Besta deild karla
1 2 3 4 5 6 … 334 ›
Hefur Valur efni á að spila Samúel í kvöld? Stórleikur kvöldsins í Bestu-deild karla er viðureign Stjörnunnar og Vals á Samsung-vellinum í Garðabæ. Liðin hafa bæði unnið tvo leiki og tapað einum og eru með sex stig í deildinni. Jökull Ingason Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, segist vera spenntur fyrir kvöldinu og vonar að Samúel Kári Friðjónsson spili leikinn. Samúel var keyptur frá Stjörnunni til Vals á dögunum. En hans þátttaka í leiknum gæti kostað Val. Íslenski boltinn 27.4.2026 12:45
Mikilvægt að endurræsa myndlykilinn Breytingar hafa orðið á dagskrárniðurröðun á leikjum í Bestu deild karla í fótbolta á rásum Sýnar Sport í kvöld. Mikilvægt er fyrir þá sem eru með íslenska pakkann hjá Sýn að endurræsa myndlykla til að fá aðgang að leikjum KR við FH og Fram við ÍBV. Íslenski boltinn 27.4.2026 12:02
Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Knattspyrnumaðurinn Guðmundur Þórarinsson, betur þekktur sem Gummi Tóta, og rekstrarverkfræðingurinn Guðbjörg Ósk Einarsdóttir hafa fest kaup á 144,3 fermetra raðhúsi í Faldarhvarfi í Kópavoginum fyrir 144,9 milljónir króna. Lífið 27.4.2026 11:11
Sjáðu mörkin fyrir norðan og svakalegt fagn Davíðs Keflavík vann fyrsta leik sinn í Bestu deild karla þessa leiktíðina er liðið lagði KA á Akureyri 2-1 í gær. Íslenski boltinn 27.4.2026 09:33
„Eins og sprengjum væri varpað á völlinn því það brjáluðust allir“ Fræg vítavarsla Ingvars Jónssonar, sem hafði stór áhrif á baráttuna um Íslandsmeistaratitilinn í fótbolta karla 2021, er til umfjöllunar í tíunda þætti Augnablikanna. Ingvar viðurkennir að það hefði verið hægt að reka hann út af áður en vítaspyrnan var tekin. Íslenski boltinn 27.4.2026 09:03
Umfjöllun og viðtöl: KA 1-2 Keflavík | Fyrsti sigur Keflavíkur Stefan Ljubicic tryggði Keflavík sinn fyrsta sigur í Bestu deildinni á tímabilinu þegar að liðið lagði KA að velli á Akureyri í kvöld. Leiknum lauk 1-2. Íslenski boltinn 26.4.2026 17:16
Hallgrímur Jónasson: „Staðan er bara alvarleg“ „Ég er virkilega vonsvikinn með lélega frammistöðu, Keflavík átti bara skilið að vinna þennan leik. Þetta er bara langt frá því sem við viljum standa fyrir í KA, ég er bara virkilega ósáttur.“ sagði Hallgrímur Jónasson þjálfari KA eftir 1-2 tap á móti Keflavík á heimavelli í dag. Íslenski boltinn 26.4.2026 20:45
„Er ekki að sjá þennan orkumikla bolta sem manni var lofað“ FH er aðeins með eitt stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar í Bestu deild karla. Albert Brynjar Ingason áttar sig ekki á hvaða vegferð FH-ingar eru. Íslenski boltinn 25.4.2026 11:17
„Það er ekkert annað en metnaðarleysi“ Albert Brynjar Ingason segir Óla Val Ómarsson skulda Breiðabliki betri frammistöðu í Bestu deild karla. Hann fer hörðum orðum um sóknarleik Blikanna. Íslenski boltinn 24.4.2026 23:15
Flest mörk í 67 ár Segja má að KR hafi haldið uppi fjörinu í upphafi móts í Bestu deild karla í fótbolta. Liðið hefur skorað 14 mörk í fyrstu þremur umferðunum en lið hefur ekki skorað svo mörg í byrjun móts frá árinu 1959. Íslenski boltinn 24.4.2026 20:01
Unglingalandsliðsmaður frá Bodö/Glimt til ÍBV ÍBV hefur bætt við sig leikmanni fyrir komandi átök í Bestu deild karla í fótbolta. Hinn tvítugi Sturla Sagatun Kristjánsson kemur til liðsins frá Bodö/Glimt. Íslenski boltinn 24.4.2026 17:45
„Ef hann er ekki með þá fer allt til fjandans“ „Ef að þeir spila svona í sumar þá fara þeir beint niður,“ sagði Albert Brynjar Ingason ómyrkur í máli þegar hann ræddi um Eyjamenn, í Stúkunni á Sýn Sport Ísland, eftir 6-2 tap ÍBV gegn KR í Bestu deild karla. Hann segir einn mann ómissandi hjá ÍBV. Íslenski boltinn 24.4.2026 14:46
Hávær öskur þjálfaranna heyrðust vel: „Þú sérð það sjálfur!“ Þjálfarar í Bestu deildinni gætu þurft að passa sig betur en ella á hvað þeir öskra á nýjum heimavelli Þórs, eins og heyra mátti í Stúkunni á Sýn Sport Ísland í gærkvöld. Íslenski boltinn 24.4.2026 09:32
Sló met Eiðs Smára Valsmenn höfðu góða ástæðu til að gleðjast í gærkvöld þegar þeir unnu frábæran 3-0 sigur gegn FH í 3. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Um leið var slegið met hjá félaginu. Íslenski boltinn 24.4.2026 08:31
