Öryggis- og varnarmál

Fréttamynd

Varnir Evrópu

Öryggisráðstefnunni í Munich er lokið. Ræða Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna gerði lítið til að friða efasemdir Evrópubúa um stefnu Bandaríkjanna í heimsmálum hvort heldur það lítur að sameiginlegum vörnum, mannréttindum eða loftslagsmálum þó svo að hann sýndi meiri kurteisi en Vance, varaforseti gerði í fyrra á sama vettvangi.

Skoðun
Fréttamynd

Það sem Marco Ru­bio virðist ekki skilja

Samstaða meðal einræðisríkja er djúpstæðasta ógnin sem Bandaríkin og bandamenn þeirra, bæði í Evrópu og á Indó-Kyrrahafssvæðinu, standa frammi fyrir. Engu að síður var hvorki minnst einu orði á Rússland né Kína í ræðu Rubio.

Umræðan
Fréttamynd

Fríska upp á kjarn­orku­mann­virki í laumi

Djúpt inni í fjallagörðum Sesúan-dals í vesturhluta Kína, langt frá helstu byggðakjörnum, hafa nokkur gömul kjarnorkumannvirki á síðustu árum fengið endurnýjun lífdaga í nánast algjörri leynd. Loftmyndir af leynilegum kjarnorkustöðvum varpa ljósi á það hvernig stjórnvöld í Peking hafa reynt að stækka vopnabúr sitt.

Erlent
Fréttamynd

„Margt já­kvætt að gerast en allir á tánum“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sótti um helgina öryggisráðstefnuna í München en segja má með sanni að ráðamenn í Evrópu hafi haldið í sér andanum í aðdraganda hennar vegna heiftúðlegri skammarræðu J.D Vance varaforseta Bandaríkja við sama tilefni á síðasta ári.

Innlent
Fréttamynd

Veiktist er hann reyndi að af­sanna Havana-heilkennið

Norskur vísindamaður er sagður hafa gert tilraun á sér sjálfum með leynivopni í von um að afsanna þær kenningar að örbylgjur gætu valdið hinu svokallaða Havana-heilkenni. Það fór ekki á hinn besta veg og nú er hann sjálfur sagður hafa glímt við einkenni sem líkjast þessari dularfullu veiki.

Erlent
Fréttamynd

Mildari tónn en sama inni­haldið: Sagði Evrópu „hlekkjaða af sektar­kennd og skömm“

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir Bandaríkin og Evrópu tilheyra hvort öðru og eiga samleið. Í ræðu sem hann hélt í morgun á öryggisráðstefnunni í München gagnrýndi hann þó Evrópu vegna aðgerða gegn veðurfarsbreytingum, stefnu í orkumálum og þess hvernig haldið er á spöðunum varðandi málefni innflytjenda, svo eitthvað sé nefnt.

Erlent
Fréttamynd

„Þá er Ís­land kannski næsti biti“

Sagnfræðiprófessor segir Íslendinga mega vænta þess að stjórnvöld verji meira fé í vopnakaup. Komið sé upp kapphlaup milli Kína og Bandaríkjanna og að nýlega Grænlandsdeilan sé ein birtingamynd þess. 

Innlent
Fréttamynd

Fram­lag Ís­lands mun minna en annarra Norður­landa

Formaður utanríkismálanefndar segir framlag Íslands til Úkraínu mun minna á hvern íbúa en á hinum Norðurlöndunum en í gær tilkynnti utanríkisráðuneytið um milljarðs framlag til vopnakaupa til handa Úkraínumönnum. Nauðsynlegt sé að gefa Úkraínu færi á að verja sig til að stöðva hæga framrás Rússa.

Innlent
Fréttamynd

„Sprengju­flug­vélar er ógnin sem við sjáum hér“

Flugsveit sænska flughersins mun næstu vikurnar sinna loftrýmisgæslu í íslenskri lofthelgi en verkefnið er á vegum NATO og unnið í samvinnu við varnarmálasvið Landhelgisgæslunnar. Yfirliðsforingi í sænska flughernum segir rússneskar sprengjuflugvélar helstu ógnina og að móttökurnar hér á landi hafi verið afar góðar.

