Verðlag

Forstjóri Haga: Kostnaðarhækkanir „dynja yfir geirann“ sem munu skila sér út í verðlagið
Finnur Oddsson, forstjóri Haga sem reka meðal annars matvöruverslanirnar Bónus og Hagkaup, segir kostnaðarverðshækkanir „dynja yfir geirann þessar vikurnar“ og að það blasi við að þær muni „óhjákvæmilega“ finna sér leið út í verðlagið.

Ár innfluttrar verðbólgu
Eins og allir vita segir sagan okkur að verðbólga á Íslandi hefur jafnan verið hærri en í nágrannalöndum okkar. Svo ekki sé nú minnst á ástandið á sumum tímabilum síðustu aldar þegar verðbólgan var tugum prósenta hærri hér á landi en í helstu nágrannalöndum.

Telur líklegt að toppnum hafi verið náð
Verðbólga mælist nú 5,1 prósent og hefur ekki mælst hærri í rúm níu ár. Fasteignaliðurinn vegur þungt í mælingunni en aðrir þættir ýta einnig undir verðbólgu. Aðalhagfræðingur Íslandsbanka telur að toppnum hafi verið náð.

Verðbólgan eykst í 5,1 prósent
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,45 prósent milli nóvember og desember en það þýðir að verðbólga síðastliðna tólf mánuði mælist nú 5,1 prósent.

Allt að 50 til 100 prósenta verðmunur á jólasteikinni
Mikill verðmunur er á jólasteikinni þetta árið og munur á hæsta og lægsta kílóverði hátíðarkjöts oft á milli 50 til 100 prósent.

Rætt um að ganga enn lengra en allir sammála um stýrivaxtahækkunina
Allir fimm nefndarmenn í peningastefnunefnd Seðlabankans voru sammála tillögu Seðlabankastjóra um að hækka stýrivexti um 0,5 prósentustig í nóvember. Rætt var þó um að hækka þá enn meira.

Mál málanna
Verðbólga er mál málanna þessa dagana en eftir nokkur ár af verðstöðugleika hér á landi er hún mætt aftur með töluverðum látum. Tólf mánaða verðbólga er búin að vera í kringum 4,5% allt árið og hefur ekki verið hærri frá árinu 2013. Uppsöfnuð verðbólga frá upphafi árs 2020 er að nálgast 10%.

Mjólkin hækkar í verði
Verðlagsnefnd búvara hefur ákveðið að hækka lágmarksverð sem kúabændur fá fyrir mjólk. Þá hækkar einnig heildsöluverð mjólkur og mjólkurafurða sem nefndin verðleggur.

Íslandsbanki hækkar einnig vexti
Íslandsbanki hefur tilkynnt um breytingar á vöxtum í kjölfar vaxtaákvörunar Seðlabanka Íslands þegar stýrivextir voru hækkaðir um 0,5 prósentustig. Stóru bankarnir þrír hafa því allir tilkynnt um vaxtahækkun.

Verðbólga undir væntingum en myndin á eftir að skýrast
Verðbólgumæling Hagstofu Íslands var undir væntingum greinenda í fyrsta sinn síðan í nóvember í fyrra. „Í stuttu máli má þannig segja að verðbólgan sé að reynast þrálát en þó ekki eins kraftmikil og væntingar voru um,“ segir Birgir Haraldsson, sjóðstjóri hjá Akta.

Landsbankinn hækkar vexti
Landsbankinn hækkar breytilega vexti á óverðtryggðum íbúðalánum um 0,35 prósentustig í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabankans.

Spá því að fólk snúi aftur í verðtryggð húsnæðislán
Árshækkun húsnæðis hefur ekki mælst meiri frá því í október 2017 og er raunverð húsnæðis nú í sögulegum hæðum. Húsnæðisverð hefur því hækkað um 4,3% síðustu þrjá mánuði og um 17,1% undanfarna tólf mánuði, samkvæmt nýjum tölum Þjóðskrár.

Hvað getur hið opinbera gert til að draga úr verðbólgunni?
Verðbólgan hefur náð sér á strik undanfarna mánuði. Hún mældist 4,5% í síðasta mánuði og ýmsar spár gera ráð fyrir að hún verði um eða yfir 5% í þessum mánuði.

Seðlabankastjóri: „SA sömdu klárlega af sér"
„Ég er hissa að séu stórar yfirlýsingar um að himinn og jörð séu að farast þegar við erum fyrirsjáanlega að hækka vexti núna. Vextir eru í 2 prósentum. Þeir voru í 4,5 prósentum þegar Lífskjarasamningurinn var gerður. Mér finnst svona yfirlýsingar úr korti við alla skynsemi og úr takti við raunveruleikann,” sagði Ásgeir Jónsson, Seðlabankastjóri á fundi Viðskiptaráðs Íslands sem fram fór í morgun og bar yfirskriftina Er vinnumarkaðurinn týndi hlekkurinn?

Hagvaxtarauki kemur fyrirtækjum spánskt fyrir sjónir
Hagvaxtarauki lífskjarasamninganna, sem kveður á um launahækkun vegna hagvaxtar þessa árs og tekur gildi frá maí á næsta ári, skýtur skökku við að mati, viðmælenda Innherja í veitinga- og smásölugeiranum.

