Fíkn
Ekki gefið að fyrirtæki geti skikkað alla í vímuefnapróf
Forstjóri Persónuverndar segir ekki sjálfgefið að fyrirtæki geti skikkað allt sitt starfsfólk í skimun fyrir áfengi og fíkniefnum. Icelandair ætlar að taka slíka skimun upp fyrir allt sitt starfsfólk en forstjóri félagsins segir það verða gert í samningum við starfsfólk og stéttarfélög.
Gagnrýnir nikótínpúðaauglýsingu Dr. Football: „Svona vitleysingar eru að eitra huga komandi kynslóða“
Hjörvar Hafliðason, fjölmiðlamaður og hlaðvarpsstjórnandi, hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir auglýsingu á nikótínpúðum í hlaðvarpsþættinum Dr. Football í vikunni. Doktor í íþróttafræðum segir það ljóst að auglýsingin hafi verið sett fram sem grín til þess að draga úr alvarleika notkun ungs fólks á nikótínpúðum.
Smíðakennarinn sem var einu sinni stóner
Ég er fyrrum stóner. Byrjaði snemma að smóka. Líklega um 16 ára, það þótti allavega snemma í þá daga þó það þyki eflaust frekar normalt í dag.
„Ætlaði bara að verða róni“
Saga Þóris Kjartansson er ótrúleg en hann var alinn upp við alkóhólisma og endaði sjálfur í margra ára neyslu. Hann ræddi við Sindra Sindrason í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi.
Lögleiðing fíkniefna – Velferð, skattheimta og frelsi
Covid faraldurinn hefur kostað samfélagið okkar og ríkið miklar fjárhæðir nú þegar og útlit er fyrir mikil útgjöld af hálfu ríkisins á næstu árum vegna faraldursins. Því hefur undanfarið verið rætt um mikilvægi þess að snúa vörn í sókn og finna nýjar leiðir til þess að afla tekna hér á landi.
Fyrrverandi landsliðsmaður Svía lýsir munntóbaksfíkn: „Baggið er minn besti vinur“
Glenn Strömberg, fyrrverandi leikmaður sænska fótboltalandsliðsins, hefur rætt opinskátt um munntóbaksfíkn sína. Hann segir baggið sinn besta vin.
Fíkn ekki leyst með lagasetningu
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir spilafíkn ekki lagaða með lagasetningum heldur þurfi að hjálpa þeim sem glíma við slíkan vanda.
Langt leiddur spilafíkill settur í bann hjá Hjálparsímanum
Spilafíkill sem Rauði kross Íslands segir hafa ítrekað áreitt og haft í hótunum við starfsmenn og sjálfboðaliða Rauða krossins var settur í bann og getur hann ekki hringt lengur í 1717. Maðurinn vildi gagnrýna og ræða rekstur RKÍ á spilakössum.
Tvítugir að tapa milljónum í íþróttaveðmálum
Miklar áhyggjur eru af íþróttaveðmálum ungra karlmanna. Dæmi eru um að tvítugir menn tapi mörgum milljónum á netinu. Engin sérhæfð spilafíklameðferð er í boði á Íslandi.
Borgarstjóri táraðist yfir uppkomnum smáhýsum, ekki gámahúsnæði
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segist ekki tárast oft í vinnunni. Hann hafi þó komist við þegar framkvæmdadeild Reykjavíkurborgar sendi honum mynd í morgun af uppkomnum smáhýsum fyrir heimilislaust fólk í Gufunesi.
Spilafíkn er alvarlegur vandi meðal fólks með þroskahömlun
Allmargir úr hópi fólks með þroskahömlun eiga við spilafíkn að stríða og eyða oft síðustu aurunum af örorkulífeyrinum í spilakassa. Verkefnastjóri hjá Þroskahjálp segir skorta fræðslu og sérhæfða fíknimeðferð fyrir hópinn.
Ný úrræðaleitarvél á eittlif.is
Sérsniðin leitarvél er nú aðgengileg á vefnum eittlif.is en henni er m.a. ætlað að auka sýnileika úrræða fyrir ungmenni í vanda og auðvelda þeim og aðstandendum þeirra að finna upplýsingar og aðstoð.
Spilakassar verði svartur blettur á okkar sögu
Formaður Samtaka áhugafólks um spilafíkn segir að í fyrsta skipti frá árinu 1994 fái spilafíklar frelsi frá spilakössum vegna samkomubannsins.
(fag)Mennskan
Allt frá því að hópur frumkvöðla stofnaði SÁÁ hefur verið haft að leiðarljósi að veita þeim stuðnig sem orðið hafa fíkn að bráð.
„Bið til guðs að þeir opni ekki aftur“
Flestir spilafíklar eru með fíkn í spilakassa. Þeir hafa verið lokaðir í samkomubanni. Heitasta ósk þriggja viðmælenda Kompáss er að kassarnir verði ekki opnaðir aftur.