Innlent
Fréttamynd

Ís­lenska ríkið ræður lobbýista í Washington

Íslensk stjórnvöld hafa ráðið bandaríska fyrirtækið Brownstein Hyatt Farber Schreck til að sinna hagsmunagæslu fyrir Ísland í Washington. Samningur Íslands við fyrirtækið er til sex mánaða og fær Brownstein greidda 25 þúsund Bandaríkjadali á mánuði, eða sem nemur rúmum þremur milljónum íslenskra króna. Íslenska ríkið gerði samning við fyrirtækið í lok janúar, innan við mánuði eftir að sendiherraefni Bandaríkjanna gagnvart Íslandi grínaðist með að Ísland yrði 52. ríki Bandaríkjanna.

Innlent
Fréttamynd

Sam­staða um varnar­mál

Í vikunni samþykkti Alþingi einróma nýja stefnu Íslands í varnar- og öryggismálum. Það er fagnaðarefni, þótt tilefnið, hið ótrygga ástand í heimsmálunum, sé það ekki. Ljóst er að okkar nærumhverfi hefur tekið miklum breytingum á undanförnum árum, ekki síst í kjölfar allsherjarinnrásar Rússlands í Úkraínu. Þar er á ferðinni grimmúðlegt og gamaldags landvinningastríð þar sem stórveldi leitast við að innlima landsvæði og undiroka nágranna sína með vopnavaldi.

Skoðun
Fréttamynd

Þjóðin klofin gagn­vart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu

Stuðningur þjóðarinnar við veru Íslands í Atlantshafsbandalaginu hefur aukist frá því í fyrra en ríflega 78% segjast hlynnt aðild Íslands að bandalaginu. Nokkur hreyfing er einnig á afstöðu þjóðarinnar til Evrópusambandsaðildar, en þjóðin skiptist nokkurn vegin í tvennt í afstöðu sinni til málsins, þar sem 42% segjast hlynnt því að Ísland gangi í ESB og sama hlutfall er andvígt.

Innlent
Fréttamynd

Breið sam­staða á Al­þingi og Mið­flokkurinn aftur kominn um borð

Alþingi samþykkti í gær fyrstu formlegu varnar- og öryggisstefnu Íslands með stuðningi þingmanna allra flokka á Alþingi sem viðstaddir voru atkvæðagreiðsluna. Í umræðu um atkvæðagreiðsluna kepptust þingmenn við að koma upp í pontu og fagna þessum áfanga og hrósa hver öðrum fyrir samstarfið og þá vinnu sem lögð var í að ná breiðri sátt um málið.

Innlent
Fréttamynd

Sam­stillt þing­nefnd vill taka ESB út úr orða­lagi nýrrar stefnu

Ný stefna í varnar- og öryggismálum var afgreidd úr utanríkismálanefnd í síðustu viku þar sem fulltrúar allra flokka á Alþingi taka undir sameiginlegt nefndarálit um málið. Nefndin gerir fjórar breytingatillögur við þingsályktunina sem flestar fela í sér orðalagsbreytingar. Nefndin leggur hins vegar til að ekki verði minnst sérstaklega á Evrópusambandið í stefnunni og vill árétta að varnar- og öryggisstefnan, sem verður sú fyrsta sem Alþingi setur formlega á Íslandi, verði órjúfanlegur hluti af þjóðaröryggisstefnu sem þegar liggur fyrir. Alls bárust 24 umsagnir um málið.

Innlent
Fréttamynd

ESB er (enn) ekki varnar­banda­lag

Atgangur Bandaríkjaforseta á nýju ári hefur enn frekar hrist upp í geópólitísku landslagi. Árleg alþjóðaráðstefna um efnahagsmál í Davos var áhugaverð í fyrsta sinn í manna minnum, lituð af vaxandi spennu í samskiptum Bandaríkjanna og Evrópu vegna Grænlands og áhrifunum á viðskiptasambönd og varnarbandalög.

Skoðun
Fréttamynd

Traust fjar­skipti eru þjóðaröryggismál

Ísland er í fremstu röð í heiminum þegar kemur að fjarskiptum og stafrænni þjónustu. Öflug fjarskiptanet eru lífæðar samfélagsins og skapa grunn fyrir rafræn samskipti, opinbera þjónustu, viðskipti og daglegt lífi fólks um allt land.

Skoðun