Öll mörkin í Bestu: Hetjustund Óskars, Valsarar í stuði og tvö draumamörk KR-ingar eru með fullt hús stiga og búnir að skora 14 mörk eftir fyrstu þrjár umferðir Bestu deildar karla í fótbolta. Mörkin úr 3. umferðinni má sjá á Vísi. Íslenski boltinn 24.4.2026 07:54
„Eigum að ganga gjörsamlega frá þeim“ Valur rassskellti FH með þremur mörkum í fyrri hálfleik í þriðju umferð Bestu deild karla í kvöld. Tryggvi Hrafn Haraldsson var með tvær stoðsendingar en var samt sem áður svekktur með framlag sitt í leiknum. Íslenski boltinn 23.4.2026 22:26
„Fólk má hafa sínar skoðanir“ Víkingur vann 3-2 sigur gegn Stjörnunni á heimavelli í kvöld. Elías Már Ómarsson, leikmaður Víkings, skoraði tvö mörk var alsæll eftir leik. Íslenski boltinn 23.4.2026 22:32
„Ágætis próf fyrir okkur að fá svona rassskellingu“ FH tapaði 3-0 gegn Val í þriðju umferð Bestu deildar karla í kvöld. Liðið fékk öll þrjú mörkin á sig í fyrri hálfleik eftir afar dapra frammistöðu. Íslenski boltinn 23.4.2026 22:13
„Geðveikt að fá fulla Þórsstúku á nýjum velli“ Aron Birkir Stefánsson, markmaður og jafnframt fyrirliði Þórs, átti frábæran leik á milli stanganna þegar Þór sigraði Fram á glænýjum VÍS-velli fyrir norðan í dag í þriðju umferð Bestu deildar karla. Íslenski boltinn 23.4.2026 20:19
Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 3-2 | Lentu tvisvar undir en sneru leiknum sér í vil Eftir að hafa lent tvisvar undir tókst Víkingi að vinna Stjörnuna 3-2 í þriðju umferð Bestu deildar karla. Íslenski boltinn 23.4.2026 18:32
Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Valsmenn gengu frá FH-ingum í fyrri Valur tyllti sér í þriðja sæti Bestu deildar karla með því að vinna öruggan sigur á FH, 3:0, í þriðju umferð deildarinnar á N1 vellinum á Hlíðarenda í kvöld. Öll þrjú mörkin komu í fyrri hálfleik og er Valur nú með sex stig. FH er í 11. og næstneðsta sæti með aðeins eitt stig. Íslenski boltinn 23.4.2026 18:32
Þór Ak. - Fram 1-0 | Aron Birkir hélt markinu hreinu í vígsluleiknum Þór Akureyri vann 1-0 sigur gegn Fram í 3. umferð Bestu deildar karla. Sebastian Haugland skoraði eina mark leiksins í upphafi seinni hálfleiks. Íslenski boltinn 23.4.2026 16:16
Aron pirraður: „Algjör óþarfi“ Aron Sigurðarson var besti maður vallarins í frábærri frammistöðu KR sem vann 6-2 stórsigur á ÍBV á Hásteinsvelli í Bestu deild karla í fótbolta í dag. Þrátt fyrir það var pirringur ofar gleði eftir leik. Íslenski boltinn 23.4.2026 16:06
„Tölum saman eftir sex mánuði“ Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var að vonum ánægður með sína menn eftir yfirgnæfandi 6-2 sigur á ÍBV í Bestu deild karla í fótbolta í Vestamannaeyjum í dag. KR-liðið sýni þroskamerki eftir erfitt síðasta ár. Íslenski boltinn 23.4.2026 15:59
„Við litum út eins og þriðji flokkur“ „Niðurlæging er bara akkúrat orðið,“ segir Sigurður Arnar Magnússon sem bara fyrirliðabandið hjá ÍBV í 6-2 tapi hans manna fyrir KR í þriðju umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Hásteinsvelli í dag. Íslenski boltinn 23.4.2026 15:37
ÍBV - KR 2-6 | Hrafnar fljúga KR heldur toppsæti Bestu deildar karla eftir afgerandi 6-2 sigur á ÍBV í Vestmannaeyjum í þriðju umferð deildarinnar í dag. KR lék sér að heimamönnum og hefði hæglega getað unnið stærra. Íslenski boltinn 23.4.2026 12:17
Mark ársins í Bestu deildinni komið? Hrafn Tómasson heldur áfram að slá í gegn í Bestu deildinni í fótbolta því í dag skoraði KR-ingurinn stórkostlegt mark gegn ÍBV í Vestmannaeyjum. Íslenski boltinn 23.4.2026 14:10
ÍA - KA 1-1 | Færanýting fjandans Það er með hreinum ólíkindum að KA fari heim með stig í farteskinu eftir 1-1 jafntefli við ÍA í Akraneshöllinni í þriðju umferð Bestu deildar karla. Skagamenn nýttu færi sín hreint agalega og var refsað fyrir það. Íslenski boltinn 22.4.2026 17:15
„Ég er ekkert órólegur“ Hallgrímur Jónasson prísar sig sælan að komast með stig frá Akranesi eftir 1-1 jafntefli hans manna í KA við ÍA í Akraneshöllinni í Bestu deild karla í kvöld. Hann er ánægður með sína menn og segir þetta sterkt stig. Íslenski boltinn 22.4.2026 20:47
„Það er eiginlega óskiljanlegt“ Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, trúði því varla að hans menn hafi ekki unnið KA í 1-1 jafntefli liðanna í Akraneshöllinni í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Íslenski boltinn 22.4.2026 20:36