Play
1 2 3 4 5 6 7 … 15 ›
Fljúga til Álaborgar næsta sumar Flugfélagið Play mun hefja áætlunarflug til Álaborgar í júní næsta sumar. Þetta er þriðja borgin sem Play hefur flugferðir til en fyrir er flogið til Kaupmannahafnar allan ársins hring og til Billundar yfir sumarið. Viðskipti innlent 21.8.2024 10:32
Play ætti að geta hækkað verð Play ætti að hafa meira svigrúm til að hækka verð vegna minna framboðs flugferða til Íslands og minni áherslu á flug yfir Atlantshafið á seinni hluta ársins, segir í hlutabréfagreiningu þar sem flugfélagið er verðmetið í takt við markaðsgengi. Sami hlutabréfagreinandi verðmetur Icelandair langt yfir markaðsverði. Innherji 19.8.2024 17:53
„Komin í hóp fullorðnu félaganna“ Viðskipti með hlutabréf í flugfélaginu Play á aðalmarkaði í Kauphöll hófust í morgun. Forstjóri félagsins segir skráningu þess á aðalmarkað vera þroskamerki fyrir félagið. Breytingar verða gerðar á leiðakerfi félagsins í haust sem fela meðal annars í sér fækkun ferða til Ameríku. Viðskipti innlent 8.8.2024 14:20
Play mætt á aðalmarkað Kauphallar Í dag hefjast viðskipti með hlutabréf í flugfélaginu Play á aðalmarkaði í Kauphöll, Nasdaq Iceland. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöll en Fly Play hf. er 25. félagið sem tekið er til viðskipta á mörkuðum Nastaq Nordic í ár að því er segir í tilkynningunni. Viðskipti innlent 8.8.2024 10:22
Play í Kauphöllina Kauphöllin hefur samþykkt umsókn flugfélagsins Play um töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Hlutabréf félagsins verða tekin til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland á fimmtudaginn en þau hafa hingað til verið á First north markaðnum. Viðskipti innlent 6.8.2024 14:59
Aðstoðarforstjóri Play hættur Arnar Már Magnússon, aðstoðarforstjóri Play og framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs, hefur hætt störfum hjá félaginu. Hann er einn af stofnendum Play og var fyrsti forstjóri flugfélagsins. Innan við þrír mánuðir eru síðan hann tók við stöðu aðstoðarforstjóra. Viðskipti innlent 30.7.2024 14:36
Telur „alls ekki“ að flugfargjöld Play á heimamarkaðinum séu ósjálfbær Flugfargjöld Play á íslenska heimamarkaðinum, þar sem flugfélagið er sterkast, eru „alls ekki“ ósjálfbær að sögn forstjórans sem fullyrðir að afkoman á seinni árshelmingi muni batna „verulega“ á milli ára en rekstrartapið á öðrum fjórðungi reyndist vera yfir fjórir milljónir dala. Hann telur að fækkun í komum ferðamanna til landsins sé ekki endilega mikil áhætta fyrir lausafjárstöðu Play en áætlanir gera ráð fyrir að hún verði „mun betri“ í lok árs miðað við sama tíma í fyrra. Innherji 26.7.2024 12:24
Play tapaði milljarði en staðan „mjög traust“ að mati forstjórans Flugfélagið Play tapaði 8,1 milljón Bandaríkjadala eða rúmlega 1,1 milljarði króna á öðrum ársfjórðungi. Tapið er töluvert meira en á sama ársfjórðungi árið 2023 þegar Play tapaði 4,6 milljónum Bandaríkjadala eða sem nemur rúmlega 600 milljónum króna Viðskipti innlent 25.7.2024 16:33
Bein útsending: Play kynnir uppgjör Einar Örn Ólafsson, forstjóri Play, mun kynna uppgjör fyrir annan ársfjórðung félagsins á fundi sem hefst klukkan 16:15. Viðskipti innlent 25.7.2024 15:32
Umsvifamikill verktaki byggir upp stöðu í Icelandair Eigandi eins umsvifamesta verktakafyrirtækis landsins, sem hagnaðist um marga milljarða króna á liðnu ári, er kominn í hóp stærri hluthafa Icelandair eftir að hafa byggt upp nærri eins prósenta eignarhlut í flugfélaginu. Hlutabréfaverð Icelandair, sem hefur fallið um meira en sextíu prósent á einu ári, er núna í sögulegri lægð en rekstrarafkoman hefur versnað skarpt samhliða minnkandi eftirspurn í flugferðum til Íslands og lækkandi fargjöldum. Innherji 24.7.2024 11:47
