Tækni

Fréttamynd

Umfangsmikil sjóræningjastarfsemi leyst upp

Kínverska lögreglan og bandaríska alríkislögreglan, FBI, hafa leyst upp tvo umfangsmikla kínverska glæpahringi sem ábyrgir eru fyrir fölsun og dreifingu á allt að tveimur milljörðum eintaka af tölvuhugbúnaði. Hringirnir störfuðu í Shanghai og Shenzhen í Kína en dreifðu framleiðslu sinni víða um heim.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

GTA IV er vel á veg kominn

Það fer að styttast í að fjórði Grand Theft Auto leikurinn komi út. leikurinn lítur vel út. Hvern hefði grunað að meðalunglingnum fyndist fátt skemmtilegra en keyra hratt , skjóta fólk og verða illræmdasti glæpamaðurinn í borginni?

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Sjálfeyðandi vafrakökur hjá Google

Vefrisinn Google hefur gefið út yfirlýsingu þess efnis að vafrakökurþeirra, litlar skrár sem að vistast á tölvu notanda þegar hann heimsækir vefsíðu, muni eyðast sjálfkrafa eftir tvö ár.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Áfangasigur gegn fótaóeirð

Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar (ÍE) hafa í samstarfi við Emory háskóla í Atlanta fundið fyrsta erfðabreytileikann sem tengist fótaóeirð. Í rannsókninni var einnig sýnt fram á að erfðabreytileikinn tengist minni járnbirgðum í líkamanum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Enga tónlist í þrumveðri

Læknar frá Vancouver í Kanada hafa varað fólk við því að fara út með mp3-spilara í þrumuveður. Í nýjasta hefti læknaritsins New England Journal of Medicine rekja læknarnir mál ungs manns sem fékk eldingu í sig þegar hann fór út að skokka í þrumuveðri.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Vestræn risapanda reynist ansi arðbær

Risapandan Huamei eignaðist sitt þriðja par af tvíburum á dögunum. Huamei er óvenjuleg panda að því leyti að hún fæddist og komst á legg í vestrænu samfélagi, óravegu frá náttúrulegum heimkynnum panda í Asíu. Hún fæddist í Bandaríkjunum fyrir átta árum. Nafn hennar er blanda af orðunum Kína og Ameríka.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Engin venjuleg mús

Microsoft hefur sent frá sér nýja tölvumús, svokallaða Wireless Notebook Presenter Mouse 8000, sem býr yfir ýmsum skemmtilegum notkunarmöguleikum og beðið hefur verið eftir með mikilli eftirvæntingu.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Fjarskiptatæknin hefur slæm áhrif á minni fólks

Samkvæmt könnun sem gefin var út á föstudaginn í London, hafa farsímar og önnur fjarskiptatæki slæm áhrif á minni fólks. Fjórðungur þeirra sem spurðir voru sögðust ekki muna númerið í heimasímanum sínum. 2/3 af þeim sem svöruðu gátu ekki munað afmælisdaga þriggja vina eða fjölskyldumeðlima án þess að fletta því upp.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Þegar iPodinn frýs

Nokkur ráð til að koma frosnum iPod í gang. Margir iPod-eigendur lenda í því að iPodinn þeirra frýs eða lætur öllum illum látum. Yfirleitt er þó ekki flókið að koma honum í samt lag og oft bara nóg að endurræsa hann.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Gagnvirk ferðaþjónusta

Look and book er gagnvirk bókunarþjónusta fyrir ferðamenn. Þar er hægt að skoða, bóka og borga allt í einu. Standarnir eru víða um land á fjölförnum ferðamannastöðum og í verslunum N1, Eymundsson, á Park- Inn hótelunum og á BSÍ.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Nýtt lyf gegn reykingum

Nikótínlyf seljast í tonnavís á ári hverju og dæmi eru um að fólk verði jafnháð lyfjunum eins og tóbakinu sjálfu. En nú er komið nýtt lyf á markaðinn, Champix, sem ekki inniheldur nikótín og fær jafnvel hörðustu reykingamenn að snúa bakinu við tóbakspúkanum fyrir fullt og allt.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Andlitin á vefnum

Netsamfélög á borð við MySpace hafa náð gífurlegum vinsældum. Nýjasta æðið er Facebook. Við þurfum ekkert að fara út lengur. Við hittum vinina á netinu. Spjöllum á spjallrásum, skiptumst á skoðunum á bloggi, látum í okkur heyra og sjá hjá netsamfélögum á borð við MySpace, Ringo og Flickr.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Náungakærleikur Linux

