Fótbolti
140 141 142 143 144 145 146 147 148 … 334 ›
Banana kastað í Richarlison eftir að hann skoraði Tottenham-maðurinn Richarlison varð fyrir ógeðfelldum kynþáttafordómum í vináttulandsleik Brasilíu og Túnis í París í gær. Fótbolti 28.9.2022 09:30
Reggístrákarnir hans Heimis réðu ekki við Messi Heimir Hallgrímsson stýrði jamaíska karlalandsliðinu í fótbolta í fyrsta sinn þegar það tapaði 3-0 fyrir Argentínu í vináttulandsleik í nótt. Leikið var í New Jersey í Bandaríkjunum. Fótbolti 28.9.2022 07:01
Af hverju er Messi kallaður Mörðurinn? Knattspyrnugoðsögnin Lionel Messi virðist vera komin með nýtt gælunafn hjá félögum sínum í argentínska landsliðinu en gælunafnið verður að teljast ansi óvenjulegt. Fótbolti 27.9.2022 23:30
„Tel okkur vera á þvílíkri vegferð að ná bestu liðunum“ Davíð Snorri Jónasson, þjálfari íslenska U21 árs landsliðsins í fótbolta, var eðlilega súr og svekktur eftir markalaust jafntefli liðsins gegn Tékkum í dag, en úrslitin þýða að liðið missti af sæti á loka móti EM. Hann segist þó ótrúlega stoltur af sínu liði. Fótbolti 27.9.2022 19:00
„Veit ekki hvort þau hafi algjörlega vanmetið þessa stöðu“ Innan við ári eftir að hafa spilað við sum af bestu liðum Evrópu í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu er útlit fyrir að Blikakonur missi af Evrópusæti í Bestu deildinni í ár. Fótbolti 27.9.2022 16:01
Orri og Óli Valur byrja úrslitaleikinn við Tékka Nú klukkan 16 mætir Ísland liði Tékklands ytra í seinni umspilsleiknum um sæti á EM U21-landsliða karla í fótbolta. Byrjunarlið Íslands er klárt. Fótbolti 27.9.2022 14:44
Arnar vill ekki að leikurinn í kvöld kosti Ísland tvo milljarða Ef að Arnar Þór Viðarsson eða leikmenn íslenska karlalandsliðsins í fótbolta kysu að gefa bara skít í leikinn við Albaníu í Þjóðadeildinni í kvöld eru ágætar líkur á að sú afstaða kæmi illilega í hausinn á þeim að ári liðnu. Sigur í kvöld gæti nefnilega opnað varaleið inn á EM í Þýskalandi 2024. Fótbolti 27.9.2022 12:00
Kristian hleypt lausum og Ísland gæti opnað leið að Ólympíuleikum Íslenska U21-landsliðið í fótbolta leikur afar þýðingarmikinn leik í Tékklandi klukkan 16 í dag og þarf á sigri að halda eftir 2-1 tap á heimavelli. Fótbolti 27.9.2022 11:04
Blautur furðuleikur skemmdi fyrir Íslandi Íslenska karlalandsliðið í fótbolta verður í þriðja styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla fyrir undankeppni EM í Þýskalandi. Vonin um sæti í næstefsta flokki hvarf í ansi furðulegum leik Svartfjallalands og Finnlands í Þjóðadeildinni í gærkvöld. Fótbolti 27.9.2022 09:31
Cantona stakk upp á því að verða forseti fótboltamála hjá Manchester United Goðsögnin Eric Cantona var óvænt í ítarlegu viðtali á íþróttamiðlinum The Athletic. Cantona, sem er engum líkur, fór um víðan völl í viðtalinu sem tekið var í Casablanca, Marokkó. Þar kemur Cantona meðal annars inn á það þegar hann hitti forráðamenn Manchester United og stakk upp á því að hann yrði „forseti fótboltamála“ hjá félaginu. Enski boltinn 27.9.2022 07:02