Purdue Pharma gengst við ábyrgð á ópíóíða faraldrinum
Lyfjarisinn Purdue Pharma hefur gengist við sekt í dómsmáli í New Jersey og hefur þannig í fyrsta sinn formlega tekið ábyrgð á hlut sínum í ópíóíða-faraldrinum sem gengið hefur yfir Bandaríkin síðustu ár.
Segir nikótínfíkn meðal unglinga áhyggjuefni og kallar eftir lagasetningu
Verkefnisstjóri tóbaksvarna hefur miklar áhyggjur af niktótínpúðanotkun meðal unglinga en fimmtán prósent nemenda í 10. bekk hafa notað slíka púða. Hann segir brýnt að setja lög um aldurstakmörk og innihaldslýsingar.
Vilja gefa fólki annað tækifæri í lífinu
Hópur fólks hyggur á stofnun nýs áfangaheimilis með það að markmiði að gefa fólki með fíknivanda annað tækifæri í lífinu.
„Siðblinda afætan“
Ég á vin. Ekki minn elsti, engin æskuvinur en vinur samt sem áður. Við kynntumst árið 2008 í Kaupmannahöfn innan vissra tólf spora samtaka. Hann var að díla við fíknisjúkdóm eins og ég sjálfur hafði gert nokkrum árum áður.
Herra Hnetusmjör prófar ópíóða
Í spjalli hjá Sölva Tryggvasyni deildi Herra Hnetusmjör (Árni Páll Árnason) sögu úr lífi sínu áður en hann varð edrú fyrir nokkrum árum. Þá hafði hann prófað ópíóðan oxycodine.
Rauði krossinn ætlar ekki að hætta rekstri spilakassa
Formaður SÁÁ telur að yfirvöld ættu að styrkja samtökin vegna tekjumissis sem verður vegna ákvörðunar félagsins um að hætta þátttöku í rekstri spilakassa.
SÁÁ hættir þátttöku í rekstri spilakassa
Stjórn SÁÁ hefur samþykkt að hætta þátttöku sinni í rekstri spilakassa og hyggst slíta á tengsl sín við Íslandsspil.
Krefjast afturköllunar leyfa: Segja velferð spilafíkla „fórnað á altari hagsmunagæslu“
Samtök áhugafólks um spilafíkn hafa óskað eftir útskýringum frá heilbrigðisráðherra varðandi hvers vegna lokun spilakassa var ekki tekin upp í reglugerð um hertar samkomutakmarkanir.
Alkóhólismi föður míns hefur litað allt mitt líf
Sigrún Ósk Kristjánsdóttir er orðin ein reynslumesta og vinsælasta fjölmiðlakona landsins. Á undanförnum árum hefur hún vakið gríðarlega mikla athygli fyrir þættina Leitin að upprunanum sem hafa verið á dagskrá á Stöð 2.
Áfengisneysla aldraða og úrræðaleysi
Við lifum á tímum þar sem heilbrigðisþjónustan okkar er undir miklu álagi. Við erum að kljást við heimsfaraldur.
Samþykktu einróma að stuðla að opnun neyslurýma
Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti einróma í dag að stuðla að opnun neyslurýma í Reykjavík. Í bókun meirihluta borgarstjórnar segir að rannsóknir hafi sýnt að skaðaminnkandi aðgerðir dragi úr neikvæðum og hættulegum afleiðingum notkunar ávana- og fíkniefna.
Staða vímuefnaneytenda það slæm að skelfilegt ástand í íbúðinni kom lítið á óvart
Hópur fólks í virkri neyslu hélt til í húsi sem kviknaði í fyrir helgi og voru tveir þeirra með kórónuveirusmit. Leita þurfti að hátt í tuttugu manns til að taka af þeim sýni.
Neyslan, kvíðinn og skilnaðurinn sem bjargaði hjónabandinu: „Þurftum að hlaupa á þessa veggi“
Þorkell Máni Pétursson hefur starfað sem útvarpsmaður á X-inu 977 í yfir tuttugu ár. Hann er einnig starfandi umboðsmaður og með listamenn á borð við Friðrik Dór Jónsson og Jón Jónsson á sínum snærum, en lengi vel var hann umboðsmaður rokksveitarinnar Mínus.
Þriðja legudeildin opnar, gjörgæslurýmum fjölgað og smit á fíknigeðdeild
Landspítalinn hyggst opna þriðju Covid- legudeildina og gjörgæslurýmum hefur verið fjölgað að sögn framkvæmdastjóra hjúkrunar. Mikið álag sé á starfsfólki og mikilvægt að geta sótt til bakvarðasveitarinnar. Smit kom upp á fíknigeðdeild í gær.
„Ekki margir sem deyja úr blæðandi magasári“
Skaðaminnkunarúrræðið Frú Ragnheiður ætti að vera flestum landsmönnum vel kunnugt, en þar er um að ræða sérútbúin bíl sem keyrir um höfuðborgarsvæðið og veitir heimilislausum einstaklingum skaðaminnkandi þjónustu í formi heilbrigðis- og nálaskiptaþjónustu.