Komi ekki til greina að henda hagvaxtaraukum út um gluggann
Forseti ASÍ segir ekki koma til greina að hagvaxtaraukar, sem samið var um í lífskjarasamningunum, verði felldir úr gildi. Seðlabankastjóri sagði fyrr í dag að hagvaxtaraukarnir væru óheppilegir fyrir verðbólguþróunina.

Hótun verkalýðsleiðtoga yfirlýsing um að þeir ætli að semja um verðbólgu
Seðlabankastjóri telur að það hafi verið „mistök“ af hálfu aðila vinnumarkaðarins að ná ekki saman í haust um að falla frá hinum svonefnda hagvaxtarauka á næsta ári, sem tryggir launafólki hlutdeild í ávinningnum þegar landsframleiðsla á hvern íbúa eykst, en hann mun að óbreyttu virkjast og leiða til enn meiri launahækkana en áður var spáð.

Seðlabankastjóri segir óheppilegt að launafólk fái hagvaxtarauka
Seðlabankastjóri segir óheppilegt að laun hækki næsta vor með svo kölluðum hagvaxtarauka sem samið var um í lífskjarasamningunum. Miklar launahækkanir, hækkun á verði íbúðarhúsnæðis og hrávöru í útlöndum kyndi undir verðbólgunni.

Versnandi verðbólguhorfur
Verðbólguhorfur hafa versnað frá spá Seðlabanka Íslands í ágúst sem reiknar með að hún verði komin upp í 4,7 prósent undir lok þessa árs. Viðvarandi hækkun húsnæðisverðs og launa og verðs á hrávörum í útlöndum eru meginforsendurnar fyrir því að Seðlabankinn hækkaði meginvexti sína í morgun um 0,5 prósentustig.

Spá því að stýrivextir verði hækkaðir um 0,25 prósentustig
Hagfræðideild Landsbankans spáir því að stýrivextir verði hækkaðir um 0,25 prósentustig í næstu viku og fari úr 1,5% í 1,75%. Telur deildin nokkrar líkur á 0,5 prósentustiga hækkun en að hin niðurstaðan verið ofan á.

Spá mestu verðbólgu í níu ár
Hagfræðideild Landsbankans spáir 0,5% hækkun vísitölu neysluverðs milli mánaða og að verðbólga fari úr 4,5% í 5,0% í nóvember. Ársverðbólga hefur ekki mælst svo mikil frá því í júní 2012.

Spá umtalsverðri hækkun verðbólgu í nóvember
Greining Íslandsbanka spáir umtalsverðri hækkun ársverðbólgu og að hún mælist 5,1% í nóvember. Hún hefur ekki mælst svo mikil síðan um mitt ár 2012. Verðbólga mældist 4,5% í október en hækkandi íbúðaverð og innflutt verðbólga eru nú helstu áhrifaþættir þrálátrar verðbólgu.

Bátur dagsins er allur
Bátur dagsins á Subway heyrir nú sögunni til og ekki er lengur hægt að kaupa stakan bát dagsins á sérstöku tilboðsverði. Þess í stað býður samlokurisinn nú upp á svokallaða máltíð dagsins sem inniheldur bát ásamt gosi og meðlæti.

Lyfjabúrið og Lyfja dýrustu apótekin
Ódýrast er að kaupa lyf í apóteki Costco og í Rimaapóteki en dýrast í Lyfjabúrinu og Lyfju. Þetta kemur fram í nýjum verðsamanburði ASÍ, sem kynntur var í gær.

Matvælaverð ekki verið hærra í meira en áratug
Matvælaverð hefur ekki verið hærra á heimsvísu í meira en áratug, að sögn Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO). Verð á matvörum hefur hækkað um yfir 30 prósent á síðastliðnu ári.

Jólasveinninn gæti lent í vandræðum
Jólasveinum er vandi á höndum víða um Evrópu vegna mikilla verðhækkana á leikföngum. Og ekki aðeins er dótið dýrara, heldur er vöruskortur líka farinn að bíta leikfangaverslanir.

Húsnæðisverð hækkaði meira en spár gerðu ráð fyrir
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,59% milli mánaða í október og mælist nú 4,5 prósent. Þetta er mesta verðbólga á árinu frá því í apríl þegar hún mældist 4,6%. Verðbólgan er að miklu leyti til knúin áfram af miklum hækkunum á íbúðaverði að því er kemur fram í Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans.

Bjarni segir verðbólguna ekki komna úr böndunum
Fjármálaráðherra segir verðbólguna ekki farna úr böndunum en hún hélt áfram að aukast í þessum mánuði og mælist nú fjögur komma fimm prósent. Hækkun húsnæðisverðs heldur áfram að drífa verðbólguna áfram en án hennar mælist verðbólgan þrjú prósent á síðustu tólf mánuðum.

Senda Seðlabankanum tóninn og hyggjast sækja hverja einustu krónu
Verkalýðshreyfingin mun ekki veita neinn afslátt í komandi kjaraviðræðum og hyggst sækja hverja einustu viðbótarkrónu sem heimilin hafa greitt í kjölfar vaxtahækkana Seðlabankans.

Twitter bregst við hækkun þriðjudagstilboðsins: „Jæja það er hrun“
Domino‘s á Íslandi hefur hækkað verð á hinu vinsæla þriðjudagstilboði úr þúsund krónum í 1.100 krónur. Tilboðið hefur verið eins konar fasti í skyndibitamenningu landans til fjölda ára, og ráku margir upp stór augu við að sjá það í dag að hið sígilda tilboð hefði runnið sitt skeið.