Kvöldfréttir Stöðvar 2
1 2 3 4 5 6 … 63 ›
Bílaplan á bólakafi, könnun og frambjóðanda misboðið Hraun gleypti bílastæði Bláa lónsins í dag og rann yfir Njarðvíkuræð. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 sjáum við magnaðar myndir af gosinu sem hófst skyndilega í gær og verðum í beinni frá gosstöðvum. Innlent 21.11.2024 18:02
Vaxtalækkun, símabann og mandarínuskortur Peningastefnunefnd Seðlabankans lækkaði stýrivexti í í annað skipti í röð í morgun og býst við að verðbólga haldi áfram að hjaðna. Seðlabankastjóri segir óvissuþætti þó vera í kortunum og hagfræðingur varar við miklum launahækkunum. Innlent 20.11.2024 18:02
Sérhagsmunagæsla, lykildagar og bókaormar í beinni Samkeppniseftirlitið hefur fyrirskipað afurðastöðvum að stöðva fyrirhugaða samruna á grundvelli búvörulaga. Stjórnarandstöðuþingmenn segja lögin skýrt dæmi um sérhagsmunagæslu. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður fjallað um málið og rætt við forstjóra Samkeppniseftirlitsins í beinni. Innlent 19.11.2024 18:01
Ævarandi skömm og tilviljun sem bjargaði fjölskyldu Formaður Neytendasamtakanna segir það þingmönnum til ævarandi skammar að hafa samþykkt búvörulög, sem héraðsdómur dæmdi ólögmæt í morgun. Formaður atvinnuveganefndar segist ósammála niðurstöðunni og væntir þess að málið fari fyrir öll þrjú dómsstig. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 18.11.2024 18:03
Formaður Kennarasambandsins svarar gagnrýni Foreldrar sem eiga börn í skólum í verkfalli upplifa mikið vonleysi. Fjögurra barna móðir segist neyðast til að nota sumarfrísdagana sína og önnur þurfti að hætta í vinnunni því hún hefur ekki getað mætt í rúmar tvær vikur. Við ræðum við formann Kennarasambandsins í beinni útsendingu í myndveri. Innlent 17.11.2024 18:12
Rýnt í ákvörðun Þórðar Snæs og kjaradeilu kennara Prófessor í stjórnmálafræði segir ákvörðun Þórðar Snæs Júlíussonar, frambjóðanda Samfylkingarinnar, um að taka ekki sæti á þingi nái hann kjöri, velta mjög óþægilegri umræðu af Samfylkingunni. Fólk ofmeti þó áhrif einstakra mála og frambjóðenda á hegðun kjósenda. Innlent 16.11.2024 18:01
Rýnt í kannanir og tendrun jólatrés í Hafnarfirði Viðreisn heldur áfram að hækka í könnunum en Samfylking, Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur að lækka. Þetta má sjá í þremur nýjum skoðanakönnunum. Hafsteinn Birgir Einarsson stjórnmálafræðingur kemur í myndver og rýnir í nýjustu kannanir. Innlent 15.11.2024 18:02
Viðbrögð Sósíalista og VG við nýrri könnun og daggæsla hjá Arion Sósíalistar mælast inni á þingi og flokkurinn fengi fjóra þingmenn samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Vinstri græn næðu ekki manni inn á þing. Fulltrúar flokkanna bregðast við könnuninni í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 14.11.2024 18:02
Brot úr leyniupptökunum í fréttatímanum Ríkislögreglustjóri hyggst kanna mál sem snertir leynilegar upptökur erlends fyrirtækis á syni Jóns Gunnarssonar. Þar kemur fram að Jón hafi samþykkt að taka sæti á lista Sjálfstæðisflokksins gegn því að fá stöðu í matvælaráðuneytinu. Fjórar umsóknir um hvalveiðileyfi hafa borist í ráðuneytið. Brot úr upptökunum verður sýnt í kvöldfréttunum. Innlent 13.11.2024 18:05
Fjöldahjálparstöðvar opnaðar vegna skriðuhættu Skriðuhætta er víða á Vestfjörðum þar sem skriður hafa fallið síðan í gærkvöld. Stór skriða féll á Ísafirði um miðjan dag og hafa leysingar valdið því að vatn er ekki drykkjarhæft. Íbúum í Hnífsdal er bent á að setja vatn á brúsa. Innlent 12.11.2024 18:07
Leynilegar upptökur og hrafnar sem tæta í sig reikninga fólks Ísraelskt njósnafyrirtæki sendi leynilegar upptökur á íslenska fjölmiðla. Jón Gunnarsson svarar fyrir málið í myndveri. Innlent 11.11.2024 18:11
