bæði launafólki og atvinnurekendum, að fá meiri vissu um fjárráð og rekstrarkostnað næsta árið, að sögn hagfræðings. Samningurinn sé nálægt grunnspá Seðlabankans um launaþróunina og gangi verðbólguspár eftir er útlit fyrir að hann muni skila launafólki almennt nokkurri kaupmáttaraukningu á komandi ári. Innherji 12.12.2022 18:04
Vöxtur í fyrirtækjaútlánum í fjármálakerfinu minnkaði um helming Eftir að umfang fyrirtækjaútlána í fjármálakerfinu hafði aukist umtalsvert á fyrri árshelmingi hægði nokkuð á vextinum á þriðja ársfjórðungi. Útlán til fyrirtækja bólgnuðu þá út um liðlega 44 milljarða króna sem er helmingi minni vöxtur en hafði mælst á öðrum ársfjórðungi. Innherji 12.12.2022 07:00
Seðlabankinn er „full virkur í athugasemdum,“ segir framkvæmdastjóri Birtu Framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs segir að Seðlabankinn sé orðinn „full virkur í athugasemdum“ þegar hann er farinn að koma með ábendingar um sjóðirnir eigi mögulega fremur að kaupa sértryggð skuldabréf á bankanna heldur að standa í beinni útlánastarfsemi til íbúðakaupa. Þá rifjar hann upp að síðasta fjárfestingarráðgjöf Seðlabankans, þegar seðlabankastjóri vildi að lífeyrissjóðir kæmu meira að fjármögnun ríkissjóðs, hefði reynst sjóðunum dýrkeypt ef þeir hefðu farið eftir henni. Innherji 11.12.2022 13:31
Verðtryggð íbúðalán lífeyrissjóða ekki verið meiri frá upphafi faraldurs Ný verðtryggð íbúðalán lífeyrissjóðanna voru meiri en sem nam öllum upp- og umframgreiðslum þeirra í október í fyrsta sinn frá því á vormánuðum ársins 2020. Bankar og lífeyrissjóðir veittu samanlagt lítillega meira af verðtryggðum lánum með veði í íbúð heldur en óverðtryggðum í mánuðinum. Innherji 8.12.2022 06:30
„Umhugsunarefni“ að lífeyrissjóðir kaupi ekki sértryggðar útgáfur bankanna Núna þegar vaxtastig fer hækkandi eftir langt tímabil þar sem áhætta var ekki rétt verðlögð þá hljóta ótryggðar skuldabréfaútgáfur bankanna að byrja að verða „aðlaðandi“ fyrir fjárfesta á borð við íslensku lífeyrissjóðina, að sögn varaseðlabankastjóra. Hann segir það jafnframt vera „umhugsunarefni“ af hverju lífeyrissjóðirnir séu ekki í meira mæli að kaupa sértryggðar útgáfur af íslensku bönkunum sem skili þeim betri ávöxtun borið saman við að lána beint út til sjóðsfélaga sinna. Innherji 7.12.2022 15:31
Seðlabankastjóri segir að fyrstu kjarasamningarnir séu „mjög jákvæð tíðindi“ Seðlabankastjóri sagði að fyrstu kjarasamningar sem gerðir voru í þessari lotu séu „mjög jákvæð tíðindi“ og auki fjármálastöðugleika. Hann sagði ennfremur bankarnir væru ekki lengur að fá „ódýra fjármögnun“ erlendis eftir áratug þar sem vextir voru neikvæðir í okkar helstu viðskiptalöndum. „Bankarnir verða að varpa þessu áfram til íslenskra aðila,“ sagði Ásgeir. Innherji 7.12.2022 12:12
Ásgeir hefur aldrei komið til Tene Seðlabankastjóri telur umdeilda vaxtahækkun á viðkvæmu stigi í kjaraviðræðum hafa verið heiðarlega og samningsaðilar hafi þannig vitað hverju þeir væru að ganga að. Hann segir hættulegt að hlusta á hagsmunaaðila og telur að verðbólgan hafi náð hámarki. Fólk sé viðkvæmt fyrir gagnrýni á utanlandsferðir til Tenerife. Sjálfur hefur hann aldrei komið þangað. Viðskipti innlent 7.12.2022 12:01
Sumir hækka úr fimm og hálfri í sjö milljónir Ragnar Þór Ægisson, bílasali og meðeigandi Bílamiðstöðvarinnar, segir að reikna megi með því að rafbílar sem nú eru niðurgreiddir að hluta af hinu opinbera muni í sumum tilvikum hækka í verði úr til dæmis eins og 5,5 milljónum í sjö milljónir. Neytendur 7.12.2022 09:10
Bein útsending: Gera grein fyrir yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans mun gera grein fyrir yfirlýsingu sinni sem birt var í morgun á blaðamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Viðskipti innlent 7.12.2022 09:01
Áhætta tengd fjármálastöðugleika hefur vaxið, segir Seðlabankinn Aðstæður á erlendum fjármagnsmörkuðum hefur farið versnandi fyrir íslensk fjármálafyrirtæki og þá hefur vaxandi innlend eftirspurn leitt til meiri viðskiptahalla. Áhætta tengd fjármálastöðugleika hér á landi hefur því vaxið, að sögn Seðlabanka Íslands. Innherji 7.12.2022 08:40
