
Tjáningarfrelsi

Tvenn ummæli Aldísar ómerkt og Sigmar sýknaður
Tvenn ummæli sem Aldís Schram lét falla um Jón Baldvin Hannibalsson föður sinn, í útvarpi annars vegar og á Facebook hins vegar, hafa verið dæmt ómerk. Þá var Sigmar Guðmundsson fjölmiðlamaður sýknaður í málinu.

Mátti kalla barnsföður sinn ofbeldismann á Facebook
Landsréttur staðfesti sýknu yfir konu sem var kærð fyrir meintar ærumeiðingar um barnsföður sinn á samfélagsmiðlinum Facebook. Konan vísaði til mannsins sem ofbeldismanns í nokkrum færslum á miðlinum.

Parler snýr aftur eftir að hafa verið sparkað af internetinu
Samfélagsmiðilinn Parler er kominn aftur í loftið um mánuði eftir að Amazon og aðrir tæknirisar kipptu fótunum undan miðlinum í kjölfar árásarinnar á bandaríska þinghúsið.

„Forseti Hæstaréttar fór í vígaferli við mig og lá marflatur að lokum“
Jón Steinar var sýknaður í meiðyrðamáli Benedikts Bogasonar forseta Hæstaréttar. Dómurinn klofnaði í afstöðu sinni, þrír dómara staðfestu niðurstöðu Landsréttar en tveir vildu dæma Jón Steinar sekan.

Ósammála um refsingu fyrir að afneita Helförinni
Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, lagði í dag ásamt fleiri þingmönnum fram frumvarp til laga sem myndu gera það refsivert að afneita Helförinni. Refsingin gæti numið allt að tveggja ára fangelsi. Þingmaður Pírata er mótfallinn frumvarpinu.

Leggja til að afneitun helfararinnar verði bönnuð
Frumvarp sem leggur til bann við afneitun helfararinnar var lagt fram á Alþingi í dag. Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Samfylkingar, er flutningsmaður frumvarpsins en þingflokkur Samfylkingar, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar og Andrés Ingi Jónsson, sem er utan flokka, standa einnig að málinu.

Dæmd í 43 ára fangelsi fyrir að móðga konungsfjölskylduna
Tælensk kona hefur verið dæmd í 43 ára fangelsi fyrir að móðga konungsfjölskyldu landsins. Er það lengsti dómur sem hefur verið veittur varðandi brot sem þetta í landinu. Lögin í kringum konungsfjölskyldu Taílands þykja einkar ströng og hefur ákærum á grundvelli þeirra farið fjölgandi.

Parler ætlar í hart við Amazon
Samfélagsmiðillinn Parler ætlar að höfða mál gegn Amazon eftir að fyrirtækið neitaði að hýsa vefsíðu miðilsins áfram. Ákvörðun Amazon kom í kjölfar þess að bæði Google og Apple ákváðu að fjarlægja Parler úr smáforritaverslunum sínum.

Parler ekki lengur aðgengileg
Vefsíða Parler, sem hefur verið lýst sem valkostur við Twitter, liggur nú niðri. Það gerist eftir að Amazon greindi frá því um helgina að fyrirtækið myndi frá og með deginum í dag hætta að hýsa síðuna vegna ítrekaðra brota á notendaskilmálum.

Amazon neitar að hýsa Parler
Amazon hefur tilkynnt samfélagsmiðlinum Parler að fyrirtækið muni ekki hýsa síðuna vegna brota á notendaskilmálum. Því mun Parler ekki lengur vera aðgengileg nema síðan finni sér nýjan stað til þess að hýsa vefinn.

Risarnir beina spjótum sínum að „miðli málfrelsisins“
Samfélagsmiðillinn Parler er nú undir smásjá Apple og Google vegna þess efnis sem deilt er þar inni, en það er sagt hvetja til samskonar óeirða og urðu í Washington á miðvikudag. Miðillinn var stofnaður í ágúst árið 2018 en fór að sækja verulega í sig veðrið á síðasta ári eftir að sífellt fleiri stjórnmálamenn á hægri væng stjórnmálanna fóru að nýta hann til þess að ná til stuðningsmanna sinna.

Alþjóðasamtök gyðinga fordæma íslenska útgáfu nasistabókar
Samtökin World Jewish Congress fordæma íslenska útgáfu nasistabókarinnar Tröllasaga tuttugustu aldarinnar. Samtökin beina spjótum sínum að Fibut, að þeim beri skylda til að henda bókinni út úr Bókatíðindum því um sé að ræða hatursorðræðu.

Trú í veraldlegu ríki
Það eru ekki fordómar gagnvart trúarbrögðum að vilja vernda veraldarhyggjuna.

Bókaútgefendur í bobba vegna nasistabókar í Bókatíðindum
Heiðar Ingi Svansson segir bók um helförina sem auglýst er í Bókatíðindum setja Fibut í nokkurn vanda.