Sparkað í blóðmerar og eitt ár frá rýmingu Grindavíkur Nýtt myndefni frá erlendum dýraverndunarsamtökum sýnir þegar veist er að fylfullum hryssum við blóðtöku með höggum og spörkum. Í kvöldfréttum verður rætt við íslenskan dýraverndunarsinna, sem segir myndefnið sýna ljótan veruleikann. Innlent 10.11.2024 18:01
Úrbætur í kjölfar slyss á Breiðamerkurjökli og vikulöng þrekraun Engin markviss skráning slysa og óhappa í ferðaþjónustu er fyrir hendi á Íslandi. Starfshópur leggur til að úr því verði bætt. Sérfræðingur segir aukið eftirlit og skýrari öryggisferla vænlegri lausn en boð og bönn. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 9.11.2024 18:02
Lyfjatengd andlát, rauð Bandaríki og glimmerveisla í Eldborg Lyfjatengd andlát voru sex sinnum fleiri á hverja hundrað þúsund íbúa hér á landi í fyrra en að meðaltali í Evrópu. Formaður samtaka um skaðaminnkun segir brýnt að stjórnvöld bregðist við. Innlent 8.11.2024 18:01
Flokkar í útrýmingarhættu, smánarlaun og tónlistarveisla Fylgi flokkanna er á töluverðri hreyfingu nú þegar einungis rúmar þrjár vikur eru til kosninga samkvæmt nýrri könnun Maskínu og Viðreisn á miklu flugi. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rýnt í spennandi stöðu í pólitíkinni með Ólafi Þ. Harðarsyni, prófessor í stjórnmálafræði. Innlent 7.11.2024 18:01
Söguleg endurkoma, súr kosningavaka og baráttuhugur Donald Trump verður fertugasti og sjöundi forseti Bandaríkjanna eftir sögulegan og stærri sigur en búist var við. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 heyrum við frá sigurræðu Trumps, rýnum í áhrif úrslitanna með prófessor í stjórnmálafræði og verðum í beinni frá Bandaríkjunum. Hólmfríður Gísladóttir, fréttamaður okkar, var í kosningavöku Kamölu Harris í Washington í gærkvöldi og fer yfir andrúmsloftið þar - sem hefur eflaust verið í súrara lagi. Innlent 6.11.2024 18:01
Sögulegt spennustig týnd börn og bugaðir foreldrar Sögulega spennandi forsetakosningar fara nú fram í Bandaríkjunum og nokkrar klukkustundir eru í fyrstu tölur. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 sjáum við myndir frá lokaspretti frambjóðenda og rýnum í stöðuna með Silju Báru Ómarsdóttur, sérfræðingi í bandarískum stjórnmálum. Þá verður Hólmfríður Gísladóttir, fréttamaður, í beinni útsendingu frá barátturíkinu Pensylvaníu og ræðir við kjósendur. Innlent 5.11.2024 18:01
Hræðilegt slys og sögulegar kosningar Karlmaðurinn sem lést við Tungufljót nærri Geysi í Haukadal í gær var á björgunarsveitaræfingu ásamt félögum. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við formann Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem segir að um hræðilegt slys sé að ræða. Innlent 4.11.2024 18:03
Fjölskyldan hrædd og brotin vegna sýkingarinnar á Mánagarði Amma barns af leikskólanum Mánagarði segir hræðilegt að horfa upp á veikindi barnsins, sem liggur enn á spítala vegna E.coli-hópsýkingar á leikskólanum. Foreldrar barnsins séu hræddir og bugaðir. Barn sem smitaðist fyrir fimm árum er enn að glíma við eftirköst af E.coli-sýkingu. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30 í opinni dagskrá. Innlent 3.11.2024 18:13
Fjörutíu milljóna sekt Sjúkratrygginga og hrekkjavökupartí aldarinnar Sjúkratryggingum Íslands hefur verið gert að greiða fjörutíu og eina milljón króna í stjórnvaldssekt vegna ólögmætra samninga við myndgreiningarfyrirtæki, samkvæmt nýjum úrskurði. Forstjóri Intuens, segulómunarfyrirtækis sem kærði Sjúkratryggingar, segir stofnunina mismuna fyrirtækjum og hindra eðlilega samkeppni. Innlent 2.11.2024 18:19
