Öryggis- og varnarmál
1 2 3 4 5 6 7 … 12 ›
Æfa björgun á hafi, flutning slasaðra og pólsk flugskeytakerfi Norður-Víkingur, tvíhliða varnaræfingin Íslands og Bandaríkjanna, er nú í fullum gangi og mun standa yfir í og við Ísland fram yfir helgi. Fleiri bandalagsþjóðir taka einnig þátt í æfingunni en á næstu dögum verður meðal annars æfð björgun á hafi úti og flutningur á slösuðum með þyrlum til Keflavíkur. Innlent 28.8.2024 10:55
Ekki óskynsamlegt að koma sér upp neyðarbirgðum Jóhann Friðrik Friðrikson, þingmaður Framsóknar sem sæti á í þjóðaröryggisráði, segir ekki óskynsamlegt fyrir Íslendinga að koma sér upp neyðarbirgðum á heimilum sínum líkt og Danir. Innlent 28.8.2024 08:24
Á mannamáli: „Ég er bara einhver „nobody,“ við erum ekki með nein gögn“ „Ég heyri stundum þarna úti: Nei ég er bara einhver „nobody,“ við erum ekki með nein gögn,“ segir Anton Egilsson forstjóri Syndis. Atvinnulíf 28.8.2024 07:01
Hersveitir, herskip og flugvélar á sveimi við Ísland næstu daga Varnaræfingin Norður-Víkingur, tvíhliða varnaræfing Íslands og Bandaríkjanna, hófst í gær og stendur yfir til þriðja september. Æfingin fer fram hér á landi og á hafsvæðinu umhverfis Ísland en auk Íslands og Bandaríkjanna taka þátt í æfingunni bandalagsríkin Danmörk, Frakkland, Holland, Noregur, Pólland og Portúgal. Þá tekur hluti fastaflota Atlantshafsbandalagsins þátt í æfingunni. Innlent 27.8.2024 14:17
Danir hvattir til að eiga neyðarvistir, mat og lyf til þriggja daga Danir eru hvattir til að eiga matarbirgðir, vatn, lyf og aðrar vistir til minnst þriggja daga til að vera viðbúnir mögulegu neyðarástandi. Um fjórar og hálf milljón Dana sem hafa náð átján ára aldri fá bréf frá stjórnvöldum þess efnis á næstu vikum. Erlent 27.8.2024 12:58
Rauðu örvarnar koma síðdegis til Keflavíkur Listflugsveit breska flughersins, Rauðu örvarnar, er væntanleg til Keflavíkurflugvallar síðdegis. Utanríkisráðuneytið segir núna að vegna flugskilyrða frá Bretlandi sé mjög ólíklegt að um verði að ræða eiginlega flugsýningu við komu sveitarinnar til Íslands. Innlent 17.8.2024 12:52
Rauðu örvarnar leika listir sínar á Íslandi Rauðu örvarnar, listflugsveit breska flughersins, hefur viðdvöl á Íslandi um helgina á leið sinni vestur yfir Atlantshaf. Áformað er að sveitin leiki listir sínar yfir Keflavíkurflugvelli síðdegis á laugardag, þótt flugsýning hérlendis sé ekki á formlegri dagskrá sveitarinnar. Innlent 15.8.2024 23:25
Forstjóri lífvarðasveitarinnar segir af sér vegna banatilræðisins Kimberly Cheatle forstjóri bandarísku öryggisþjónustunnar Secret service segist ætla að láta af embætti í kjölfar banatilræðisins á hendur Donald Trump fyrr í mánuðinum. Hún viðurkennir mistök við öryggisgæslu á fundinum. Erlent 23.7.2024 15:14
Bjarni fór á fund konungs Bjarni Benediktsson forsætisráðherra fór á fund Karls III Bretakonungs að loknum fundi Evrópuleiðtoga í Blenheimhöll. Karl Bretakonungur bauð leiðtogum til móttöku í höllinni. Innlent 19.7.2024 14:56
Biden lýsti aðdáun á Íslandi og hrósar framlagi til NATO Framlag Íslands til Atlantshafsbandalagsins er til fyrirmyndar og umfram væntingar að sögn forseta Bandaríkjanna. Þetta sagði Joe Biden í samtali við Bjarna Benediktsson forsætisráðherra á leiðtogafundi NATO sem nú stendur yfir í Washington. Síðasti dagur 75 ára afmælis- og leiðtogafundar NATO er í dag en eftirvænting ríkir fyrir blaðamannafundi sem Biden hefur boðað síðar í kvöld. Innlent 11.7.2024 20:02
