Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024)
72 73 74 75 76 77 78 79 80 … 149 ›
Bein útsending: Setning Alþingis Alþingi verður sett í dag og hefst þingsetningarathöfnin klukkan 13:30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Hægt verður að fylgjast með útsendingunni í spilara að neðan. Innlent 13.9.2022 13:01
Ríkisstjórnin rifar seglin í fjárlagafrumvarpi vegna verðbólgu Forsætisráðherra segir fjárlagafrumvarpið taka mið af því að nú séu snúir tímar með verðbólguþróun sem verði að takast á við. Aukning framlaga til einstakra málaflokka sé því minni en áður. Alþingi verður sett með hefðbundnum hætti klukkan hálf tvö í dag. Innlent 13.9.2022 12:56
„Gamaldags skattahækkun“ Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, gagnrýnir áform stjórnvalda um að hækka vörugjöld á bifreiðum. Hann segir að reikna megi að verð á rafbílum hækki um 600.000 krónur til milljónar á bifreið á næsta ári. Innlent 12.9.2022 22:30
Boðar breytingar á löggjöf um sjávarútveg á næstunni Matvælaráðherra boðar breytingar á sjávarútvegslöggjöfinni og það muni koma fram í málaskrá Alþingis á næstu vikum. Þá sé verið að vinna að heildarstefnumörkun í fiskeldi sem sé því miður ekki til í stjórnkerfinu. Innlent 12.9.2022 19:30
Þau sömu og finni mest fyrir verðbólgunni séu látin taka skellinn í baráttunni gegn henni Ríkisstjórnin ákveður með nýju fjárlagafrumvarpi að láta þau sömu og finna mest fyrir verðbólgunni taka skellinn í baráttunni gegn verðbólgunni að mati Jóhanns Páls Jóhannssonar, þingmanni Samfylkingarinnar. Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, telur að ríkisstjórnin skjóti sig í báðar fætur með frumvarpinu. Innlent 12.9.2022 19:26
Gagnrýna hækkun hæstu áfengisskatta í Evrópu „Ríkisstjórnin hjálpar ekki til í baráttunni við verðbólguna þegar hún bætir í gjöld sem hækka almennt verðlag,“ segir framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda um hækkun áfengisgjalda í nýjum fjárlögum. Viðskipti innlent 12.9.2022 18:04
Óhófsfólk á brennivín látið stoppa í götin Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins, segist greina dauðastríð ríkisstjórnarinnar í nýju fjárlagafrumvarpi. Innlent 12.9.2022 14:57
Staðfesta stjórnunar-og verndaráætlun fyrir „þjóðargersemi“ Í nýstaðfestri stjórnunar- og verndaráætlun Geysissvæðisins eru leiðir kynntar til að tryggja að markmið friðlýsingarinnar frá 2020 nái fram að ganga. Áhersla erlögð á verndun, ferðamennsku og vísindarannsóknir. Umhverfisráðherra segir áætlunina mikilvægan áfanga. Geysissvæðið hafi sérstaka þýðingu fyrir alla landsmenn og reyndar gjörvalla heimsbyggðina. Innlent 12.9.2022 13:08
Kristrún segir ekkert sótt í feita sjóði fyrir heimilin Þrátt fyrir neyðaróp fær heilbrigðiskerfið enga sérsaka athygli í fjárlögum að mati þingmanns Samfylkingar. Hún kallar eftir breytingum á fjármagnstekjuskatti sem gætu fjármagnað aðgerðir fyrir heimilin í mikilli verðbólgu. Innlent 12.9.2022 11:57
Útgjaldaaukning mikilvæg til að viðhalda góðum samfélagssáttmála Útgjaldaaukning til velferðarmála er mikilvæg til að viðhalda góðum samfélagssáttmála að sögn fjármálaráðherra sem kynnti fjárlög ársins 2023 í dag. Ráðherra kom það að sögn á óvart hve góðar og langt umfram spár efnahagshorfurnar eru á þessari stundu. Innlent 12.9.2022 11:09
