Atli Rafn gegn Borgarleikhúsinu

Deila Atla Rafns og Persónuverndar komin á byrjunarreit
Landsréttur vísaði í dag frá máli Atla Rafns Sigurðarsonar gegn Persónuvernd. Málskostnaður fyrir báðum dómstigum fellur niður. Atli Rafn hafði áður haft betur í baráttu sinni við Persónuvernd fyrir héraðsdómi en Persónuvernd áfrýjaði dómnum.

Atli Rafn hafði betur gegn Leikfélagi Reykjavíkur í Hæstarétti
Hæstiréttur dæmdi í dag Leikfélag Reykjavíkur til að greiða leikaranum Atla Rafni Sigurðarsyni 1,5 milljónir í miskabætur og þrjár milljónir í málskostnað.

Hæstiréttur fellst á aðra af tveimur beiðnum Atla Rafns
Hæstiréttur hefur veitt Atla Rafn Sigurðarsyni áfrýjunarleyfi í máli hans gegn Leikfélagi Reykjavíkur. Telur rétturinn að málið geti verið fordæmisgefandi. Hæstiréttur hafnaði hins vegar áfrýjuarbeiðni Atla Rafns í málinu gegn Kristínu Eysteinsdóttur, fyrrverandi leikhússtjóra Borgarleikhússins.

Borgarleikhúsið og Kristín sýknuð af kröfu Atla Rafns í Landsrétti
Landsréttur sýknaði í dag Leikfélag Reykjavíkur og Kristínu Eysteinsdóttur fyrrverandi Borgarleikhússtjóra af kröfu Atla Rafns Sigurðssonar leikara. Héraðsdómur dæmdi stjórn leikfélagsins og Kristínu í fyrra til að greiða Atla Rafni 5,5 milljónir króna í bætur vegna ólögmætrar uppsagnar og ærumeiðingar.

Atli Rafn hafði betur gegn Persónuvernd
Atli Rafn Sigurðsson leikari hafði betur í máli sem hann höfðaði gegn Persónuvernd og þarf Persónuvernd að greiða 950 þúsund krónur í málskostnað.

Gátu ekki rofið nafnleynd þeirra sem kvörtuðu undan Atla Rafni eftir á
Ekki var hægt að láta einstaklinga sem kvörtuðu undan meintri kynferðislegri áreitni eða ofbeldi Atla Rafns Sigurðarsonar, leikara, hjá Borgarleikhúsinu sæta því að nafnleynd þeirra yrði rofin eftir á. Ríkislögmaður sagði að Leikfélag Reykjavíkur yrði að svara fyrir það sem það gerði með ásakanirnar í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.

Sakaði Persónuvernd um að hafa lagt blessun yfir „dæmalaus“ vinnubrögð leikhússins
Lögmaður Atla Rafns Sigurðarsonar, leikara, sakaði Persónuvernd um að leggja blessun sína yfir „dæmalaus“ vinnubrögð Borgarleikhússins með úrskurði þar sem Atla Rafni var synjað um upplýsingar um ásakanir um kynferðislega áreitni og ofbeldi sem leiddu til þess að honum var sagt upp störfum.

Brynhildur Guðjóns er nýr leikhússtjóri Borgarleikhússins
Tekur við af Kristínu Eysteinsdóttur sem óskað hefur eftir því að hætta.

Vikið úr metoo-hópi kvenna í sviðslistum og kvikmyndagerð
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir er ekki lengur meðlimur í #metoo-hópi kvenna í sviðslistum og kvikmyndagerð.

Leikarinn, lektorinn, #metoo og mannréttindi
Eva Hauksdóttir svarar meðal annars nýlegum pistli Láru V. Júlíusdóttur í grein þar sem hún fjallar um nýfallna dóma.

„Þér er ég greinilega mjög hugleikin, Steinunn Ólína“
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir gagnrýnir Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur harðlega fyrir skrif hennar síðustu daga og segir hana hafa vegið gróflega að starfsheiðri sínum.

Lögmaður Atla segir Láru halda á lofti „spunatilkynningum“ úr Borgarleikhúsinu
Lögmaður Atla Rafns Sigurðssonar lýsir furðu sinni á því að einn helsti sérfræðingur þjóðarinnar í vinnurétti taki ekki fagnandi þeirri niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur að atvinnurekandi geti ekki hagað sér með hvaða hætti sem er gagnvart starfsfólki sínu

Hugsi yfir háum bótum Atla Rafns og telur dóm yfir Kristínu fordæmalausan
Hæstaréttarlögmaður sem hefur sérhæft sig í lögum um vinnurétt er hugsi yfir nýlegum dómi í máli Atla Rafns Sigurðsonar leikara gegn Borgarleikhúsinu og Kristínu Eysteinsdóttur leikhússtjóra.

U-beygja í vinnurétti
Nýgenginn dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli nr. E-137/2019 A gegn Leikfélagi Reykjavíkur ses og B vekur upp spurningar.

