Björn Bjarnason

Sigmundi Davíð svarað
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, fer mikinn hér á Vísi fimmtudaginn 4. júlí. Hann telur hæfa málstað sínum að uppnefna Sjálfstæðisflokkinn. Annað efni greinarinnar er í sama anda.

Bildt, Össur, fullveldið og Kýpur
Á árunum 2004 til 2007 sátum við Össur Skarphéðinsson saman í nefnd sem kannaði tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Meginniðurstaða nefndarinnar var að hagsmunum Íslands væri mjög vel borgið með samningum um evrópska efnahagssvæðið (EES), hann hefði staðist tímans tönn. Íslendingar hefðu hins vegar ekki nýtt aðild að EES sem skyldi. Þeir hefðu mun fleiri tækifæri til áhrifa á löggjöf ESB en nýtt hefðu verið.

Evran hefur fallið á prófinu
Evran hefur fallið á prófinu Á dögunum svaraði ég rangfærslu Össurar Skarphéðinssonar. Ég hef hvergi stutt upptöku evru. Í greininni sagði ég að evran hefði fallið á prófinu síðan 2007.

Össur fastur í ESB-horninu
Lendi stjórnmálamenn úti í horni grípa þeir stundum til "let them deny it“-aðferðarinnar. Þeir bera andstæðinga sína röngum sökum í von um að rangfærslan lifi en ekki hitt sem er satt og rétt.

Jafnréttið og prinsippfesta Jóhönnu
Ólafur Þ. Stephensen, ritstjóri Fréttablaðsins, ritar tímabæran leiðara í blað sitt 22. júní undir fyrirsögninni: Prinsippkonan. Ritstjórinn greinir frá niðurstöðu nýs héraðsdóms í jafnréttismáli gegn Jóhönnu Sigurðardóttur og segir réttilega að hún reyni "að snúa sig út úr klípunni með orðhengilshætti í fréttatilkynningu“.


Rangfærslur sendiráðsstarfsmanna
Í dag (8. desember) hafa íslenskir netmiðlar sagt frá bandarísku WikiLeaksskjali frá 2006 þar sem kemur fram það mat sendiráðsstarfmanna Bandaríkjanna hér á landi að mig hafi skort pólitískan vilja til að takast á við mögulegt mansal, ég hafi gert lítið úr vandanum og talað niður möguleikann á því að áhættuhópar, svo sem farandverkamenn og starfsfólk í kynlífsiðnaði, sé misnotað af vinnuveitendum sínum hér á landi.

Lögreglan er traustsins verð
Um nokkurt árabil hélt Jón Kaldal, ritstjóri Fréttablaðsins, uppi gagnrýni, of oft órökstuddri, á störf mín sem dómsmálaráðherra. Ég lét af því embætti 1. febrúar 2009, en Jón Kaldal heldur áfram að saka mig um vandræði í rekstri lögreglunnar, eins og lesa mátti í leiðara Fréttablaðsins 22. júlí.

Ómaklega að embættismönnum vegið
Hinn 1. janúar 2007 var embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum stofnað og var Jóhann Benediktsson, sem hafði verið sýslumaður á Keflavíkurflugvelli síðan 1999, skipaður í embættið. Fram til 1. janúar 2007 starfaði Jóhann Benediktsson undir forræði utanríkisráðuneytis og hann var starfsmaður í utanríkisþjónustunni, þegar utanríkisráðherra skipaði hann sem sýslumann.

Lögbundin stjórnsýsla og nektardans
Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi vinstri grænna, lætur að því liggja í grein í Fréttablaðinu 6. ágúst, að það hafi ráðist af geðþótta mínum og þvingunum gagnvart lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, að dóms- og kirkjumálaráðuneytið komst að þeirri rökstuddu niðurstöðu hinn 15. maí sl., að umsagnir embættis lögreglustjórans um rekstrarleyfi vegna veitingastaðarins Goldfingers í Kópavogi væru haldnar þeim efnisannmörkum að ógilda bæri ákvörðun sýslumannsins í Kópavogi frá október 2007 um rekstrarleyfið og sýslumanni bæri að leita eftir nýrri umsögn lögreglustjórans áður en hann tæki veitingu umrædds leyfis til meðferðar á ný.

Stöldrum við – hugsum um alvöru málsins
Pólitísk auglýsing Jóhannesar Jónssonar kaupmanns gegn mér birtist í öllum dagblöðum föstudaginn 11. maí í því skyni að hafa áhrif á kjósendur í Reykjavík suður í kosningunum daginn eftir. Meira en 80% kjósenda flokksins höfðu áskorun Jóhannesar að engu.

Sannleikur í stað uppspuna
Umræður síðustu daga og vikna um atburði kalda stríðsins og síðan grunsemdir um símahleranir innan utanríkisráðuneytisins hafa borið þess greinileg merki, að sannleiksástin er ekki alltaf höfð að leiðarljósi. Eitt dæmi um það er grein eftir Árna Pál Árnason. frambjóðanda í prófkjöri Samfylkingarinnar, hér í Fréttablaðinu hinn 17. október.

Röng spurning á röngum tíma?
Svar við gagnrýni - Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra Hæstiréttur á ekki um sárt að binda og hann þolir skaðlaust nú sem endranær, að menn segi rökstudda skoðun sína á dómum hans, jafnvel dómsmálaráðherra.