Ráðherrar kasta á milli sín heitri (franskri) kartöflu Félag atvinnurekenda sendi Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra og Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra erindi 24. ágúst síðastliðinn og hvatti þau til að beita sér fyrir niðurfellingu 76% tolls, sem lagður er á innfluttar franskar kartöflur. Skoðun 12.9.2022 10:31
Hækka gjald á áfengi og tóbak Gert er ráð fyrir að hækka gjald á áfengi og á tóbak sem selt er í tollfrjálsum verslunum, samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sem kynnt var í morgun. Gert er ráð fyrir að hækkunin skili sér í tekjum fyrir ríkissjóð upp á 700 milljónir króna. Neytendur 12.9.2022 10:15
Verðbólgan ein sú lægsta í Evrópu Verðbólgan á Íslandi er ein sú lægsta meðal Evrópuríkja samkvæmt fjárlagafrumvarpi sem kynnt var í dag. Þó er mikilvægt að standa vörð um hana. Viðskipti innlent 12.9.2022 09:58
Gert ráð fyrir 89 milljarða króna halla Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar gerir ráð fyrir 89 milljarða króna hallarekstri ríkissjóðs á næsta ári. Heildarútgjöld ríkissjóðs eru áætluð um 1.296,5 milljarðar á árinu 2023, sem er hækkun um 78,5 milljarða frá fjárlögum fyrra árs. Innlent 12.9.2022 09:21
Bjarni kynnir fjárlagafrumvarp fyrir árið 2023 Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnir frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2023 á blaðamannafundi í ráðuneyti sínu við Arnarhvol. Innlent 12.9.2022 08:01
True Detective verður stærsta kvikmyndaverkefni Íslandssögunnar Gert er ráð fyrir að tökur á fjórðu þáttaröð bandarísku sjónvarpsþáttanna True Detective muni taka níu mánuði og framleiðslukostnaður verði um níu milljarðar króna. Viðskipti innlent 11.9.2022 18:41
Á sandi byggði heimskur maður hús Það sem einkennir gjarnan okkar ágæta samfélag er að málin eru oft leyst með skammtalækningum í stað þess að hugsa til framtíðar. Núna, sem fyrr koma foreldrar og mótmæla stöðunni í leikskólamálum hjá borginni vegna þess að börn þeirra komast ekki inn í skólana. Skoðun 11.9.2022 18:02
Bjarni ekki stressaður fyrir skýrslunni um Íslandsbanka Fjármálaráðherra kveðst enn þeirrar skoðunar að íslenska ríkið eigi að selja þann 100 milljarða króna hlut sem það á eftir í Íslandsbanka. Hann segir að færð hafi verið ágæt rök fyrir því að rannsókn Ríkisendurskoðunar hafi tekið sinn tíma og vonast eftir uppbyggilegum ábendingum úr væntanlegri skýrslu. Innlent 11.9.2022 16:01
„Alls ekki verið nóg gert“ Forsætisráðherra segir alls ekki hafa verið gert nóg í að styðja við íslenskukennslu fyrir útlendinga hér á landi. Stjórnvöld og atvinnulíf geti gert betur og fólk eigi að geta sótt íslenskunám á vinnutíma án hás kostnaðar. Prófessor emeritus vill að íslenskukennsla verði sett í kjarasamninga. Innlent 10.9.2022 21:28
Boðar til aðhaldsaðgerða í fjárlagafrumvarpi næsta árs Fjármálaráðherra hefur ákveðið að draga úr stuðningi við stjórnmálaflokka um fimm prósent á næsta ári og grípa til annarra viðlíka aðhaldsaðgerða til að vinna bug á verðbólgunni. Ráðherrann mun kynna fjárlagafrumvarp næsta árs á mánudaginn. Innlent 10.9.2022 13:55
