Ítalski boltinn
191 192 193 194 195 196 197 198 199 … 199 ›
Roma lagði AC Milan Brasilíski kantmaðurinn Alessandro Mancini tryggði Roma óvæntan 1-0 sigur á AC Milan í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Sigurmarkið kom á 81. mínútu þvert gegn gangi leiksins en Milan liðið var mun betri aðilinn í leiknum en fóru illa með fjöldamörg færi sín. Sport 15.1.2006 22:34
Juventus slær 56 ára stigamet Alessandro Del Piero skoraði sigurmark Juventus sem vann Reggina, 1-0 í ítalska fótboltanum í dag en með sigrinum sló liðið 56 ára gamalt stigamet nú þegar deildin er hálfnuð. Juve er með 52 stig, tíu stiga forskot á Inter Milan sem lagði Cagliari 3-2 með tveimur mörkum frá brasilíska sóknarmanninum Adriano. Sport 15.1.2006 17:08
Del Piero markahæsti leikmaður Juventus Framherjinn Allesandro del Piero varð í gærkvöld markahæsti leikmaður í sögu Juventus þegar hann skoraði þrennu í auðveldum 4-1 sigri liðsins á Fiorentina í bikarkeppninni. Sport 11.1.2006 03:16
AC Milan lagði Parma í markaleik AC Milan vann nauman sigur á Parma í kvöldleiknum á Ítalíu í kvöld, en Milanomenn máttu þakka fyrir að fara með sigur af hólmi 4-3, eftir að hafa náð 3-1 forystu í leiknum. Gilardino, Kaka og Shevchenko skoruðu mörk Milan í leiknum og eitt markið var sjálfsmark, en Marchionni skoraði tvö mörk fyrir Parma og Cannavaro eitt. Sport 8.1.2006 21:29
Juventus heldur sínu striki Juventus hefur tíu stiga forskot á toppi ítölsku A-deildarinnar í knattspyrnu eftir leiki dagsins. Juve sigraði Palermo 2-1 í gær, þar sem Adrian Mutu gerði bæði mörk liðsins, en Inter náði aðeins jafntefli gegn Siena í dag og er því tíu stigum á eftir meisturunum. AC Milan er í þriðja sæti deildarinnar og getur komist upp fyrir granna sína með sigri á Parma á San Siro í kvöld. Sport 8.1.2006 18:22
Hættur fasistakveðjum Ítalinn Paolo Di Canio hjá Lazio segist vera hættur fasistakveðjum sínum á knattspyrnuvellinum, en hann var á dögunum sektaður og settur í leikbann vegna þessa. "Ég hugsaði málið yfir jólin og hef ákveðið að setja hagsmuni Lazio framar mínum eigin," sagði Di Canio, en benti á að hann stæði þó fast á pólitískum skoðunum sínum engu að síður. Sport 4.1.2006 18:17
Ég er fasisti, ekki rasisti Hinn umdeildi Paolo di Canio hjá Lazio á Ítalíu heldur áfram að valda fjaðrafoki með fasistakveðjum sínum á knattspyrnuvellinum og hefur verið sektaður og dæmdur í leikbann í kjölfarið. Sjálfur segist hann aðeins vera misskilinn og hefur nú tekið það skýrt fram að hann sé fasisti - ekki rasisti. Sport 26.12.2005 02:50
Juventus varði forskot sitt á toppnum Juventus heldur átta stiga forskoti sínu á toppi ítölsku A-deildarinnar í knattspyrnu eftir leiki gærkvöldsins, en efstu liðin Juventus, AC Milan og Inter unnu öll sannfærandi sigra í gærkvöldi. Sport 22.12.2005 03:19
Fær eins leiks bann fyrir fasistakveðjuna Hinn skrautlegi Paolo di Canio hjá Lazio í ítölsku A-deildinni fær eins leiks bann og 10000 evru sekt fyrir fasistakveðjur sínar í leik með liðinu fyrr í mánuðinum. Þetta tilkynnti aganefnd ítölsku deildarinnar í gær. Sport 20.12.2005 15:10
Mílanóliðin í stuði Mílanóliðin AC og Inter söxuðu á forskot Juventus á toppi ítölsku A-deildarinnar í knattspyrnu í dag, en liðin unnu bæði sannfærandi 4-0 sigra á andstæðingum sínum. Sport 18.12.2005 17:13