Freyja frábiður sér samanburð Steinunnar Ólínu á málum þeirra Atla Rafns
Freyja Haraldsdóttir doktorsnemi og fyrrverandi varaþingmaður, sem vann mál sitt gegn Barnaverndarstofu í Hæstarétti í vikunni, segir það erfitt þegar máli sínu sé stillt upp við hlið máls Atla Rafns Sigurðarsonar leikara, líkt og leikkonan Steinunn Ólína gerði í pistli sem hún birti í gær.

Sjá svart og hvítt í málinu sem aðrir leikarar þora varla að hafa opinbera skoðun á
Leikkonurnar Þórdís Elva Þorvaldsdóttir og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir sjá svart og hvítt þegar kemur að nýföllum dómi í máli Atla Rafns Sigurðarsonar leikara gegn Borgarleikhúsinu og leikstjóranum Kristínu Eysteinsdóttur.

Hyggst ekki rjúfa trúnað við konurnar
Sigurður segir að umfjöllun um vinnuverndarlöggjöfina sem tryggja á öryggi og vellíðan starfsfólks hafi með öllu vantað í forsendur dóms Héraðsdóms Reykjavíkur sem úrskurðaði í máli Atla Rafns Sigurðssonar, leikara, gegn Leikfélagi Reykjavíkur og borgarleikhússtjóra.

Hærri bætur fyrir ólögmæta uppsögn en hrottalega nauðgun
Réttargæslumenn neyðarmóttöku Landspítalans fyrir þolendur kynferðisofbeldis eru hugsi yfir því að leikari fái hærri miskabætur fyrir ólögmæta uppsögn en kona sem nauðgað er hrottalega.

Birna segir mál Atla Rafns, Kristínar og Borgarleikhússins snúið
Málið hefur verið rætt á fundi norræna leikararáðsins í Kaupmannahöfn.

Hugleiðingar um miskabætur í dómsmálum
Maður höfðaði mál gegn opinberri stofnun þar sem hann krafðist bóta vegna ólögmætrar uppsagnar úr starfi.

Leikfélagið ætlar að áfrýja dómi vegna Atla Rafns
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Atla Rafni Sigurðssyni 5,5 milljónir króna í bætur vegna ólögmætrar uppsagnar og ærumeiðingar í dag.

Kristínu hefði mátt vera ljóst að orðspor og starfsheiður Atla Rafns væri að veði
Kristín Eysteinsdóttir Borgarleikhússtjóri og Leikfélag Reykjavíkur vógu að æru og persónu Atla Rafns Sigurðssonar leikara með því að segja honum upp störfum í desember 2017 og fresta frumsýningu á leikverki, sem hann átti að fara með stórt hlutverk í.

„Allar reglur voru brotnar sem hægt var að brjóta“
Lögmaður Atla Rafns Sigurðssonar leikara segir að niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Atla Rafns gegn Borgarleikhúsinu sé ánægjuleg.

Borgarleikhúsið dæmt til að greiða Atla Rafni 5,5 milljónir í bætur
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi nú eftir hádegi Kristínu Eysteinsdóttur Borgarleikhússtjóra og Leikfélag Reykjavíkur til að greiða Atla Rafni 5,5 milljónir í bætur og eina milljón króna í málskostnað.

Atli Rafn stefnir Persónuvernd
Atli Rafn Sigurðsson leikari hefur stefnt Persónuvernd og gerir þá kröfu að úrskurður stofnunarinnar frá 15. október í fyrra verði felldur úr gildi.

Ekki spurning hvort heldur hvenær erfið dómsmál fylgdu byltingunni
Rithöfundurinn Auður Jónsdóttir ræddi mál leikarans Atla Rafns Sigurðarsonar gegn Leikfélagi Reykjavíkur og Kristínu Eysteinsdóttur, leikhússstjóra fyrir ólögmæta uppsögn.

Leikstjóri segir fullt af vitnum og upptökur til af „lygasögunni“ um Atla Rafn
Ari Alexander Magnússon leikstjóri segir að ung leikkona hafi logið upp á fjörutíu manna tökulið, þeirra á meðal Atla Rafn Sigurðarson leikara, með frásögn sinni undir merkjum #metoo í nóvember 2017. Lýsingar hennar á því sem gerst hafi verði auðveldlega hraktar enda sé allt til á upptökum.

Deildu um hvort reglum hefði verið fylgt við uppsögn Atla Rafns
Lögmaður Borgarleikhússins spurði hvort því hafi verið skylt að halda Atla Rafni í vinnu eftir að ásakanir um kynferðislega áreitni komu fram. Lögmaður leikarans sagði að mannorði hans hefði verið kálað með uppsögn hans árið 2017.

Fjöldi, eðli og umfang ásakana gegn Atla Rafni leiddu til brottrekstursins
Fjórir þáverandi starfsmenn Borgarleikhússins greindu Kristínu Eysteinsdóttur, leikhússtjóra, frá ásökunum um kynferðislega áreitni og ofbeldi af hálfu Atla Rafns Sigurðarsonar og lýstu vanlíðan á vinnustaðnum.

Atli Rafn sagðist hafa verið haldið í algeru myrkri um ásakanir
Leikarinn Atli Rafn Sigurðarson sagði að honum hefði verið haldið í algeru myrkri um ásakanir um kynferðislega áreitni og ofbeldi.