Veröldin hrundi þegar sonurinn greindist Foreldrar tíu mánaða stráks sem fæddist með sjaldgjæfan taugahrörnunarsjúkdóm vonast til að lyfjagjöf í Svíþjóð muni gjörbreyta lífi hans. Hann verður fyrsta íslenska barnið til að fá lyfin. Veröldin hrundi þegar þeim var tilkynnt símleiðis að sonurinn væri með sjúkdóminn. Við tók löng bið eftir að hitta lækni. Innlent 1.11.2024 18:17
Læknar í verkfall, ellefu framboð og hrekkjavaka í Vesturbæ Félagar í Læknafélagi Ísalands hafa að boða til verkfalls náist ekki samkomulag í kjaradeilu við ríkið. Verkfallsaðgerðir hefjast að óbreyttu 18. nóvember og verða aðra hverja viku fram að áramótum. Í janúar verða verkföll í hverri viku. Formaður Læknafélagsins fer yfir stöðuna í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 31.10.2024 18:19
Þjónusturof hjá fötluðum börnum og hamfaraflóð á Spáni Fjögurra ára drengir með fötlun fá ekki lögbundna þjónustu meðan verkfall kennara stendur yfir. Mæður þeirra segja rof á þjónustu hafa áhrif á þroska barnanna. Rætt verður við þær í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 30.10.2024 18:02
Kennaraverkföll og göng til Eyja Verkföll kennara í níu skólum hófust í dag. Kennarasambandið hefur sakað Samband íslenskra sveitarfélaga og sveitarfélagið Skagafjörð um tilraun til verkfallsbrota. Við ræðum við foreldra, sem eru uggandi yfir stöðunni, í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 29.10.2024 18:01
Heimsókn Úkraínuforseta og kennaraverkföll Volodimír Selenskí forseti Úkraínu fundaði með Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra á Þingvöllum síðdegis. Þakklæti var honum efst í huga og sagðist hann þakklátur íslensku þjóðinni. Farið verður yfir daginn í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 28.10.2024 17:59
Undirbúningur fyrir Norðurlandaráðsþing og úrslitaleikur í Bestu deildinni Undirbúningur fyrir Norðurlandaráðsþing er í fullum gangi og verða til að mynda víðtækar götulokanir í miðborg Reykjavíkur frá morgundeginum og fram á miðvikudag. Úkraínuforseti verður meðal gesta sem kallar á aukinn viðbúnað. Innlent 27.10.2024 18:00
Einkaskilaboð formanns Samfylkingarinnar í dreifingu Forseti Alþingis gefur ekki kost á sér í komandi kosningum. Við förum yfir kurr vegna veru Dags á lista Samfylkingarinnar, en einkaskilaboð frá formanni flokksins eru í dreifingu á netinu þar sem hún segir Dag einungis í aukahlutverki á lista þrátt fyrir að verma annað sætið. Innlent 26.10.2024 18:23
Metfjöldi manndrápsmála, æsispennandi kosningar og tónlist í beinni Maður sem sætir gæsluvarðhaldi í tengslum við andlát móður sinnar hefur áður hlotið dóm fyrir ofbeldi gegn foreldrum sínum. Aldrei hafa fleiri manndrápsmál komið upp á einu ári. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við afbrotafræðing sem segir þróunina uggvænlega og tilefni til að styðja betur við fólk sem stendur höllum fæti í samfélaginu. Þá mætir formaður Afstöðu í sett en hann viðrað áhyggjur af stöðu gerandans og gagnrýnir úrræðaleysi. Innlent 25.10.2024 18:00
Starfsfólk í áfalli vegna hópsýkingar, gjald á nikótínvörur og hjónarúm á sviði Tvö börn af leikskólanum Mánagarði í Reykjavík eru á gjörgæslu vegna E. Coli-sýkingar og á þriðja tug hafa greinst. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við leikskólastjóra sem segir alla starfsmenn skólans í áfalli vegna málsins. Innlent 24.10.2024 18:01
Barn á gjörgæslu, offframboð miðaldra karla og hjartnæmir endurfundir Eitt barn er á gjörgæslu vegna E. coli-sýkingar sem rakin er til leikskólans Mánagarðs. Alls liggja sex börn inni á Barnaspítala Hringsins og talið er að tólf séu með sýkinguna. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður fjallað um málið og rætt við sérfræðilækni sem segir flest börnin mjög ung. Innlent 23.10.2024 18:01