Horfa þurfi á tækifærin og möguleikana sem felist í því að taka á móti erlendu vinnuafli Til skoðunar er að einfalda fólki utan evrópska efnahagssvæðisins að koma hingað að vinna að sögn félagsmálaráðherra. Vonandi sé hægt að stíga mikilvæg skref í þá áttina á næstu misserum en of snemmt sé að segja til um mögulegt frumvarp. Mikilvægt sé að innflytjendur geti aðlagast íslensku samfélagi með farsælum hætti og vinna þurfi gegn því að hér verði tvær þjóðir. Innlent 9.9.2022 15:00
Eðlilegra að hafa embættið þar sem mannfjöldinn er mestur Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu segir það koma á óvart að ákveðið hafi verið að sameinað embætti sýslumanns Íslands verði á Húsvík. Eðlilegra sé að hafa embættið þar sem mesti mannfjöldinn er. Innlent 9.9.2022 13:07
Sýslumaður Íslands verði staðsettur á Húsavík Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur ákveðið að sýslumaður Íslands verði staðsettur á Húsavík, þegar öll sýslumannasembætti landsins hafa verið sameinuð undir eina stjórn. Innlent 9.9.2022 07:10
Katrín minnist Elísabetar: „Ein kona sem bjó yfir allri þessari sögu“ Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að andlát Elísabetar II Bretlandsdrottningar marki endalok merkilegs tímabils í sögðu Vesturlanda. Hún minnist Elísabetar, sem hún hitti árið 2019, af mikilli hlýju og segist skilja hvers vegna drottningin var jafn dáð af þjóð sinni og raun ber vitni. Innlent 8.9.2022 19:53
Tollur á franskar hafi kostað neytendur 800 milljónir frá upphafi 2020 Íslenskir neytendur hafa greitt rúmlega 800 milljónir króna í tolla af frönskum kartöflum frá upphafi ársins 2020, samkvæmt útreikningum Félags atvinnurekenda. Viðskipti innlent 7.9.2022 23:05
Næstum annar hver bátur henti fiski Næstum annar hver smábátur sem Fiskistofa hefur haft eftirlit með á árinu hefur orðið uppvís að brottkasti. Nokkrum málum verður vísað til lögreglu og fleiri gætu verið sviptir veiðileyfum en áður. Innlent 7.9.2022 21:01
Saka Lilju um metnaðarleysi við ráðningu eftirmanns Hörpu Samband íslenskra myndlistarmanna og Listfræðafélag Íslands gera athugasemdir við að meiri áhersla sé gerð á leiðtogahæfni en myndlistarþekkingu í auglýsingu um stöðu safnstjóra Listasafns Íslands. Þeir hvetja Lilju Alfreðsdóttur menningarmálaráðherra til að endurskoða auglýsinguna sem sé heldur ekki gert með nægjanlega góðum fyrirvara. Innlent 7.9.2022 14:28
Fjórtán sóttu um embætti hagstofustjóra Alls bárust fjórtán umsóknir um embætti hagstofustjóra en umsóknarfrestur rann út 1. september síðastliðinn. Innlent 7.9.2022 12:31
Einkavæðingu Vífilsstaða skotið á frest Föstudaginn 2. september var starfsfólk Vífilsstaða enn boðað á fund um rekstur og framtíð þeirra, eða Öldrunardeildar H í Landspítala, eins og Vífilsstaðir heita á vefsíðu sjúkrahússins. Á fundinum var mönnum tjáð að ekkert yrði úr áformum um að bjóða út þá starfsemi sem þar færi fram um „fyrirsjáanlega framtíð“. Skoðun 7.9.2022 11:00
Segir umdeilda tillögu Ásmundar aðför að leikskólastjórnendum Leikskólastjóri segir boðaða reglugerðarbreytingu menntamálaráðherra um fjölda barna á leikskólum aðför að leikskólastjórnendum. Hún óttast að sveitarfélögin muni með henni knýja fram hámarksnýtingu á rekstrarleyfi skólanna, þvert á réttindi barnanna. Innlent 7.9.2022 09:45