Jafnt hjá Lazio og Juventus Lazio og Juventus skildu jöfn 1-1 í ítölsku A-deildinni í gærkvöldi, en Juve hefur engu að síður 11 stiga forskot á helstu keppinauta sína sem eiga leik í dag. Tommaso Rocchi kom heimamönnum yfir í leiknum, en franski framherjinn David Trezeguet jafnaði skömmu síðar fyrir Juve og það varð lokaniðurstaðan. Treviso skaust af botninum með góðum sigri á Lecce, 2-1. Sport 18.12.2005 14:42
Tapaði áfrýjun sinni gegn Chelsea Framherjinn Adrian Mutu tapaði í dag áfrýjun sinni á hendur fyrrum liði sínu Chelsea á Englandi, en hann var rekinn frá félaginu og samningi hans sagt upp í október á síðasta ári, eftir að Rúmeninn varð uppvís að neyslu kókaíns. Sport 16.12.2005 16:53
Heilsaði aftur að hætti fasista Hinn skrautlegi Paolo di Canio hjá Lazio er aftur kominn í fréttirnar á Ítalíu eftir að hann heilsaði áhorfendum að fasistasið með útréttri hendi í leik gegn Livorno um helgina, en hann var fyrir skömmu sektaður um háa fjárhæð fyrir að gera slíkt hið sama þegar hann fagnaði marki. Sport 14.12.2005 15:18
Verður frá út árið Markvörðurinn Gianluigi Buffon hjá Juventus er meiddur og verður frá út árið eftir að hafa meiðst á tá á æfngu. Buffon mun því missa af í það minnsta tveimur leikjum en vonir standa til um að hann verði orðinn klár í slaginn þann 7. janúar þegar Juve sækir Palermo heim. Buffon hefur verið mikið meiddur á þessu tímabili, en hann er einnig ítalskur landsliðsmaður. Sport 14.12.2005 14:55
Við verðum með í baráttunni Roberton Mancini hefur fulla trú á því að lið hans Inter Milan geti veitt AC Milan og Juventus verðuga samkeppni í baráttunni um ítalska meistaratitilinn eftir að lið hans lagði erkifjendur sína í AC í Milanoslagnum í gær, 3-2. Sport 12.12.2005 15:28
Juventus í 10 stiga forystu Juventus náði í dag 10 stiga forystu á toppi ítölsku A-deildarinnar í fótbolta þegar liðið valtaði yfir Cagliari, 4-0. David Trezeguet skoraði tvö mörk fyrir Juve og Pavel Nedved eitt en fjórða markið var sjálfsmark. 7 leikjum er lokið í Serie A í dag. Sport 11.12.2005 16:26
Del Piero jafnaði markamet Juve Framherjinn Allesandro Del Piero jafnaði í gær markamet Giampiero Boniperti hjá Juventus í gær þegar hann skoraði tvö mörk fyrir félagið í meistaradeildinni í 3-1 sigri á Rapid Vín. Þessi mikli markahrókur hefur því skorað 182 mörk fyrir félagið í öllum keppnum. Sport 8.12.2005 17:11
Albertini leggur skóna á hilluna Miðjumaðurinn ítalski Demetrio Albertini hefur tilkynnt að hann sé hættur að leika sem atvinnumaður eftir langan og glæsilegan feril og ætlar að einbeita sér að því að þjálfa á næstunni. Albertini á að baki glæstan feril með ítalska landsliðinu og AC Milan, þar sem hann gerði garðinn frægan á síðasta áratug. Sport 5.12.2005 17:02
Stórsigur Fiorentina á Milan Fiorentina skaust í annað sæti ítölsku A deildarinnar í dag, þegar liðið vann stórsigur á AC Milan, 3-1. Ítalski landsliðsmaðurinn Luca Toni skoraði tvö marka Fiorentina, sem er í öðru sætinu ásamt Milan eftir sigurinn. Juventus hefur enn fimm stiga forskot í deildinni eftir sannfærandi 4-1 sigur á Roma í gær. Sport 20.11.2005 18:55
Arsenal hafði ekki nógu mikinn áhuga Patrick Vieira miðjumaður Juventus á Ítalíu segir í nýútkominni ævisögu sinni að áhugaleysi Arsenal á að hafa sig áfram, hafi verið þess valdandi að hann yfirgaf félagið í sumar. Vieira segir að það hafi verið orð varastjórnarformanns Arsenal, David Dean, sem hröktu hann til Ítalíu. Sport 13.11.2005 20:00