Stýrikerfið ubuntu er notendavæn útgáfa af Linux sem hentar hinum almenna tölvunotanda. Linux-stýrikerfið hefur oftast verið þekkt fyrir flóknar lausnir. Þó helst meðal almennra notenda, því þeir sem hafa tölvur að atvinnu hafa löngum verið hrifnir af stýrikerfinu.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Ragga virðist ætla bresta í grát

„Það segir sig náttúrulega sjálft að það er leiðinlegt að vinna með manneskju sem virðist ætla bresta í grát allan daginn,“ segir Bergvin Oddsson, formaður Ungmennahreyfingar blindrafélagsins, um rödd nýs talgervils, sem notaður er í skjálestrar forritunum fyrir blinda og sjónskerta.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Uppskeruhátið í tölvuleikjaheiminum

Tölvuleikja-spekúlantar setja sig nú í stellingar fyrir E3 Expo, stærstu tölvuleikjahátíð heims. Hátíðin fer fram í Santa Monica í Kaliforníu og stendur yfir dagana 11. til 13 júlí. Þar verða meðal annars kynntir tölvuleikir sem væntanlegir eru á markað og farið verður yfir helstu tíðindi í tölvuleikjaheiminum undanfarin ár.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

10 miljónir horfðu á Live Earth á vefnum

Heimsmet var slegið í áhorfi á einn viðburð í gegnum veraldarvefinn þegar Live Earth tónleikahátíðin fór fram á laugardaginn. Tölvurisinn Microsoft fullyrðir að 10 miljónir manns hafi fylgst með atburðinum á netinu.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

PlayStation 3 lækkar í verði

Japanski tækniframleiðandinn Sony hefur lækkað verð á nýjustu PlayStation 3 leikjatölvunni (PS3) í Bandaríkjunum um 17 prósent með það fyrir augum að auka sölu á tölvunni. Þetta jafngildir því að verðið lækkar um 100 bandaríkjadali, rúmar sex þúsund íslenskar krónur og kostar tölvan nú 500 dali út úr búð í Bandaríkjunum, eða 30.500 íslenskar krónur.

Leikjavísir
Fréttamynd

Hleypur í fyrsta skipti í tuttugu ár

Fimm íslenskir stoðtækjanotendur fengu í gær háþróaða hlaupafætur að gjöf frá Össuri hf. til að auðvelda þeim að hreyfa sig reglulega og njóta lífsins betur. Lárus Gunnsteinsson hjá Össuri segir að gríðarleg þróun hafi verið á hlaupafótum síðustu árin. Efnið er úr koltrefjar með sérstakri lögun og valið fyrir hvern og einn einstakling og hvað hann hugsar sér að gera.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Tæknisafn Íslands í burðarliðnum

Ferðamálafélags Flóamanna vinnur að stofnun fyrsta tæknisafns Íslands. Fyrsta áfanga undirbúningsstarfsins er nú lokið. Í fréttatilkynningu frá Valdimari Össurarsyni verkefnisstjóra gengur starfið vel. Víða sé leitað ráðgjafar og samráðs, svo sem við tæknisöfn og vísindastofur erlendis.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Íslendingar og Indverjar í samstarf á sviði jarðskjálftarannsókna

Íslensk og indversk stjórnvöld hafa gert með sér samkomulag um samstarf á sviði jarðskjálftamælinga. Von er á tveimur indverskum vísindamönnum hingað til lands til að kynna sér tækni á Íslandi á sviði jarðskjálftamælinga. Fyrsti áfangi samkomulagsins var undirritaður í dag milli utanríkisráðuneytisins og Veðurstofu Íslands sem mun sjá um framkvæmd samstarfsins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Íslendingar sigursælir í virtri gervigreindarkeppni

Íslenskur hugbúnaður frá Háskólanum í Reykjavík lenti í efsta sæti í undankeppni virtrar gervigreindarkeppni í Stanford háskóla í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. 40 forrit frá ýmsum rannsóknarháskólum víðsvegar að úr heiminum voru send í keppninni. Þetta er í fyrsta skipti sem Háskólinn í Reykjavík tekur þátt.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Allofmp3 lokað

Rússnesk yfirvöld hafa lokað rússnesku tónlistarveitunni allofmp3.com, en þar hefur fram til þessa verið hægt að kaupa tónlist til niðurhals á niðursettu verði.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Nokia er umhverfisvænst

Farsímaframleiðandinn Nokia er umhverfisvænsti raftækjaframleiðandinn samkvæmt nýjum lista frá Greenpeace. Sony er á botninum í fjórtánda og síðasta sæti listans.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

iPhone í sölu í Bandaríkjunum

iPhone-síminn frá Apple er kominn á markað í Bandaríkjunum. Eftirvæntingin eftir símanum hefur verið gríðarleg, en hann er blanda af iPod-spilara, farsíma og lófatölvu með stórum snertiskjá.

Viðskipti innlent