
Stéttarfélög

Segjast ekkert tengjast meintu gervistéttarfélagi
Efling hefur sakað atvinnurekendafélagið SVEIT um að reka „gervistéttarfélag“. Formaður Eflingar segir að ráðist sé að öllum mikilvægustu réttindum fólks á vinnumarkaði. SVEIT vísar ásökunum Eflingar á bug.

Vara við „gervistéttarfélagi“ og „svikamyllu“
Stéttarfélagið Efling hefur sent frá sér tilkynningu þar sem varað er við félaginu Virðingu, sem sagt er „gervistéttarfélag“. Félagið sé raunar svikamylla, rekin af atvinnurekendum í því skyni að skerða laun og réttindi starfsfólks.

Ragnar Þór hættur hjá VR og Halla tekin við
Ragnar Þór Ingólfsson hefur tilkynnt afsögn sína sem formaður VR. Hann var sem kunnugt er kjörinn á Alþingi á laugardag. Halla Gunnarsdóttir, varaformaður, tekur þegar við starfinu ef honum.

Félag áhugamanna um löggæslu
Lögreglumenn eru búnir að vera kjarasamningslausir í 8 mánuði, þeir felldu kjarasamning í júní með miklum meirihluta. Lögreglumenn hafa ekki haft verkfallsrétt síðan 1986.

Kennaraverkfalli frestað
Verkfalli kennara hefur verið frestað um tvo mánuði. Innanhússtillaga Ríkissáttasemjara þess efnis var samþykkt um klukkan 15.

Fákeppni og almannahagsmunir
Almenningur á Íslandi hefur lengi mátt þola fákeppni og afleiðingarnar eru flestum kunnar. Hér á landi er tæpast unnt að tala um eðlilega samkeppni á mörgum grunnsviðum samfélagsins; við nefnum hér rekstur matvöruverslana, bankaþjónustu, tryggingar og eldsneytisverð.

Ekki rétt að nefndin hafi boðað aukafund til að hækka vexti
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur aldrei komið saman á sérstökum aukafundi til þess að hækka stýrivexti. Forseti ASÍ hélt hinu gagnstæða fram í dag.

Fóturinn tekinn af vegna tannpínu
Eftir því sem stjórnmálaflokkarnir sýna meira á spilin í aðdraganda Alþingiskosninga er erfitt að verjast þeirri hugsun að þjóðin hafi leitað til læknis með svæsna tannpínu og áformað sé að takast á við það með því að höggva af henni fótinn.

Barátta í áratugi fyrir auknu starfsnámi
Árin mín í stéttarfélagsstörfum voru um margt merkileg en þar voru til staðar angar af stuttu starfsnámi sem í minni tíð var síðan eflt og sífellt bætt ofan á. Þegar síðan 5 stéttarfélög sameinuðust 1998 -1999 þá kom í minn hlut að leiða starfsmenntun innan hins nýja stéttarfélags, Eflingar. Búnar voru til ótal nýjar stuttar starfsmenntabrautir sem unnið var að í samvinnu við vinnuveitendur og svo sveitafélögin. Síðar komu svo starfsgreinaráðin sem ætlað var að þróa eftir þörfum námsleiðir á framhaldsskólastigi. Þar hófst nýr kafli og merkilegur því sótt var til Norðurlanda um reynslu og gekk það vel.

Húsnæðiskreppan krefst lausna ekki umræðu
Það er óhætt að segja að það ríki neyðarástand á húsnæðismarkaði. Vaxandi fjöldi heimila er að sligast undan vaxtakostnaði og þúsundir leigjenda eru á biðlistum eftir íbúð hjá óhagnaðardrifnum leigufélögum til að flýja íþyngjandi leiguverð.

Hjúkrunarfræðingar samþykktu samning
Nýr kjarasamningur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga við ríkið hefur verið samþykktur í atkvæðagreiðslu.

Kennarasambandið sýni kennurum „alvarlega lítilsvirðingu“
Formaður samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga segir Kennarasambandið gera lítið úr verkfallsrétti félagsmanna með nýjasta útspili sínu. Kennarasambandið tilkynnti í gær að það væri reiðubúið að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum.

Menntun og tækifæri: Hvað veljum við fyrir Ísland?
Í næstu viku fáum við tækifæri til að móta framtíðina. Þetta er stund til að íhuga hvað skiptir raunverulegu máli fyrir samfélag okkar, bæði í dag og til lengri tíma.

Samfélag á krossgötum
Framan af í kosningabaráttunni snerist umræðan einkum um efnahagsmálin og því ákváðum við hjá ASÍ og BSRB að efna til kosningafundar með forystufólki stjórnmálaflokkanna í vikunni til að ræða áherslur þeirra varðandi húsnæðismál, verð á matvöru, félagslegum innviðum á borð við heilbrigðis- og menntakerfi og jöfnuð.

Hvar eru frambjóðendurnir?
Að undanförnu hefur verið fjallað um þá alvarlegu stöðu sem blasir við háskólamenntuðum á landinu. Í dag hafa stéttarfélög þúsunda háskólamenntaðra starfsmanna og hið opinbera enn ekki náð samningum sín á milli.