Áhætta tengd fjármálastöðugleika hafi vaxið „Töluverð óvissa er um alþjóðlegar efnahagshorfur og framvindan ytra kann að hafa neikvæð áhrif á íslenskan þjóðarbúskap næstu misserin. Mikil verðbólga er í helstu viðskiptalöndum okkar og seðlabankar þar hafa enn hert aðhaldsstig peningastefnunnar sem hefur leitt til verri horfa um fjármálastöðugleika.“ Innlent 7.12.2022 08:35
Breytingarnar á Seðlabankanum kosta þrjá milljarða Í sömu vikunni og öll spjót stóðu á dr. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóra vegna stýrivaxtahækkunar voru sendibílastjórar að keyra mublur og fínerí í stórum stíl inn í Seðlabankann. Innlent 6.12.2022 12:20
Dýr erlend fjármögnun „áhyggjuefni“ og gæti þýtt verri lánakjör fyrir fyrirtæki Það er „áhyggjuefni“ hvað fjármögnun bankanna á erlendum mörkuðum er orðin dýr og ef sú staða snýr ekki við á næstunni mun það að óbreyttu skila sér í versnandi lánakjörum fyrir íslenskt atvinnulíf, að sögn seðlabankastjóra. Hann segist ekki geta tjáð sig um umfangsmikil gjaldeyriskaup Landsbankans á millibankamarkaði á síðustu mánuðum og hvort þau kunni að tengjast stórri afborgun bankans á erlendu láni sem er á gjalddaga á fyrri helmingi næsta árs. Innherji 2.12.2022 09:10
Er Seðlabankastjórninni sjálfrátt? Eins og þeir vita, sem lesa mínar greinar, hef ég undanfarna mánuði gagnrýnt Seðlabanka harðlega fyrir stefnu bankans í stýrivaxtamálum, sem ég hef talið vera út í hött; alvarlegan afleik í taflinu gegn verðbólgu og stórfellt óréttmæti gagnvart skuldurum landsins. Skoðun 1.12.2022 10:01
Innlán atvinnufyrirtækja aukist um fjórðung frá áramótum Ekkert lát er á umfangsmiklum vexti í innlánum atvinnufyrirtækja í bönkunum og hafa þau aukist langt umfram verðbólgu á árinu. Á síðustu tveimur mánuðum hafa innlánin tekið um 70 milljarða króna stökk, eða um heil tíu prósent, þar sem líklegt má telja að muni mikið um stórar greiðslur sem hafa borist eftir söluna á Mílu og Tempo. Innherji 30.11.2022 09:37
Heimilin bregðast við hærri vöxtum og færa sig yfir í verðtryggð íbúðalán Hækkandi vaxtastig til að reyna stemma stigu við mikilli verðbólgu hefur þýtt að heimilin eru núna í fyrsta sinn frá því í árslok 2017 að sækjast í meira mæli eftir verðtryggðum íbúðalánum en óverðtryggðum hjá bönkunum. Seðlabankastjóri hefur margsinnis varað við endurkomu verðtryggingarinnar á íbúðalánamarkaði, sem myndi meðal annars draga úr virkni peningastefnunnar, ef verðbólgan fer að festa sig í sessi. Innherji 29.11.2022 07:01
Þinglýstir kaupsamningar fjölbýliseigna ekki færri síðan í upphafi 2019 Þrátt fyrir að fasteignaverð hafi hækkað lítillega við síðustu birtingu Þjóðskrár um fasteignaverð í október, eru fyrir hendi skýr merki um töluvert hægari gang á fasteignamarkaði. Í október síðastliðnum var alls 516 kaupsamningum um fjölbýli þinglýst hjá sýslumanni. Leita þarf aftur til janúarmánaðar 2019 til að finna færri kaupsamninga fjölbýliseigna í einum mánuði. Innherji 28.11.2022 17:01
Venjulega fólkið Ég vil hér í þessum greinarstúf fjalla um hið venjulega fólk, hina venjulegu fjölskyldu sama hvernig hún er samansett. Um er að ræða hóp sem fær ekki alltaf mikla athygli, hver sem ástæðan er fyrir því, hvort sem það er vegna þess að sá hópur telst ekki vera í viðkvæmri stöðu eða til minnihlutahóps. Hann hefur ekki hátt og er í raun nokkuð ósýnilegur ef svo má segja. Skoðun 28.11.2022 08:01
Nýr veruleiki blasir við (enn og aftur) Ljóst er að fjármálaleg tilraunastarfsemi seðlabanka heimsins og skrautleg peningaprentun hefur endað með ósköpum og vakið upp verðbólgudrauginn all hressilega. Eilífðarvélin virkaði ekki og MMT er stefna sem gleymist vonandi sem fyrst. Enda sjást núna ávöxtunarkröfur á skuldabréfum sem hafa ekki verið í boði árum saman erlendis þó að ekki þurfi að fara mörg ár aftur í tímann hérlendis. Umræðan 28.11.2022 07:01