Southgate eftir að enda á botni riðilsins: „Hafa vaxið sem lið“ England gerði 3-3 jafntefli í lokaleik riðlakeppni Þjóðadeildarinnar í kvöld. Eftir að lenda 2-0 undir kom England til baka og skoraði óvænt þrjú mörk en fram að þessu hafði liðið aðeins skorað eitt mark í fimm leikjum. Gareth Southgate, landsliðsþjálfari, segir enska liðið hafa vaxið. Fótbolti 26.9.2022 23:00
Ítalía í undanúrslit Ítalía er komið í undanúrslit Þjóðadeildarinnar eftir 2-0 sigur á Ungverjalandi. Fyrir leik var ljóst að sigurvegari kvöldsins kæmist í undanúrslit. Jafntefli hefði dugað Ungverjum en allt kom fyrir ekki. Fótbolti 26.9.2022 21:31
Jafntefli niðurstaðan eftir ótrúlegan síðari hálfleik Hörmulegt gengi enska karlalandsliðsins í fótbolta virtist vera að halda áfram þegar Þýskaland var komið 2-0 yfir á Wembley í kvöld. Á meðan enska kvennalandsliðið stóð uppi sem Evrópumeistari í sumar hefur lítið gengið hjá karlaliði Englands. Lærisveinar Gareth Southgate komu hins vegar til baka og virtust vera að landa 3-2 sigri þangað til í blálokin, lokatölur 3-3 í ótrúlegum seinni hálfleik. Fótbolti 26.9.2022 18:15
„Enginn tími til að renna á rassinn núna” Stjarnan sigraði Þór/KA örugglega, 0-4, í Boganum á Akureyri í lokaleik 17. umferðar Bestu deildar kvenna. Með sigrinum fór Stjarnan upp í 2. sæti og er því með pálmann í höndunum fyrir lokaumferðina hvað varðar Evrópusæti. Íslenski boltinn 26.9.2022 20:30
Varnarmaður Barcelona frá keppni næstu tvo til þrjá mánuðina Úrúgvæinn Ronald Araújo, varnarmaður spænska fótboltaliðsins Barcelona, meiddist í landsleikjahléinu og þarf að fara í aðgerð. Hann verður frá næstu tvo til þrjá mánuðina og mun missa af HM. Fótbolti 26.9.2022 18:32
Audrey Rose Baldwin í marki Stjörnunnar á Akureyri Audrey Rose Baldwin er í marki Stjörnunnar í dag en liðið sækir Þór/KA heim í Bestu deild kvenna í fótbolta. Baldwin gekk í raðir Stjörnunnar í dag á neyðarláni þar sem meiðsli herja á markverði Stjörnunnar. Íslenski boltinn 26.9.2022 17:35
Heimir hefði ekki valið Messi og félaga Á morgun leikur Jamaíka sinn fyrsta leik undir stjórn Heimis Hallgrímssonar og andstæðingurinn er Argentína, með Lionel Messi í broddi fylkingar. Lið sem er í 4. sæti heimslista alþjóða knattspyrnusambandsins. Fótbolti 26.9.2022 13:01
Ástríkur, Steinríkur og Zlatan Ibrahimović Fertugi framherjinn Zlatan Ibrahimović stefnir á endurkomu með AC Milan í vetur þegar hann hefur jafnað sig af meiðslum sem hrjá hann um þessar mundir. Þá má sjá hann á hvíta skjánum á næsta ári þar sem hann mun leika í nýjustu myndinni um Ástrík og Steinrík. Fótbolti 26.9.2022 07:00
Flestir áhorfendur á leikjum Barcelona | Fleiri hjá Sunderland en Juventus Þó skammt sé liðið á fótboltaveturinn er alltaf skemmtilegt að kíkja á áhugaverða tölfræði. Nú hefur meðalfjöldi áhorfenda í stærstu deildum Evrópu karla megin, og víðar, verið tekinn saman. Þar kemur nokkuð margt á óvart. Fótbolti 25.9.2022 23:30