Bein útsending: Samfélag á krossgötum
ASÍ og BSRB taka á móti formönnum flokka í framboði til alþingiskosninga á opnum fundi á Hilton Nordica milli klukkan 17 og 19 í dag. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi í spilaranum að neðan.

„Einkennilegt að vera með örhóp í verkfalli“
Jón Pétur Zimsen, aðstoðarskólastjóri Réttarholtsskóla og frambjóðandi á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, segir einkennilegt að kennarar velji að vera með „örhóp“ í verkfalli nema að markmiðið sé að draga deiluna á langinn.

Hjúkrunarfræðingar hafa skrifað undir samning
Félag hjúkrunarfræðinga skrifaði undir kjarasamning við íslenska ríkið í húsakynnum Ríkissáttasemjara upp úr klukkan 14 í dag.

Bjarni segir vinnumarkaðslöggjöfina vera í „ákveðnum ógöngum“
Umbætur á vinnumarkaðsmódelinu myndu leiða af sér stöðugleika í ríkisfjármálunum, að sögn framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Forsætisráðherra telur of langt gengið þegar stéttarfélög geta tekið einstaka vinnustaði „í gíslingu“ og vill sjá breytingar á valdheimildum ríkissáttasemjara á meðan formaður Samfylkingarinnar er opin fyrir skrefum í þá átt í sátt við verkalýðshreyfinguna.

Þarf að auka valdheimildir ríkissáttasemjara til að grípa inn í vinnudeilur
Til að styrkja þjóðhagslega ábyrgð við gerð kjarasamninga væri réttast að breyta lögum þannig að ríkissáttasemjari geti komið fram með miðlunartillögu án samþykkis frá forystufólki launaþegahreyfingar, að mati hagfræðiprófessors og forstöðumanns Hagfræðistofnunar. Þeir leggja sömuleiðis til, líkt og gert er á hinum Norðurlöndunum, að miða launasetningu við afkomu útflutningsgreina til að koma í veg fyrir kjarasamninga sem ýta undir verðbólgu.

Máttu ekki hvetja hlunnfarið starfsfólk til að hætta
Matvæla- og veitingafélag Íslands, Matvís, hefur verið dæmt skaðabótaskylt vegna eftirlitsheimsóknar á veitingastaðinn Flame í Reykjavík. Fulltrúar stéttarfélagsins bökuðu eigendum staðarins tjón með því að fá starfsfólk staðarins til að hætta í vinnunni. Þó er talið sannað að starfsfólkinu hafi ekki verið greidd laun í samræmi við lög.

Halla sinnir störfum formanns VR
Halla Gunnarsdóttir, varaformaður VR, mun sinna störfum formanns VR, á meðan Ragnar Þór Ingólfsson formaður verður í leyfi frá störfum næstu vikurnar.

Fer í leyfi sem formaður VR
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, mun taka sér tímabundið leyfi frá störfum sem formaður fram að alþingiskosningum þann 30. nóvember en hann mun funda með stjórn VR á morgun til að tilkynna ákvörðun sína.

Skorið úr um lögmæti verkfalla í fyrramálið
Félagsdómur kveður upp dóm í máli Sambands íslenskra sveitarfélaga á hendur Kennarasambandi Íslands í fyrramálið. SÍS telur verkfallsboðun kennara ólögmæta og ákvað að láta reyna á lögmæti þeirra fyrir félagsdómi.

Ekki heppilegt ef verkalýðshreyfingin tæmist inn á Alþingi
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í framboð til Alþingis að þessu sinni. Komið hafi verið að máli við hann, eins og raunar fyrir allar alþingiskosningar síðasta áratuginn, en hann hafi ákveðið eftir langa yfirlegu að kröftum hans sé betur varið í verkalýðshreyfingunni.

Ragnar Þór býr sig undir harða baráttu
„Lygari, óheiðarlegur, skrifar falsfréttir, hræsnari, popúlisti, lýðskrumari, dóni, stundar hatursorðræðu og kvenfyrirlitningu, brennuvargur og ofbeldismaður.“

„Hræsnin á sér engin takmörk“
Elva Hrönn Hjartardóttir, sem tapaði formannsslag VR í fyrra fyrir Ragnari Þór Ingólfssyni, furðar sig á ákvörðun hans að halda áfram sem formaður á meðan hann fer í framboð fyrir Flokk fólksins. Hún telur siðlaust að halda því fram að framboðið hafi ekki áhrif á stöðu hans sem formanns.

Það er komið nóg
Síðustu þrjá daga tók ég þátt í Así þingi fyrir hönd Eflingar. Þar var rætt um málefni tengd ástandinu í landinu. Þetta voru yndislegir þrír dagar - fullir af samtölum, rökræðum og umræðum.

„Þetta er einhver leikur sem menn ákváðu að spila“
Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir stefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga á hendur Kennarasambandsins ekki munu hafa áhrif á boðuð verkföll kennara.

Útilokar ekkert en mundar tuskuna gegn smjörklípunum
„Ég bíð við símann og fylgist með í gegnum dyrabjölluna heima,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR og Bjargs íbúðafélags, í léttum dúr þegar hann er inntur eftir því hvort hann vonist til að lenda á uppstilltum lista fyrir þingkosningarnar.