„Ljóst að staðan er mjög strembin“ Staða flugfélagsins Play er mjög strembin og þá er rekstrarafkoma Icelandair döpur um þessar mundir. Þetta sagði Hörður Ægisson, ritstjóri Innherja, í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld. Viðskipti innlent 23.7.2024 23:08
Gengi bréfa Play fellur um tuttugu prósent vegna versnandi afkomuhorfa Hlutabréfaverð Play hefur fallið um nærri sextíu prósent frá hlutafjáraukningu þess fyrr á árinu en fækkun ferðamanna og hörð samkeppni veldur því að flugfélagið fylgir í fótspor Icelandair og fellir afkomuspá sína úr gildi sem forstjórinn hafði nokkrum vikum áður ekki talið tilefni til. Áætlanir um tilfærslu Play yfir á Aðalmarkað Kauphallarinnar fyrir lok júnímánaðar hafa ekki gengið eftir. Innherji 23.7.2024 11:59
Horfurnar versna hjá Play sem kippir afkomuspá úr gildi Flugfélagið Play hefur fellt úr gildi afkomuspá sína fyrir yfirstandandi ár. Félagið fetar í fótspor Icelandair sem gerði slíkt hið sama í maí. Play birtir uppgjör fyrir annan ársfjórðung á fimmtudaginn. Neytendur 23.7.2024 10:25
Flugi Play seinkað vegna ógnandi tilburða flugdólgs Töf varð á brottför farþegaflugvélar Play frá Kaupmannahöfn til Keflavíkur um ellefuleytið í morgun vegna flugdólgs sem var með ógnandi tilburði í garð flugfreyja. Innlent 16.7.2024 11:55
Fleiri farþegar en minni sætanýting Íslenska flugfélagið Play flutti 173.109 farþega í júní 2024, sem er 7,5 prósent meira en í júní í fyrra þegar félagið flutti 160.979 farþega. Sætanýting dróst þó örlítið saman, hún var 86 prósent í júní 2024, en 87,2 prósent á sama tíma í fyrra. Forstjórinn kveðst ánægður að sjá vöxt í farþegatölunum, en hefði viljað sjá hærri sætanýtingu. Viðskipti innlent 8.7.2024 17:24
Fleiri farþegar og betri nýting Flugfélagið Play flutti 146.692 farþega í maí 2024, sem er 14 prósent aukning frá maí á síðasta ári þegar Play flutti 128.847 farþega. Sætanýting hjá félaginu í nýliðnum maí var 86,4 prósent, samanborið við 84,8 prósent í maí í fyrra. Viðskipti innlent 7.6.2024 12:01
Öfugþróun að minni verðmæti komi af hverjum ferðamanni Ferðaþjónustan er að stefna í öfuga átt miðað við það markmið að hver ferðamaður skili meiri verðmætum í stað stöðugrar fjölgunar ferðamanna. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir aukna markaðssetningu einu leiðina til að snúa þessari öfugþróun við. Viðskipti innlent 4.6.2024 12:22
Svarta sviðsmyndin blasir við ferðaþjónustunni í ár Horfur í ferðaþjónustu hafa snarversnað. Gistinóttum frá áramótum fækkaði um sex prósent og bókanir á hótelum fyrir sumarið eru tíu til fimmtán prósentum færri en á sama tíma í fyrra. Viðskipti innlent 3.6.2024 22:22
Play sér ekki tilefni til að breyta afkomuspánni þrátt fyrir aukna samkeppni Mikil samkeppni er frá alþjóðlegum flugfélögum í flugi yfir Atlantshafið í sumar með tilheyrandi þrýstingi til lækkunar á flugfargjöldum, að sögn forstjóra Play, en vegna ýmissa aðgerða sem hefur verið ráðist í til að mæta krefjandi rekstrarumhverfi telur félagið ekki tilefni til að fylgja í fótspor Icelandair og breyta afkomuspá sinni fyrir þetta ár. Hlutabréfaverð Play hefur fallið skarpt síðustu tvo viðskiptadaga og er tæplega fimmtíu prósentum lægra miðað við útboðsgengið í nýlega afstaðinni hlutafjáraukningu. Innherji 30.5.2024 11:05
Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Forstjóri Play vill árétta að flugfélagið sé ekki á förum frá Íslandi. Kjarnastarfsemin sé hér á landi og verði það áfram. Í tengslum við stækkunarfasa félagsins séu hins vegar uppi hugmyndir um að tvær til þrjár flugvélar verði staðsettar í öðru landi. Viðskipti innlent 16.5.2024 13:34
Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Forstjóri Play hefur velt upp möguleikanum á því að koma á fót heimavelli annars staðar en á Íslandi, til dæmis á Spáni. Þannig væri hægt að fljúga frá Spáni til Íslands með spænska áhöfn. Viðskipti innlent 15.5.2024 18:00
Farþegum fjölgaði og sætanýting um 85 prósent Flugfélagið Play flutti rúmlega 122 þúsund farþega í apríl 2024, sem er 19 prósent meira en í apríl á síðasta ári. Sætanýtingin í apríl 2024 var 85,1 prósent, sem er aukning frá apríl í fyrra þegar sætanýting var 80,8 prósent. Viðskipti innlent 7.5.2024 11:18
Flugfélögin grípa til ráðstafana vegna verkfallsaðgerða Íslensku flugfélögin ætla að grípa til ráðstafana vegna verkfallsaðgerða starfsmanna á Keflavíkurflugvelli sem að óbreyttu hefjast á fimmtudag og föstudag. Ótímabundið yfirvinnu- og þjálfunarbann hefst seinnipartinn á fimmtudag. Innlent 6.5.2024 18:52
Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Arnar Már Magnússon hefur verið gerður að aðstoðarforstjóra flugfélagsins Play. Arnar Már hefur verið framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs Play og mun áfram sinna þeirri stöðu meðfram nýju hlutverki. Viðskipti innlent 2.5.2024 16:50
Hlutabréfaverð flugfélaganna fellur og smærri fjárfestar færa sig í Alvotech Hlutabréfaverð íslensku flugfélaganna Icelandair og Play hefur fallið um næstum 50 til rúmlega 60 prósent á þremur mánuðum. Heildarvísitalan hefur á sama tíma lækkað um sjö prósent. Hlutabréfagreinandi segir að líklega hafi smærri fjárfestar og einstaklingar fært fjárfestingar sínar úr Icelandair í Alvotech. Það eru gerðar minni væntingar en áður til flugrekstrar samhliða minni eftirspurn eftir ferðum til Íslands. Innherji 30.4.2024 18:08
Fjármálastjóri Play segir upp Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, lætur af störfum að eigin ósk. Ólafur mun áfram sinna stöðu framkvæmdastjóra fjármálasviðs þar til eftirmaður hans tekur við. Viðskipti innlent 26.4.2024 16:14
Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Tekjur PLAY á fyrsta fjórðungi ársins voru 7,6 milljarðar króna. Það er aukning um 66 prósent, borið saman við sama fjórðung í fyrra, þegar tekjurnar voru 4,6 milljarðar króna. Rekstarniðurstaða fyrir fjármagnsliði og skatta var þó neikvæð um 2,9 milljarða á árshlutanum. Viðskipti innlent 24.4.2024 17:51
Fljúga til Wales í haust í tengslum við landsleikina Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á ferðum til borgarinnar Cardiff í Wales næsta haust. Þetta er gert vegna mikils áhuga stuðningsmanna á leikjum íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Wales í Þjóðadeildinni sem fara fram í október og nóvember. Viðskipti innlent 18.4.2024 13:33
Tveir stjórnarmenn og forstjóri lögðu til milljarð Tveir stjórnarmenn í Play og forstjóri félagsins lögðu félaginu til 986 milljónir króna í nýlokinni fjármögnunarlotu félagsins. Alls söfnuðust um 4,6 milljarðar króna og því lögðu þeir til 22 prósent aukins hlutafjár. Viðskipti innlent 15.4.2024 23:26
Fyrrverandi forstjóri Bláfugls stýrir nýju sviði hjá Play Flugfélagið PLAY hefur ráðið Sigurð Örn Ágústsson, fyrrverandi forstjóra Bláfugls, sem framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar. Um er að ræða nýtt svið innan flugfélagsins en Sigurður Örn mun hafa það hlutverk að leiða frekari þróun þvert á öll svið flugfélagsins. Viðskipti innlent 14.4.2024 21:34