Landssamband lögreglumanna íhugar málsókn vegna meiðyrða
Formaður Landssambands lögreglumanna segir það koma til greina að einstaklingar sem hafi látið gróf ummæli falla á netinu um fánamálið svokallaða verði lögsóttir.

Helgi og RÚV sýknuð í meiðyrðamáli
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað fjölmiðlamanninn Helga Seljan og Ríkisútvarpið í meiðyrðamáli sem karlmaður höfðaði gegn þeim vegna ummæla fyrrverandi eiginkonu sinnar í Kastljósþætti í ágúst 2015.

Greiddi nemendum til að benda á kennarann
Saksóknarar í Frakklandi halda því fram að tveir nemendur í skólanum þar sem Samuel Paty kenndi hafi fengið greitt fyrir að bera kennsl á hann fyrir morðingjans hans.

Húsleit hjá meintum íslömskum öfgamönnum eftir hrottalegt morð
Franska lögreglan gerði húsleit á heimilum tuga grunaðra íslamskra öfgamanna í morgun í kjölfar hrottalegs morðs á kennara í úthverfi Parísar á föstudag. Tugir samtaka múslima eru einnig sagðir til rannsóknar.

Facebook bannar efni sem afneitar helförinni
Samfélagsmiðlarisinn Facebook hefur ákveðið að banna hjá sér deilingar á efni sem inniheldur þá söguskoðun að helförin hafi ekki átt sér stað eða breytir viðteknum söguskoðunum um hana.

Héraðsforsetinn settur af og Spánverjar sakaðir um mannréttindabrot
Utanríkismálastjóri Katalóníuhéraðs segir yfirvöld á Spáni brjóta gegn tjáningarfrelsinu. Forseti héraðsstjórnar Katalóníu var settur af með dómi hæstaréttar landsins í gær.

Meiðyrði „deyja“ ekki við það eitt að vera fjarlægð
Þann 16. september féll dómur í meiðyrðamáli í héraðsdómi Reykjavíkur. Fjölmiðlar hafa veitt þessum dómi nokkra athygli.

Efast um að „LBG teymið“ eigi upp á pallborðið hjá hinsegin samfélaginu
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, formaður Samtakanna´’78, segir stórefast um að nýr umræðuvettvangur samkynhneigðs fólk eigi upp á pallborðið hér á landi.

Dómari stöðvar bann Bandaríkjastjórnar á WeChat
Bandarískur dómari hefur sett lögbann á tilraunir bandarískra yfirvalda til að banna kínverska samskiptamiðilinn WeChat.

Róleg yfir kærunni en segir ásakanir um „samantekin ráð“ fráleitar
Snærós Sindradóttir vísar því alfarið á bug að um „samantekin ráð“ starfsmanna RÚV sé að ræða og segir það hættulegt ef stórfyrirtæki geti þaggað niður í fjölmiðlafólki.

Frægir aktívistar og rithöfundar vara við aðför að tjáningarfrelsinu
150 aktívistar, fræðimenn og rithöfundar hafa skrifað undir opið bréf þar sem er lýst yfir áhyggjum af umræðuhefð í nútímasamfélagi.

Aratúnsmálið flutt fyrir Hæstarétti
Málflutningur fór fram í svokölluðu Aratúnsmáli fyrir Hæstarétti í dag. Í málinu er blaðamaður DV, Jón Bjarki Magnússon, krafinn um bætur vegna umfjöllunar hans um nágrannaerjur í Aratúni.

Skrifaði ummæli á dv.is um Aratúnsmálið - þarf að borga 500 þúsund
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag konu um sextugt til þess að greiða 500 þúsund krónur vegna ummæla sem hún skrifaði í athugasemdarkerfi á vefnum dv.is.

Aratúnsfjölskyldan áfrýjar ekki málinu
Aratúnsfjölskyldan ætlar ekki að áfrýja sýknudómi í meiðyrðamáli sem fjölskyldan höfðaði gegn Trausta Laufdal Aðalsteinssyni, sem bloggaði á vefsvæði DV. Trausti kallaði fjölskylduna meðal annars bilað lið og "mansonfjölskyldu sem ætti að vista í vel afgirtu búri í húsdýragarðinum".

Aratúnsfjölskyldan tapaði meiðyrðamáli í héraðsdómi
Trausti Laufdal Aðalsteinsson bloggari var í dag sýknaður af meiðyrðastefnu vegna ummæla sem hann viðhafði á bloggsíðu á DV. Það var fjölskylda í Aratúni sem stefndi Trausta en hann mun meðal annars hafa kallað fólkið "bilað lið“ og "mansonfjölskyldu sem ætti að vista í vel afgirtu búri í húsdýragarðinum“.

Þarf að borga 950 þúsund vegna bloggfærslu
Bloggari var dæmdur til að greiða konu þrjú hundruð þúsund krónur í miskabætur fyrir meiðyrði í hennar garð og þá voru ummæli sem birtust á heimasíðu mannsins dæmd dauð og ómerk. Dómari telur það vera tilefnislaust og óviðurkvæmilegt að rifja upp 30 ára gamla dóma, sem konan hlaut.