Fótbolti „
95 96 97 98 99 100 101 102 103 … 334 ›
„Má vel vera að þetta komi sérfræðingunum eitthvað á óvart“ Nýliðar FH sigruðu Selfoss 2-0 á heimavelli í Bestu deild kvenna í fótbolta nú kvöld. Liðið hefur unnið þrjá af síðustu fjórum leikjum og situr í 5. sæti deildarinnar. Guðni Eiríksson, þjálfari FH, segir frammistöðuna í fyrri hálfleik hafa skilað liðinu þremur stigum í dag. Íslenski boltinn 6.6.2023 22:36
Todor: Ánægður með jafnvægið í liðinu þrátt fyrir að við skorum lítið Keflavík og ÍBV gerðu markalaust jafntefli í 7. umferð Bestu-deildar kvenna. Todor Hristov, þjálfari ÍBV, var nokkuð brattur með stigið. Íslenski boltinn 6.6.2023 20:31
Birgir: Draumur hjá mér að vinna þennan bikar Birgir Baldvinsson, leikmaður KA, spilaði í vinstri bakvarðarstöðunni og skoraði fyrsta mark leiksins í 2-1 sigri KA á Grindavík í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins á Greifavellinum á Akureyri í dag. Birgir var kampakátur strax eftir leik sér bikarúrslitin í hyllingum. Íslenski boltinn 6.6.2023 20:21
Fær í kringum 30 milljarða á ári fyrir að spila í Sádi-Arabíu Franski framherjinn Karim Benzema hefur samið við Al Ittihad í Sádi-Arabíu til ársins 2026. Talið er að hann þéni allt í allt um 200 milljónir evra [30 milljarðar íslenskra króna] á ári. Fótbolti 6.6.2023 19:31
Atlético Madrid vill fá Zaha Diego Simeone hefur mikinn áhuga á að fá Wilfried Zaha, leikmann Crystal Palace, til Atlético Madrid. Enski boltinn 6.6.2023 17:46
Fyrrverandi leikmaður Inter reyndi að kyrkja systur sína Alsírski fótboltamaðurinn Ishak Belfodil hefur verið handtekinn fyrir að reyna að kyrkja fimmtán ára systur sína. Fótbolti 6.6.2023 08:31
Ríkissjóðurinn sem á Newcastle kaupir liðið hans Ronaldo og þrjú önnur PIF, opinber fjárfestingasjóður Sádi-Arabíu, hefur fest kaup á fjórum stærstu liðum landsins. Á þetta að stuðla að því að fá stærstu nöfn knattspyrnunnar til Sádi-Arabíu. Fótbolti 6.6.2023 07:00
„Held ég sé mjög vanmetinn“ „Ég var náttúrulega hafsent sem leyfði öðrum að njóta sín því ég vildi ekki taka neina sénsa,“ sagði miðvörðurinn fyrrverandi Grétar Sigfinnur Sigurðarson í hlaðvarpsþættinum Chat After Dark, áður Chess After Dark, á dögunum. Íslenski boltinn 5.6.2023 23:30
Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - FH 3-1 | Heimamenn kláruðu dæmið í lokin Breiðablik er komið í undanúrslit Mjólkurbikars karla í knattspyrnu eftir 3-1 sigur á FH. Staðan var jöfn þegar venjulegur leiktími var að renna sitt skeið en Blikar kláruðu dæmið í blálok leiksins. Íslenski boltinn 5.6.2023 19:15
PSG hótaði að kvarta undan Chelsea og er nú við það að semja við Ugarte Frakklandsmeistarar París Saint-Germain hótuðu að senda kvörtun til Knattspyrnusambands Evrópu vegna mögulegra kaupa Chelsea á Manuel Ugarte, miðjumanni Sporting frá Lissabon. Sá er nú við það að skrifa undir fimm ára samning í París. Fótbolti 5.6.2023 22:31
Berglind Rós til liðs við Íslands- og bikarmeistara Vals Valur hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir komandi átök í Bestu deild kvenna í knattspyrnu en Berglind Rós Ágústsdóttir hefur samið við liðið út tímabilið. Frá þessu greindi Valur fyrr í kvöld. Íslenski boltinn 5.6.2023 21:31
Daníel Tristan fékk sínar fyrstu mínútur er Malmö tyllti sér á toppinn Malmö er komið á topp sænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir 5-0 sigur á Degerfoss. Hinn 17 ára gamli Daníel Tristan Guðjohnsen spilaði sína fyrstu mínútur á tímabilinu. Valgeir Lunddal Friðriksson var á sínum stað í meistaraliði Häcken þegar liðið vann Varberg. Fótbolti 5.6.2023 21:00
Berglind Björg ólétt: „Nei, ég er ekki hætt“ Landsliðsframherjinn Berglind Björg Þorvaldsdóttir, leikmaður París Saint-Germain í Frakklandi, er ólétt. Um er að ræða hennar fyrsta barn. Fótbolti 5.6.2023 19:41
Sex Evrópumeistarar í liði ársins | Engin Sveindís Jane né Glódís Perla Knattspyrnusamband Evrópu hefur opinberað lið ársins í Meistaradeild kvenna í knattspyrnu. Enginn Íslendingur er á listanum en þar má finna sex leikmenn Evrópumeistara Barcelona, þá eru fjórar úr Wolfsburg en þó engin Sveindís Jane Jónsdóttir. Fótbolti 5.6.2023 17:47
Árni kom ekki við sögu í toppslag Árni Vilhjálmsson sat allan tímann á varamannabekknum hjá Zalgiris sem gerði 2-2 jafntefli í toppslag í litháísku deildinni í dag. Fótbolti 4.6.2023 17:18