Juventus heldur toppsætinu Efstu liðin á Ítalíu unnu auðvelda sigra í gær og því er staðan á toppnum í A-deildinni óbreytt eftir leiki helgarinnar. Juventus vann Livorno 3-0 og AC Milan tók Udinese í kennslustund 5-1. Sport 7.11.2005 03:07
Fyrsta tap Juventus AC Milan skellti Juventus, 3-1, í risaslag ítalska fótboltans í gærkvöldi en leikið var á San Siro í Milano. Clarence Seedorf, Kaka og Andrea Pirlo skoruðu fyrir Milan í fyrri hálfleik en David Trezeguet minnkaði muninn fyrir Juve stundarfjórðungi fyrir leikslok. Þetta var fyrsta tap Juve á tímabilinu en þeir höfðu unnið alla níu leiki sína fyrir leikinn. Sport 30.10.2005 13:27
Juventus setti met Juventus hefur enn fimm stiga forystu á toppi ítölsku A-deildarinnar eftir 2-0 sigur á Sampdoria í gærkvöldi, sem var jafnframt níundi sigurleikur liðsins í röð í upphafi leiktíðar, sem er nýtt met í A-deildinni. Sport 27.10.2005 03:20
Rómverjar sektaðir Knattspyrnulið Roma hefur verið sektað um 25.000 evrur eftir að stuðningsmenn liðsins köstuðu smápeningi í höfuðið á dómaranum í grannaslag Roma og Lazio um helgina. Því miður eru atburðir sem þessi tíðir á Ólympíuleikvanginum í Róm, en stuðningsmenn liðanna beggja eru þekktir fyrir að vera ansi heitir. Sport 26.10.2005 04:02
Ítalía: Kýldi vallarstarfsmann Alessandro Del Piero skoraði eina mark Juventus sem heldur áfram ótrauðri sigurgöngu sinni í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta með 1-0 sigri á Messina í gærkvöldi. Juve er nú með fullt hús stiga að loknum 7 umferðum. Í hinum leik gærkvöldsins tapaði Siena fyrir Udinese, 2-3 í leik þar sem afar sjaldgæf sjón varð fyrir augum áhorfenda. Sport 23.10.2005 15:04
Inter í 2. sætið á Ítalíu Inter Milan lyfti sér upp í 2. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag með stórsigri á Livorno, 5-0. Inter er 6 stigum á eftir toppliði Juventus sem er með fullt hús stiga eftir 7 umferðir. Fiorentina sem var jafnt AC Milan í 2. sæti fyrir umferðina mistókst að saxa á forskot Juve þar sem liðið tapaði fyrir Lazio, 1-0 í dag. Sport 23.10.2005 15:05
Juventus í 5 stiga forystu Juventus náði 5 stiga forystu á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld með 2-0 sigri á Inter Milan. David Trezeguet og Pavel Nedved skoruðu mörk Juve sem er með 18 stig eða fullt húst stiga eftir 6 umferðir í Serie A. AC Milan og Fiorentina koma næst með 13 stig í öðru og þriðja sæti. Sport 23.10.2005 15:01
Maldini skoraði tvö fyrir AC Milan Sjálfur varnarmaðurinn og fyrirliðinn Paolo Maldini var hetja AC Milan í dag þegar hann skoraði bæði mörk sinna manna í 2-1 sigri á Reggina. Með sigrinum lyfti liðið sér í 2. sæti Serie A í fótbolta á Ítalíu og er með 13 stig, tveimur stigum á eftir toppliði Juventus sem á leik inni gegn Inter Milan í kvöld. Sport 23.10.2005 15:01
Þjálfari Lecce rekinn Ítalska fótboltaliðið Lecce rak í morgun knattspyrnustjórann sinn, Angelo Grugucci. Gregucci var ráðinn til félagsins í sumar þegar hann tók við af Tékkanum Zdenek Zeman. Undir stjórn Gregucci lék Lecce fimm leiki og tapaði fjórum þeirra. Sport 23.10.2005 15:00
Adriano semur við Inter Brasilíski framherjinn Adriano hefur framlengt samning sinn við Inter Milan á Ítalíu um tvö ár og verður því samningsbundinn félaginu til ársins 2010. Adriano nýtti sér með þessu framlengingarákvæði sem var í samningnum hans sem hann undirritaði í fyrra eftir að hann kom til Inter frá Parma. Sport 23.10.2005 14:59