Gagnaleki á Messenger mögulega það versta sem gæti komið fyrir Gunnar Ingi Reykjalín forstöðumaður forstöðumaður skýja- og netreksturs Origo segir netárásum stöðugt fjölga. Fólk þurfi að vita meira til að geta brugðist við. Opin umræða sé mikilvæg og forvarnir áríðandi. En líka viðbragðsáætlanir við mögulegum árásum. Innlent 9.7.2024 09:02
NATO styrkir verkefni Bifrastar um tugi milljóna: Ætla að tryggja nettengingu í tilfelli árásar Atlantshafsbandalagið styrkir umfangsmikið verkefni Háskólans á Bifröst um tugi milljóna króna en verkefnið snýr að því að koma upp gervihnattakerfi sem gæti viðhaldið internettengingu við umheiminn í tilfelli þess að sæstrengir til landsins rofni vegna árásar eða náttúruhamfara. Verkefnið er unnið í samstarfi við virta háskóla og stofnanir á borð við Cornell-háskóla í Bandaríkjunum, ETH í Sviss og sænska varnarmálaháskólann. Innlent 8.7.2024 23:18
Afmælisfundur NATO í skugga átaka í gjörbreyttum heimi Utanríkisráðherra segir 75 ára afmælisleiðtogafund Atlantshafsbandalagsins sem hefst í Washington á morgun, haldinn í skugga meiriháttar breytinga og spennu í alþjóðakerfinu. Á fundinum muni bandalagsríkin formfesta stuðning sinn við Úkraínu til lengri tíma. Innlent 8.7.2024 19:20
Evrópa og myrkrið framundan Úkraínustríðið hefur nú staðið yfir í hér um bil tvö og hálft ár ef miðað er við innrás Rússneska hersins í Úkraínu 24. febrúar 2022, en í rúm 10 ár sé miðað er við yfirtöku Rússlands á Krímskaganum árið 2014. Skoðun 4.7.2024 10:00
Utanríkisstefna Trumps í lykilmálum og staða Íslands og annarra Norðurlanda Verði Trump næsti forseti Bandaríkjanna mun það valda minni breytingum á utanríkisstefnu þeirra en margir virðast ætla, að mati sérfræðings í alþjóðastjórnmálum og fyrrverandi sendiherra Íslands í Bandaríkjunum. Hernaðarleg þýðing Íslands og Grænlands fyrir Bandaríkin og NATO er óbreytt og óháð því hver verður næsti forseti. Norður-Noregur hefur hins vegar fengið mjög aukið vægi. Þá hafa nýju NATO ríkin, Finnland og Svíþjóð, þegar mikla þýðingu fyrir þjóðaröryggi Bandaríkjanna og fælingargetu þeirra og NATO á norðurslóðum gegn Rússlandi. Umræðan 3.7.2024 08:30
Staðfesta skipun Ruttes Framkvæmdastjórn Atlantshafsbandalagsins, NATO, hefur staðfest skipun Marks Rutte, forsætisráðherra Hollands, í stöðu framkvæmdastjóra NATO. Erlent 26.6.2024 10:31
Hefja könnun á nýjum flugvelli fyrir Færeyjar Borgarstjórn Þórshafnar hefur samþykkt að verja andvirði tíu milljóna íslenskra króna í að rannsaka nýtt flugvallarstæði á Glyvursnesi. Kanna á hvernig 2.700 til 3.000 metra langri flugbraut af nægilegri breidd til að uppfylla staðla alþjóðaflugvallar verður best komið fyrir á nesinu, sem er aðeins þrjá kílómetra sunnan við höfuðstað Færeyja. Erlent 23.6.2024 10:52
Konungsskip Dana í Reykjavík Við Grandabryggju er heilmikið sjónarspil um þessar mundir þar sem danska konungsskipið liggur þar. Áhöfnin gerði sér glaðan dag í Reykjavík og hleður nú batteríin áður en haldið er til Grænlands. Innlent 15.6.2024 22:28
Iðnaðarnjósnir raunveruleg ógn við íslensk fyrirtæki Svokallaðar iðnaðarnjósnir eru raunveruleg ógn við íslensk fyrirtæki að sögn framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins. Utanríkisráðherra lítur það alvarlegum augum að hópar netþrjóta beiti njósnum hér á landi. Innlent 9.6.2024 21:00