Lést samstundis eftir fall úr mikilli hæð á fótboltaleik Leikur River Plate og Defensa y Justicia í argentínsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi var flautaður af eftir að stuðningsmaður River Plate féll úr mikilli hæ í einni af stúku leikvangsins og lét lífið. Fótbolti 4.6.2023 12:00
Flúði farbann vegna nauðgunar og býðst til að spila frítt Kólumbíski fótboltamaðurinn Andrés Ramiro Manga Escobar, sem flúði Ísland í farbanni í desember síðastliðnum eftir að hafa hlotið fangelsisdóm fyrir nauðgun, er ennþá staddur í Kólumbíu og segist ólmur vilja hasla sér völl í atvinnumennsku á ný. Hefur hann boðist til að spila frítt fyrir sitt gamla félag, Deportivo Cali. Innlent 3.6.2023 08:01
„Þú fyrirgefur að ég fari ekki að ljóstra því upp“ „Ég held það megi færa góð rök fyrir því að þetta sé einn af stórleikjum sumarsins. Það er mikil eftirvænting hjá öllum,“ segir Arnar Gunnlaugsson um leik hans manna í Víkingi við Breiðablik í Bestu deild karla í fótbolta á Kópavogsvelli í kvöld. Íslenski boltinn 2.6.2023 12:00
Fær næstum því fjögur hundruð milljónir í árslaun í nýju starfi Milos Milojevic, fyrrverandi þjálfari Víkings og Breiðabliks, er á leið í afar vel borgað starf í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Fótbolti 1.6.2023 11:00
Blikaparið tekur sambandið á næsta stig Ástin blómstrar hjá knattspyrnuparinu Katrín Ásbjörnsdóttur og Damir Muminovic. Parið trúlofaði sig á dögunum. Lífið 31.5.2023 16:26
Fyrrverandi landsliðsmaður Hollands grunaður um stórfellt kókaínsmygl Quincy Promes, leikmaður Spartak Moskvu og fyrrverandi leikmaður hollenska landsliðsins í fótbolta, er grunaður um að eiga þátt í stórfelldu kókaínsmygli til heimalandsins. Fótbolti 30.5.2023 22:46
Sögulegar breytingar á treyju Man United Enska knattspyrnuliðið Manchester United mun gera sögulega breytingu á einum af búningum liðsins á næstu leiktíð. Enski boltinn 30.5.2023 07:00
Arnór Sigurðsson yfirgefur Norrköping í sumar Landsliðsmaðurinn Arnór Sigurðsson mun yfirgefa sænska úrvalsdeildarfélagið Norrköping í sumar þegar lánssamningur hans við félagið rennur út. Þetta staðfesti félagið fyrr í dag. Fótbolti 29.5.2023 23:30
„Lögðum upp með að halda hreinu“ Keflavík gerði markalaust jafntefli við Breiðablik í Bestu-deild karla í knattspyrnu fyrr í kvöld. Liðið hefur nú haldið marki sínu hreinu tvo leiki í röð og tekist að klífa upp úr botnsæti deildarinnar. Íslenski boltinn 29.5.2023 22:30
Arnar Grétarsson: Við setjum þetta aftur upp í mót Arnari Grétarssyni, þjálfara Vals, var létt í leikslok eftir sigur síns liðs gegn Víkingum. Valsmenn átt erfiða leiki undanfarið og tókst nú að vera fyrsta liðið til þess að stoppa sigurgöngu Víkinga. Íslenski boltinn 29.5.2023 22:01
Myndband: Klæmint með klúður sem gleymist seint Klæmint Olsen brenndi af því sem má fullyrða að sé færi aldarinnar þegar Breiðablik gerði markalaust jafntefli við Keflavík í 9. umferð Bestu deildar karla. Færið má sjá neðar í fréttinni. Íslenski boltinn 29.5.2023 21:30
Hlín bjargaði stigi fyrir Kristianstad | Birkir spilaði loks fyrir Viking Hlín Eiríksdóttir skoraði eina mark Kristianstad í 1-1 jafntefli við Hammarby í sænsku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu í dag. Birkir Bjarnason spilaði loks fyrir Viking í norsku úrvalsdeildinni þegar liðið steinlá gegn Bodö/Glimt. Fótbolti 29.5.2023 20:01
Jakob Snær: Vonandi byrjunin á því sem við ætlum að sýna í sumar Jakob Snær Árnason, leikmaður KA, kom inn á sem varamaður í 4-2 sigri gegn Fram á Greifavellinum á Akureyri í dag. Staðan var 2-2 á 85. mínútu en þá skoraði Jakob þegar boltinn fór af honum og í markið eftir skot frá Þorra Mar Þórissyni. Hann innsiglaði svo sigur KA með marki í uppbótartíma eftir skyndisókn. Íslenski boltinn 29.5.2023 19:01
Stýrði Napoli til langþráðs sigur en hættir samt í sumar Luciano Spalletti verður án efa í guðatölu hjá stuðningsfólki Napoli eftir að hafa stýrt liðinu til sigurs í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Hann mun þó ekki þjálfa liðið á næstu leiktíð. Fótbolti 29.5.2023 17:45
FC Kaupmannahöfn danskur meistari annað árið í röð Íslendingalið FC Kaupmannahöfn er danskur meistari annað árið í röð eftir sigur á Viborg þar sem Nordsjælland tapaði 5-1 fyrir Bröndby. FCK er því tvöfaldur meistari þar sem liðið varð á dögunum bikarmeistari. Fótbolti 29.5.2023 17:01