Hætt í fótbolta til að huga að andlegri heilsu Hin írska Clare Shine, leikmaður Glasgow City, er hætt í fótbolta vegna andlegrar vanlíðan. Shine var hluti af liði liði Glasgow City sem sló Val út úr forkeppni Meistaradeildar Evrópu árið 2020. Fótbolti 25.9.2022 22:32
Færeyjar með ótrúlegan sigur á Tyrklandi Færeyjar og Tyrkland mættust í C-deild Þjóðadeildarinnar í kvöld. Tyrkland hafði þegar tryggt sér sigur í riðlinum og þar með sæti í B-deild og Færeyjar voru öruggar með sæti sitt í riðlinum. Það var því kannski ekki mikið undir í leik kvöldsins en úrslitin eru þó ein þó óvæntustu í manna minnum. Fótbolti 25.9.2022 21:31
Holland tryggði farseðilinn í undanúrslit með sigri á Belgíu Holland vann nágranna sína í Belgíu í hálfgerðum úrslitaleik um sæti í undanúrslitum Þjóðadeildarinnar. Lokatölur 1-0 lærisveinum Louis van Gaal í vil. Fótbolti 25.9.2022 18:16
Frækinn sigur Dana dugði ekki til Danmörk gerði sér lítið fyrir og vann Frakkland 2-0 í riðli 1 í A-deild Þjóðadeildarinnar í fótbolta í kvöld. Það dugði ekki til sigurs í riðlinum þar sem Króatía lagði Austurríki 3-1 og er því komið í undanúrslit. Fótbolti 25.9.2022 18:16
Everton pakkaði nýliðum Liverpool saman Síðasti leikur dagsins í ensku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu var viðureign Liverpool og Everton á Anfield. Fór það svo að gestirnir í Everton unnu öruggan 3-0 sigur. Enski boltinn 25.9.2022 20:00
Nökkvi Þeyr kominn á blað í Belgíu Dalvíkingurinn Nökkvi Þeyr Þórisson er kominn á blað í Belgíu. Hann skoraði sitt fyrsta mark fyrir B-deildarlið Beerschot í öruggum 4-0 sigri á Royal Knokke í belgísku bikarkeppninni í dag. Fótbolti 25.9.2022 19:31
Chelsea komið á blað og gott gengi Man Utd heldur áfram Englandsmeistarar Chelsea eru komnir á blað í ensku úrvalsdeild kvenna í fótbolta. Manchester United heldur áfram á sigurbraut. Enski boltinn 25.9.2022 18:45
Nik Chamberlain: Ánægður fyrir hönd Brynju Ránar Nik Anthony Chamberlain, þjálfari Þróttar, var ánægður með að ná að halda hreinu þegar lið hans vann sannfærandi 5-0 sigur á móti KR í næstsíðustu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta í dag. Fótbolti 25.9.2022 18:01
Chris Harrington: Ekkert verið rætt við mig um framhaldið Christopher Thomas Harrington, þjálfari KR, var ósáttur við spilamennsku liðins þegar liðið fékk 5-0 skell gegn Þrótti í næstsíðustu umferð Bestu deildar kvenna í fóbolta í dag. Íslenski boltinn 25.9.2022 17:30
Umfjöllun: Selfoss - Breiðablik 2-0 | Evrópudraumar Blika í hættu eftir tap á Selfossi Breiðablik mátti þola 2-0 tap er liðið heimsótti Selfoss í næstseinustu umferð Bestu-deildar kvenna í knattspyrnu í dag. Tapið þýðir að liðið þarf að treysta á hagstæð úrslit í öðrum leikjum til að tryggja sér Evrópusæti í lokaumferðinni. Íslenski boltinn 25.9.2022 13:16
„Eins og við verðum að hafa eitthvað undir til að spila vel“ Keflavík tapaði 1-2 gegn ÍBV. Þetta var fimmta tap Keflavíkur í röð á heimavelli og var Gunnar Magnús Jónsson, þjálfari Keflavíkur, hundfúll með niðurstöðuna. Íslenski boltinn 25.9.2022 16:19