„Verið að ráðast á lýðræðið og boðar aldrei gott“ Maðurinn sem réðist á Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur í miðborg Kaupmannahafnar í gær hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 20. júní. Utanríkisráðherra Íslands segir uppákomuna alvarlega. Árás á lýðræðislega kjörna fulltrúa sé árás á lýðræðið. Innlent 8.6.2024 14:16
Stunda njósnir gegn íslenskum stjórnvöldum og fyrirtækjum Staðfest dæmi eru um hópar netþrjóta sem ganga erinda erlendra ríkja á borð við Rússland, Kína, Íran og Norður-Kóreu geri netárásir á Íslandi. Nokkur atvik hafa komið upp þar sem njósnað er um íslenska stjórnsýslu og fyrirtæki að sögn netöryggissérfræðings. Innlent 6.6.2024 20:31
Velmegun Íslands er háð alþjóðaöryggi Forsendur íslenskrar velmegunar eru í hættu, en ekki (bara) af þeim ástæðum sem fólki kemur fyrst í hug. Staðan er sú að öll sú velmegun sem við búum við í dag varð til í kjölfar seinni heimsstyrjaldar, en við höfum vanist því að hugsa um ýmsa hvalreka sem hafa ýtt Íslandi frá því að vera fátækt örríki á norðurhjara í að vera öflugt þekkingar- og lýðræðissamfélag með lífskjör í heimsklassa. Skoðun 4.6.2024 12:00
Tvær herþotur og 120 liðsmenn NATO komin til landsins Tvær F-15 herþotur og 120 liðsmenn Atlantshafsbandalagsins (NATO) komu til landsins í dag til að sinna loftrýmisgæslu NATO og hefðbundnum æfingum hérlendis eins og hefur tíðkast undanfarin ár. Innlent 3.6.2024 14:27
Þjóðaröryggi Fjarskiptastrengina þrjá í eigu Farice þarf að vernda, vegna þjóðaröryggis. Öll viljum við hafa hraða, örugga og góða tengingu við umheiminn. Forsætisráðherra er formaður þjóðaröryggisráðs. Skoðun 31.5.2024 14:01
Hulda eða Stoltenberg? Í umræðuþætti sex frambjóðenda í forsetakosningunum á Stöð 2 kom til umræðu hvort Ísland gæti tekið afstöðu sem hlutlaust ríki verandi í NATÓ. Þetta var rætt í kjölfar þess að vopnasendingar og kaup íslenska ríkisins á hergögnum til Úkraínu höfðu komið til tals í þættinum. Skoðun 21.5.2024 10:01
Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju „Mér finnst mjög mikilvægt að forseti sýni frumkvæði á sviði utanríkismála en auðvitað verður það að gerast innan ramma utanríkisstefnunnar og í samráði við stjórnvöld, sitjandi ríkisstjórn á hverjum tíma.“ Innlent 17.5.2024 14:05
Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Ummæli borgarstjóra Þórshafnar, Heðins Mortensen, um að hann vildi bjóða Atlantshafsbandalaginu að byggja nýjan alþjóðaflugvöll í Færeyjum, komu sem sprengja inn í færeysk stjórnmál. Bæði lögmaður Færeyja, Aksel V. Johannesen, og utanríkisráðherrann Høgni Hoydal, hafa brugðist hart við og sagt þessa hugmynd ekki koma til greina. Erlent 17.5.2024 11:03
Á Ísland framtíð í NATO? Vegna stríðsins í Úkraínu hefur staða NATO verið mikið í umræðu og nauðsyn þess að auka útgjöld til varnarmála í Evrópu. Ísland sem er eitt af stofnríkjum NATO frá 1949 hefur þá sérstöðu að vera herlaust land. Skoðun 17.5.2024 08:00
Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Borgarstjóri Þórshafnar vill bjóða NATO að byggja nýjan alþjóðaflugvöll í Færeyjum. Hann segir núverandi flugvöll of lítinn til að geta þjónað Færeyingum til framtíðar. Erlent 14.5.2024 22:22
Eru byssur meira fullorðins? Almenn sátt hefur ríkt um að Íslendingar, sem herlaus þjóð, taki þátt í varnarsamstarfi með öðrum NATÓ-ríkjum á borgaralegum forsendum, þ.e.a.s. með mannúðaraðstoð og aðstoð við uppbyggingu nauðsynlegra innviða á stríðhrjáðum svæðum. Skoðun 14.5.2024 14:00