Úlfar Linnet

Svartasti bjórinn og fyrsti mjöðurinn
Nú stendur sala á þorrabjórum sem hæst.

Þorrabjór á bóndadegi
Íslenskasti flokkur árstíðarbjóra í ríkinu er án efa flokkur þorrabjóra. Sala á honum hefst á bóndadag og líkur mánuði seinna á konudag.

Fyrsti íslenski mjöðurinn: „Þetta er allt annar drykkur en bjór“
Það er bóndadagur og fyrsti mjöðurinn kom á íslenskan markað í dag. Hrund smakkaði mjöðinn og komst meðal annars að því að hann á í raun ekkert skilt við bjór.

Hvað má setja í bjór?
Nokkuð hefur verið fjallað um hvalbjór Steðja sem kemur eða kemur ekki á markað í næstu viku þegar sala á þorrabjór hefst.

Guinness á föstunni
Mikið bragð, fáar hitaeiningar. Léttari en Lite

Fyrsti nýi bjórinn 2014
Bjóráhugamenn munu ekki þurfa að bíða lengi eftir nýjungum á komandi ári, en í fyrstu viku janúarmánaðar er vona á All Day IPA frá Founders í áfengisverslanir.

0,0% en samt skrambi góður
Síðastliðið vor einkenndist af bið en konan mín var þá gengin nokkuð langt. Til að sýna samstöðu og ábyrgð lagði ég bjórinn á hilluna og snéri mér að léttari drykkjum.

Hrein glös fyrir jól
Einn af vandasamari þáttum jólaundirbúningsins eru þrif á bjórglösum.

Íslenskir í útlöndum
Þrátt fyrir að þrengingar á Íslenskum gjaldeyrismarkaði séu svo miklar að þjóðin sé orðin sérstök áhugaþjóð um útflutning getur hluti bjórútflutningsins í hæsta lagi náð að kalla fram ljúfsára gleði hjá bjóráhugamönnum.

Bjórglögg
Það er spurning hvort tíminn til að fá sér einn kaldan sé liðinn. Við sé tekinn tími þess að fá sér einn rjúkandi eða jafnvel sjóð-brennandi heitan þegar vel liggur á manni. Eitt er allavega víst að hin hefðbundna jólaglögg hefur fengið verðugan keppinaut.

Tími til að smakka bjór
Jólabjórsmökkun var hægðarleikur fyrir 10 árum þegar aðeins átta gerðir af jólabjór voru á markaðnum, sem voru flestar á svipuðum slóðum, með léttum karamellukeim, rambandi í rúmlega 5%.

Fullorðnir fara að hlakka til
Nú styttist óðum í stærsta bjórdag ársins, þegar sala á jólabjór hefst í Vínbúðunum þann 15. nóvember.

IKEA bjórinn – fyrir alla sem hafa aldur til
Þegar félagarnir hringja og maður er í miðri kertaferð í IKEA gerir það stöðuna oft bærilegri að segjast vera á barnum í Garðabæ.

Myrkvi: Mjúk áferð með löngu eftirbragði
Nafn bjórsins er ekki út í loftið, bjórinn er kolbikasvartur með þykka brúna froðu. Ilmurinn ber með sér þétta rist og skýra kaffitóna.

Úlfar Linnet með vikulega bjórpistla á Vísi
Með umfjöllun Úlfars bætist enn við fjölbreytta umfjöllun Vísis. Seinna í dag er von á fyrsta pistli Úlfars hér inni á Vísi en þá tekur hann fyrir þeldökkan kaffibjór.